Morgunblaðið - 07.07.1995, Page 1
WIMBLEDON: GRAF OG SANCHEZ VICARIO SPILA TIL ÚRSLITA í KVENNAFLOKKI / C4
1995
FÖSTUDAGUR 7. JULI
BLAÐ
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Skagamenn að stinga af
ÍSLANDSMEISTARAR Akurnesinga eru að stinga af í 1. deild karla í knattspyrnu. Þeir sigruðu Framara 3:0 á Akranesi í
gærkvöldi, þrátt fyrir að Sigurður Jónsson væri ekki með. Hann var í leikbanni, en sigur meistaranna var öruggur þó hans nyti
ekki við. Meistararnir hafa nú níu stiga forystu eftir sjö umferðir; hafa sigrað í öllum leikjum sínum og eru með 21 stig, Leiftur er í
öðru sæti með 12 og KR í þriðja sæti, einnig með 12 en lakari markatölu. Á myndinni fagna Akurnesingar fyrsta marki leiksins
gegn Fram í gær — frá vinstri Kári Steinn Reynisson, Stefán Þórðarson (4), Ólafur Þórðarson, sem skoraði og Alexander Högnason.
I öðrum leikjum urðu úrslit þessi: Valur — Grindavík 0:3, Breiðablik — Leiftur 1:2 og ÍBV — KR 1:0.
■ Leikirnir í gær / C2
Snýr „Magic“
Johnson aftur?
„FORRÁÐAMENN Lakers hafa farið þess á leit
við mig að ég komi fram á ný sem leikmaður með
liðinu,“ sagði Earvin „Magic“ Johnson, ein skær-
asta stjarna NBA deildarinnar fyrr og síðar. „Þetta
mál er enn á umræðustigi og við verðum að hinkra
við og sjá hvað næstu vikur bera í skauti sér,“
bætti kappinn við í samtali við dagblað á Hawai í
vikunni, en þar dvelur hann nú um stundir.
Allt frá því „Magic" lagði skóna á hilluna haust-
ið 1991 hefur öðru hverju kviknað orðrómur þess
efnis að hann væri væntanlegur í NBA keppnina
að nýju, en ekkert meira gerst. Reyndar var hann
þjálfari LA Lakers hluta úr úr tímabilinu 1993 -’94,
en hætti þá um vorið. Nú bendir margt til þess að
meiri alvara sé á bak við vangaveltur „Magic“ í
þetta skiptið en áður og goðið, sem verður 36 ára
í næsta mánuði, leiki að nýju með LA Lakers þeg-
ar keppni hefst á hausti komanda. Jafnframt hefur
hann látið hafa eftir sér að hann langi til að leika •
með bandaríska landsliðinu á Olympíuleikunum í
Atlanta á næsta ári.
„Ég held að Magic hafi nagað sig í handarbökin
vegna ákvörðunar sinnar fyir tæpum fjórum árum,“
segir f ranikvæmdastj ór i LA Lakers, Jerry West.
„Mögulcikinn er fyrir hendi að hann dragi fram
skóna að nýju og ég vildi gjarnan fá svar frá hon-
um af eða á mjög fljótlega til þess að við getum
farið að skipuleggja næsta keppnistimabil," bætti
hann við.
Verði af því að Magic Johnson taki fram skóna-
að nýju og leiki í NBA deildinni er hann tilneyddur
til að selja lítinn hlut sem hann á í Lakersliðinu
og hann eignaðist fyrir tveimur árum síðan. Ekki
þarf að fjölyrða um hversu mikil lyftistöng það
yrði fyrir körfuboltann í Bandaríkjunum ef þessi
stórkostlegi leikmaður snéri aftur til keppni í NBA
deildinni. Á þeim tólf árum sem hann lék þar varð
hann fimm sinnum meistari með Lakers og þrisvar
sinnum valinn leikmaður ársins. Á þessum tíma
átti hann m.a. met í fjölda stoðsendinga, 9.921 sem
var met í deildinni þar til í vetur að John Stockton
sló því við.
Sigurjón endaði
vel vestanhafs
SIGURJÓN Arnarsson kylfingur úr GR stóð sig vel
á síðasta móti sínu að sinni í Tommy Armour inóta-
röðinni í Bandaríkjunum. Sigurjón lék Grenelefe
South völlinn, sem er par 71 og SSS 73, á 70 högg-
um, einu undir pari og varð í 7. sæti af 48 keppend-
um en mótið vannst á 67 höggum.
Sigurjón, sem hefur dvalið við keppni og æfing-
ar í Bandaríkjunum í hálft ár, er á heimleið en
hyggst reyna fyrir sér enn frekar á atvinnumanna-
motum næsta haust ef hann fær tækifæri til. Hann
hefur verið að leika frábært golf undanfarna mán-
uði og væri gaman að sjá hvernig honum myndi
ganga næsta vetur fái hann tækifæri til að hakla
áfram þar sem frá var horfið.
ísland með á
HMíkeilu
ÍSLENSKA landsliðið í keilu hefur verið valið til
þátttöku á IIM sem hefst í Reno, Nevada í Banda-
ríkjunum 10. júlí. Liðið er þannig skipað: Ásgeir
Þór Þórðarson, IR, Ásgrímur Helgi Einarsson,
KFR, Björn Guðgeir Sigurðsson, KR, Halldór Ragn-
ar Halldórsson, IR, Kristján Sigurjónsson, KR og
Valgeir Guðbjartsson. Með landsliðinu fara þeir
Haraldur Sigursteinsson, formaður keilusainbands-
ins og Halldór Bragi Sigurðsson, landsliðsþjálfari.
Á mótinu keppa íslendingarnir í einstaklings,
tveggja, þriggja og fimm manna liðum. Þetta er i
fyrsta skipti sem Island sendir fullskipað lið til
keppni á heimsmeistaramót í keilu.