Morgunblaðið - 15.07.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.07.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 ■ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ BLAÐ FRJALSIÞROTTIR || SIGLINGAR Þrenn gull í Svíþjóð Þrír íslenskir fijálsíþróttamenn kepptu á fimmtudaginn i móti í Karlskruna í Svíþjóð og hlutu þrenn gull. Jón Arnar Magnússon sigraði í langstökki, stökk 7,37 metra og í 110 metra grindarhlaupi varð hann þriðji, hljóp á 14,22 sekúndum sem er 3/100 frá metinu sem hann setti í Tallin fyrir nokkru. Þórdís Gísladóttir sigraði í há- stökkinu, stökk 1,75 metra, en hún hefur átt við nokkur meiðsli í hásin að stríða en virðist vera að ná sér af þeim. í 400 metra grindarhlaupi sigraði Guðrún Arnardóttir á 57,93 sekúndum. KEILA / HM Ásgeir er í 83. sæti Fyrstu þrír leikirnir í 5-manna liðakeppni á heimsmeistara- mótinu í keilu voru leiknir í gær. Björn lék best Islendinganna; fékk 215 pinna í meðaltal úr þremur leikj- um (214, 207 og 225). Ásgeir lék á 192, Valgeir á 189, Ásgrímur á 186 og Kristján á 179 í meðalskor. Ás- geir hefur leikið best íslendinga í mótinu í heild. Hann er í 83. sæti með 4.204 í heildarskor eða 192 að meðaltali í leik. Ásgrímur er í 177. sæti með 190, Valgeir í 199. sæti með 188, Björn í 220. sæti með 188, Kristján í 255. sæti með 185 og Halldór Ragnar í 307. sæti með 179 í meðaltal. Morgunblaðið/Golli Svifið seglum þöndum SIGLINGAMENIM halda eitt af stóru mótunum sfnum um helgina og var önnur keppnln haldin í gær, en þá slgldu kapparnlr frá Reykjavíkurhöfn til Keflavik- ur. Myndln var tekin þegar skúturnar voru að venda fyrir utan Kársneslð og á myndlnnl hér að ofan eru áhöfnin á Flónni að gera seglin klár. Mrazek farinn aftur í FH VARNAKMAÐURINN Petr Mrazek, sem skipti úr FH yfir í Val fyrir þetta leiktímabil er geng- in úr Val og í FH á nýjan leik. Hann lék í tvö keppnistímabil með FH og stóð sig vel sem aft- asti maður í vörn en eftir síðasta keppnistfma- bil skitpi hann yfir í Val, en er sem sagt farinn afturí FH. Stanley Matthews tekurframskóna ENSKA goðsögnin Sir Stanley Matthews mun taka fram skóna síðar í þessum mánuði en kapp- inn er nú áttræður. Hann ætlar að leika í stund- arfjórðung með Clevedon Town í vináttuleik gegn Bristol City. Formaður Cievedon hitti Sir Stanley í veislu ekki alls fyrir löngu. „Ég var nú bara að spauga þegar ég spurði hvort hann vildi ekki gerast leikmaður með okkur,“ sagði formaðurinn, „og það leið hér um bil yfir mig þegar hann sagðist til í það,“ bætti hann við. Hann var á höttunum eftir ákveðnum leikmanni í veislunni og hafði með sér eyðublað. „Ég lét Sir Stanley skrifa undir á staðnum og spruðu hversu mikið hann hefði fengið fyrir úrslitaleik- inn f bikarnum 1953 og hann sagði mér að það hefðu verið fimm pund. Ég bauð honum að tvö- falda þá upphæð, og hann tókþví!“ Matthaiís aftur í upskurð VONIR þýska knattspyrnukappans Lothars Matthaiis um að gætu orðið að engu á næstu dögum, en hann hafði gert sér vonir um að geta komist á fullt í fótboltanum á ný eftir að- gerð sem hann gekkt undir. Læknar segja nú að ólfklegt sé að hann geti það og líklega þurfi að skera hann upp aftur og margir te(ja að þar með sé feriU hins sigursæla fyrirliða þýska landsliðsins á enda þvi kappinn er orðinn 34 ára gamall. Marc Degryse til Wednesday BELGÍSKI miðjumaðurinn, og fyrirliði lands- liðsins, Marc Degryse samdi í gær við Sheffield Wednesday um að leika með félaginu í þrjú ár. Degryse þykir sókndjarfur mjög og lék með Auderlecht áður en hann samdi við enska félag- ið. Ekki var getíð um kaupverð á hinum 29 ára gamla Belga, en forráðamenn Anderlecht vildu ekki staðfesta að það væri um 140 miljjónir króna. Degryse á 58 landsieiki að baki. Evrópukeppnin í tveimur löndum ÚRSLITAKEPPNI Evrópukeppninnar f knatt- spyrnu árið 2000 veður haldin í tveimur löndum, Belgíu og Hollandi, og er þetta í fyrsta sinn í sögu keppninnar sem úrsiitakeppnin fer fram f tveimur löndum. Belgar og HoIIendingar sóttu um f sameiningu og hnepptu hnossið, en úrslita- keppnin hefst 7. júní og henni lýkur 2. júlf. AFLRAUNIR Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson ANDRÉS Guömundsson Alvarleg meiðsli stöðva Andrés Andrés Guðmundsson, krafta- maður með meiru, meiddist illa á æfingu og verður að draga sig í hlé frá keppni í a.m.k. fimm mánuði. Hann sleit vöðva í brjósti er hann var að lyfta lóðum í bekk- pressu. Hann var að undirbúa sig fryrir keppnina Herra Herkúles í Finnlandi, sem hann vann í fyrra. Einnig átti hann að keppa í Vest- íjarðavíkingnum um þessa helgi. „Þetta setur stórt strik í reikning- inn hjá_ mer í orðsins fyllstu merk- ingu. Ég var bókaður á Hálanda- leikana og kraftamót allar helgar í sumar og verð að sleppa öllu. Ég var að reyna að setja persónulegt. met í bekkpressu, ætlaði í 225 kílógrömm þegar vöðvaþræðir gáfu sig í brjóstinu," sagði Andrés. „Ég má ekkert keppa eða æfa næstu tvo mánuðina, en ætla þó að stelast til að hlaupa, til að auka þolið. Ég keppi í hnefaleikakeppni, úrslitum 32 manna í Las Vegas 2. desember. Nú mun ég einbeita mér að undirbúningi fyrir þá keppni.“ Andrés dvaldist þijá mánuði í Vegas í vetur og æfði stíft fyrir hnefaleikamótið. „Þetta eru erfið- ustu æfingar, sem ég hef upplifað og líklega hef ég verið of kappsam- ur við æfingarnar úti og hér heima, þessvegna hef ég meiðst í þrígang á árinu. „Andinn“ sigraði líkamann og ég þarf að gefa mér meiri tíma. Ég bíð spenntur eftir hnefaleika- mótinu. Ég fór á einvígi Foremans og Alex Schulz í vor og það var ólýsanleg tilfinning, ótrúlegur múgæsingur í höllinni. Með réttum æfingum tel ég að ég geti staðið sterkur á velli í hnefaleikahring á móti sterkum keppendum," sagði Andrés hvergi banginn, þó meiðslin öngruðu hann við málningarvinnu í gær. KNATTSPYRNA: ÓLAFUR ÞÓRÐARSON EFSTUR í EINKUNNAGJÖFINNI / C2 og C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.