Morgunblaðið - 29.06.1995, Side 1

Morgunblaðið - 29.06.1995, Side 1
VIÐHORF Bjartsýni landans vaxandi/3 HÖWWUW Ekki til neins aö allir séu eins /8 LÍFEYRIR Séreignasjóðir í sóknarhug /4 Þjónusta Hallur Hallsson hefur keypt Ólaf Jóhannesson út úr fyrirtækinu Menn og málefni sem þessir tveir stofnuðu haustið 1994. Hallur er nú einn eigandi fyrirtækisins sem sérhæfir sig í almannatengslum og alhliða upplýsinga- og kynn- ingarþjónustu í prenti og mynd- máli. Hornsteinn Algirdas Brazauskas, forseti Litháen, mun leggja hornstein að nýrri verksmiðjubyggingu lyfja- fyrirtækisins ILSANTA UAB í Vilníus þann 1. júlí n.k. að við- stöddum Davíð Oddsyni og fleiri gestum. Fyrirtækið er í eigu ís- lenskra, litháiskra og sænskra aðila en íslensku hluthafarnir eru íslenska heilsufélagið hf., Lyfja- verslun Islands hf. og Islenskir aðalverktakar sf. Blöð Lundúnablaðið The Times, flagg- skip útgáfustórveldis Rupert Murdoch, sem átti upptökin að verðstríði á breska blaðamarkað- inum með lækkun á verði í lausa- sölu, tilkynnti óvænt í gær að það ætlaði að hækka verðið um 5 pence í 25 pence. Astæðan er sögð mikil hækkun á dagblaðapappír. SÖLUGENGIDOLLARS MINNIII Reikningar innláns- stofnana samkvæmt yfirliti Seðlabankans Má NN í N f ÆÆ ▲ ar 31. des. 1994 31. maí 1995 Breyting 1. jan.-31. maí 1995 INNLÁNSSTOFNANIR miiij. kr. Lausafjárstaða alls 12.775 16.840 3.705 Almenn útlán 171.939 174.068 2.129 Innistæður alls 163.309 162.300 -1.009 Verðbréfaútgáfa 20.630 25.895 5.265 Verðtryggt og gengisbundið 18.990 17.987 -1.003 Óverðtryggt 1.640 7.908 6.268 VIÐSKIPTABANKAR miiy kr 31. des. 1994 31. maí 1995 Breyting 1. jan.- 31. maí 1995 Lausafjárstaða alls 10.856 13.973 3.117 Almenn útlán 131.524 132.563 1.039 Innistæður alls 129.050 127.853 -1.197 Verðbréfaútgáfa 14.975 19.128 4.153 Verðtryggt og gengisbundið 13.460 11.783 -1.677 Óverðtryggt 1.515 7.345 5.830 SPARISJÓÐIR Sl millj kr 31. des. 1994 31. maí 1995 Breyting 1. jan.- 31. maí 1995 Lausafjárstaða alls 1.737 2.579 842 Almenn útlán 40.784 40.277 -507 Innistæður alls 31.694 31.854 160 Verðbréfaútgáfa 5.656 6.767 1.111 Verðtryggt og gengisbundið 5.531 6.204 673 Óverðtryggt 125 563 438 Bankar og sparisjóðir Innlán minnka en verðbréfa- útgáfa eykst INNLAN viðskiptabankanna þriggja drógust saman um nær 1,2 milljarða króna fyrstu fimm mánuði ársins eða um 0,9%. Á sama tíma jukust al- menn útlán bankanna um rétt rúman milljarð. Bankarnir þurftu því að afla sér ráðstöfunarfjár á verðbréfa- markaði og juku verðbréfaútgáfu um tæplega 4,2 milljarða króna á tíma- bilinu eða sem nam tæplega 28%. Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri íslandsbanka, segir ekki ástæðu til svartsýni vegna minnkandi innlána viðskiptabankanna. í yfirliti sem Seðlabankinn hefur sent frá sér um stöðu peningamála fyrstu fimm mánuði ársins kemur einnig fram að aukning í verðbréf- aútgáfu viðskiptabankanna er bund- in við útgáfu á óverðtryggðum skammtímavíxlum sem jókst úr um 1,5 milljörðum í 7,3 milljarða fyrstu fimm mánuðina eða um 5,8 millj- arða. Aftur á móti dróst útgáfa verð- tryggðra bankabréfa saman um 1,7 milljarða frá áramótum og skýrist það einkum af því að veðdeild ís- landsbanka er ekki lengur tekin með í reikninginn, en hún sameinaðist Verslunarlánasjóði í upphafí ársins. Skoða þarf málið í samhengi Ólafur K. Ólafs, hjá Seðlabanka íslands, segir ekki hægt að draga þá ályktun af ofangreindum tölum að við viðskiptabönkunum blasi innl- ánsvandi. Líta verði á málið í sam- hengi. Sala bankavíxla hafi aukist hjá þeim og líta megi á hana sem ígildi innlána. „Fyrstu fimm mánuði ársins var samdráttur í innlánum viðskiptabanka upp á um 1,2 millj- arða. A sama tíma jukust almenn útián um 1 milljarð. Þessu hafa bank- arnir brugðist við með aukinni víxla- sölu á verðbréfamarkaði og í heild hefur lausafjárstaða viðskiptabank- anna batnað um rúma 3 milljarða króna,“ sagði Ólafur. Ekki ástæða til svartsýni Tryggvi Pálsson, framkvæmda- stjóri Islandsbanka, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki ætla að ástæða væri til svartsýni vegna minnkandi innlána viðskiptabank- anna. Fyrstu fimm mánuði ársins hefði verið svipuð niðursveifla og á sama tímabili í fyrra. Oft væri um tímabundnar sveiflur í innlánum að ræða og á þeim tíma sem liðinn væri af júní væri innlánsaukning hjá íslandsbanka. Tryggvi sagði ennfremur að greinileg merki væru um aukna þenslu og að innflutningur hefði auk- ist. „Þjóðhagsstofnun bendir á að innflutningur fólksbíla hefur aukist um 17% og innfiutningur neysluvöru um 7% á þessu tímabili. Ég vildi frek- ar sjá neyslu og innflutning aukast hægar og að afturbatinn skilaði sér í fjárfestingu í atvinnutækjum og niðurgreiðslu lána,“ sagði Tryggvi. Ólík þróun varð hjá sparisjóðunum að því er varðar innlán á fyrstu fímm mánuðum ársins. Þar varð innlána- aukning upp á um 160 milljónir, en verðbréfaútgáfa jókst talsvert minna en hjá viðskiptabönkunum, eða um 1,1 milljarð. Lausafjárstaða spari- sjóðanna batnaði um rúmlega 800 milljónir á tímabilinu og fólst batinn einkum í aukinni ríkisvÍYlaeiffn. ^ að hugsa um að J0 dtfestu;. Vegna sérstakra laga um flýtifyrningar er rekstraraöilum afar hagstætt aö fjárfesta í atvinnutækjum nú í ár. Viö hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun atvinnutækja. Meö Kjörleiöum Glitnis bjóðast þér fjórar ólíkar leiöir til fjárfestingar í atvinnutækjum. Haföu samband og fáöu aö vita meira um flýtifyrningar, skattfrestun og hvernig þú losnar við að binda rekstrarfé í tækjakosti. Glitnirhf dótturfyrirtæki íslandsbanka Árrnúla 7, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10. Út er komið upplýsingarit um Kjörleiðir Glitnis. Þar er á einfaldan hátt fjallað um ólikar gerðir fjármögnunar. Hringdu og fáðu eintak eða líttu inn og spjallaðu við ráðgjafa okkar. 0TTÓ - GRAFlSK HÖNNUN LJÓSM: THE IMAGE 8ANK / BRETT FROOMER

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.