Morgunblaðið - 25.06.1995, Page 1

Morgunblaðið - 25.06.1995, Page 1
ÚR SKYRTUFRAMLEIÐSLU í BÍLAFRAMLEIÐSLU - AT- VINNUBÍ L ASÝNIN G HJÁ B&L - HUDSON COMMODORE ÁRGERÐ 1947 - SHADOW CRUISER PALLHÚS 5 dyra er kominn og kostar aðeins 2.389.000 kr. ®>TOYOTA ; Tákn um gceði 1995 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ BLAÐ BMW Z3 verður kynntur í Detroit 1996. Breytt og glæsileg E-lína frá Benz HAFIN er sala á nýrri E-línu frá Mercedes Benz og eru fyrstu bílamir væntanlegir til íslands í lok júlí eða byijun ágúst. Bíllinn er mjög breytt- ur í útliti en hönnuðir hafa samt blandað saman sígildum Mercedes Benz línum. Staðalbúnaður er ríku- legur og verðið svipað og verð fyrir- rennarans en ýmsilegt fleira fá menn fyrir fjárfestinguna. Nýja línan hefur undanfamar vik- ur verið kynnt fyrir blaðamönnum og gafst blaðamanni Morgunblaðsins Morgunblaðið/jt E-LÍNAN er falleg hönnun, með miklum þægindum og öryggis- búnaði og í boði eru þijár dísil- vélar og fimm gerðir bensínvéla. kostur á að reynsluaka ýmsum gerð- um af þessum nýja bíl í Stuttgart, nánar greint frá því á baksíðu blaðs- ins. Boðnar eru þijár mismunandi gerðir: Classic, Elegance og Avantg- arde og er búnaður þeirra nokkuð ólíkur. Fimm berrsínvélar em fáanleg- ar, fjögurra, sex og átta strokka og em þær frá 136 til 279 hestöfl. Dísil- vélar em þijár, fjögurra, fimm og sex strokka, 95 til 136 hestöfl. ■ BMWZ3 „roadster" ÞAÐ þykir jafnan sæta tíðindum þegar stóm bílaframleiðendumir setja á markað nýjan „roadster", sem í bílorðasafni Bílorðanefndar er kallaður ópinn sportbíll. BMW hyggst fmmsýna Z3 á bílasýning- unni í Detroit í janúar á næsta ári og framleiðsla hefst í ársbyijun í nýrri verksmiðju BMW í Spartan- burg i Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum. BMW hefur smíðað fomfræga bfla af þessari gerð, t.a.m. 328, 507 og framúrstefnubflinn Zl. Fjögur ár era síðan framleiðslu á Z1 lauk og vora smíðaðir 8 þúsund bflar af þeirri gerð. Z3 verður fá- anlegur með tveimur gerðum véla, báðum 1,8 lítra, fjögurra strokka sem skila 140 og 115 hestöflum. HÆST hlutfall yngri bíla var á ís- landi af Norðurlöndunum í árslok 1993, að því er fram kemur í bif- reiðatölum frá þessum löndum. Þrátt fyrir það hefur fólksbílaflotinn verið að eldast á undanförnum árum þar sem endurnýjunin hefur ekki haft við úreldingunni sem hefur einnig leitt til þess að bílum hefur fækkað h'tilsháttar. Frá þessu er greint í fréttabréfi Bifreiðaskoðunar íslands. Á undanförnum árum hefur fimm ára bílum og yngri fækkað en 6-10 ára bílum fjölgað hérlendis. Meðal- aldur fólksbílaflotans á íslandi hefur hækkað um u.þ.b. eitt ár frá 1988 þegar hann var 7,4 ár til ársloka 1994 þegar hann var 8,4 ár. Á árun- um 1986-1988 seldist hlutfallslega mjög mikið af nýjum fólksbílum og við það lækkaði meðalaldurinn. Samkvæmt bifreiðatölum frá hin- um Norðurlöndunum í árslok 1993 var hlutfall yngri bíla hæst á íslandi og hlutfall gamalla bíla hæst í Nor- egi. Meðalaldur fólksbílaflotans á þessum tíma var 8 ár á íslandi, 9,4 ár í Svíþjóð, 9,6 ár í Danmörku og 10,4 ár í Noregi. BMW Z3 og forfeður hans. flldun skraðra folksbila a Islandi 1986-1994 Aldur fólksbila a Norðun- löndum 31. des. 1993 ■ ísland 6-10 ára □ Svlþjóð EI Danmörk □ Noregur Bifreiðatölur frá Worðurlöndunum Hlutfall yngri bíl hæst á íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.