Morgunblaðið - 01.07.1995, Page 1
GOLF
Morceli með
besta tíma árs-
ins í 1.500 m
NOUREDDINE Morceli, heimsmethafi í 1.500
metra lilaupi frá Alsfr, náði i gær besta tfma árs-
ins í greiniuni á móti f Pétursborg í Rússiandi.
Morceli hljóp á þremur mfnútum 32,45 sekúndum.
Aðeins Morceli sjálfur hafði hlaupið hraðar á ár-
inu, en hann fór vegalengdina á 3.32,99 mín. í
Sevilla 3. júní. Hann sýndi svo ekki verður um
viUst að hann verður enn einu sinni sá þröskuldur
sem menn verða að komast yfir, ætli þeir sér sig-
ur, þegar kemur að heimsmeistaramótinu f Gauta-
borg í næsta mánuði.
Frjálsíþrótta-
þjálfara HSK
sagt upp
FRJÁLSÍÞRÓTTANEFND Héraðssambandsins
Skarphéðins (HSK) hefur sagt Slapokas Vítmantas
frá Litháen upp störfum en hann hafði starfað
sem þjálfari fijálsíþróttafólks f héraðinu frá því
í október.
Að sögn Valgerðar Auðunsdóttur, formanns
fijálsíþróttanefndar HSK, var það erfið ákvörðun
að segja þjálfaranum upp. „Það leikur enginn
vafi á að hann kann ýmislegt fyrir sér varðandi
þjálfun og uppbyggingu, en þegar kom að tækni-
æfingum komu miklir tungumálaerfiðleikar f (jós
og þess vegna urðum við að láta hann fara. Þetta
er stórt hérað og það er erfitt fyrir hann að ferð-
ast um allt og vera hálf máilaus. Hann nær ekki
til krakkanna og þau ekki til hans og krakkarnir
missa því áhugann og hætta,“ sagði Valgerður.
Hún sagði að ekki væri búið að fá eftirmann
en reynt yrði að leita eftir lijálp þjá einhveiju góðu
fólki.
Bæði Þórsliðin
í 8-liða úrslit
ÞÓR frá Akureyri, sem leikur í 2. deild, er eina
félagið sem á tvö lið í 8-liða úrsiitum bikarkeppn-
innar í knattspyrnu. „Ég er að sjálfsögðu afar
ánægður með þaim árangur sem við Þórsarar
höfum náð,“ sagði Nói Björnsson þjálfari Þórs við
Morgunblaðið eftir sigur ungmennaliðs félagsins,
23 ára og yngri, gegn jafnöldrunum úr ÍA á Akra-
nesi í gærkvöldi. Ungmennalið Þórs varð þar með
síðast til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum.
„ Við erum með góðan tuttugu og tveggja manna
hóp hjá Þór og þessi úrslit komu mér ekkert sér-
staklega óvart, ég þekki mína menn. Við erum
aUir að koma til þrátt fyrir hálf brösótta byijun
í annarri deildinni, en leiðin er tvfmælalaust uppá
við núna,“ sagði Nói.
■ Þórsarar / E4
Plnr@iwtMíiIÍ>ií>
1995
LAUGARDAGUR 1.JÚLÍ
BLAD
JÚGÓSLAVAR hafa ekki þurft
að leika af fullum krafti enn sem
komið er í Evrópukeppninni í
körfuknattleik sem fram fer í
Aþenu, en eru þó taldir með
besta liðið. í gær sigruðu þeir
Frakka nokkuð örugglega í 8-
liða úrslitum og mæta heima-
mönnum í dag í undanúrslitum.
Á myndinni má sjá Predrac Dan-
ilovic skora gegn Thiery Gadou
frá Frakklandi. Hið geysisterka
lið Litháa sigraði Rússa örugg-
lega í gær og þar með er draum-
ur Rússa um sæti á Ólympíuleik-
unum í Atlanta á næsta ári úr
sögunni — sem þjálfari þeirra
lýsti sem meiriháttar áfalli fyrir
Rússa. í öðrum leikjum gærdags-
ins báru Króatar sigurorð af
ítölum og Grikkir unnu Spán-
veija. Litháar og Króatar leika
annars vegar í undanúrslitum í
dag og hins vegar Júgóslavar og
Grikkir, sem fyrr segir. Úrslita-
leikurinn verður á morgun og
er talið líklegast að þar mætist
Júgóslavar og Króatar.
Júgó-
slavar á
leiðá
toppinn
Reuter
KORFUKNATTLEIKUR
Slakt á Norðurlandamótinu
Björgvin Sigurbergsson eini Islendingurinn sem lék af eðlilegri getu í Svíþjóð
Islensku landsliðin í golfi urðu í
neðsta sæti, bæði karlar og kon-
ur, á Norðurlandamótinu sem lauk í
Svíþjóð í gær. Fyrir tveimur árum
lék íslenska karlaliðið á 670 höggum
og varð í þriðja sæti, nú leikur liðið
á 37 höggum meira og endar í
fimmta og síðasta sæti. Menn skulu
þó ekki gefa upp alla von með golfið
því nýverið voru tekin upp ný vinnu-
brögð þar á bæ og snéru menn sér
nokkuð að uppbyggingunni eins og
Svíar hafa verið að gera og bjuggust
fyrirfram við því að það tæki tíma,
ein þijú ár að skila sér, þannig að
enn er von.
„Við vorum nú að gera okkur von-
ir um brons, jafnvel hjá báðum lið-
um,“ sagði Ragnar Ólafsson lands-
liðseinvaldur og þjálfari, í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Við erum því
dálítið vonsvikin með þetta, en mun-
urinn er samt ekki svo mikill hjá
stelpunum. Mér sýnist að aðstöðu-
leysi okkar heima hafi komið vel í
ljós hér. Menn hafa ekki getað æft
pútt af neinu viti vegna þess hvemig
vellirnir koma undan vetri og því
pútta menn ekki vel. Það setur síðan
pressu á að menn geri betur í öðrum
höggum og þannig leiðir þetta hvert
af öðru.
Þetta breytir því hins vegar ekki
að við bjuggumst alls ekki við að tvö
lið af þremur klikkuðu í fjórleiknum
og fjórmenningnum. En Ijósi punkt-
urinn í þessu er að Björgvin [Sigur-
bergsson] er að spila vel, bæði fyrri
daginn og einnig í höggleiknum í
dag,“ sagði Ragnar.
BjÖrgvin og Birgir Leifur Hafþórs-
son léku fjórleikinn á 68 höggum,
þremur á eftir fyrstu mönnum en
Þorkell Snorri Sigurðsson og Björn
Knútsson léku á 76 höggum eins og
Örn Amarson og Sigurpáll Geir
Sveinsson. í fjórmenningi léku Björg-
vin og Birgir Leifur á 79 höggum,
Örn og Sigurpáll á 84 og Þorkell
Snorri og Björa á 86. Björgvin lék
síðan á 74 höggum í gær, tveimur
yfir pari og varð í 7. til 10. sæti.
Þorkell Snorri var á 79 höggum,
Sigurpáll á 80, Birgir Leifur á 81,
Björn á 86 og Örn 88.
Stelpumar jafnar
Stúlkumar voru mjög jafnar í
höggleiknum í gær og léku allar á
80 höggum! í fjórleiknum léku Ólöf
María Jónsdóttir og Herborg Amars-
dóttir á 73 höggum og Ragnhildur
Sigurðardóttir og Karen Sævarsdótt-
ir á 76. Dæmið snérist hins vegar
við í fjórmenningnum en þá léku
Ragnhildur og Karen á 78 höggum
en Ólöf María og Herborg á 80.
Stúlkumar koma heim á morgun
en í dag fara strákarnir til Belgíu
þar sem þeir munu æfa á mánudag
og þriðjudag fyrir Evrópumótið sem
hefst á miðvikudaginn.
Hjá stúlkunum sigruðu Danir á
365 höggum, Svíar urðu í öðru sæti
á 371, Finnar á 374, Norðmenn á
378 og ísland varð neðst á 391 höggi.
Hjá körlunum sigruðu Svíar á 636
höggum en síðan koma Danmörk á
663, Noregur á 672, Finnland á 683
og loks ísland á 707.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: EVRÓPUBIKARKEPPIMIN í FJÖLÞRAUT í LAUGARDAL / E3