Morgunblaðið - 05.07.1995, Side 1
56 SÍÐUR B/C/D
149. TBL. 83.ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Neíta Si&rur Maiors ótvíræður
asokun- ^ ^
um esb og uppstokkun í vændum
Reuter
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, veifar sigri hrósandi til stuðningsmanna sinna eftir sigur-
inn í kosningunum um forystu í Ihaldsflokknum. Við hlið Majors stendur kona hans, Norma.
Brussel. Reuter.
KANADAMENN vísuðu í gær á
bug ásökunum Evrópusambandsins
(ESB) um að þeir stæðu ekki við
sinn hluta samkomulagsins um
grálúðuveiðar í Norður-Atlantshafi.
Emma Bonino, yfirmaður sjávar-
útvegsmála í framkvæmdastjórn
ESB, sagði á mánudag að Kanada-
menn hefðu vanrækt að setja afla-
mark fyrir næsta ár og skoraði á
þá að „virða skuldbindingar sínar“.
„Kanadamenn eru staðráðnir í
að framfylgja samkomulagi Kanada
og ESB um gráðlúðu,“ sagði í yfir-
lýsingu frá sendiráði Kanada í
Brussel. Bætt var við að skipting
kvóta yrði rædd á „tilskildum tíma“
eins og gert væri ráð fyrir í sam-
komulaginu.
Haft var eftir kanadískum emb-
ættismanni að kvótarnir yrðu rædd-
ir á árlegum fundi Norður-Atlants-
hafsfiskveiðiráðsins (NAFO) í Nova
Scotia í Kanada í september. Stefnt
er að því að NAFO staðfesti þá
samkomulag ESB og Kanada.
------------♦ ♦ ♦------
Eiturgufa
í Tókýó
Tókýó. Reuter.
ÞRIR veiktust og voru fluttir á
sjúkrahús í Tókýó eftir að dularfull
gufa á stærstu lestarstöð borgar-
innar hafði valdið þeim andþrengsl-
um. Atvikið átti sér stað síðdegis í
gær að íslenskum tíma.
Nokkrum klukkustundum áður
hafði lögregla uppgötvað á neðan-
jarðarlestarstöð tæki sem gert var
til þess að hleypa gasi út í andrúms-
loftið, og sögðu lögreglumenn að
það hefði getað orðið mörg þúsund
manns að bana.
Húsvörður veitti tækinu athygli
og lét lögreglu- vita áður en það fór
í gang. Engum varð meint af.
JOHN MAJOR sigraði ineð nokkrum
yfirburðum í leiðtogakjöri breska
Ihaldsflokksins í gær, með atkvæð-
um 218 af 329 þingmönnum flokks-
ins. Eftir sigurinn kvaðst Major snúa
aftur í forsætisráðuneytið í Down-
ing-stræti 10 og í dag myndi hann
greina frá uppstokkun í stjórn sinni.
Eini áskorandi hans, John Redwood,
fékk 89 atkvæði og er talinn hafa
gert tilkall til forystu á hægri armi
flokksins með framboði sínu.
„Þetta var mjög afdráttarlaus sig-
ur,“ sagði Major er atkvæði höfðu
verið talin síðdegis í gær. „Þetta
ætti að svara öllum spurningum og
vangaveltum um forystu íhalds-
flokksins fram að og fram yfir næstu
kosningar."
Verkamannaflokkurinn, sem um
þessar mundir hefur 35% umfram
Ihaldsflokkinn í skoðanakönnunum,
sagði að úrslitin hefðu skaðað Major
fremur en að styrkja hann.
Uppstokkun
Hver íhaldsmaðurinn á fætur
öðrum gekk fram fyrir skjöldu í gær
og sagði sigurinn sannfærandi og
svo margir höfðu á orði að enginn
hefði unnið leiðtogakjör í flokknum
með jafn afgerandi forystu og Major
að ætla mætti að þeir hefðu allir
verið að lesa sömu bókina.
Margaret Thatcher, sem flokkur-
inn steypti af stóli árið 1990, sendi
Major „hlýjar hamingjuóskir" og
bætti við að nú mætti snúa sér að
„hinum raunverulega óvini: sósíal-
ismanum“.
Tilgangur væntanlegrar upp-
stokkunar í stjórninni er að treysta
stöðu Majors og bera smyrsl á sár
klofins flokks. Uppstokkun varð
reyndar óhjákvæmileg eftir að
Redwood sagði af sér embætti ráð-
herra í málefnum Wales og Douglas
Hurd sagði af sér embætti utanrík-
isráðherra. Major hefur hér tækifæri
til að verðlauna þá, sem sýndu hon-
um stuðning, og taka tillit til krafna
frá hægri og vinstri um leið.
Talið er að Kenneth Clarke verði
áfram fjármálaráðherra. Ekki er tal-
in ríkja jafnmikil vissa um stöðu
Michaels Heseltines, viðskipta- og
iðnaðarráðherra, sem búist var við
að færi fram gegn Major næði hann
ekki tilskildum meirihluta. Hann
studdi þó Major í leiðtogakjörinu og
situr sennilega áfram.
Michael Portillo, sem einnig var
sagður líklegur til að gefa kost á
sér ef kæmi til annarrar umferðar,
er nú atvinnumálaráðherra, en búist
er við að hann fái mikilvægara ráðu-
neyti, t.d. innanríkis- eða varn-
armál, til þess að friða andstæðinga
Evrópusamstarfs.
Því er spáð að annað hvort
Malcom Rifkind, sem nú er varnar-
málaráðherra, eða Michael Howard,
núverandi innanríkisráðherra,
hreppi stól utanríkisráðherra.
Evrópudeilan óleyst
Major hefur sennilega tryggt
stöðu sína fram að næstu kosningum
með því að flýta leiðtogakjöri. Upp-
gjörinu, sem hann hugðist knýja
fram, er hins vegar ekki lokið.
Ágreiningurinn um Evrópumálin er
jafnmikill og áður. Einn fréttaskýr-
andi hafði á orði að í stað þess að
hafa nokkra uppreisnarmenn í
flokknum hefði hann nú 89, sem
hefðu snúist á sveif með Redwood.
Stjórnarerindrekar og fréttaskýr-
endur í Evrópu voru þeirrar hyggju
að úrslitin myndu ekki styrkja stöðu
Bretlands í Evrópusamþandinu.
Hægri vængurinn, sem er andvígur
samruna Evrópu, hefði of mikil ítök
til að Major gæti farið sínu fram í
Evrópumálum og sögðu nokkrir
stjórnmálaskýrendur að í stjórnar-
setrum Evrópu væri þolinmæði yfir
sérstöðu Breta á þrotum.
I leiðara The Daily Telegraph
sagði að Redwood hefði öðlast rétt
til að kalla sig málsvara hægri
vængs flokksins á kostnað Michaels
Portillos. Redwood stendur uppi án
ráðuneytis eftir tapið, en seint í
gærkvöldi skoruðu skoruðu stuðn-
ingsmenn hans á Major að rétta fram
sáttahönd og því er ekki útilokað
að hann eigi afturkvæmt í stjórnina.
Yasser Arafat og Shimon Peres vongóðir eftir fundahöld í Gaza
Segja samn-
ing í augsýn
Gaza. Reuter.
Reuter
YASSER Arafat og Shimon Peres ræða við fréttamenn að lokn-
um fundi í höfuðstöðvum Frelsissamtaka Palestínu í Gaza í gær.
ÍSRAELAR og Palestínumenn hafa
ákveðið að 25. júlí muni þeir skrifa
undir samkomulag um útfærslu
sjálfstjórnarsvæðis hinna síðar-
nefndu á Vesturbakkanum. Leiðtogi
Palestínumanna, Yasser Arafat, og
utanríkisráðherra ísraels, Shimon
Peres, gáfu út sameiginlega yfirlýs-
ingu þessa efnis eftir fundahöld í
Gaza í gær.
í yfirlýsingunni segir að deiluað-
ilar hafi enn ekki náð samkomulagi,
en fram til 25. júlí muni embættis-
menn beggja einbeita sér að samn-
ingaviðræðum svo að unnt verði að
standa við ákvörðunina.
Þeir Arafat og Peres áttu um
þriggja klukkustunda fund í höfuð-
stöðvum PLO síðdegis í gær. Tekinn
var upp þráðurinn frá fyrri fundum
um lokafrágang samnings um brott-
för ísraelskra hermanna frá sjálfs-
stjórnarsvæðunum, en samkvæmt
samkomulagi sem gert var í Osló
1993 áttu Israelsmenn að hafa flutt
herlið sitt á brott fyrir ári.
Von um árangur
Arafat sagði við fréttamenn að
fundinum loknum, að hann og Peres
vonuðust til að hafa náð það áþreif-
anlegum árangri, að komast mætti
að samkomulagi um brottflutning
hermannanna og að því loknu kosn-
ingar meðal Palestínumanna.
Israelar hafa lagt til að fyrst um
sinn muni hermenn þeirra verða á
brott l'rá fjórum bæjum á Vestur-
bakkanum. Talsmaður Arafats sagði
á mánudag að PLO krefðist þess að
ísraelskur her yrði á brott frá öllum
bæjum og byggðum Palestínu-
manna.
Heimþrá
kattar
París. Reuter.
SLÍK var heimþrá kattar
nokkurs í Frakklandi, að hann
gekk ótrauður um 200 kíló-
metra leið eftir frönsku Rivier-
unni endilangri á níu mánuð-
um, eftir að eigandinn hafði
flust búferlum til Marseille.
Eigandinn, Marie-Louise
Bellone, sagði að Chipie (Litli
djöfuli), sem er átta ára göm-
ul, grá læða, liefði sloppið út
úr nýju íbúðinni í Marseille í
september í fyrra.
I síðasta mánuði fundu fyrr-
um nágrannar Bellone í borg-
inni Nice köttinn, úrvinda og
dauðskelkaðan, fyrir utan
íbúðina sem Bellone átti þar.
Bellone fór með Chipie
heim til Marseille aftur og lok-
aði hana inni.