Morgunblaðið - 16.06.1995, Síða 4

Morgunblaðið - 16.06.1995, Síða 4
mm Mikilvægur sigur hjá Fram Morgunblaðið/Golli RATISLAV Lazorik og Kristján Jónsson kljðst um boltann í lelknum í gær. Magnús Jónsson þjálfarl Fram, og fyrrum aðstoðarþjálfari hjá Blikum, var að vonum ánægður með sigurinn. Ekki upp á marga fiska í Keflavík „ÞETTA var mjög mikilvægur sigur fyrir okkur og ég er ánægður og tel okkur á réttri leið,“ sagði Magnús Jónsson þjálfari Fram eftir að lið hans hafði sigrað Breiðablik 1:0 í fjórðu umferð 1. deildar. Þetta var fyrsti sigur Fram, og má segja að heppnin hafi verið fylgifiskur liðsins að þessu sinni því Blikar áttu að minnsta kosti annað stigið skilið. Leikurinn var ekki vel leikinn, en þó sáust nokkrir ágætir kaflar. Atli Einarsson fékk fyrsta færi leiks- mp ins eftir 20 mínútur, Skúli Unnar og frekar tvö en eitt. Sveinsson Fyrst var varið frá skrífar honum og svo hitti hann ekki boltann. Þetta var eina færi Fram í fyrri hálf- leik en Blikar fengu fjögur færi og skoruðu úr einu, en dæmd var rang- stæða, sem virtist vægast sagt vafa- söm. Blikar voru heldur sprækari síðari hluta fyrri hálfleiks en jafnræði var framan af leiknum. Magnús gerði breytingar í leikhléi, Pétur Marteins- son fór af leikvelli, enda veikur, og Valur Fannar Gíslason fór í vömina í hans stað. Nökkvi Sveinsson kom inná og fór á miðjuna og Þorbjöm Atli færði sig framar þannig að þrír voru í sókninni. Við þetta urðu mikl- ar breytingar á Ieik Fram, Nökkvi vann vel á miðjunni og vöm Fram virkaði traustari. „Pétur var veikur og þess vegna varð ég að taka hann útaf. Mér fannst við leika betri bolta í fyrri hálfleik en þeim síðari, en það varð hugarfarsbreyting hjá okkur og það skilaði sér í betra spili,“ sagði Magnús. Hvort lið fékk þijú umtalsverð marktækifæri í síðari hálfleik, Fram- arar fyrstu þrjú og skoraðu úr einu, því síðasta, og Blikar næstu þijú en tókst ekki að skora. Besta færið fékk Þórhallur Hinriksson er hann fékk fallega sendingu frá Arnari Grétars- syni inn fyrir vöm Fram. Birkir hik- aði og bakkaði svo í stað þess að koma út fyrir teiginn og sparka frá. Þórhallur komst einn gegn honun en Birkir gerði vel að veija skot hans. Bæði lið eiga að geta leikið miklu betur, alla vega þannig að boltinn gangi oftar en tvisvar milli sam- heija. Birkir stóð fyrir sínu í mark- inu, Valur Fannar var traustur, sér- staklega í síðari hálfleik, Þorbjörn Atli var sprækur, Ríkharður dugleg- ur og Nökkvi hleypti lífi og fjöri í leik liðsins. Hjá Blikum stóð Card- aklija sig vel, en markið var klaufa- legt, Kjartan er ungur og bráðefni- legur og stóð sig vel ásamt Gústafi í vöminni. Amar var ágætur, en hafði sig of lítið í frammi í sókninni í fyrri hálfleik og Antony Karl vann vel frammi. 1a Framarar fengu ■ Waukaspyrnu á 67. mínútu, utan við miðjan vítateig Blika, tæplega 25 metra frá marki. Atli Helgason og Rík- haröur Daðason stóðu yfir boltanum. Ríkharður spyrnti knettinum í gegnum vamar- vegginn og beint í fang Card- akiija markvarðar, sem hálf- greip knöttinn en missti hann síðan klaufalega inn fyrir markl- ínuna. ÞAÐ var rislitill leikur sem leikmenn Keflavíkur og ÍBV buðu um 600 áhorfendum upp á í Keflvík í gærkvöldi og er til efs að áhorf- endum hafi verið boðið upp á lakari leik á þessu vori. Mestan hluta leiksins gekk boltinn á milli liðanna sitt á hvað án þess að vitrænn leikur væri sýnilegur og marktækifæri voru sárafá. Keflvíkingar skoruðu eina mark leiksins ífyrri hálfleik og gerðu Eyjamenn fátt til þess að ógna sigri þeirra. Eins og í leiknum gegn Val í þriðju umferð hófu leikmenn Keflavíkur leikinn af krafti, gerðu nokkurn usla í vöm ÍBV og voru nálægt því að skora í tví- eða þrígang á fyrstu tíu mínútunum. Síð- an leystist leikurinn meira og minna upp í háloftaspyrnur. Leikmenn sendu liða á milli og oft á tíðum leit út fyrir að leikurinn væri í ein- hverri neðri deild. Eyjamenn léku ómarkvissan sóknarleik og miðju- mennirnir voru mjög staðir. Kefl- víkingar sem stilltu upp liði sínu með þremur sóknarmönnum tókst ekki að fylgja því eftir vegna þess hversu miðjumenn þeirra voru áhugalausir. Þeir sem vonuðu að heldur myndi hýrna yfir leiknum í síðari hálfleik eftir að þjálfarar liðanna höfðu messað yfir leikmönnum í hálfleik urðu eflaust fyrir vonbrigðum. Marktækifæri voru fá og hægt að telja þau á fingram annarrar hand- ar og allt hungur vantaði. Ef eitt- hvað var vérsnaði leikurinn frekar en hitt. Eyjamenn reyndu að byggja upp pressu en það var meira af vilja en mætti. Rútur Snorrason átti langskot yfír mark Keflavíkur á 63. mínútu og var það eina veru- lega ógnun við Ólaf og Keflavíkur- markið. Keflvíkingar fengu eitt færi sem talist gat hættulegt og það var þegar Ragnar Margeirsson lék í gegnum vörn ÍBV á 76. mín., sendi á Óla Þór sem framlengdi á Róbert Sigurðsson og hann skaut fast að markinu frá markteig, en Friðrik Friðriksson varði snilldar- lega í marki ÍBV. •' Keflvíkingar geta hrósað happi með þennan sigur því þeir léku illa, en happ þeirra var að andstæðing- urinn var alveg út á þekju. Þvi voru þessi stig mjög ódýrt fengin en eflaust þeim mun dýrmætari. Óskandi er hins vegar að bæði lið hafi nú tekið út lélega leikinn sinn í sumar og þau veiti sjálfum sér og áhorfendum meiri skemmtun í næstu umferðum. Vert er fyrir Eyjamenn að hafa áhyggjur því leikgleði og vilja vantar til betri verka meðal leikmanna. 1a^%Kjartan Einarsson ■ %#tók aukaspymu fyrir Keflavík á 28. mínútu vinstra megin á miðjum vallarhelmingi ÍBV. Hann sendi lága og fasta sendingu inn í miðjan vitateig ÍBV þar sem Marko Tanasic var einn og óvaldaður og skall- aði í fjærhomið framhjá Friðriki Friðrikssyni markverði ÍBV. ivar Benediktsson skrilar KNATTSPYRNA Fram - Breiðablik 1:0 Laugardalsvöllur, íslandsmótið í knatt- spyrnu, 4. umferð í 1. deild karla, fimmtu- daginn 15. júní 1995. Aðstæður: Logn, þungbúið og niu gráðu hiti. Laugardalsvöllur ljótur. Mark Fram: Ríkharður Daðason (67.). Gult spjald: Framararnir Valur Fannar Gíslason (72.) og Ágúst Ólafsson (89.) báð- ir fyrir brot. Blikamir Kjartan Antonsson (41.), Ásgeir Halldórsson (55.) og Willum Þór Þórsson (75.) allir fyrir brot. Rautt spjald: Enginn. Áhorfendur: 713. Dómari: Gísli Guðmundsson. Góður. Línuverðir: Egill Már Markússon og Sig- urður Friðjónsson. Fram: Birkir Kristinsson - Ágúst Ólafsson, Pétur H. Marteinsson (Nökkvi Sveinsson 46.), Kristján Jónsson, Gauti Laxdal - Þor- björn Atli Sveinsson, Valur Fannar Gísla- son, Atli Helgason, Steinar Guðgeirsson (Hólmsteinn Jónasson 76.) - Atli Einarsson (Haukur Pálmason 90.), Ríkharður Daða- son. Breiðablik: Haijudin Cardaklija - Ásgeir Halldórsson, Kjartan Antonsson, Gústaf Ómarsson - Ulfar Óttarsson (Arnaldur Loftsson 88.), Willum Þór Þórsson, Arnar Grétarsson, Gunnlaugur Einarsson (Guð- mundur Guðmundsson 68.), Jón Þ. Stefáns- son (Þórhallur Hinriksson 74.) - Antony Karl Gregory, Rastislav Lazorik. Keflavík - ÍBV 1:0 Keflavík: Aðstæður: Andvari í upphafi leiks og orðið logn undir leikslok, 6 gráðu hiti. Völlurinn all þokkalegur. Mark Keflavíkur: Marko Tanasic (28.). Gult spjald: Róbert Sigurðsson, Keflavík (59.) - fyrir brot, Jón Bragi Amarson, ÍBV (66.) - fyrir að veijast með hendi, Ragnar Margeirsson (70.) - fyrir að vera of nálægt andstæðingi þegar aukaspyma var fram- kvæmd. Rautt spjald: Enginn Dómari: Sæmundur Vfglundsson átti góðan leik. Línuverðir: Guðmundur J. Jónsson og Kristinn Jakobsson og stóðu þeir sig einnig með prýði. Áhorfendur: 600. Keflavík: Ólafur Gottskálksson - Kristinn Guðbrandsson, Karl Finnbogason, Hjálmar Hallgrfmsson, Helgi Björgvinsson - Róbert Sigurðsson, Eysteinn Hauksson, Marko Tanasic - Kjartan Einarsson, (Sverrir Sverr- isson 71.), Oli Þór Magnússon, (Guðmundur Oddsson 89.), Ragnar Margeirsson, (Unnar Sigurðsson 86.). ÍBV: Friðrik Friðriksson - Friðrik Sæbjöms- son, Dragan Monoljovic, Jón Bragi Ámar- son, Hermann Hreiðarsson - Rútur Snorra- son, ívar Bjarklind, (Bjarnólfur Lárusson 45.), Ingi Sigurðsson, Steingrímur Jóhann- esson, (Kristján Georgsson 86.) - Leifur Geir Hafsteinsson, Tryggvi Guðmundsson, (Þórir Ólafsson 69.). Fj. leikja u j T Mörk Stig IA 4 4 0 0 8: 1 12 KR 4 3 0 1 7: 4 9 KEFLAVIK 4 2 1 1 3: 2 7 FH 4 2 0 2 6: 6 6 BREIÐABLIK 4 2 0 2 5: 6 6 IBV 4 1 1 2 10: 5 4 FRAM 4 1 1 2 2: 7 4 VALUR 4 1 1 2 5: 12 4 LEIFTUR 4 1 0 3 7: 7 3 GRINDAVIK 4 1 0 3 5: 8 3 Birkir Kristinsson, Valur Fannar Gíslason, Þorbjöm Atli Sveinsson, Ríkharður Daðason og Nökkvi Sveinsson, Fram. Kjartan Ant- onsson, Gústaf Ómarsson, Amar Grétars- son og Anthony Karl Gregory, Breiða- bliki.Friðrik Friðriksson, Friðrik Sæbjörns- son, Dragan Monoljovic, Rútur Snorrason, ÍBV. Ólafur Gottskálksson, Róbert Sigurðs- son, Marko Tanasic, Kristinn Guðbrands- son, Kjartan Einarsson, ÍBV. Bikarkeppni kvenna Dalvfk - Leiftur..................1:3 3. deild Völsungur- BÍ.....................1:1 Ásgeir Baldursson - Rúnar Geir Guðmunds- son. 4. deild Grótta-ÍH.........................4:2 Njarðvík - Reynir S...............2:3 Hvöt - Neisti H................. 6:0 Magni-KS..........................2:4 SM - Þrymur.......................9:0 GG - Léttir.......................3:4 KBS - Neisti D....................5:2 Sindri - KVA......................2:1 Smástund - Ökkli..............frestað HM kvenna - undanúrslit: Noregur - Bandaríkin..............1:0 Ann Kristin Aarones (11.). 2.893. Þýskaland - Kina..................1:0 Bettina Wiegmann (79.). 3.629 ■Það verða því Þýskaland og Noregur sem leika til úrslita.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.