Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 1
REYNSLUAKSTUR Á PEUGEOT306 SL - KRAFTMIKLIR SPORTBÍL- AR FRÁ BANDARÍKJUNUM ALKÓHÓLMÆLIR FYRIR ÞÁ ÖKU- LEYFISSVIPTU — HVERNIG FARNAST FJÖLNOTABÍL UM í EVRÓPU 1995 BLAÐ ALMENNAR Kringlunni 5 - sími 569-2500 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ SAAB 900 S kemur í haust og kostar frá 1.869 þúsund kr. fimm dyra billinn. Saab til Bílheima í haust Tveggja sæta Tulip rafbílar PSA (Peugeot og Citroen) telur að framtíðin liggi í tveggja sæta rafbílum sem brúi bilið milli al- menningssamgangna og hefð- bundinna fólksbíla. Samsteypan hefur smíðað hugmyndabílinn Tulip sem er stytting á franska hugtakinu Transport Urbain Libre Individuel et Public. í bílnum er að finna tvær verkfræðilegar nýj- ungar, þ.e. þráðlausa rafhleðslu og yfirbyggingu úr frauðkjarna og trefjagleri. PSA kveðst alvar- lega íhuga að hefja framleiðslu á tveggja sæta rafbílum um næstu aldamót. Tulip kerfið byggir á neti hleðslustöðva sem eru upphafs- og áfangastaður bílsins. Notendur Tulip yrðu áskrifendur að kerfinu og hefðu sína eigin fjarstýringu sem bæði ræsir bílinn og mælir hleðslu hans í hvert sinn sem hann er notaður. Tilraunahleðslustöðvar á næsta ðrl A sérstakri móðurstöð yrði öll þjónusta veitt jafnframt því sem hún sæi um reikningshald vegna notenda og viðgerðir á öllum Tulip bflum. Nýmæli er að hleðsla á rafgeymum fer fram með þráð- lausum hætti. Bílnum er einfald- lega lagt yfir kefli á jörðinni og segulorka frá keflinu sér um að hlaða rafgeymana á fjórum klukkustundum. PSA hefur líka brotið nýtt blað í efnisnotkun í Tulip bflana. Ráð- gert er að bíllinn, sem er 2,13 m að lengd, verði smíðaður úr efnum sem einna helst þekkjast í bátum. Ytra byrðið verður úr tveimur lög- um af trefjagleri styrkt með einu lagi af frauðkjarna og innra byrð- ið aftur með tveimur lögum af trefjagleri. Yfirbyggingin verður því samsett úr fjórum lögum sem eru límd saman. Með þessari bygg- ingaraðgerð segir PSA að bíllinn þoli 87% meira högg en samsvar- andi bíll úr stáli. Ráðgert er að settar verði upp tilraunahleðslustöðvar í Tours í Frakklandi á næsta ári og notast verður við raf- útfærslur af Peugeot 106 og Citroén AX. Líklegt þykir að mikill kostnaður og flókið ferli við upp- setningu hleðslustöðva verði til þess að í upp- hafi Tulip-áætlunarinn- ar verði eingöngu reistar hleðslustöðvar á afmörk- uðum svæðum í borgum. TULIP er lítill og lágur en hagkvæmur og umhverfisvænn. Innanrým- ið er engu líkt og bíllinn rúmar tvo fullorðna. leysi Explorer af hólmi. MARKAÐSRANNSÓKNIR hafa hafist í Bretlandi vegna hugsanlegrar smíði á Jaguar jeppa sem gengur undir vinnu- heitinu LUX. Hópi Jaguar eigenda voru sýndar tölvuunnar myndir af þremur útfærslum af jeppa, aUt frá Ford Explor- er með Jaguar merkinu til mun róttæk- ori hugmynda, svipuðum þeim sem greint var frá á þessum síðum í febrúar síðastliðnum. Eigendunum var sagt að bðlinn yrði smíðaður í verksmiðjum Ford í Bandaríkjunum og yrði að mestu hyggður á bandarfskri fyrirmynd, þ.e.a.s. jeppa framleiddum af Ford. Kjörorðið sem kynnt var fyrir Jaguar eigendum var „Byggður af Ford en fín- pússaður af Jaguar“. Viðbrögð eru sögð hafa verið blendin. Markaðskönnun var einnig gerð meðal breskra eigenda dýrra jeppa eins og Range Rover og Mitsubishi Shogun. Nýlega var gerð svipuð könnun meðal Jaguar eigenda og jeppaeigenda í Bandaríkjunum en þeim voru sýnd leirlikön af hugsanlegum útfærslum. Jeppaáætlun Jaguar er eink- um tilkomin vegna mikillar sölu á jepp- um um allan heim, en þó aðallega í Bandarílgunum. Núverandi áætiun gengur út á það að nýr Jaguar jeppi leysi af hólmi Ford Explorer, en Jagu- ar, hið fornfræga enska bílamerki, er sem kunnugt er að stærstum hluta í eigu Ford. Yfirbyggingin yrði þó önnur og líklegt þykir að bíllinn yrði með loftp- úðafjöðrun. Vél og drif kæmi hins vegar úr hillum Ford. Ráðgert er að bíUinn komi á markað 1998. FYRSTU Saab bílarnir sem hingað koma til lands eftir að Bílheimar hf. fengu umboð fyrir merkinu koma til landsins í september. Bíl- amir, sem er af árgerð 1996, verða á verði frá 1,869 þúsund kr. til 2.875 þúsund kr. Verðblllð mllljón Saab 900 með 2,0 lítra, sextán ventla vél kostar frá 1.869 þúsund kr. kr. Staðalbúnaður í bílnum er m.a. líknarbelgur, ABS-heml- alæsivöm og rafdrifnar rúður. 900 S bíllinn, sem er enn betur búinn kostar'1.989 þúsund kr., 900 SE með 2,0 lítra vél með forþjöppu kostar 2.465 þúsund kr. Saab 9000 CX 2,0 kostar 2.275 þúsund en með LPT forþjöppu kostar hann 2.337 þúsund kr. Saab 9000 með 2,3 lítra vél kostar 2.875 þúsund kr. Oll þessi verð em miðuð við fimm dyra bíla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.