Morgunblaðið - 04.07.1995, Blaðsíða 1
FRJALSIÞROTTIR
FJÓRDUNGSMÓT AUSTFIRSKRA HESTAMANNA Á FORNUSTEKKUM / C8
1995
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ
BLAÐ
Garðveisla
á sextándu
SKONDIÐ atvik átti sér stað á opnu móti Golf-
klúbbs Suðurnesja á sunnudaginn. A miðju móti,
þar sem 122 keppendur tóku þátt, kom erlend
fjölskylda gangandi með nokkrar töskur og teppi
undir hendinni og rölti inná völlinn. Kylfingarn-
ir störðu agndofa á og menn héldu að sér hönd-
um, þó ekki væri nema vegna slysahættu.
Ferðalangarnir röltu sem leið.lá á 16. braut,
leist greinilega vel á hana, opnuðu töskurnar,
breiddu úr teppi og undirbjuggu máltíð fyrir
garðveislu fjölskyldunnar. Krakkarnir voru
sendir til að leika sér í „sandkassanum", sem
golfarar vilja meina að kallist sandglompa og
sé ekki leiktæki. Þegar golfarar fóru að trúa
eigin augum, héldu menn til ferðalanganna og
sögðu þeim að á staðnum væri golfmót í gangi.
En ferðalangarnir létu sig ekki, sögðu þessar
litlu hvítu kúlur sakleysislegar og buðust til að
beygja sig þegar þær kæmu fljúgandi.
Eftir nokkra umræðu féllst fólkið á að yfir-
gefa staðinn.
Stoichkov
sendir Cruyff
tóninn
HRISTO Stoichkov, sem Parma hefur keypt frá
Barcelona, sendir Johan Cruyff tóninn — segir
að hann sé öfundsjúkur vegna góðs gengi hans
hjá Barcel-
ona. „Það var
ljóst að Cruyff
vildi ekki hafa
mig — hann
sagði mér, að
ef ég yrði
áfram, myndi
ég ekki leika,“
sagði Stoic-
hkov og bætti
við: „Ég hef
náð að afreka
meira hjá
Barcelona en
Cruyff, þegar
hann lék með
liðinu. Það
hefur sært
hann.“ Stoic-
hkov, sem
segpr að hon-
um hafi verið kastað á dyr hjá Barcelona, sagði
að hann hafi hafnað mjög góðu tilboði frá París
St. Germain fyrir þremur árum, þar sem hann
vildi vera áfram hjá Barcelona — nú eru aðstæð-
ur aðrar. Stoichkov og Cruyff lentu nokkrum
sinnum saman á sl. keppnistímabili og setti Cru-
yff kappann þá í fimmtán daga æfingabann.
Cruyff hafði ekki áhuga að hafa hann áfram,
sagði að án Stoichkov væru færri vandamál.
„Það var eins og vera með sprengju í búnings-
klefanum, að hafa Stoichkov í liðinu.“
„Parma er eins og Barcelona, frábært félag.
Ég er ánægður að vera kominn í herbúðir liðs-
ins,“ sagði Stoichkov.
STOICHKOV með nýju bók-
Ina, sem hann sendi frá sér
á dögunum.
Síðasta
met
Aouita
fallið
Noureddine Morceli frá Alsír
setti heimsmet í 2.000 m
hlaupi á stigamóti alþjóða ftjáls-
íþróttasambandsins í París í gær-
kvöldi. Þessi snjalli hlaupari sló þar
með síðasta metið sem hinn kunni
hlaupari Said Aouita átti. Morceli
kom í mark á 4:47,88 mín., gamla
metið sem Aouita átti frá 1987,
4:50.81, var einnig sett í París.
Þetta er fjórða metið sem Morc-
eli hefur skráð í metabókina sína,
síðan hann setti met í 1.500 árið
1992. Þá setti hann met í mílu-
hlaupi 1993 og á síðasta ári setti
hann heimsmet í 3.000 m hlaupi.
Þegar Morceli var sþurður
hvernig væri að slá síðasta met
Marokkómannsins, sagði hann að
hann bæri mikla virðingu fyrir
Aouita. „Hann gerði mikið fyrir
íþróttirnar, var fyrirmynd yngri
íþróttamanna um allan heim. Að
slá met, er það sem alltaf er að
gerast í íþróttum," sagði Morceii,
sem hljóp fyrsta hringinn á 57,06
sek., var á tímanum 1:57,09 mín.
eftir 800 m og á 2:55,03 mín. eftir
þriðja hringinn. Þegar klukkan
glumdi, til að gefa til kynna að
einn hringur væri eftir, var tími
hans 3:52,82, þannig að hann hljóp
síðasta hringinn á 55,06 sek.
■ Úrslit / C10
Reuter
Morceli fagnar í París
NOUREDDINE Morceli fagnaði geysilega í París, þegar hann kom í mark í
2.000 m hlaupi á 4:47,88 mín. — nýju heimsmeti.
KNATTSPYRNA
Óli Þór í fimm leikja bann
Oli Þór Magnússon hefur verið
settur í 5 leikja bann og árs
farbann af stjórn Keflavíkurliðsins
eftir að hann lenti í handalögmálum
við tollvörð á Keflavíkurflugvelli
við komu liðsins frá Skotlandi á
laugardaginn. „Mér þykir þetta
mjög leitt og get ekki afsakað þessa
framkomu og mun hlýta þessu
banni," sagði Óli Þór við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Lið Keflvíkinga var að koma frá
Glasgow í Skotlandi um miðnætti
á laugardag eftir leik liðsins við
Partick Thistle í Totokeppninni,
þegar Óli Þór var tekinn til skoðun-
ar af tollverði. „Ég var tekinn til
skoðunar og var með of mikið af
vínflöskum. Það var farið með mig
í skýrslutöku og þá urðu einhver
orðskipti og misskilningur hjá mér,
sem var mín sök, sem endaði með
því að ég danglaði til tollvarðarins.
Ég kýldi hann ekki með krepptum
hnefa en það afsakar ekki neitt,“
sagði ÓIi Þór. „Mér þykir þetta
mjög leitt og hef verið að reyna
að ná í tollvörðinn til að biðja hann
innilegrar afsökunar en ég vil taka
það fram að ég var ekki ölvaður."
Keflvíkingar brugðust strax við
og dæmdu Ola Þór í 5 leikja bann
og árs farbann, sem þýðir að hann
leikur ekki neina leiki erlendis með
liðinu í eitt ár. „Ég var ekki við-
staddur og get því ekki tjáð mig
um atvikið en þetta er hið versta
mál fyrir okkur,“ sagði Jóhannes
Ellertsson formaður knattspyrnu-
deildar Keflavíkur. „Við erum bún-
ir að afgreiða málið frá okkur, það
er nú að baki. Óli Þór er niðurbrot-
inn maður eftir þetta og ætlar að
sætta sig við bannið," bætti Jó-
hannes við.
„Ég mun sætta mig við þetta
bann og afleiðingar þess, ferðin var
á vegum félagsins og þeir verða
að taka hart á málinu,“ sagði Óli
Þór.