Morgunblaðið - 20.06.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANIMA
I
Morgunblaðið/RAX
Gudmundur með þrennu
KR-INGURINN Guðmundur Benedlktsson hefur ekkert leikið síðan í byrjun
maí vegna melðsla en byrjaðl vel í fyrrakvöld, var með þrennu og lagði upp
eitt mark þegar KR hóf blkarvörnlna gegn Víði í Garði en bíkarmeistararnir
unnu 5:0 í 32 liða-úrslitum keppninnar. Mlhajlo Blberclc, tll hægrl, gerði eitt
mark eftir sendíngu frá Guðmundi og hér fagna félagarnir marklnu.
■ Úrslit / B6
1995
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ
BLAD
Bergkamp
til Arsenal
Arsenal er að ganga frá kaupum
á hollenska landsliðsmannin-
um Dennis Bergkamp, 27 ára, frá
Inter Mílanó. Bergkamp á aðeins
eftir að skrifa undir samning við
Arsenal, sem mun borga Inter 7
millj. punda fyrir hann. Inter keypti
þennan snjalla sóknarleikmann frá
Ajax fyrir 12 millj. punda fyrir
tveimur árum. Bergkamp mun verða
launahæsti leikmaðurinn í ensku
úrvalsdeildinni — fær 4,5 millj. pund
fyrir þriggja ára samning, 25 þús.
pund í vikulaun, sem er um 2,5 millj.
ísl. kr.
Bergkamp fór til Inter frá Ajax
ásamt Wim Jonk, sem nú hefur
gengið til liðs við PSV Eindhoven.
Þess má tii gamans geta að for-
eldrar Dennis skýrðu hann eftir
uppáhaldsleikmanni sínum, Denis
Law hjá Manchester United, en þeim
urðu á ein mistök þegar hann var
skirður, að það er aðeins eitt n í
nafni Denis Law.
Forráðamenn Inter halda í dag til
Englands til að ganga frá sölunni
til Arsenal og um leið ganga þeir
frá kaupum Paul Ince frá Manchest-
er United á 6,5 millj. pund.
Vésteinn
kastaði
63,14 m
VÉSTEINN Hafsteinsson sigraði í
kringlukasti á móti í Svíþjóð á
sunnudaginn og náði um leið
lengsta kasti sinu á árinu, 63,14
metrar. Annar varð Svíinn Dal Sol-
haug, kastaði 61,56 metra. Olaf
Jensen frá Noregi hafnaði í þriðja
sæti með 61,06 metra og besti
kringlukastari Dana, Jan Cordius
varð að gera sér fjórða sætið að
góðu, kastaði 57,58 metra. Vé-
steinn keppti einnig í Svíþjóð á laug-
ardaginn á móti sem kallast Discu-
perlan. Þar varð hann þriðji með
kast upp á 60,40 metra. Þá sigraði
Norðmaðurinn Olaf Jensen, kastaði
63,36 metra og Svíinn Cristina
Pettersen náði öðru sætinu með
61,08 metra. Vésteinn kemur heim
í vikunni og tekur þátt í Meistara-
móti Íslands sem fram á Laugar-
dalsvelli um næstu helgi.
Halldór fær styrk
Alþjóðaólympíu-
nefndarinnar
HALLDÓR Hafsteinsson júdókappi hlaut styrk
Aiþjóðaóiympíunefndarinnar til að fara í æfinga-
búðir I Barcelona á Spáni í 6 mánuði. Halidór,
sem er nú í 20. sæti styrkleikalista Evrópu í -86
kg. flokki, fer utan í júlí ásamtfjölskyidu sinni
þar sem styrkurinn tekur til allrar fjölskyldunn-
ar. En eftir fund Afreksmannasjóðs ÍSÍ í gær
var yóst að Halidór fengi ekki fullan styrk þar.
„Eg átti frekar von á að fá þetta fyrir síðustu
áramót. Styrkurinn kom uppá að frumkvæði ís-
lenska og alþjóða júdósambandsins og gekk hratt
fyrir sig. Ég er þakklátur fyrir það og það er
gott að geta einbeitt mér að greininni,“ sagði
Halldór.
í gær var einnig birtur listi yfir hverjir fá
úthlutað úr Afreksmannasjóði ÍSÍ og þar var
Haildór á lista en ekki með fullan styrk frá sjóðn-
um, sem Halldór taldi nauðsynlegan til að fram-
fleyta sér og fjölskyldunni ytra enda sé gert ráð
fyrir að menn séu á launum að heiman. „Mér
kemur það ekki á óvart. Þeir miða við heims-
lista sem er ekki til en við tökum 10 stærstu
mótin sem gefa stig og höfiun verið að reyna
fá það metið á sama hátt og heimslista. Júdósam-
bandið ætlar að finna lausn vegna mín. Ég hef
iagt mikið á mig fyrir íþróttina og tekið þátt í
yfirlOO alþjóðlegum mótum. Ég gefst ekki upp
þó á móti biási og ég og Júdósambandið þurfum
að vinna okkur út úr þessu.“
Sem fyrr segir er Halldór nú í 20. sæti yfir
sterkustu júdómenn í sinum þyngdarflokki í
Evrópu en 14. til 15. sæti gefa öruggt sæti á
ólympíuleikum. „Miðað er við árangur á 10 sterk-
ustu mótunum og í vetur prófaði ég að taka þátt
í þessum mótum, ekki bara á þeim sem liggja
vel við ódýrustu flugfargjöldin. Það er mikil
streita hér heima en ég á nóg inni og hef trú á
það takist ef ég helli mér út í þetta,“ bætti
Halldór við.
Jón Arnar Magn-
ússon er kominn
á A-styrk
SAMÞYKKT var á fundi hjá Afreksmannasjóði
ÍSÍ fyrir skömmu að Fijálsíþróttasamband ís-
lands fengi A—styrk, sem nemur 80.000 krónur
á mánuði, vegna Jóns Arnars Magnússonar, ís-
landsmethafa í tugþraut. Verður styrkurinn
veittur frá 1. júlí og út þetta ár. Sambandið fékk
einnig sömu upphæð á mánuði vegna kringlu-
kastarans Vésteins Hafsteinssonar.
Onnur sérsambönd sem fengu úthlutuðum
styrk voru; Skiðasamband íslands, B—styrk, kr.
40.000 á mánuði vegna Kristins Björnssonar,
Júdósamband íslands B—styrk vegna Vernharðs
Þorleifssonar og eingreiðslu kr. 200.000 vegna
Halldórs Hafsteinssonar og Eiríks Inga Kristins-
sonar til standa straum að kostnaði þeirra vegna
æfínga og keppni frá 1. júní i ár og til ársloka.
Sundsamband íslands fékk samskonar ein-
greiðslu vegna Arnars Freys Ólafssonar og Ey-
disar Konráðsdóttur.
Þá veitti Framkvæmdasijórn ÍSÍ Afreks-
mannasjóði ÍSI heimild tii að veita Afreksmanna-
sjóði íþróttasambands fatlaðra allt að 5% af ráð-
stöfunarfé sínu og fær ÍF nú afhentar krónur
260.000.
Þorbergur til Eyja?
Verulegar líkur eru á því að Þor-
bergur Aðalsteinsson, fyrrver-
andi landsliðsþjálfari í handknatt-
leik, verði næsti þjálfari nýliða ÍBV
í 1. deild, samkvæmt öruggum
heimildum Morgunblaðsins. A sl.
dögum hefur hann átt í viðræðum
við forráðamenn ÍBV þess efnis og
dvaldi hann m.a. í Eyjum um síð-
ustu helgi í því sambandi. Eftir á
að hnýta nokkra enda sem enn eru
lausir en menn vonast til þess að
hægt verði að hnýta þá fyrir næstu
helgi og undirrita samning í beinu
framhaldi. Gert er ráð fyrir því að
ef af verður hafi Þorbergur yfirum-
sjón með þjálfun allra yngri karla-
flokka ÍBV auk þess að þjálfa
meistaraflokkinn. Þorbergur er ekki
með öllu ókunnugur í Eyjum því
hann hóf þjálfaraferil sinn hjá Þór
fyrir rúmum áratug.
Sigurður Gunnarsson sem þjálfaði
IBV í fyrravetur er aftur á móti á
förum til Bodö/Glimt í Noregi. Hann
var þjálfari þar fyrir tveimur árum
en kom heim í fyrrasumar og tók
við Eyjamönnum. Sigurður staðfesti
í samtali við Morgunblaðið í gær að
hann færi til Noregs 1. ágúst nk.
Ætlar liann að setjast á skólabekk
jafnhliða þjálfuninni.
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
FRJALSAR
KNATTSPYRNA: INGIBJÖRN LEYSTUR FRÁ STARFI í KEFLAVÍK / B3