Morgunblaðið - 22.06.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 22.06.1995, Síða 1
FYRIRTÆKI ft £1 1 FfÁRMÖGNUN FJÁRMÁL y Draumur að veruleika /4 rfrfiAifr1 Misdýr bílalán í boði /5 Eftirlaunin í brennidepli/6 ■imiirn4 ■wÖHl :ÆrlrJd !Wi0r|pnMtoMí§> Spariskírteini I útboði á verðtryggðum spari- skírteinum, sem lauk með opnun tilboða i gær, námu gild tilboð 584 milijónum króna en heildarfj- árhæð tekinna tilboða var 120 milljónir frá 9 aðilum. Meðal- ávöxtun bréfa til 5 ára var 5,79% og til tíu ára 5,83. Ávöxtun fimm ára bréfa hækkaði um 0,02% frá síðasta útboði en ávöxtun tíu ára bréfa hélst óbreytt. Cargolux Flugfélagið Cargolux skilaði 10,7 milljóna dollara rekstrarhagnaði í fyrra og eru það töluverð um- skipti frá árinu áður en þá nam rekstrartap félagsins 4,9 milljón- um. Hagnaður eftir skatta nam 3,2 milljónum dollara í fyrra en félagið tapaði 1,7 millj. 1993. Sími Framkvæmdasljórn Evrópu- bandalagsins samþykkti í gær reglugerðardrög sem kveða á um að ríkisstjórnum innan bandalags- ins beri að auka frjálsræði á sviði farsímaþjónustu frá og með 1996. Þetta er gert til að ýta undir gíf- urlegan vöxt á þessu sviði. Miðað við samninginn um EES ættu þessar regiur einnig að gilda hér. SÖLUGENGI DOLLARS VERÐBOtGAN FRA1993 12 % Breytingar a visitolu neysluverðs frá 1993 ■ 1 9 9 3 »1994 1995 JFMAMJJÁSONDJFMAMJJÁSONDJFMAMJ 14 % Breytingar a visitölu byggingarkostnaðar frá 1993 1 9 9 3®| 1994 1995 -2 , t . i JFMAMJJÁSONDJFMAMJJASONDJFMAMJ Vaxandi bjartsýni um að hefja megi framleiðslu heilsusalts á Reykjanesi á ný Sterk viðbrögð við markaðs- átaki erlendis VAXANDI bjartsýni ríkir um að hægt verði að heíja framleiðslu á ný á heilsusalti í saltverksmiðjunni á Reykjanesi á þessu ári. Markvisst hefur verið unnið að því að kynna saltið erlendis og hafa sterk viðbrögð borist frá mörgum löndum í kjölfar umfjöllunar um saltið í heilsu- og læknatímaritum. Sala hefur þegar hafist til fyrirtækis í New York í Bandaríkjunum sem framleiðir til- búna heilsurétti. Verksmiðjan komst í eigu Hita- veitu Suðurnesja eftir gjaldþrot ís- lenska saltfélagsins hf. á sl. ári. Hita- veitan gerði síðan samstarfssamning við íslensk sjóefni hf., hlutafélag í eigu fyrrum starfsmanna saltfélags- ins, um viðhald og gæslu verksmiðj- unnar svo og markaðssetningu salts- ins. „í marsriti bandaríska heilsublaðs- ins Prevention sem er nokkuð stórt og vinsælt blað kom góð grein um saltið okkar,“ sagði Sigurður J. Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Is- lenskra sjóefna hf. „í kjölfar þess hafa borist talsverðar fyrirspurnir og við höfum átt í samningaviðræð- um við 10-12 fyrirtæki sem hafa sýnt þessu mikinn áhuga. Einnig hafa fyrirtæki víða í Evr- ópu sýnt þessu áhuga. Einn aðili í Bandaríkjunum hefur Iýst yfir áhuga sínum á að fjárfesta í verksmiðj- unni. Við erum því nokkuð bjartsýn- ir. Nú er að hefjast vinna við við- skiptaáætlun fyrir verksmiðjuna og að henni lokinni gerum við okkur vonir um að hægt verði að fá fjár- festa að verksmiðjunni á tiltölulega skömmum tíma. Einnig höfum verið verið í sambandi við eitt stórfyrir- tæki í Japan. Þar ríkir einokun í saltinnflutningi en vegna hins lága natríumhlutfalls í saltinu okkar er hægt að flytja það inn.“ Sigurður gat þess að einnig hefðu birst niðurstöður vísindarannsóknar á heilsusaltinu í hinu virta breska læknatímariti, British Medical Jour- nal, í fyrra og það hefði stutt mark- aðssetninguna mjög mikið. Samhliða kynningu á saltinu er- lendis hefur hluta af birgðum verk- smiðjunnar verið pakkað fyrir inn- anlandsmarkað. Ákveðið hefur verið hjá Heilsustofnun NFLÍ í Hveragerði að nota eingöngu saltið og samkomu- lag hefur verið gert við Lyfjaverslun íslands um sölu saltsins í allar lyfja- verslanir landsins. í markaðssetn- ingu erlendis hefur fyrirtækið notið aðstoðar Utflutningsráðs íslands. Albert Albertsson, aðstoðarfor- stjóri Hitaveitu Suðumesja, segir ljóst að Hitaveitan muni ekki reka salt- verksmiðju í framtíðinni. Hins vegar hafi hún ákveðið að leysa eignimar til sín til að þær yrðu allar á einni hendi þannig einhveijir aðilar fyndust til að taka við rekstrinum. Þetta hafi verið gert í þeirri trú að um sé að ræða áhugaverða afurð eins og allt bendi til. Hann segir að kynningar- starf á verksmiðjunni hafí farið fram erlendis en of snemmt sé að segja til um hver útkoman af því verði. ISLENSKI LÍFEYRISSJÓÐ URINN fyrirhyggja til framtíðar íslenski lífeyrissjóðurinn hf, séreignasjóður í umsjd Landsbréfa, hefur sýnt bestu dvöxtun séreignasjóða sl. fjögur ár. Allir sem vilja skapa sér og sínum meira öryggi í framtíðinni eiga erindi í sjóðinn. Ráögjafar Landsbréfa hf. og umboðsmenn í Lahdsbanka Islands um allt land veita allar frekari upplýsingar g , LANDSBREF HF. S II I.) U H I. A N I.) S B II A U I 2 4, 10 í! R I V k J A V I K . S I M I 5 ;! í! ;l 2 0 0 0 H I I A S I M I I. 8 8 (! !) ‘1 3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.