Morgunblaðið - 16.06.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.06.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 FOSTUDAGUR 16. JÚNÍ BLAD GOLF Keuter Kvennalandsliðið tapaði fyrir liði Portúgals ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu er um þessar mundir í Portúgal þar sem það leikur tvo vináttuleiki gegn heimamönnum. I gærkvöldi var fyrri leikurinn og unnu heimamenn 2:1. Portúgal- ar höfðu yfir 2:0 í leikhléi en Guðrún Sæmunds- dóttir minnkaði muninn með marki úr auka- spyrnu eftir hlé. Síðari leikurinn er á laugardag- inn. í byijunarlið voru: Sigfríður Sophusdóttir, Guðrún Sæmundsdóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Auður Skúladóttir, Ragna Lóa Stefánsdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Ásthildur Helgadóttir, Helga Hannesdóttir, Sigrún Óttars- dóttir og Olga Færseth. Varamennvoru: Sigríður Pálsdóttir, Jónína Víglundsdóttir, Ásgerður Ingi- bergsdóttir, Hjördís Símonardóttir og Katrín Jónsdóttir. Pat Riley hættir að þjálfa New York PAT at Riley sagði upp sem þjálfari körfuboltal- iðs New York Knicks í gær vegna lélegs árang- urs liðsins í NBA-deildinni á nýliðnu timabOi og lætur af störfum 15. júlí. Forseti Knicks, Dave Checketts, vildi gera fímm ára samning við Riley og greiða honum 980 miiy. kr. fyrir svo fram- arlega sem samið yrði áður en liðið færi í æfínga- búðir fyrir næsta tímabil. En dæmið gekk ekki upp. ROey náði góðum árangri með Knicks, vann austurdeOdin þrívegis en aldrei gekk betur en 1993-1994 þegar liðið komst í úrslit en tapaði fyrir Houston í sjö leikjum. Stefnan alltaf verið að þjálfa úrvalsdeildarlið JÓN Guðmundsson, fyrrum liðsstjóri úrvalsdeOd- arliðs Keflvíkur, hefur gert munnlegt samkomu- lag við Þórsara frá Akureyri um að þjálfa körfu- knattleiksliðið og verður samningurinn að öllum líkindum til tveggja ára. Hann tekur við af Hrann- ari Hólm, sem fór tO Njarðvíkinga. Jón hefur þjálfað ýmsa flokka hjá Keflvíking- um; fyrst yngri flokka í fímm ár og hefur síðan verið liðsstjóri úrvalsdeildarliðs félagsins undan- farin 5 ár, en mun aðeins þjálfa úrvaisdeOdarlið Þórs. Hann telur að nú sé timi tO kominn að breyta tíl hjá sér. „Þórsarar höfðu samband við mig og ég ákvað að slá til, enda tel ég mig tílbú- inn í starfið og stefnan hefur alltaf verið að þjálfa úrvalsdeildarlið. Það er skrýtið að fara frá Kefla- vík og eflaust skrýtin tilfínning þegar við spOum við það, en verkefnið er spennandi." Akureyringar ætla sér að ná langt í körfubolt- anum næsta vetur og munu reyna að styrkja lið sitt. Jón segir að enn sé ekki búið að sertya við neina innlenda leikmenn en hann sé einnig að leita að erlendum leikmanni, þar sem Sandy Anderson mun ekld verða með. „Eg hef skoðað mörg mynd- bönd og líst vel á. Fleiri myndbönd eru á leiðinni °g ég gef mér góðan tíma, því vanda verður val- ið,“ sagði Jón sem flytur norður í júlí. ALÞJÓÐA ÓLYMPÍUNEFNDIN * Dagar Samaranch sem fórseta IOC taldir - í bili JUAN Antonio Samaranch, forseti Alþjóða ólympíunefndarinn- ar, (IOC), beið ósigur í atkvæðagreiðlu á fundi IOC í Búdapest í gær, þegar andstæðingum hans tókst að fella tilllögu um að aflétta aldurstakmörkunum í nefndina en það hefði að öll- um líkindum tryggt setu Samaranch næstu árin. Nick Price er efstur á Opna bandaríska NICK Price frá Zimbabwe er efstur á Opna bandaríska meist- aramótinu í golfi sem hófst á Shinnecock Hills vellinum í Sout- hampton í New York í gær, er á 66 höggum. Völlurinn, sem er par 70, var mjúkur eftir þriggja daga rigningar, sem gerði það að verkum að skot inná flöt tók- ust vel en að sama skapi rann boltinn ekki vel á brautunum svo að menn þurftu að grípa til járn- ana í löngu skotin. Aðstæður virt- ust henta Price vel og á mynd- inni slær hann upp úr glompu við þriðju flöt. Samaraneh, sem sjálfur tók þátt í að setja aldurstak- mörkin á, verður 75 ára í júlí og kjörtímabil hans endar árið 1997 en vitað er um áhuga hans á að sitja fram yfir Ólympíuleikana í Sidney í Ástralíu árið 2000 og leiða þar með ólympíuhreyfinguna inn í næstu öld. Fyrr um daginn samþykkti fundurinn með 62 atkvæðum gegn 27 að taka fyrir tillögu Samaranch um að kjósa um 3 tillögur sem allar lutu að því að halda Samar- anch í stólnum. Þær voru að af- létta algerlega aldurstakmörkun- um, hækka þau úr 75 í 78 ár eða aflétta aðeins aldurstakmörkum forseta IOC. Síðar um daginn völdu þeir að kjósa um að fella aldurstakmörkin niður og sú til- laga féll í leynilegri atkvæða- greiðslu þar sem munaði 2 atkvæð- um en tvo þriðju atkvæða þurfti til. Niðurstaðan þykir mikill per- sónulegur ósigur fyrir Samaranch • sem aukið hefur hag nefndarinnar gífurlega í forsetatíð sinni. En einnig þykir undarlegt að meðlimir nefndarinnar, sem talin er besta leynifélag í heimi, skyldu um leið henda sjálfum sér út. Hinsvegar er Samaranch ekki þekktur fyrir að láta í minni pokann og ekki er öll nótt úti enn því annar fundur verður haldinn að ári. KNATTSPYRNA: FYRSTISIGUR FRAM í 1. DEILD í SUMAR / C4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.