Morgunblaðið - 29.06.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA J.ANDSMANNA
JMtagtmiifafrifr
1995
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ
BLAÐ
D
Eigandi Gýmis
og dýralækn-
ir ákærðir
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið út ákæru á
hendur Hinriki Bragasyni, eiganda gæðingsins
Gýmis, og Helga Sigurðsyni dýralækni fyrir
brot á dýravemdunarlögum.
Gýmir var felldur á Landsmóti hestamanna
síðastliðið sumar eftir að hann slasaðist. Talin
var ástæða til frekari rannsóknar og leiddu
niðurstöður hennar í ljós að lyfjaleifar fundust
í Gými.
Ríkissjónvarpið skýrði frá þessu í gærkvöldi
og jafnframt að málinu hefði verið vísað til
meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
KNATTSPYRNA
Jones hleypur á
Suðurnesjum
HUGH Jones, sem er mjög þekktur breskur
maraþonhlaupari, verður meðal þátttakenda í
Suðurnesjamaraþoni á sunnudaginn. Lengsta
vegalengdin í keppninni er reyndar hálfmara-
þon og þá vegalengd hyggst Jones hlaupa.
Hann hefur nokkrum sinnum keppt hér á landi
og á brautarmetið í hálfu maraþoni í Reykja-
víkurmaraþoni, 65,46 mínútur, en hann hefur
einnig sigrað í heilu maraþoni í Reykjavík.
Toppurinn á hlaupaferli Hugh Jones er líklega
sigur hans í Stokkhólmsmaraþoni 1992.
Stoichkov á leið
til Parma?
HRISTO Stoichkov, búlgarski landsliðsmið-
herjinn frábæri í knattspyrnu, sem leikið hefur
með Barcelona á Spáni síðustu árin, leikur
hugsanlega með ítalska félaginu Parma næsta
keppnistímabil. „Það eina sem vantar upp á
er undirskrift hans,“ sagði Giorgio Pedranesc-
hi, forseti ítalska liðsins í gær. Forráðamenn
Parma hafa samþykkt launakröfur kappans
sem hljóða upp á 77 milljónir króna á ári að
sögn forsetans. Ekkert er í hendi enn sem
komið er og ættu aðdáendur Parma ekki að
fagna strax þrátt fyrir þessar fréttir minnugir
þess að samningar við ítalska landsliðsmiðherj-
ann Giuseppe Signori, frá Lazio, gengu til
baka á elleftu stundu nú í vor þegar aðilar
héldu að málið væri á lygnum sjó.
Samningaviðræður Stoichkovs og forráða-
manna Barcelona runnu út í sandinn um síð-
ustu helgi en í gær gerðust hins vegar þau
undur og stórmerki að forseti félagsins, Josep
LIuis Nunez, sagðist tilbúinn að gera honum
betra tilboð en áður. Vandræðin voru þau að
leikmaðurinn vildi semja til þriggja ára en
félagið bauð honum aðeins samning til eins árs.
MorgunDiaoio/ooni
Skagamenn úr leik
FRAMARAR eru komnir áfram í
8-liða úrslit bikarkeppni KSÍ en
þeir lögðu Islandsmeistara Skaga-
manna að velli í gærkvöldi á Laug-
ardalsvelli. Ríkharður Daðason
gerði eina mark leiksins fjórum
mínútum fyrir leikslok. Þetta er í
annað sinn á jafn mörgum árum
sem ÍA er slegið út í 16-liða úrslit-
um, töpuðu líka 1:0 í fyrra, fyrir
KR. Skagamaðurinn Sigurður Jóns-
son, sem lék mjög vel í gær var
rekinn af leikvelli þegar 18 mínútur
voru til leiksloka. Sigurður fékk að
líta gula spjaldið á 35. mínútu, fyr-
ir vægast sagt lítilfjörlegt brot, ef
hægt er að nota það orð í þessu
tilviki. í síðari hálfleik kom Sigurð-
ur út á hliðarlínu og ræddi við Loga
ólafsson þjálfara sinn og virtist
vera að biðja um að fá að fara útaf.
Ekki vannst tími til slíks því
skömmu síðar, á 72. mínútu var
brotið á honum og dæmd auka-
spyrna. Sigurður ýtti full harkalega
við einum leikmanni Fram og fékk
við það síðara gula spjald sitt og
þar af leiðandi rautt — og á mynd-
inni að ofan sést Guðmundur Stefán
Maríusson dómari lyfta rauða
spjaldi. Sigurður er ekki kátur með
þá ákvörðun dómarans, sem sjá
rhá. Framararnir á myndinni hér
til hliðar eru hins vegar ánægðir á
svip, enda að fagna sigri eftir að
flautað var til leiksloka. Steinar
Guðgeirsson, fyrirliði, er til vinstri
og Þorbjöm Atli Sveinsson hægra
megin.
KNATTSPYRNA: HELENA KOMIN „HEIM“ OG SKORAÐITVÖ GEGN ÍA / 04