Morgunblaðið - 04.07.1995, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Verðlauna-
hafar í ljós-
mynda-
samkeppni
OKKAR menn hafa tvisvar efnt
til ljósmyndasamkeppni frétta-
ritara Morgnnblaðsins, annars
vegar fyrir árin 1991-92 og hins
vegar fyrir árin 1993-94.
I fyrri keppninni bar Sigur-
geir Jónasson í Vestmannaeyj-
um sigur úr býtum fyrir mynd-
ina Eldhafið. Ágúst Blöndal í
Neskaupstað varð hlutskarpast-
ur í síðari keppninni með mynd-
ina Frækilegt björgunarafrek.
Ljósmyndir úr þessum keppn-
um voru settar upp á sýningu
í anddyri Morgunblaðshússins
og fóru síðar út um land. Sýn-
ingin Til sjós og lands gengur
einmitt milli staða um þessar
mundir.
Á efri myndinni sem tekin var
eftir afhendingu viðurkenningu
fyrir ljósmyndasamkeppnina
1991-92 eru verðlaunahafamir,
þeir sem tóku við viðurkenning-
um fyrir þá, dómnefnd og rit-
stjóri Morgunblaðsins.
Þau eru frá vinstri: Frey-
steinn Jóhannsson, Sigríður
Óskarsdóttir, Ragnar Axelsson,
Júlíus Sigurjónsson, Matthías
Johannessen, Alfons Finnsson í
Ólafsvík, Ágúst Ágústsson og
Anna María Ágústsdóttir sem
tóku við verðlaunum Róberts
Schmidt á Bíldudal, Sigurgeir
Jónasson í Vestmannaeyjum,
Úlfar Ágústsson á ísafirði, Vil-
mundur Hansen í Trékyllisvík,
Hólmfríður Vala og Margrét
HrÖnn Svavarsdætur sem tóku
við verðlaunum Svavars B.
Magnússonar á Ólafsfirði, Sig-
urður Jónsson á Selfossi og
Theodór Kr. Þórðarson í Borg-
arnesi. Hallgrímur Magnússon
í Grundarfirði fékk einnig verð-
laun en hann gat ekki verið við-
staddur verðlaunaafhending-
una.
Neðri myndin var tekin í vor
eftir að afhent höfðu verið verð-
laun í samkeppninni 1993-94 og
þar em verðlaunahafar, fulltrú-
ar þeirra og dómnefnd. Sigríður
Óskarsdóttir, Jóhanna Jóhanns-
dóttir sem tók við verðlaunum
Benedikts Jóhannssonar á Eski-
firði, Ingibjörg Ólafsdóttir,
Freysteinn Jóhannsson, Sigur-
björg og Auður Gunnarsdætur
sem tóku við verðlaunum Gunn-
ars Hallssonar í Bolungarvík,
Úlfar Ágústsson á ísafirði,
Ellen Kristjánsdóttir sem tók
við verðlaunum Péturs Krislj-
ánssonar á Seyðisfirði, Sigrún
Sveinbjörnsdóttir á Höfn, Theo-
dór Kr. Þórðarson í Borgar-
nesi, Gunnar Rúnar Eyjólfsson
sem tók við verðlaunum Eyjólfs
M. Guðmundssonar í Vogum,
Jónas Erlendsson í Fagradal,
Alfons Finnsson í Ólafsvík, Jón
Sigurðsson á Blönduósi, Sig-
urður Aðalsteinsson á Vað-
brekku, Ágúst Blöndal í Nes-
kaupstað, Sigurgeir Jónasson
í Vestmannaeyjum, Sigurður
Sigmundsson í Syðra-Lang-
holti, Sigurgeir Svavarsson sem
tók við verðlaunum Svavars B.
Magnússonar á Ólafsfirði, Kári
Jónsson sem tók við verðlaun-
um Sigurðar Jónssonar á Sel-
fossi og Sigtryggur Sigtryggs-
son.
Teiknar upp
kirkjugarða og
skráir legstæði
Sigurður Pétur Bjömsson, Silli, fréttaritari
á Húsavík, hefur verið fréttaritari Morgun-
blaðsins í 58 ár. 1 samtali við Helga
Bjamason segir hann frá fréttaritara-
starfínu og öðmm áhugamálum.
Morgunblaðið/Pétur
SIGURÐUR Pétur Bjömsson við útsaum.
AÐ er mitt mesta lán hvað
ég er vinnuglaður," segir
Sigurður Pétur Björns-
son, fréttaritari á Húsa-
vík. Hann lét af störfum sem útibús-
stjóri Landsbanka Íslands á Húsa-
vík fyrir átta árum, þegar hann
varð sjötugur, en hefur ekki setið
auðum höndum síðan. Sigurður
Pétur, eða Silli eins og hann er
oftast nefndur, hefur verið fréttarit-
ari Morgunblaðsins í 58 ár, eða frá
því hann fór innan við tvítugt suður
í Verslunarskólann og er hann sá
fréttaritari blaðsins sem lengst hef-
ur starfað.
Silli segir að Valtýr Stefánsson
ritstjóri hafi ráðið sig sem fréttarit-
ara og jafnframt útsölumann í upp-
hafí. Og hann bendir á að allir þeir
starfsmenn sem þá voru við blaðið
séu löngu hættir. „Eg man að þeg-
ar skrifleg próf voru í Verslunar-
skólanum kom ég við í afgreiðsl-
unni hjá Ottesen til að fá blaðið og
láta kennarann sem sat yfír í próf-
inu fá. Kennarnir spurðu hvort ég
hefði ekki komið við á Mogganum
ef ég var ekki með blaðið með
mér,“ segir Silli.
„Haldið í mér lífinu“
Frá því hann hætti í bankanum
hefur hann unnið mikið við að
teikna upp kirkjugarða og skrá leg-
stæði. Það tók hann þrjú ár að
teikna upp garðinn á Húsavík og
hann er nú búinn að teikna upp tíu
kirkjugarða og alla heimagrafreiti
í prófastsdæminu sem eru 21 tals-
ins. Segir að nákvæmnin sé að
minnsta kosti 95% í Húsavíkurgarð-
inum og sumir segi 99%. Þetta starf
hefur verið vanrækt. Sem dæmi
má nefna að í kirkjugarðinum á
Húsavík var einn maður skráður
sem enn er lifandi og einn var
bæði skráður grafinn á Húsavík og
Skútustöðum. Þetta hefur verið
mikið verk en það hefur haldið í
mér lífinu."
Sigurður Pétur hefur tekið mikið
af ljósmyndum og er að skrá
myndasafnið í tölvu sína um þessar
mundir. Hefur komið í ljós að hann
á meira af myndum en hann hélt.
Þá hefur hann samið handrit að lit-
skyggnumyndröðum. Semur hann
texta um ákveðið viðfangsefni og
lætur lesa inn á segulband. Mynd-
irnar eru síðan sýndar á meðan
textinn er spilaður af bandinu. Eitt
verkefnið er „Kirkjur í Suður-Þing-
eyjarsýslu" og annað er ,,Húsavík
að 1100 árum liðnum“. „Eg lít að-
eins á þetta sem heimildamyndir
og er frekar tregur að sýna þær.“
Erfitt að meta fréttagildið
Silli hefur haldið áfram að senda
fréttir í Morgunblaðið og frekar
aukið það eftir að hann hætti í
bankanum. Hann segist vera mikið
inni við að sinna áhugamálunum
og frétti því ekki allt. „Menn eru
ekki nógu duglegir að láta mig vita.
Sömu menn geta svo móðgast yfír
því að ekki sé sagt frá því sem
þeir eru að gera. Ég tel að það sé
mikils virði fyrir bæinn að Morgun-
blaðið segi frá því sem hér gerist,
þótt ég geti ekki hælt mér af dugn-
aðinum við það. Helsta vandamálið
er að meta fréttagildið, hvort at-
burðurinn eigi erindi við alþjóð eða
hvort hann sé svo mikið innanbæj-
armál að ekki sé ástæða til að segja
frá honum. Á þessu hafa menn
mismunandi mat.“
Eftirminnilegar fréttir
Silli hefur sérstakan áhuga á
menningaratburðum og varðveislu
gamals fróðleiks og segist vona að
það komi að einhveiju leyti fram í
fréttaskrifum sínum, þó betur megi
gera. „Ég hef gaman af að nota
orð og tiisvör sem eingöngu þekkj-
ast hér um slóðir og Valtýr hvatti
mig til þess á sínum tíma að nota
þau í fréttunum. í seinni tíð er
meira farið að laga fréttirnar til á
ritstjórninni og þá vill þetta detta
út.“
Sigurður Pétur nefnir tvö mál
þegar hann er beðinn um að segja
frá eftirminnilegustu fréttunum.
Minnisstæðasti atburðurinn er þeg-
ar Súðin varð fyrir árás Þjóðverja
út af Skjálfanda í síðari heimsstyrj-
öldinni. Hann lét Morgunblaðið vita
og var síðan beðinn um að taka
myndir af skipinu þegar það kom
til hafnar á Húsavík en Morgun-
blaðið hafði fengið til þess leyfi hjá
herstjórninni. „Mér varð ekki um
sel þegar hermenn komu á móti
mér með byssurnar á lofti þegar
ég ætlaði um borð. Þeir tóku af
mér myndavélina á meðan þeir voru
að fá það staðfest að ég hefði leyfi
til Ijósmyndunar. Ég held að þetta
séu einu myndirnar sem til eru af
því þegar skipið kom til hafnar,“
segir Silli.
Hann minnist einnig á aprílgabb-
ið frá 1960. Þá sendi Silli „frétt“
um risalax, 88 punda, sem átti að
hafa veiðst við Grímsey og fékk
birta í blaðinu á viðeigandi degi,
1. apríl. Með frásögninni birtist
mynd sem Silli útbjó þannig að
maðurinn hélt á risalaxinum með
annarri hendi. Heppnaðist gabbið
svo vel að það var tekið upp í Öld-
inni okkar og birt þar athugasemda-
laust.
Silli var búinn að koma sér upp
góðu bókasafni og hugsaði sér að
Iesa meira þegar hann hætti að
vinna. En hann hefur haft svo
mikið að gera að enn hefur hann
lítið komist í bóklesturinn. Hann
hefur alltaf saumað mikið og hefur
haldið því áfram, situr frekar við
sauma á kvöldin en að horfa á sjón-
varpið. „Það er mikill misskilning-
ur að það eigi að láta eldra fólk
fá spil og föndur þegar það hættir
að vinna. Miklu skemmtilegra er
að fást við einhver raunveruleg og
gagnleg verkefni. Það hef ég gert
og ég veit að mögulegt er að nýta
reynslu gamals fólks betur en gert
er í dag.“