Morgunblaðið - 23.06.1995, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ1995 39
FRÉTTIR
FYRSTI bíllinn sem Skeljungsmenn afgreiddu á nýju stöðinni á
Akranesi var af gerðinni Chevrolet Bel Air árg. 1957. Frá vinstri:
Bjarni Þór Sigurðsson, Guðrún Ingimarsdóttir og Harpa Hannes-
dóttir, starfsfólk Skeljungs.
Ný bensín-
stöð Skelj-
ungs á
Akranesi
ÚTIBÚ Skeljungs á Akranesi
tekur í dag í notkun nýja þjón-
ustustöð, Skaganesti, við Skaga-
braut, á sama stað og bensínstöð
félagsins hefur verið um árabil.
Stöðin er um 220 fermetrar að
flatarmáli og þar er auk bensín-
sölu, verslun, veitingaaðstaða
og bílalúga. Ennfremur er við
Skaganesti bón- og þvottaað-
staða fyrir bifreiðaeigendur.
Utan afgreiðslutíma stöðvarinn-
ar er hægt að kaupa eldsneyti
á lægra verði í sjálfsala sem
tekur bæði peningaseðla og
greiðslukort, segir í frétt.
í Skaganesti fást allar teg-
undir Betra Shellbensíns auk
þess sem þar eru á boðstólum
fjölbreytt vöruúrval fyrir bif-
reiðaeigendur, grill- og gasvör-
ur, mjólkurvörur, grillmatur,
gos, sælgæti, tímarit, leikföng
og fleira.
Trésmiðjan Akur á Akranesi
annaðist byggingu stöðvarinnar
og gengu framkvæmdir sam-
kvæmt áætlun. Með tilkomu
nýju þjónustustöðvarinnar á
Akranesi getur Skeljungur nú
veitt meiri og betri þjónustu við
bæjarbúa og ferðafólk en áður,
en Skaganesti liggur meðal ann-
ars í braut þeirra sem eru á
leið í eða úr Akraborginni á
Ieið í frí.
f tilefni opnunarinnar verður
boðið upp á kaffi og konfekt
og hefst sérstök opnunarhátíð
kl. 15.00 og stendur til kl. 18.00.
Boðið verður upp á grillaðar
pylsur, ís, gos, sælgæti og margt
fleira.
Korpúlfs-
staðir til
sýnis um
helgina
FÓLKI gefst tækifæri til að skoða
Korpúlfsstaði helgina 24.-25. júní
nk. og koma um leið skoðunum sín-
um um notkun byggingarinnar á
framfæri. Húsið verður opið frá kl.
13-18 báða dagana.
Athafnamaðurinn Thor Jensen
byggði Korpúlfsstaði og voru þeir
taldir fullkomnasta kúabú á Norð-
urlöndum og þótt víðar væri leitað.
Reykjavíkurborg keypti þetta stór-
býli árið 1942 og rak þar blómlegt
bú í tvo áratugi. Búskapurinn lagð-
ist niður 1967. Hefur húsið að
mestu staðið ónotað síðan og er nú
mjög farið að láta á sjá.
í frétt frá Reykjavíkurborg segir
m.a.: „Á Korpúlfsstöðum er einhver
sérstæðasta og mikilfenglegasta
bygging borgarinnar og hafa menn
mjög velt fyrir sér hvernig hún
mætti nýtast í framtíðinni. Með
þessari opnun hússins og leiðsögn
um það er leitast við að kynna fólki
bygginguna og sögu búsins. Jafn-
framt gefst mönnum tækifæri til
að koma skriflegum hugmyndum
sínum um notkun byggingarinnar
á framfæri. Verður safnkassi fyrir
hugmyndir staðsettur í vesturporti
hússins."
Birgir Sigurðsson, rithöfundur,
annast leiðsögn um bygginguna kl.
13.30, 14.30 og 15.30 báða dag-
ana. Mynd sem Sjónvarpið lét gera
fyrir nokkrum árum verður sýnd á
skjá í fjósinu og bók um Korpúlfs-
staði sem Reykjavíkurborg gaf út
á sl. ári verður til sölu með góðum
afslætti.
Bryggjuhátíð
á Reyðarfirði
BRYGGJUHÁTÍÐ verður haldin á
Reýðarfirði dagana 23.-24. júní og
hefst hún með harmonikudansleik
á bryggjunni og í nágrenni hennar
í kvöld.
Á laugardaginn hefst dagskrá
kl. 9 um morguninn og stendur
sleitulaust fram á nótt. Meðal dag-
skráratriða má nefna lax- og sil-
ungsveiði í Andapollinum, karaoke-
keppni 15 ára og yngri, götukörfu-
boltamót, grillveislu, skvísufót-
boltamót, karamelluregn, dýragarð,
kassabílarallý, tónlistaruppákomur
og breski grínistinn og töframaður-
inn The Mighty Gareth kemur frám.
Um kvöldið verður svo slegið upp
skemmuballi þar sem hljómsveitin
Vinir vors og blóma kemur fram.
Fyrsta Bryggjuhátíðin var haldin
á Reyðarfirði árið 1989 og hefur
hún vaxið og dafnað jafnt og þétt
síðan. Tilgangur með hátíðinni er
fyrst og fremst að auðga mannlíf
bæjarsins og bjóða íbúum og ferða-
fólki upp á ærlega skemmtun fyrir
alla fjölskylduna, segir í frétt frá
Reyðarfirði.
Vitni vantar
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar í Reykjavík lýsir eftir stolnum
bíl og vitnum að tveimur árekstrum.
Árekstur varð á gatnamótum
Nóatúns og Skipholts laugardaginn
10. júní rétt fyrir kl. 16.30. Þar
ientu saman grár VW Golf og ljós-
brúnn Toyota-fólksbíll. Ökumenn-
ina greinir á um stöðu umferðar-
ljósa.
Árekstur varð á gatnamótum
Brekkugerðis og Háaleitisbrautar
að kvöldi föstudagsins 16. júní kl.
18.30. Þar lentu saman rauð Toy-
ota-bifreið og hvítur Volvo.
Þá er lýst eftir bíl sem stolið var
frá Langholtsvegi 143. Þetta er ljós-
blá Lada station, árgerð 1987, með
skráningarnúmer 1-5433. Bíllinn
var skilinn eftir um sexleytið sl.
sunnudag og var horfinn kl. hálf-
átta að morgni mánudags.
Vitni að þessum tveimur árekstr-
um og þeir sem hafa orðið stolna
bílsins varir frá aðfaranótt mánu-
dags eru vinsamlegast beðnir að
gefa sig fram við rannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík.
Útgáfutón-
leikar hljóm-
sveitarinnar
Lipstikk
HUÓMSVEITIN Lipstikk hefur
sent frá sér geisladiskinn Dýra-Líf
og verða útgáfutónleikar af því til-
efni á Tveimur vinum í kvöld, föstu-
dagskvöld, og hefjast þeir kl. 22.
Lipstikk hafa leikið um landið
vítt og breitt undanfarin ár og hafa
áður gefið út disk ásamt safnplötu-
lögum. En nú hefur nýr diskur litið
dagsins ljós og ætla sveitarmenn
að fyglja honum eftir með tónleika-
lialdi víða um land á komandi mán-
uðum.
Tónleikarnir í kvöld verða sendir
út beint á Rás 2 og hefst útsending-
in á heimildarþætti um feril Lipstikk
og verður svo skipt niður á Tvo
vini þar sem sveitin leikur lög af
nýjum disk sínum.
Lipstikk skipa: Bjarki Kaikumo,
söngur, Anton Már, gítar, Sævar
Þór, bassi, Ragnar Ingi, trommur
og Árni Gústafs, gítar.
Perlubandið í
Glæsibæ
PERLUBANDIÐ, dansstórsveit
Karls Jónatanssonar, mun leika fyr-
ir dansi á föstudagskvöldum í
Glæsibæ í sumar.
Sveitin leikur alhliða danstónlist
en sérhæfir sig í suður-amerískri
danstónlist og swing-tónlist. Auk
þess bregður hún fyrir sig gömlu
dönsunum og rokktónlist ef með
þarf. Söngkona með hljómsveitinni
er Kristbjörg Löve.
Hljómsveitin, sem telur 14 hljóð-
færaleikara, hefur verið starfrækt
í rúman áratug og komið víða fram
við góðar undirtektir t.d. á Ingólfs-
torgi 17. júní sl. Allir unnendur
swingtónlistar og dansáhugafólk er
hvatt til að koma í Glæsibæ á föstu-
dagskvöldinu og fá sér snúning og
njóta góðrar tónlistar, segir í frétt
frá Glæsibæ.
Sumarmál-
stofa í stærð-
fræði
STÆRÐFRÆÐISKOR Raunvís-
indadeildar og Stærðfræðistofa
Raunvísindastofnunar standa föstu-
daginn 23. júní fyrir málstofu í
stærðfræði í VR í stofu 157 í húsi
verkfræði- og raunvísindadeildar við
Hjarðarhaga.
Málstofan hefst ki. 9.30 en þá flyt-
ur Sigurður Helgason hugleiðingar
um öldujöfnur. Kl. 10.45 talar Finn-
ur Lárusson um ítrekanir innanmót-
ana breiðgerra Riemannflata. Að
loknum hádegismat kl. 14 talar Ein-
ar Steingrímsson um tengsl umrað- -
ana og hlutana á endanlegum mengj-
um. Að lokum talar Hermann Þóris-
son kl. 15.30 um færslutengingu.
Jónsmessu-
ganga um Ell-
iðaárdalinn
JÓNSMESSUNÆTURGANGA
verður um Elliðaárdalinn í kvöld.
Lagt verður af stað frá Árbæjarsafni
kl. 22.30.
Fararstjórar verða Guðrún Ágústs-
dóttir íbúi í dalnum og Helgi M. Sig-
urðsson, safnvörður Árbæjarsafns.
Jónsmessu-
næturganga í
Eng-ey
HAFNARGÖNGUHÓPURINN verð-
ur með Jónsmessunæturgöngu út í
Engey á föstudagskvöld. Gengið
verður með strönd eyjunnar og að
bæjarstæðum og stríðsminjum.
Kveikt verður í lítilli Jónsmessunæt-
urbrennu kl. 1 og slegið á létta
strengi.
Farið verður úr Suðurbugt, flot-
bryggju við Ægisgarð, kl. 22 í kvöld.
Val verður um að fara í land eftir
brennuna um kl. 1.30 eða eftir sólar-
upprás ki. 3.30. Allir eru velkomnir.
Leitað vitna
RANN SÓKN ARLÖGREGLAN í
Hafnarfírði lýsir eftir sjónarvottum
að árekstri sem varð við umferðar-
ljósin í Engidal klukkan rúmlega 15
þriðjudaginn 6. júní. Þar rákust sam-
an blár MMC Pajero jeppi, sem ók
frá Jaðarhrauni að Álftanesi og hvít
Toyota Corolla fólksbifreið, sem ók
Hafnarfjarðarveg til suðurs.
Ökumenn beggja bílanna telja sig
hafa verið á grænu ljósi og langar
lögregluna að ná tali af sjónarvottum
sem geta borið um aðdraganda
óhappsins.
Þátttökuís-
lendinga í
heræfingum
mótmælt
SAMTÖKIN Friður 2000 hafa sent
frá sér fréttatilkynningu í tengslum
við vaéntanlegar heræfíngar Atlants-
hafsbandalagsins hér á landi, þar
sem þátttöku íslendinga í hemaði
er jnótmælt.
í fréttatilkynningunni kemur fram
að ekki skipti máli þó slíkar æfíngar
hafi áður farið fram hér á landi, því
undanfarið hafi niðurstöður sérfræð-
inga ítrekað sýnt fram á þann skaða
sem hernaður og tengd starfsemi
valdi, bæði á umhverfi okkar og lífs-
afkomu.
Þar segir að fjöldi aðila, bæði hér
heima og erlendis, vinni nú að því
að koma á fót alþjóðlegri friðarstofn-
un á íslandi, með því markmiði að
gera Island að fyrirmynd friðar.
Frekari þátttaka íslenska lýðveldis-
ins í heræfingum Væri því óviðeig-
andi.
Samtökin hafa sent forseta Is-
lands, Vigdísi Finnbogadóttur, bréf
þar sem þessi afstaða er látin i ljós.
Kvennaliðið vann
báða leikina í gær
Brids
Evrópumótið í
svcitakcppni
VILAMOURA, PORTÚGAL
Evrópumótið í opnum flokki og
kvennaflokki, 17. júní til l.júlí
Vilamoura. Morg-unblaðið.
ÍSLENSKA kvennaliðið vann
báða leiki sína á Evrópumótinu
í brids í gær. Karlaliðið vann sig-
ur í öðrum leiknum en tapaði
hinum.
íslendingar hafa ekki enn náð
sér á strik í opna flokknum hér
í Vilamoura. Þeir unnu að vísu
San Marínó, 25-0, í fyrri leik
gærdagsins en töpuðu síðan fyrir
Svíum, 8-22, í þeim síðari.
Svíarnir leiddu með 18 impunLÍ
hálfleik og bættu öðru eins við í
þeim síðari. íslendingar eru í 21.
sæti eftir 11 umferðir með 162
stig. Efstu þjóðir eru Israels-
menn, 215, Bretar, 206, Grikkir,
202, Hollendingar, 198, Pólveij-
ar 196 og ítalir, 186,5.
í dag spila íslendingar við
Breta og Norðmenn sem eru í
14. sæti.
Kvennaliðið vann-Grikki í fyrri
leiknum í gær, 21-9, eftir að
hafa haft góða forustu í hálfleik.
í þeim síðari vann ísland íra,
19-11, eftir að írarnir leiddu í
hálfleik.
íslenska liðið er í 6 sæti eftir
4 umferðir með 69 stig. Efstar
eru frönsku konurnar með 80
stig, þá Þjóðveijar, 79, Pólverjar,
77,5, Danir, 74, og Tyrkir, 69.
Sænsku Evrópumeistararnir
hafa byijað illa á mótinu og eru
í 16. sæti af 22 þjóðum. I dag
spila íslensku konurnar einmitt
við þær sænsku og Króata.
Sveifluspil mótsins
Það er ólíklegt að stærri sveifla
sjáist á Evrópumótinu en sú sem
varð í einu spili í leik Norðmanna
og Pólveija í 7. umferð. Spilið er
raunar ókrýnt sveifluspil mótsins
því stórar tölur sáust í mörgum
öðrum leikjum.
Suður gefur, NS á hættu
Norður
♦ KG1084
¥G9
♦ 64
♦ 10954
Vestur Austur
♦ 9762 ♦ 53
V ÁD75 V 108432
♦ - ♦ DG1092
+ ÁK763 + 8
Suður
♦ ÁD
*K6
♦ ÁK8753
+ DG2
Norðmenn komust í 4 hjörtu í
AV við annað borðið þrátt fyrir
fáa hápunkta og fengu 12 slagi,
480. Við hitt borðið var meira
ijör í sögnum:
Vestur Norður Austur Suður
Balicki Mæsel Zmudz. Mæsel
1 lauf
1 hjarta dobl 2 grönd 3 grönd
dobi 4 spaðar 4 grönd dobl
5 lauf dobl redobl//
Helge Mæsel opnaði á sterku
laufi og 1 hjarta sýndi annaðhvort
þrílita hönd eða tvílita hönd með
hjarta og lauf eða tígul og spaða.
Zmudzinski sýndi einnig tvílita
hönd með 2 gröndum og vildi með
4 gröndum leggja áherslu á að
hann ætti örugglega lit á móti
Balicki. Eins meinti hann redoblið
sem úttekt en Balicki var á annarri
bylgjulengd, hélt að félagi sinn
ætti láglitina og passaði. Hann fékk
síðan aðeins 5 slagi og Norðmenn-
imir 2.800 eða 22 impa en þeir
töpuðu samt leiknum, 13-17!
íslendingar græddu á þessu spili
í leiknum gegn ítölum. Guðmundur
Páll Amarson og Þorlákur Jónsson
spiluðu 4 hjörtu í AV og fengu 480
en við hitt borðið fengu Jón Bald-
ursson og Sævar Þorbjömsson að
spila 2 spaða og fóra 1 niður, 100
til ítala en 9_impar til íslands.
Spilið gaf Israelsmönnum einnig
vel í aðra hönd í leik þeirra við
Svía. Þar spiluðu ísraelsmennimir
3 grönd í suður við annað borðið
og Bjöm Fallénius spilaði út laufási
og síðan litlu laufi og þá átti sagn-
hafi 9 slagi. Við hitt borðið sögðu
Svíamir ótraflaðir 4 spaða sem
vestur doblaði. Austur spilaði út
laufi og síðan víxltrompuðu AV um
hríð og fengu að auki tvo hjarta-
slagi. Þeir uppskára því 1.100 og
17 impa.
Guðm. Sv. Hermannsson