Morgunblaðið - 21.06.1995, Qupperneq 1
Penna
vinir
Skipti-
markaður
HÆ, hæ Skiptimarkaður.
Ég heiti Edda og ég
vil skipta á plakötum með
Tom Cruise, Meat Loaf,
My Girl 2, Macauley
Culkin og Whitney Hous-
ton.. í staðinn vil ég fá
eitthvað með Konungi
ljónanna. Heimilisfangið
er
MYNDASÖGUR Moggans
eru greinilega þekktar í
fleiri löndum en Islandi því
okkur barst nýlega bréf alla
leið frá Ghana, en það er
land í Afríku. Sendandi
bréfsins segist hafa fengið
póstfang blaðsins hjá einum
af pennavinum sínum og
óskar eftir því að gerast
pennavinur okkar, en bréfíð
er því miður á þeim mis-
skilningi byggt að Mynda-
sögur Moggans séu ein-
staklingur. Pilturinn sem
sendi bréfið heitir Siaw og
skrifar á ensku. Eins og
gefur að skilja erum við
ekki rétti aðilinn til þess að
halda uppi bréfaskriftum til
Ghana, en gaman væri ef
þið sæjuð ykkur fært að
skrifa Siaw bréf til að heyra
í honum hljóðið. Þið þurfið
auðvitað að geta skrifað
sæmilega á ensku, en það
er auðvitað góð æfíng í
tungumálinu að skrifa bréf,
svo spreytið ykkur endilega.
Þið mættuð gjarna skila til
hans kveðju frá Mynda-
sögunum. Heimilisfangið er
Siaw Benjamin
Church of Pentecost
P.O.Box 70
NKawKaw-Ghana
W/Africa.
Edda Unnsteinsdóttir
Skarðsá
371 Dalabyggð.
Krakkar verið endilega
dugleg við að senda okkur
bréf í skiptimarkaðinn!
Hérar
á f lótta
ÞEGAR héra er veitt eft-
irför getur hann auðveld-
lega synt yfir miniháttar
ár og vötn. En hérarnir
geta líka tekið up á því
að fá sér sundsprett án
þess að þeim sé veitt eft-
irför.
Dóná er eitt af stærstu
fljótum Evrópu og renn-
ur um fjölda landa, t.d.
Þýskaland og Rúmeníu.
í Dóná eru margar smá-
eyjar og á sumum þeirra
lifa hérar. Þessir hérar
synda oft að bökkum
fljótsins til þess að afla
sér fæðu á ökrum bænd-
anna. Þeir hljóta að vera
miklir sundkappar, því
það er alveg örugglega
ekki auðvelt að synda
yfir slíkt stórfljót.
Grænland
MORGUNBLAÐIÐ er víðlesið.
Þetta kemur alltaf betur og
betur í ljós. Nú höfum við feng-
ið senda mynd frá nágranna-
landi okkar Grænlandi. Við
þökkum Áslaugu Gunnars-
dóttur kærlega fyrir myndina,
en hún er 6 ára og býr í Eqal-
unnalinguit 117, 3900 Nuuk.
Á myndinni sjáum við Ás-
laugu ásamt fjölskyldu sinni,
þeim mömmu, pabba og Dóru,
á sleða og öll eru þau brosandi
út að eyrum. En þetta er eng-
inn nýtísku vélsleði heldur
hundasleði. Hundasleðar hafa
verið notaðir á Grænlandi í
margar aldir og eru notaðir
enn þann dag í dag. Nú eru
sleðarnir þó einkum notaðir til
veiðiferða fyrir utan bæina því
vélsleðarnir hafa að mestu
leyti tekið við innanbæjar og
í skemmri ferðum. Grænland
er hálent land og að mestum
hluta hulið jökli. Sjórinn í
kringum landið er oft ísi lagð-
ur og ísinn er á mörgum stöð-
um landfastur meginhluta árs-
ins, þá fara veiðimennirnir á
hundasleðum út á ísinn í leit
að selum og ísbjörnum. Flestir
veiðimenn eiga marga sleða-
hunda. Grænlendingar eru þó
að sjálfsögðu ekki allir veiði-
menn rétt eins og íslendingar
eru ekki allir sjómenn. Og til
að fyrirbyggja misskilning er
rétt að taka fram að á Græn-
landi býr fólk flest í ósköp
venjulegum húsum.
Á Grænlandi, sem er
stærsta eyja í heimi, búa rúm-
lega 50 þúsund manns og höf-
uðstaður landsins er einmitt
Nuuk, bærinn hennar Áslaug-
ar. Landið tilheyrir Danmörku,
en Grænlendingar hafa þó sína
eigin heimastjórn.
Fyrir rúmum 50 árum síðan
tilheyrði ísland einnig Dan-
mörku. En árið 1944 öðlaðist
Púsluspil
EGGINU á myndinni er skipt
í 9 hluta. Ef þið klippið það í
sundur eftir línunum eruð þið
komin með sniðugt fuglapúsla-
spil. Reynið nú að púsla saman
öllum þeim fuglum sem hér
eru sýndir. Athugið að í hvern
fugl eru allir hlutar eggsins
notaðir. Þið gætuð líka sniðið
samskonar egg úr lituðum
pappír til að fá smá lit í tilver-
una. Svona geta hlutirnir verið
einfaldir og skemmtilegir um
leið.
landið sjálfstæði, en þá hafði
íslenska þjóðin lengi barist
gegn yfirráðum Danakonungs
og var Jón Sigurðsson þar
fremstur í flokki. Jón var
fæddur þann 17.júní 1811 og
það er einmitt þess vegna sem
sá dagur var valinn sem þjóð-
hátíðardagur íslendinga. Á
þessum degi komum við sam-
an, bæði í höfuðborginni og í
bæjum um allt land, og fögn-
um því að vera sjálfstæð þjóð.
Fjölmargir íslendingar eru
búsettir erlendis eins og Ás-
laug og fæstir þeirra hafa tök
á því að halda daginn hátíðleg-
an á íslandi með okkur hinum.
Hvernig ætli Áslaug og fjöl-
skyldan hennar hafi haldið upp
á þjóðhátíðina?
Vonandi hafið þið öll skemmt
ykkur vel á laugardaginn hvar
sem þið annars voruð stödd.
Því þetta var dagurinn okkar,
þjóðhátíðardagur íslendinga.
Kraftar í
kögglum
ÞAÐ er hreint með ólíkindum
hvað skordýr geta verið sterk
miðað við stærð. Ein eldspýta er
t.d. þrisvar sinnum þyngri en hin
svokallaða „eyrnapadda“, og
eyrnapaddan ber léttilega 24 eld-
spýtur. Þetta vöðvaafl svarar til
þess, að fullorðinn maður gæti
borið u.þ.b. 1,8 tonn! Við megum
bara þakka fyrir að skordýrin eru
ekki stærri en raun ber vitni.
Hvernig verðumst við þeim þá?
Þá dygðu víst engir flugnaspaðar.