Morgunblaðið - 13.07.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 13.07.1995, Síða 1
GOLF fRérgfttiMðMfr D 1995 FIMMTUDAGUR 13. JUU BLAD íslendingar eru neðarlega á EM ÍSLENSKA kvennalandsliðið í golfi er í 18. og næst neðsta sæti eftir fyrri dag höggleiksins á Evrópumóti landsliða sem fram fer í Mílanó á Ítalíu. Stúlkurnar léku á 411 höggum í gær og eru aðeins einu höggi á eftir tékklensku stúlkunum og 15 höggum á undan þeim portúgölsku. Ólöf María Jónsdóttir lék best ís- lensku stúlknanna í gær, kom inn á 76 höggum, Ragn- hildur Sigurðardóttir lék á 78 höggum, Karen Sævars- dóttir á 84, Þórdís Geirsdóttir á 86, Herborg Arnars- dóttir á 87 og Ásthildur Jóhannsdóttir á 91 höggi en taldi ekki. Spánvaijar eru með eins höggs forystu á Frakka, hafa leikið á 366 höggum. Unglingalandslið karla er einnig á Evrópumóti og er í 16. sæti eftir fyrsta dag, lék á 411 höggum eins og stelpurnar. Portúgalir eru einnig á 411 höggum og Sviss rekur lestina með 415 högg. Belgar eru næstir fyrir framan okkar menn með 406 högg en Skotar hafa forystu á 378 höggum. KNATTSPYRNA Evrópukeppnin íslensku liðin heppin ÍSLANDSMEISTARAR Akra- ness drógust gegn Shelbourne frá írlandi í forkeppni UEFA- keppninnar, en dregið var í Sviss í gær. FH fer til Norður- írlands annað árið í röð og mætir Glenavon. KR-ingar, sem leika í Evrópukeppni bikar- hafa, mæta Grevenmacher frá Lúxemborg. Eg held að við hefðum alveg getað verið heppnari með lið þannig lagað,“ sagði Ólafur Þórðarson fyrirliði Skgamanna í samtali við Morgunblaðð í gær. „Maður veit að það er ekkert gefið í svona leikjum en ég hef það á tilfinningunni að við ættum að komast áfram með góðum leik og það er ágætt að leika fyrst úti. Þeir leika ábyggilega nokkuð fast en við ætlum áfram. Kosturinn við þetta er að þetta er stutt og þægi- leg ferð þannig að það ætti ekki að eyðileggja fyrir okkur,“ sagði Ólafur. Guðjón Þórðarson, þjálfari KR- inga, sagðist mjög ánægður með mótheijana frá Lúxemborg. „Ég held að við hefðum varla getað orð- ið heppnari. Ég var með í magnum þegar ég sá hvaða lið voru með okkur í riðli. Það er ánægjulegt að þurfa ekki að fara til austur Evr- ópu. Lúxemborg er góður kostur fyrir okkur samgöngulega séð og gott að fá fyrri leikinn á útivelli. Eg veit ekkert um þetta lið en tel að við eigum góða möguleika á að komast áfram eins og reyndar ÍA og FH líka,“ sagði Guðjón. Ólafur Kristjánsson fyrirliði FH-inga var einnig þokkalega sátt- ur við að lenda á móti Glenavon frá Norður-írlandi. „Við vitum ekkert um þetta lið en lékum í fyrra við Linfield og vorum fúlir að komast ekki áfram gegn þeim, það var bara okkar aumingjaskap- ur. En núna ætlum við áfram. Svo er þetta sjálfsagt ódýrasta dæmið sem við gátum fengið — og ég held því að þetta sé bara hið besta mál,“ sagði Ólafur. ■ Drótturinn / D2 Morgunblaðið/Sverrir TÓMAS Ingi Tómasson var maðurinn á bak vlð sigur Grlndvíklnga gegn Val; lagði upp fyrra markið og skoraðl það slðara. Hann fór svo af velli að loknu góðu dagsverkl og er hér fagnað af félögum sínum á varamannabekknum. Enn fagna Grindvík- ingar að Hlíðarenda EFTIR fremur slakan leik voru það baráttumennirnir úr Grinda- vík sem hrósuðu sanngjörnum sigri á Val að Hlíðarenda í gær- kvöldi og tryggðu sér sæti í 4ra liða úrslitum bikarkeppninnar. Mikið þurfti að teygja úr slökum leik til að ná fram úrslitum. Það var ekki fyrr en komið var íframlengingu að Grindvíkingar tóku af skarið og skoruðu tvö mörk með skömmu millibili án þess að heimamenn fengju rönd við reist. Liðin mættust á sama stað í 1. deildinni fyrir skömmu og þá sigruðu Grindvíkingar iíka. Ekki vantaði að aðstæðurnar til knattspymu á Valsvellinum í gærkvöldi voru nálægt því að vera eins góðar og best gerist hér á landi. Veðrið lék við leik- menn og áhorfendur og því stóðu vonir manna til þess að leikmenn legðu sig fram um að nota tækifærið og sýna hvað í þeim býr. Því miður þá tókst leikmönnum það lengst af ekki. Mikil barátta var í gangi alian tímann og það á kostnað gæðanna Ivar Benediktsson skrifar og því fátt um glæsileg tilþrif. í fyrri hálfleik voru Valsmenn sterkari aðilinn lengst af og sóttu meira og á fyrstu átta mínútnum fengu þeir fjögur allgóð færi, en án árangurs. En Grindvíkingar komu meira við sögu þegar á leið eftir að hafa verið fremur staðir á upphafsmínútunum en gekk illa að skapa verulega hættu á vallarheim- ingi Vals. Valsmenn fengu færi og færi en voru mjög mislagðar fætur þegar á hólminn var komið. Þá var vörn Grindavíkur sterk með Milan Jankovic fremstan í flokki og hún gaf lítið eftir. í síðaari hálfleik gerðist fátt merkilegt. Menn héldu áfram að berjast úti á vellinum, en lipurlegt samspil var lítt í hávegum haft. Eftir níutíu mínútna leik þurfti því að grípa til framlengingar til að ná fram úrslitum. í framlengingunni voru Grindvíkingar sterkari og sigr- uðu sanngjarnt með tveimur falleg- um mörkum. „Það þýddi ekki annað en að nýta tækifærið sem ég fékk núna með byijunarliðinu. Þorsteinn Guð- jónsson er meiddur og Ljubicic var í banni. Þegar ég fékk boltann frá Tómasi þá lét ég bara vaða og hitti vel,“ sagði Ólafur Örn Bjarnason, leikmaður Grindavíkur sem skoraði fyrra mark leiksins, en það sérstak- lega fallegt. „Við erum í það góðu líkamlegu formi að við vissum að ef til framlengingar kæmi þá mynd- um við sigra þá, enda kom það á daginn, við vorum mikið betri,“ bætti Ólafur við. Valsliðið barðist í þessum leik en því gengur illa að rífa sig enn frekar upp og láta knöttinn ganga á milli og skapa hættu, meðan svo er eiga þeir í vanda. En nú þegar Valsmenn eru úr leik í bikarkeppn- inni geta þeir einbeitt sér að því að veija sæti sitt í deildinni og forðast það sem aldrei hefur gerst í sögu meistaraflokksliðs Vals, að falla í 2. deild. Og 4| Tómas Ingi Tómas- ■ 1 son vann boltann á 96. mínútu rétt fyrir innan miðju Valsmeginn á vellinum og _gaf stungusendingu inn á Ólaf Orn Bjarnason sem kom á sprettin- um við markteigshomið hægra megin. Ólafur hikaði ekki, held- ur spyrnti knettinum viðstöðu- laust á fjær markhornið efst uppi við samskeytin, glæsilegt mark og óvetjandi fyrir Tómas lngason í marki Vals. OB^ÍLúkas Kostic tók ■ Caaukaspyrnu á 103. mínútu út við hornfánann, hægra megin, sendi inn í mark- teigin og Milan Jankovic fram- lengdi boltann á Qærstöng þar sem Tómas Ingi Tómasson kom aðvífandi og renndi knett- inum í markið. GLÆSILEGT HEIMSMET MORCELIS11.500 METRA HLAUPI / D4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.