Morgunblaðið - 27.06.1995, Page 1

Morgunblaðið - 27.06.1995, Page 1
100 SÍÐURB/C 142. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Aðgerðum lögreglu mótmælt PÁLESTÍNSKUR drengur gerir hróp að ísraelskum hermönnum á götum Hebron í gær. Mikil ólga er á sjálfstjórnarsvæðum Palest- ínumanna vegna hungurverkfalls palestínskra fanga. Þrír menn létust og 50 særðust er ísraelskir lögreglumenn skutu á mótmæl- endur í Nablus á sunnudag sem kröfðust lausnar fanganna. Brenndu Palestínumenn hjól- barða á Vesturbakkanum og Gaza í gær til að ítreka kröfur sínar. A sunnudag funduðu Shimon Peres, utanríkisráðherra Israels, og Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínumanna (PLO), á Gaza og sögðu þeir að nokkuð hefði miðað í samkomulagsátt. 63 milljarð- ar fyrir sæti hjá SÞ Tæpei, San Francisco. Reuter. STJÓRNVÖLD á Tævan sögð- ust í gær reiðubúin að gefa milljarð bandaríkjadala, um 63 milljarða króna, í sjóð handa þróunarríkjunum ef ríkið fengi sæti hjá Sameinuðu þjóðunum. Tævan missti sæti sitt hjá SÞ árið 1971 í hendur kommún- istastjórninni í Kína en fram til þess tíma krafðist stjórn Tæ- vans að hún nyti viðurkenning- ar sem stjórn alls Kína. Tævan- ar búa nú við lýðræði og eiga næststærsta gjaldeyrisvarasjóð í heimi, nær 100 milljarða dala. Boutros Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri SÞ, sagði í gær að SÞ væru í raun gjald- þrota. ■ GjaIdþrota/17 Banatilræði við Mubarak Grunar Súdani um aðild Kairó. Reuter. HOSNI Mubarak, forseti Egypta- lands, sagði í gær, að hugsanlega hefðu stjórnvöld í Súdan staðið að baki banatilræðinu, sem honum var sýnt í Addis Ababa í Eþíópíu í gærmorgun. Var hann að koma til leiðtogafundar Einingarsamtaka Afríkuríkjanna í borginni þegar nokkrir menn, hugsanlega níu tals- ins, réðust á egypsku bílalestina með skothríð. Mubarak sakaði ekki í árásinni og engan fylgdarmanna hans en hann sneri strax aftur heim til Kairó. Á fundi með fréttamönnum var hann spurður hvort eitthvert „nágrannaríki" hefði staðið að til- ræðinu og hann spurði þá hvort átt væri við Súdan. „Það er vel hugsan- legt, mjög svo,“ svaraði Mubarak. í yfirlýsingu sem lesin var í ríkis- útvarpið í Súdan neituðu Súdanir að eiga nokkra aðild að tilræðinu við Mubarak. Sagði utanríkisráð- herra Súdans tilræðið vera sorgleg- an atburð og ásakaði „suma aðila“ um að vilja sverta ímynd Súdans. Grunnt hefur verið á því góða með Egyptum og Súdönum síðan Omar Hassan al-Bashir hrifsaði völdin í Súdan 1989 en talið er, að íslamska fylkingin undir forystu Hassans al-Tourabis hafi skipulagt valdaránið. Fylkingin vinnur að því koma á íslömsku strangtrúarkerfi í öllum arabalöndum. Mubarak sagði einnig, að yfir- völd í Súdan styddu bókstafstrúar- menn í Egyptalandi og nýlega héfði fundist á landamærum ríkjanna mikið af vopnum, sem þau hefðu ætlað egypsku öfgamönnunum. Egypska sjónvarpið hafði það einn- ig eftir eþíópskum yfirvöldum, að hús, sem tilræðismennirnir hefðu notað í Addis Ababa, hefði verið leigt af Súdönum. ■ Segja Mubarak/18 Leiðtogar Evrópusambandsins setja Bosníu-Serbum úrslitakosti Umsátrinu um Sarajevó verði aflétt án tafar Cannes, Bonn, Sarm'evo. Reuter. FORSETI Frakklands, Jaques Chirac, tilkynnti seint í gærkvöldi að Evrópusambandið (ESB) krefðist þess að Bosníu-Serbar léttu tafarlaust umsátrinu um Sarajevó, og að opnaður yrði land- vegur að strönd Adríahafsins. Sagði hann að þessum markmiðum yrði náð með aukinni diplómatískri festu. Hraðliði Breta og Frakka í Bosníu yrði beitt til þess að tryggja framgang málsins. Chirac sagði að leiðtogar ESB-ríkjanna hefðu falið sáttasemjara sínum, Carl Bildt, að knýja fram lok umsátursinsn. Hann myndi einnig leit- ast við að ná samningum um 4 mánaða vopnahlé. Þjóðverjar ætla að senda þotur Þjóðverjar kváðust í gær ætla að senda orr- ustuþotur á vettvang til að styðja friðarsveitir Sameinuðu þjóðanna. Ákvörðun Helmuts Kohls, kanslara Þýska- lands, sem háð er samþykki þings, telst söguleg. Þetta er í fyrsta skipti, sem ákveðið hefur verið að beita hernum erlendis í 50 ár. Þegar þýskir hermenn sáust síðast á þessum slóðum voru þeir klæddir einkennisbúningum Þriðja ríkisins. Þjóðvetjar hyggjast hins vegar ekki senda hermenn til aðgerða á jörðu niðri, heldur halda í þá grundvallarreglu að hermönnum verði ekki beitt þar sem þýski herinn barðist í heimsstyijöld- inni síðari. Gengið verður til atkvæða um það í sambands- þinginu í Bonn hvort Tomado-þotur flughersins verði ásamt flutningavélum og læknum sendar væntanlegu hraðliði Breta, Frakka og Hollend- inga til aðstoðar í Bosníu á föstudag. Þar hefur stjórnin aðeins tíu sæta meirihluta, en Volker Ruhe varnarmálaráðherra vonast til að fá þver- pólitískan stuðning. Rudolf Scharping, leiðtogi sósíaldemókrata (SPD), sagði í gær að engin ástæða væri fyrir flokkinn að hvika frá andstöðu sinni við að beita hernum í Bosníu, en ýmis flokkssystkin hans kváðust hlynnt ákvörðuninni. ' Sprengjuregn í Sarajevo Svo virðist sem umsátursliðið um Sarajevo sé farið að beina sprengjuregninu sérstaklega að friðargæslusveitum Sameinuðu þjóðanna í borg- inni. Sprengjum var varpað á menn úr þeim í tvígang og særðust tveir Frakkar. Fimm börn létu lífíð í árásum á sunnudag og í gær sakaði utanríkisráðherra Bosníu, Muhamed Scirbey, umsátursliðið um að lokka íbúa Sarajevo út á götu með því að láta langt líða á milli sprengjuárása. John Redwood býður sig fram til leiðtoga breska íhaldsflokksins Talið minnka möguleika Majors London, Cannes. Reuter, The Daily Telegraph. JOHN Redwood lýsti því yfir í gær að hann hygðist bjóða sig fram í kjöri á leiðtoga breska Ihaldsflokks- ins, gegn John Major, forsætisráð- herra. Framboð Redwoods er talið draga talsvert úr líkunum á því að Major haldi leiðtogasætinu. „[Mich- ael] Heseltine mun alveg áreiðan- lega fara fram í annarri umferð [leiðtogakjörsins]. Hvernig sem fer, þá er John Major búinn að vera,“ skrifaði stjórnmálaskýrandi The Daily Telegraph í gær. „Sú ákvörðun [Majors] að segja af sér skilur flokkinn eftir í lausu lofti þegar þörf er á afdráttarlausri og ákveðinni forystu," sagði Redwood á fréttamannafundi, fáum klukkustundum eftir að hann sagði af sér embætti ráðherra málefna Wales. Hann sagðist hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann gæti ekki stutt ákvörðun forsætisráð- herrans, og því hlotið að segja af sér. Norman Larnont, sem Major vék úr embætti fjármálaráðherra 1993, hafði um helgina verið talinn mjög líklegur til þess að keppa við Major í leiðtogakjörinu. í gær lýsti hann hins vegar yfir eindregnum stuðn- ingi við framboð Redwoods. Redwood vísaði til föðurhúsanna vangaveltum um að hann ætti enga möguleika á að ná kjöri og að fram- boð hans væri til þess eins gert að Reuter JOHN Redwood veifar til stuðningsmanna sinna í gær. þekktari menn gætu boðið sig fram í annarri umferð leiðtogakjörsins. Redwood er meðal þeirra þing- manna íhaldsflokksins sem efast mjög um gildi Evrópusamstarfs, en sagði í gær að hann hygðist ekki draga Bretland út úr Evrópusam- bandinu ef svo færi að hann yrði forsætisráðherra. Hins vegar myndi hann koma í veg fyrir frekari færslu á valdi frá Bretlandi til Brussel og ekki skipta pundinu út fyrir sameig- inlegan evrópskan gjaldmiðil. Nokkrum mínútum eftir að Redwood tilkynnti framboð sitt kom Major til fundar leiðtoga ríkja Evr- ópusambandsins í Cannes. Hann sagðist öruggur um að bera sigur- orð af Redwood í væntanlegu leið- togakjöri, sem myndi hreinsa and- rúmsloftið í íhaldsflokknum. Forveri Majors, Margaret Thatc- her, hefur hingað til verið andvíg leiðtogakjöri. Hún sagði í gær að Redwood væri „vel hæfur“ maður. Þegar hún var spurð hvort hún væri fylgjandi framboði hans sagði hún: „Báðir frambjóðendurnir eru traustir íhaldsmenn."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.