Morgunblaðið - 12.07.1995, Blaðsíða 1
Lalli
lauf-
blaö
ÞAÐ var einu sinni laufblað
sem hét Lalli. Um sumarið
þegar Lalli var að baða sig
í sólinni kom lítil fluga fljúg-
andi og sagði honum að
haustið færi að koma. Og svo
kom haustið og Lalli féll til
jarðar og dó.
Ester Anna Pálsdóttir, 9
ára, Njörvasundi 17, 104
Reykjavík, er höfundur sög-
unnar um Lalla laufblað og
hún gerði líka myndina. Þú
átt þakkir skildar fyrir, Ester
Anna mín.
Það er virkilega ánægju-
legt að fá svona mikið af
sögum frá ykkur og þær eru
í sannleika sagt hvetjandi
fyrir okkur sem höfum gam-
an af sögum. Við þurfum
ekki að kvíða framtíðinni hér
á sögueyjunni íslandi eins og
landið okkar er stundum kall-
að á uppskrúfuðu máli.
Fleiri sögur, yndislegu
börn, þið sem eigið að erfa
landið, segið hug ykkar í rit-
uðu máli, það þjálfar ykkur
í tjáningunni, eflir andann,
eykur ykkur sjálfstraust -
einmitt, styrkir sál og líka
líkama. Alveg satt.
KÆRU Myndasögur!
Ég var að leika mér þeg-
ar ég fékk hugmyndina að
þessari mynd og þegar ég
var búin, ákvað ég að senda
ykkur hana.
Ég tek það fram að ég
dró myndina ekki í gegn.
Svona hljóðar bréf frá
stelpu sem heitir Karólína
Lárusdóttir, 10 ára (að
verða 11 ára), Sólvallagötu
2, 101 Reykjavík.
Kærar þakkir fyrir bréfið
og myndina af honum E.T.,
E.T.
Karólína mín. Ef ég man
rétt stendur E.T. fyrir
“extra terrestrial“, sem
gæti þýtt sérlega jarðnesk-
ur eða jarðlegur.
Mörg ykkar ' kannist
vafalítið við E.T., geimver-
una úr samnefndri mynd,
sem kemst í kynni við lítinn
dreng og systur hans í stór-
borg í Bandaríkjunum eftir
að geimfar hans hefur lent
á Jörðinni. Segir myndin frá
hvernig vinátta og skilning-
ur vex á milli systkinanna
og geimverunnar. Það kem-
ur í ljós að E.T. er mjög
mannlegur, hann er tilfinn-
ingaríkuf og góðhjartaður.
En það eru fullorðnir sem
láta blákaldar staðreyndir
og þekkingarleit ganga fyr-
ir mannlegum (og 'geim-
verulegum) tilfinningum og
gengur á ýmsu í þeim leik
öllum.
■—■■■.n.iumin.
Brandarabanki
Myndasagnanna!
HÆSTU mögulegir
vextir í gleöi og brosi
svo að skín í endajaxl-
ana ef þeir eru þá
komnir í ljós — Ef þið
akið ykkur í spiki, leyf-
ið því aö gutla svolítið
og hristast af ykkur
með lestri Brandara-
bankans — Brandara-
bankinn; besta heilsu-
bót sem völ er á —
Mesta og besta ávöxt-
unin.
Yngismærin Magdalena
Sigurðardóttir, Framnes-
vegi 36, 101 Reykjavík,
leggur fyrst allra inn á há-
vaxta-brandarabók í
Brandarabanka Mynda-
sagna Moggans, og fær
kærar þakkir fyrir, jafn-
framt sem við óskum henni
til hamingju með skynsam-
lega ráðstöfun brandara
sinna.
Gjöriði svo vel, elskumar
mínar, og njótið vaxtanna!
- Mamma, af hverju er
pabbi með svona lítið hár?
- Það er af því að hann
hugsar svo mikið.
- En afhveiju ert þú með
svona mikið hár, mamma?
- Þegiðu, krakki, oghaltu
áfram að borða.
Ha, ha, ha, ík, íík, ííík!
Sómapilturinn Viktor
Pétur Hannesson, Bjarkar-
hlíð 5, 700 Egilsstaðir,
sendir okkur þessa brand-
aragátu:
Hvað er verra en gíraffí
með hálsbólgu?
Svar: Þúsundfætla með
líkþorn.
Ho, ho, hooo!
Már Egilsson, 9 ára,
Réttarholtsvegi 75, 108
Reykjavík, lagði inn á
brandarabók og fær góða
vexti:
Gunna frænka: Hvað
ætlar þú svo aðgera, Sigga
mín, þegar þú ert orðinjafn
stór og mamma þín?
Sigga: Fara í megrun.
Hí, hfi
MSRBðBIHSS
Brúska
Rr yþjv^
HÆ!
Ég heiti Bryndís Björk Arnardóttir og er 6 ára. Ég les alltaf
Myndasögur Moggans. Ég sendi hérna mynd af íkornanum
Brúsku og langar að biðja ykkur um að birta hana í næsta
Myndasagnablaði. Takk fyrir, Bryndís Björk Arnardóttir, Leið-
hömrum 32, 112 Reykjavík.
Kæra vinkona, Myndasögum Moggans er mikil ánægja að
verða við bón þinni og við þökkum þér hjartanlega fyrir myndina.