Morgunblaðið - 01.07.1995, Side 1

Morgunblaðið - 01.07.1995, Side 1
 GOLF Morceli með besta tíma árs- ins í 1.500 m NOUREDDINE Morceli, heimsmethafi í 1.500 metra lilaupi frá Alsfr, náði i gær besta tfma árs- ins í greiniuni á móti f Pétursborg í Rússiandi. Morceli hljóp á þremur mfnútum 32,45 sekúndum. Aðeins Morceli sjálfur hafði hlaupið hraðar á ár- inu, en hann fór vegalengdina á 3.32,99 mín. í Sevilla 3. júní. Hann sýndi svo ekki verður um viUst að hann verður enn einu sinni sá þröskuldur sem menn verða að komast yfir, ætli þeir sér sig- ur, þegar kemur að heimsmeistaramótinu f Gauta- borg í næsta mánuði. Frjálsíþrótta- þjálfara HSK sagt upp FRJÁLSÍÞRÓTTANEFND Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK) hefur sagt Slapokas Vítmantas frá Litháen upp störfum en hann hafði starfað sem þjálfari fijálsíþróttafólks f héraðinu frá því í október. Að sögn Valgerðar Auðunsdóttur, formanns fijálsíþróttanefndar HSK, var það erfið ákvörðun að segja þjálfaranum upp. „Það leikur enginn vafi á að hann kann ýmislegt fyrir sér varðandi þjálfun og uppbyggingu, en þegar kom að tækni- æfingum komu miklir tungumálaerfiðleikar f (jós og þess vegna urðum við að láta hann fara. Þetta er stórt hérað og það er erfitt fyrir hann að ferð- ast um allt og vera hálf máilaus. Hann nær ekki til krakkanna og þau ekki til hans og krakkarnir missa því áhugann og hætta,“ sagði Valgerður. Hún sagði að ekki væri búið að fá eftirmann en reynt yrði að leita eftir lijálp þjá einhveiju góðu fólki. Bæði Þórsliðin í 8-liða úrslit ÞÓR frá Akureyri, sem leikur í 2. deild, er eina félagið sem á tvö lið í 8-liða úrsiitum bikarkeppn- innar í knattspyrnu. „Ég er að sjálfsögðu afar ánægður með þaim árangur sem við Þórsarar höfum náð,“ sagði Nói Björnsson þjálfari Þórs við Morgunblaðið eftir sigur ungmennaliðs félagsins, 23 ára og yngri, gegn jafnöldrunum úr ÍA á Akra- nesi í gærkvöldi. Ungmennalið Þórs varð þar með síðast til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum. „ Við erum með góðan tuttugu og tveggja manna hóp hjá Þór og þessi úrslit komu mér ekkert sér- staklega óvart, ég þekki mína menn. Við erum aUir að koma til þrátt fyrir hálf brösótta byijun í annarri deildinni, en leiðin er tvfmælalaust uppá við núna,“ sagði Nói. ■ Þórsarar / E4 Plnr@iwtMíiIÍ>ií> 1995 LAUGARDAGUR 1.JÚLÍ BLAD JÚGÓSLAVAR hafa ekki þurft að leika af fullum krafti enn sem komið er í Evrópukeppninni í körfuknattleik sem fram fer í Aþenu, en eru þó taldir með besta liðið. í gær sigruðu þeir Frakka nokkuð örugglega í 8- liða úrslitum og mæta heima- mönnum í dag í undanúrslitum. Á myndinni má sjá Predrac Dan- ilovic skora gegn Thiery Gadou frá Frakklandi. Hið geysisterka lið Litháa sigraði Rússa örugg- lega í gær og þar með er draum- ur Rússa um sæti á Ólympíuleik- unum í Atlanta á næsta ári úr sögunni — sem þjálfari þeirra lýsti sem meiriháttar áfalli fyrir Rússa. í öðrum leikjum gærdags- ins báru Króatar sigurorð af ítölum og Grikkir unnu Spán- veija. Litháar og Króatar leika annars vegar í undanúrslitum í dag og hins vegar Júgóslavar og Grikkir, sem fyrr segir. Úrslita- leikurinn verður á morgun og er talið líklegast að þar mætist Júgóslavar og Króatar. Júgó- slavar á leiðá toppinn Reuter KORFUKNATTLEIKUR Slakt á Norðurlandamótinu Björgvin Sigurbergsson eini Islendingurinn sem lék af eðlilegri getu í Svíþjóð Islensku landsliðin í golfi urðu í neðsta sæti, bæði karlar og kon- ur, á Norðurlandamótinu sem lauk í Svíþjóð í gær. Fyrir tveimur árum lék íslenska karlaliðið á 670 höggum og varð í þriðja sæti, nú leikur liðið á 37 höggum meira og endar í fimmta og síðasta sæti. Menn skulu þó ekki gefa upp alla von með golfið því nýverið voru tekin upp ný vinnu- brögð þar á bæ og snéru menn sér nokkuð að uppbyggingunni eins og Svíar hafa verið að gera og bjuggust fyrirfram við því að það tæki tíma, ein þijú ár að skila sér, þannig að enn er von. „Við vorum nú að gera okkur von- ir um brons, jafnvel hjá báðum lið- um,“ sagði Ragnar Ólafsson lands- liðseinvaldur og þjálfari, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við erum því dálítið vonsvikin með þetta, en mun- urinn er samt ekki svo mikill hjá stelpunum. Mér sýnist að aðstöðu- leysi okkar heima hafi komið vel í ljós hér. Menn hafa ekki getað æft pútt af neinu viti vegna þess hvemig vellirnir koma undan vetri og því pútta menn ekki vel. Það setur síðan pressu á að menn geri betur í öðrum höggum og þannig leiðir þetta hvert af öðru. Þetta breytir því hins vegar ekki að við bjuggumst alls ekki við að tvö lið af þremur klikkuðu í fjórleiknum og fjórmenningnum. En Ijósi punkt- urinn í þessu er að Björgvin [Sigur- bergsson] er að spila vel, bæði fyrri daginn og einnig í höggleiknum í dag,“ sagði Ragnar. BjÖrgvin og Birgir Leifur Hafþórs- son léku fjórleikinn á 68 höggum, þremur á eftir fyrstu mönnum en Þorkell Snorri Sigurðsson og Björn Knútsson léku á 76 höggum eins og Örn Amarson og Sigurpáll Geir Sveinsson. í fjórmenningi léku Björg- vin og Birgir Leifur á 79 höggum, Örn og Sigurpáll á 84 og Þorkell Snorri og Björa á 86. Björgvin lék síðan á 74 höggum í gær, tveimur yfir pari og varð í 7. til 10. sæti. Þorkell Snorri var á 79 höggum, Sigurpáll á 80, Birgir Leifur á 81, Björn á 86 og Örn 88. Stelpumar jafnar Stúlkumar voru mjög jafnar í höggleiknum í gær og léku allar á 80 höggum! í fjórleiknum léku Ólöf María Jónsdóttir og Herborg Amars- dóttir á 73 höggum og Ragnhildur Sigurðardóttir og Karen Sævarsdótt- ir á 76. Dæmið snérist hins vegar við í fjórmenningnum en þá léku Ragnhildur og Karen á 78 höggum en Ólöf María og Herborg á 80. Stúlkumar koma heim á morgun en í dag fara strákarnir til Belgíu þar sem þeir munu æfa á mánudag og þriðjudag fyrir Evrópumótið sem hefst á miðvikudaginn. Hjá stúlkunum sigruðu Danir á 365 höggum, Svíar urðu í öðru sæti á 371, Finnar á 374, Norðmenn á 378 og ísland varð neðst á 391 höggi. Hjá körlunum sigruðu Svíar á 636 höggum en síðan koma Danmörk á 663, Noregur á 672, Finnland á 683 og loks ísland á 707. FRJÁLSÍÞRÓTTIR: EVRÓPUBIKARKEPPIMIN í FJÖLÞRAUT í LAUGARDAL / E3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.