Morgunblaðið - 24.06.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.06.1995, Qupperneq 1
JHi> rjju,t*!Wíií»ií> # Listin að vera trúr/5 # Shakespeare sóttur heim/4 # Arfleifðin í arfleifðinni/8 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MENNING USTIR LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 BLAÐ' Fyrirhugað að koma á fót menningar- miðstöð á, Grænlandi STARF forstjóra Menn- ingarmiðstöðvar Grænlands hefur verið auglýst laust til umsóknar. Verið er að reisa miðstöðina í Nuup og segir Ole G. Jensen, ritari bygg- ingarnefndarinnar og menningarráðunautur, að hún verði afhent heima- stjórn Grænlands 1. septem- ber næstkomandi og þá eigi hinn nýi forstjóri að hefja störf. I auglýsingu um starfið segir að markmið miðstöðv- arinnar sé að örva og þróa grænlenskt menningarlíf. Hún á að breiða út þekkingu á grænlenskri list og menn- ingu og koma á samvinnu, bæði við Norðurlönd og í Norður-Ameríku, og þá sér í Iagi við þjóðflokka Inúíta. Hún á einnig að stuðla að norrænu lista- og menning- arlífi á Grænlandi. Ole G. Jensen sagðist bú- ast við að tveir til þrír mundu sækja um starf for- stjóra miðstöðvarinnar. „Við erum ekki endilega að leita að Grænlendingi í starfið, hæfasti umsækjand- inn verður ráðinn.“ Listasumar á Akureyri Akureyri. Morgunblaðid. LISTASUMAR á Akureyri hefst í dag, laugardaginn 24. júní og stendur það til loka ágústmánuðar. Þetta er í þriðja sinn sem efnt er til Listasumars á Akureyri og er það nú orðið að árlegum viðburði í bæjarlífinu. Á Listasumri er boðið upp á fjölda menningarviðburða og lætur nærri að eitthvað sé í boði dag hvern. Dagskráin er fjölbreytt og þess vænst að bæði heimamenn og gestir finni þar eitthvað við sitt hæfí, en í boði verða fjöldi tónleika, myndlistasýninga, leiklist og efni tengt þjóðlegum fróðleik. Virkar hvetjandi á menningarlífið Ólöf Sigurðardóttir fram- kvæmdastjóri Listasumars sagði að hugmyndin hefði upphaflega sprottið upp úr umræðum um hvernig gera mætti menningarvið- burði aðgengilegri ferðamönnum og einnig að gera menningu að mark- tækum valkosti í ferðaþjónustu. Þetta hefði tekist með ágætum en einnig hefði Listasumarið virkað mjög hvetjandi á menningarlíf bæj- arins. Forsenda þess væri sú gróskumikla uppbygging sem átt hefði sér stað í Grófargilinu eða listagilinu eins og það er gjarnan nefnt. Allar helstu menningarstofnanir bæjarins standa að Listasumrinu auk Gilfélagsins, Gítarfestival á Akureyri, Sumartónleikar og fleiri liðir sem unnið hafa sér fastan sess í menningarlífinu á síðustu árum og fjöldi einstaklinga sem áhuga hefur á að taka þátt í þessu grósku- mikla starfi. Akureyrarbær leggur til fjármagn og Gilfé- lagið m.a. aðstöðu, hugvit mannafla. Á síðasta ári kom einnig til framlag frá ríki en þess er ekki að vænta nú að sögn fram- kvæmdastjóra Listasumars. Dagskráin er að hluta byggð upp á föstum atriðum sem flutt eru vikulega á sama stað, þar m.a. nefna Sönglokka í Deiglunni öll mánudagskvöld, söngvökur í Minja- safnskirkjunni á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum, á mið- vikudagskvöldum verður dag- skrá um Davíð Stefánsson í Davíðshúsi og Klúbbur Listasumars og Karólínu er í Deiglunni á fimmtu- dagskvöldum á föstudög- um hefst sýning á nýju verki í Glugganum, myndlistasýningar verða opnaðar á laugardögum og á sunnudögum verða Sumartónleikar í Akureyrarkirkju. Áhersla á höggmyndalist Sérstök áhersla verður í sumar lögð á höggmyndalist og munu listamenn verða að störfum í svo- kölluðu ketilhúsi í Grófargili þar sem þeir vinna að list sinni og gefst fólki færi á að fylgjast með þeim að störfum. Því starfi lýkur með sýningu 5. ágúst næstkomandi. Myndlistasýningar verða m.a. í Listasafninu, Myndlistarskólanum og í Deiglunni. Tónleikahald verður á ýmsum stöðum, Gítarfestival verður í júlí og þá verða Sumartón- leikar í Akureyrarkirkju. Á tvenn- um tónleikum í Listasafninu verður flutt tónlist eftir Hafliða Hallgríms- son en einnig verður sýning á grafíkverkum eftir hann í safninu. Djassklúbbur sem farið var af stað með á liðnu sumri verður á fimmtu- dagskvöldum í Deiglunni og svo verður einnig í sumar enda naut hann mikilla vinsælda. Fyrstu dagskrárliðir Nú um helgina verður opnuð sýningin Silfurskottu- maðurinn í Deiglunni. Þar er á ferðinni Steingrímur Eyfjörð ásamt Torfa Frans Olafssyni og sýna þeir málverk, teikningar, skúlptúr, textaverk og vídeó. Þá opnar Dröfn Friðfinnsdóttir sýningu á grafík- verkum á Café Karólínu í dag, laugardag. í Glugganum mun Illugi Eysteinsson hefjast handa við gerð listaverks og nýtur hann aðstoðar unglinga úr Gagnfræða- skóla Akureyrar og gang- andi vegfarenda við gerð þess. Verkið, sem heitir Minning verður að lokum boðið.upp og ágóðinn renn- ur í ferðasjóð fatlaðra. Á sunnudag verður leikrit- ið Lofthræddi örninn hann Örn sýnt í Deiglunni, en það var sýnt á smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins í vetur. Leikari í sýningunni er Björn Ingi Hilmarsson en hann fer með öll hlutverk og segir sög- una með látbragði, söng, dansi og leik. Endurreisn Malmö MALMÖ Musikteater, frumsýnir í haust nýjan söngleik eftir Björn og Benny í ABBA sálugu. Óperan í borginni hefur sett upp fjölda velheppnaðra sýninga á sigildum óperum, aðalleikhús borgar- # innar er nú talið eitt hið besta á Norður- löndum og sinfóníuhlómsveitin á góðu gengi að fagna. Myndlist er höfð i háveg- um, og fara Rooseum og listasafn Malmö í fylkingarbijósti. Þetta eru aðeins fáein dæmi um þá miklu grósku sem ríkir í borginni við Eyrarsund en hún er svo mikil að Danir eru orðnir grænir af öfund, að því er sagði nýlega í Politiken Fram til ársins 1970 var Malmö sú borg í Svíþjóð sem var í örustum vexti. En í kreppunni á áttunda áratugnum drógu mörg iðnfyrirtæki í borginni sam- an seglin og um 35.000 manns fluttust á brott. Eftir sátu hinir atvinnulausu, hinir lægstlaunuðu, ómenntuðu og svo eldra fólk. Menningarborgarstjórinn En þá kom til sögunnar Johan Bengt- Páhlsson, borgarsljóri úr flokki moder- ata en hann er maðurinn á bak við menningarlega endurreisn borgarinnar. Hann hafði endaskipti á menningarmál- unum. Borgarlistasafnið fékk nýjan yfir- mann, Lars Nittve, sem tekur í haust við sljórnartaumunum í Louisiana-safn- inu á Sjálandi. Ástandið í Ríkisleikhús- inu, sem hýsti leiklist, sönglist og dans og sinfóníuliljómsveit, var skelfilegt. „Eg ferðaðist um landið þvert og endi- langtog ræddi við leikhússtjóra, Icikara og leiklistarnema. Allir voru sammála um að í Malmö væri ekkert að sækjast eftir,“ segir Bengt-Páhlsson. Hann ákvað að skilja listgreinarnar að og að fá unga eldhuga til að taka við stjórnartaumunum. Sinfóníuhljómsveit- in varð fyrst til að yfirgefa leikhúsið og við henni tók Daninn Knud Ketting. Þá voru óperur og leiklist skilin að sum- arið 1993. Stóra leiksviðið „Storan“ sem tekur 1450 manns í sæti hýsir nú óperur en ekki óperettur og ameríska söng- leiki. Keypt var gamalt fjölleikahús, Hippodromeen og Staffan Valdemar Holm settur í stól yfirmanns. í sumar fær ballettinn eigin yfirmann, Patrick King. Stofnanirnar fjórar heyra undir einn fjármála- og markaðsstjóra, Bengt Hall. Hall setti það skilyrði fyrir ráðningu sinni að leikstjórinn Lars Rudolfsson fengist til samstarfs en hann þykir einn athyglisverðasti leikhúsmaður í Stokk- hólmi. Rudolfsson hefur ekki viljað þiggja fastráðningu í stóru leikhúsunum, segir of marga vera með puttana í yfir- stjórn þeirra sem verði til þess að litlu verði komið i verk. Honum leist hins vegar vel á breytingarnar í Malmö og hefur náð frábærum árangri á þeim stutta tíma sem hann hefur setið við stjórnvölinn. Meðal þess sem sett hefur verið á svið á Storan, er Madam Butterfly, eitt verka Kurts Weil og pöntuð hefur verið ópera eftir sænska tónskáldið Hans Ge- fors, en hún byggir á atburðum sem gerðust í Frakklandi fyrir nokkrum árum er hryðjuverkamaður réðist inn á barnaheimili. Hættumerki? Spurningin er hins vegar hvort mönn- um takist að viðhalda gróskunni í menn- LARS Rudolfsson, 43 ára leikhúsmað- ur frá Stokkhólmi, er talinn einn besti fengur listunnenda í Malmö. ingarlífi Malmö. Bengt-Páhlsson náði ekki endurkjöri í borgarstjórnarkosn- ingunum í haust og lágt gengi sænsku krónunnar kann að skapa erfiðleika. Til marks um að afturkippur kunni að vera kominn í málið, er að framkvæmdir eru enn ekki hafnar við nýtt bókasafn, sem ætlunin var að reisa, og að Bengt Hall er á förum til Stokkhólms, þar sem hann tekur við óperunni. Og ætlunin er að gera hið sama og í Malntö, gefa lista- mönnunum frjálsar hendur en að hann haldi þráðunum saman.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.