Morgunblaðið - 13.07.1995, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GÓÐAR fréttir berast úr flest-
um laxveiðiám landsins, sér-
staklega þó ánum við Faxafló-
ann, þar sem ótæpilegar smá-
laxagöngur eru þessa dagana.
Suðurlandsárnar, sérstaklega
Ytri-Rangá, og nokkrar ár norð-
an heiða hafa einnig fengið góð-
ar göngur og meiri en menn
þorðu að vona miðað við smá-
laxaleysi og síðbúið og kalt vor
1994.
Hörkuveiði í
Haffjarðará
„Það gengur alveg Ijómandi
vel fyrir vestan, byijaði reyndar
alveg ágætlega og hefur verið
jafnt og gott allan tímann. Síð-
ustu 1-2 vikurnar hefur þó verið
sérstaklega líflegt," sagði Páll
G. Jónsson um gang mála í
Haffjarðará á Snæfellsnesi það
sem af er sumri. Þar eru nú
komnir yfir 200 laxar á land sem
er afburðagott miðað við hve
mikið er eftir af veiðitímanum.
Að sögn Páls hafa verið góðar
göngur í ána að undanförnu og
lítið lát þar á enn sem komið
er. Mest er nú um vænan smá-
lax, en að sögn Páls er hlutfall
stærri laxa innan um all gott
og stærstu laxarnir 16 til 18
punda.
Enn mikl-
ar göngrir
víða
Laxá í Kjós lífleg
Páll G. Jónsson er einnig
leigutaki Laxár í Kjós og sagði
hann rúmlega 250 laxa komna
á land. „Veiðin í Laxá er að 80
prósentum fiuguveiði og ég er
hægt og bítandi að reyna að
auka hlut flugunnar enn meira.
Það hafa komið dagar að laxinn
hefur verið tregur og aðra daga
hafa menn fengið margar tökur
en misst marga fiska. Það er
mikill lax í ánni og hann er að
dreifa sér um alla á, þó það hafi
verið sterkast fyrir neðan Lax-
foss og Kvíslafoss enn sem kom-
ið er,“ sagði Páll um Laxá.
Besta byijunin í
Ytri-Rangá
Veiðin í Rangánum er nú um
100 löxum meiri en í fyrra og
er að auki miklu betri en met-
sumarið þar eystra 1990. „Þetta
stefnir hátt með sama áfram-
haldi, en samkvæmt reynslu okk-
ar í Rangánum til þessa er aðal-
göngutíminn eftir,“ sagði Þröst-
ur Elliðason • umsjónarmaður
Ytri-Rangár og vesturbakka
Hólsár í samtali við Morgunblað-
ið. í gær voru um 250 laxar
komnir á land, þar af um 200
úr Ytri-Rangá, en 50 úr Eystri-
Rangá. Athygli vekur að Eystri-
Rangá, sem hefur verið í mikilli
sókn síðustu árin, á sama tíma
og göngur hafa verið misjafnar
í þeirri ytri, situr nú kirfilega
eftir.
Núpá góð
Rúmlega 60 laxar voru komn-
ir á land úr Núpá á Snæfells-
nesi í vikubyrjun og að sögn
Eiríks S. Eiríkssonar, eins leigu-
taka árinnar, er algengt að
dagsveiðin á þijár stangir sé
þetta 3 til 8 laxar á dag. Nýlega
fékkst 19 punda hængur á flugu
og var það fyrsti lax veiði-
mannsins.
SPÆNSKUR veiðimaður t.v. og leiðsögumaður Jóhannes Sigm-
arsson með 22 punda hæng úr Norðlingafljóti.
LADASAMARA
STOP
LADA
FYRIR
Frá 624.000,- kr.*
156.000,- kr. út oö I
15.720,- kr.
í 36 mánuði.
SPARA
Tökum notaða bíla sem greiðslu
upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra
greiðslumöguleika.
Tekið hefur verið tillit til vaxta í
útreikningi á mánaðargreiðslum.
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36
MARLEY
Kantaðar eða rúnnaðar
♦ Sterkar og endingargóðar, framleiddar úr PVC. plasti.
♦ Auðveld uppsetning -má mála með útimálningu.
♦ íslenskar leiðbeiningar.
25 ára reynsla við íslenskar aðstæður
BYGGINGAVÖRUR
Ármúla 18, s. 553 5697
HALB ESKiMO,
halb Etfe - Björk
profttiert von ih-
rem Exotetvlmage
Þýzka tímaritið Focus
ÞYZKA tímaritið Focus, sem er
eitt hið útbreiddasta í Þýzkalandi,
birti nýlega heilsíðugrein um
Björk Guðmundsdóttur söngkonu.
Athygli vekur að í meginmáli
greinarinnar og myndatexta er
Björk köiluð hálfur eskimói, án
frekari skýringa.
„Hálf-eskimóinn Björk er gam-
ail snæhéri í tónlistarbransanúm,"
segir í greininni, sem birt er und-
ir fyrirsögninni „ísskápur frá ís-
landj.“ Greinarhöfundur, Martina
Wimmer, rekur tónlistarferil
Bjarkar og leggur meðal annars
á sig að snara nafni Tappa Tíkár-
rass á þýzku; „Verkork den Hur-
enarsclj“.
í greininni er haft eftir Christ-
ina Kyriacou, yfirmanni út-
breiðslumála hjá útgáfufyrirtæki
Bjarkar, One Little Indian, að
markmiðið með breiðskífunni
Post sé að „sigra afganginn af
heiminum." Þar segir jafnframt
að Björk hafi ákveðið fyrir þrem-
ur árum að snúa baki við íslandi
og setjast að í London, en þó sýni
nýja platan að hún sé ekki laus
við heimþrá. „Sérhvert lag á plöt-
unni er bréf heim,“ er haft eftir
söngkonunni.
Wimmer lýsir söng Bjarkar á
Post þánnig: „Yfir öllu svífur rödd
hennar, þunn ög bróthætt eins og
ísblóm. Soul úr frystikistunni."
m
Isstaðir
Ostagerð til umræðu
ÁHUGI er fyrir því meðal bæjar-
stjómar Egilsstaða að koma á osta-
gerð í Kaupfélagi Héraðsbúa. Bærinn
er tilbúinn til að leggja fram fé í þvi
skyni, m.a. til þess að kaupa fram-
leiðslurétt á mjólk með kaupfélaginu.
„Egilsstaðabær er tilbúinn tii þess
að leggja fram fé til þess að auka
hér mjólkurframleiðsluna með því að
kaupa mjólkurkvóta með kaupfélag-
inu. Nú er beðið eftir því að tekin
verði ákvörðun um þetta,“ sagði
Sveinn Jónsson, formaður atvinnu-
málaráðs Egilsstaðabæjar og bæjar-
fulltrúi.
Sveinn vildi ekki tilgreina um hve
háar upphæðir væri að ræða né hve-
nær ráðist yrði í það að kaupa kvóta.
Skoðanakönnun DV
Fylgi
Sjálfstæðis-
fiokks eykst
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
hefur bætt við sig talsverðu fylgi
frá síðustu Alþingiskosningum
samkvæmt skoðanakönnun sem DV
birti í gær.
Samkvæmt könnuninni mælist
fylgi Sjálfstæðisflokksins 43,1% en
flokkurinn fékk 37,1% í kosningun-
um. Framsóknarflokkurinn hefur
einnig meira fylgi en í kosningun-
um, 24,7% miðað við 23,3% en fylgi
flokksins hefur minnkað frá síðustu
skoðanakönnunsem DV gerði í maí.
Fylgi Alþýðuflokks mælist nú
12,8% en flokkurinn fékk 11,4% í
kosningunum. Alþýðubandalagið
fær 11,7% fylgi í skoðanakönnun-
inni en fékk 14,3% í kosningunum.
Kvennalisti mælist með 4,3% fylgi
nú en fékk 4,9% í kosningunum.
Fylgi Þjóðvaka mælist aðeins 2% í
könnuninni nú en flokkurinn fékk
7,2% í kosningunum.
Ríkisstjórnin nýtur stuðnings
65,7% þeirra sem tóku afstöðu í
skoðanakönriuninni en 34,3% voru
andvíg stjóminni. í síðustu skoð-
anakönnun DV í maí studdu 77%
ríkisstjórnina.
Útsölur í
Kringlunni
ÚTSÖLUR hefjast í flestum
verslunum Kringlunnar í
Reykjavík í dag.
Sumar verslananna voru
Iokaðar í gær til að undirbúa
útsölur. Misjafnt er eftir
verslunum hversu Iengi út-
sölur standa en flestar miða
við að útsölutímabili ljúki
19. ágúst.