Morgunblaðið - 30.06.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JHmnptutiiIaMto
1995
FOSTUDAGUR 30. JÚNÍ
BLAD
C
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNIN
Þijú lið úr
1. deild
slegin út
ÞRJÚ 1. deildarlið voru í gærkvöldi
slegin út úr bikarkeppni KSÍ, er
16-liða úrslitunum lauk: Þórsarar
frá Akureyri, sem eru í neðri hluta
2. deildar, sigruðu ÍBV í Vest-
mannaeyjum, 3:2, eftir framleng-
ingu, Fylkismenn gerðu góða ferð
norður á Ólafsfjörð þar sem sigruðu
, Leiftur 6:3 og í Hafnarfirði komu
Grindvíkingar í heimsókn og slógu
FH-inga út með 2:0 sigri.
Önnur úrslit urðu að KR sigraði
2. deildarlið Stjörnunnar 2:1 í
Garðabæ og Valsmenn sigruðu 2.
deildarlið Þróttar 3:2 að Hlíðarenda.
■ Leikirnir / C2-C4.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur Steinsson
Guðmundur
setti bikar-
met gegn
KR-ingum
GUÐMUNDUR Steinsson, mið-
heiji Stjörnunnar, fyrrum leik-
maður Fram og Vikings, setti
nýtt markamet í bikarkeppninni
— aðalkeppninni, þegar hann
skoraði mark sitt gegn KR í
gærkvöldi. Þetta var 28. bikar-
mark Guðmundar, sem átti áður
metið með Hermanni Gunnars-
syni, Val og ÍBA, sem skoraði
27 bikarmörk.
Í51AS9*’
Morgunblaðið/Golli
TÓMAS Ingl Tómasson, Grindvíkingur og Auðun Helgason, leikmaður FH,
berjast um boltann í Kaplakrika í gær. Tómas og félagar fögnuðu sigri.
Landsmót
hestamanna
1998 á Mel-
gerðismelum
NÆSTA landsmót hestamanna, árið 1998, verður
á Melgerðismelum í Eyjafirði. Sljórn Landssam-
bands hestamannafélaga ákvað þetta á fundi
sínum í fyrrakvöld, en auk eyfirsku félaganna
sóttu Skagfirðingar um að halda mótið, á Vind-
heimamelum.
I frétt frá stjórn LH segir að ákvörðunin hafi
m.a. verið tekin í Ijósi þess að eigendur Melgerð-
ismela hafi skuldbundið sig til að byggja upp
fullnægjandi aðstöðu fyrir mótið og ennfremur
nýta það tækifæri sem býðst nú með loforði
Akureyrarbæjar og Eyjafjarðarsveitar, um
fjárstuðning við uppbyggingu Melgerðismela að
upphæð 10 milljónir. Þá vill LH gefa fleiri aðil-
um tækifæri til að byggja upp mótssvæði fyrir
stórmótahald, ennfremur kveðst LH vilja taka
tillit til félagslegra sjónarmiða ekki síður en fjár-
hagslegra og þá er greint frá því að ákvörðunin
um mótsstað tengist fyrirhugaðri fjölgun lands-
móta.
Jóhannes R. í 8-
manna úrslit EM
JÓHANNES R. Jóhannesson tryggði sér sæti í
8-manna úrslitum á Evrópumótinu í snókar sem
fram fer í Belfast á Norður-írlandi. Jóhannes
vann John Farrell frá írska lýðveldinu í miklum
hörkuleik í 16-manna úrslitunum í gær. Jóhann-
es komst í 4-2 en þeim írska tókst að jafna og
í síðasta rammanum voru tvær kúlur eftir og
Farrell þurfti að leggja snóker á Jóhannes, sem
hann og gerði. Jóhannes leysti fyrsta snókerinn
með glæsibrag og þann næsta einnig, en mis-
tókst við þann þriðja. „Mér tókst hins vegar að
leika góða vörn á hann næst og sigra — og þá
öskraði maður af gleiði," sagði Jóhannes R. í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Þeir léku einnig saman á EM í Búdapest í
fyrra og þá vann Jóhanes 5-1. „Hann er betri en
í fyrra og ég held að Farrell sé besti Irinn eins
og er,“ sagði Jóhannes R.
„Þetta var ótrúlegur leikur og við vorum að
gera endalaus „breik“ báðir tveir. Ef annar hvor
okkar gerði mistök kláraði hinn leikinn. Aðrir
leikir voru líka jafnir, þremur lauk 5-4 og einum
5-3 þannig að þeir sem eru eftir virðast mjög
jafnir," sagði Jóhannes R.
Snókerspilararnir hvíla í dag en á morgun
mætir hann Julian Logue frá Norður-írlandi,
ungum strák sem er á leið í atvinnumehnskuna.
„Þetta verður örugglega í lagi, það er ekkert
verra að lenda á móti honum en hveijum öðrum,
Hann hefur áhorfendur að vísu með sér, en við
vonum það besta,“ sagði Jóhannes.
Seint í gærkvöldi var öllum leikjum ekki lokið
en í helmingnum hans Jóhannesar voru auk
hans tveir Irar og einn Englendigur eftir og
hinum megin stefndi í að Englendingur, íri og
tveir spilarar frá Wales yrðu eftir. Ef það geng-
ur eftir er Jóhanes eini „útlendingurinn" í 8-
manna úrslitum. Undanúrslit verða leikinn á
sunnudag og úrslitaleikurinn á mánudag.
Jóhannes B. Jóhannesson vann auðveldan sig-
ur á Tomek Koscielak frá Póllandi í fyrradag,
4:0 í leik sem tók aðeins 40 minútur. Jóhannes
varð í þriðja sæti í sínum riðli en kemst ekki
áfram. Hann telst í 17.-24. sæti af 48 keppendum.
Róbert í Gróttu
RÓBERT Þór Rafnsson handknattleikmaður
hefur skipt úr ÍR og ætlar að leika með Gróttu
i fyrstu deildinni næsta vetur. Róbert er hægri
handar skytta og hefur leikið sem slíkur lyá ÍR.
Þá eru miklar líkur á að Einar Einarsson sem
leikið hefur með STjörnunni alla sína tíð skipti
yfir í ÍR fyrir næsta vetur. Samkvæmt heimildum
blaðsins er aðalástæðan sú að hann fékk ekki
mörg tækifæri til að leika í sókninni með Stjörn-
unni í vetur og vill frekar skipta urn félag en
silja og fylgjst með sóknarieik félaga sinna í
Stjörnunni.
TENNIS: FJÓRIR FRÆGIR ÚR LEIKÁ WIMBLEDON-MÓTINU / C2