Morgunblaðið - 16.07.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.07.1995, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ1995 MORGUNBLAÐIÐ Þjóðverjar eru mesta bjórdrykkjuþjóð heims o g hver þeirra þambar að meðaltali tæpa 140 lítra árlega. Guðmund- ur Sv. Hermannsson kynnti sér hvemig þýsk- ur bjór verður til. ISLENSKUR togari siglir inn höfnina í Bremerhaven á grá- myglulegum vetrardegi með lóðsbátinn á síðunni. Eftir að skipið hefur lagst við bryggju og landfestarnar bundnar tryggilega gengur maður um borð með fyrstu kveðju Þýskalands til íslensku skipverjana eftir erfiða sigl- ingu yfír Atlantshafið: Kassa af Beck’s bjór. Bjór er mikilvægur hluti þýskrar menningar og engir drekka eins mikið af honum og Þjóðveijar. í sumum héröðum í Suður-Þýskalandi drekkur hver maður að meðaltali ailt að 600 lítra árlega. íslendingum, sem drekka 30 lítra af bjór að með- altali á ári, þykja þessar tölur ef til vill ótrúlegar en þær ættu ekki að koma þeim á óvart sem hafa verið á bjórhátíðum í Bæjaralandi? Þjóðveijar eiga raunar áiíka mörg orð yfir bjór eins og Grænlendingar yfir snjó. Bock er til dæmis sterkur bjór, dobbelbock er enn sterkari bjór, eisbock er sterkur bjór brugg- aður með ákveðinni aðferð, maibock er sterkur bjór bruggaður á vorin. Þá er til altbier, rauchbier sem bruggaður er úr reyktu malti, festbi- er sem drukkinn er á hátíðum, márz- enbier, helles eða ljós bjór, krauz- enbier sem er ósíaður, zwickelbier sem einnig er ósíaður en öðruvísi en kráuzenbier og weiBbier eða weifie sem er bruggaður úr hveiti. Það eru vel á annað þúsund bjór- gerðir í Þýskalandi og þær framleiða um 4 þúsund bjórtegundir. Plest fyrirtækin selja framleiðsluna á ákveðnum svæðum. Þannig hafa mörg héröð sinn heimabjór sem sést varla annars staðar. Aðeins innan við tugur ölgerða dreifír framleiðslu sinni um allt land. Ein þeirra er Brauerei Beck & Co í Bremen sem framleiðir Beck’s bjór auk fleiri bjórtegunda og gos- drykkja. Fyrirtækið veltir um 65 milljörðum króna árlega eða nærri helmningum af íslensku fjáriögun- um og þar starfa hátt á fimmta þúsund manns. Ég átti þess kost fyrir skömmu að heimsækja Beck & Co í Bremen og kynna mér starf- semina þar. í Brímaborg Bremen eða Brimaborg eins og hún var kölluð hér á landi stendur við ána Weser sem rennur út í Norð- ursjó. Borgin er elsta stjálfstjórnar- ríkið í Þýskalandi og var áður fyrr ein af Hansaborgunum svonefndu. Þaðan sigldu Hansakaupmenn með- al annars til Islands á fimmtándu og sextándu öld og keyptu skreið og aðrar vörur af landsmönnum. Nú myndar Bremen ásamt ná- grannabænum Bremerhaven minnsta ríkið í þýska ríkjasamband- inu. Bremen er ein stærsta hafnar- ög iðnaðarborg í Þýskalandi og þar búa nærri 600 þúsund manns. Þar myndaðist snemma byggð í kringum verslun og Karlamagnús keisari setti þar á stofn biskupsdæmi árið 787 sem á næstu öldum á eftir varð miðstöð umfangsmikils trúboðs um Norður-Evrópu og Norðurlönd. Á 11. öld var reist dómkirkja í Bremen sem stendur enn að hluta. Kirkjan er kennd við Pétur postula en tákn hans, lykillinn, er meðal annars í skjaidarmerki Beck & Co. Gamli miðbærinn hefur verið varðveittur að hluta þótt styijaldir hafi höggið þar stór skörð í. Þar er meðai annars minnsta hótel heims, með aðeins einu herbergi og þar eyða brúðhjón- gjarnan brúð- HÖFUÐSTÖÐVAR Brauerei Beck & Co í Bremen. kunnáttan frá Mið-Austurlöndum. í Þýskalandi hefur bjór verið brugg- aður frá því um 800 fyrir Krist og ölgerðarlistin var einkum varðveitt í klaustrum á miðöidum. Með iðn- byltingunni hófst tæknivæðing öl- gerðarinnar og nú er bjór víðast hvar framleiddur í stórum, tölvu- stýrðum verksmiðjum. Bjór hefur verið bruggaður í Bremen í þúsund ár og þar stofnuðu bjórbruggarar í Þýskalandi fyrstu formlegu samtökin árið 1489. í borginni eru ölstofur á hveiju strái og í frægasta krárhverfinu í gamla bænum, sem kallað er Am Snoor, rekur Beck & Co eigin bjórkrá sem nefnist Beck’s am Snoor. Saga Beck’s hófst árið 1873 þeg- ar Keisaralega brugghúsið Beck & May var stofnað. Nafninu var skömmu síðar breytt í Beck &_ Co og fyrirtækið óx og dafnaði. Árið 1917 keypti það rótgróna ölgerð í Bremen, Brauerei William Remmer. Tveimur árum síðar keypti Beck & Co aðra ölgerð, St. Pauli Brauerei, sem hafði verið helsti keppinautur- inn við bjórútflutning frá Bremen. Og árið 1921 sameinaðist það öðru stóru bryggfyrirtæki í Bremen, C.H. Haake Brauerei. Næstu áratugir voru uppgangs- tímar hjá fyrirtækinu en þegar síð- ari heimsstyijöldin skall á hrundi bruggiðnaðurinn. Að auki var stór hluti Brimaborgar lagður í rúst í loftárásum bandamanna, þar á með- al mest af verksmiðjuhúsum Beck. Verksmiðjurnar voru endur- byggðar eftir strið og síðan hefur fyrirtækið átt velgengni að fagna. Fyrrtækið rekur ölgerðir í Bremen, Bremerhaven og Rostock og selur Beck’s bjór um allan heim. Stefna fyrirtækisins er sú að leyfa engum að framleiða Beck’s bjór annars staðar en í þessum brugghúsum eins og flest önnur bjórfyrirtæki gera. Ein undantekning er þó á þessu. Kínverskt fyrirtæki hefur heimild tii að brugga Beck’s þar í landi. Á síðasta reikningsári fyrirtækis- ins seldi það alls 7 milljónir hektó- lítra af diykkjarvörum sem var 13% aukning frá fyrra ári. Þar af seld- ust 5,1 milljón hektólítrar af bjór sem var 5,7% aukning frá fyrra ári og ein sú mesta sem bjórfyrirtæki í Þýskalandi náði. Hafur í heiðursbás Höfðuðstöðvar Brauerei Beck & Co í Bremen standa á bökkum Weser. Eins og fleiri ölgerðir heldur fyrirtækið í gamlar hefðir og hluti af verksmiðjunni er einskonar safn þar sem komið hefur verið fyrir gömlum véium og verkfærum. Þegar ég skoðaði verksmiðjuna var mér fyrst sýnt lítið hesthús en Beck & Co heldur enn í þann gamla sið að flytja bjór á hestvögnum til veitingahúsa við göngugötur Brem- enborgar. Heiðursbásinn í hesthús- inu skipar raunar geithafurinn Mai- bock, sem er á eftirlaunum eftir að hafa þjónað langa starfsævi sem heilladýr knattspyrnuliðs Werder Bremen en Beck & Co styður liðið dyggilega með fjárframlögum. Inni í verksmiðjunni er ölgerðin í fullum gangi. Becks er, eins og bjór yfirleitt í Þýskalandi, bruggað- ur samkvæmt lögum um hreinleika, eða Reinheitsgebots, sem sett voru árið 1516 og munu vera elstu mat- vælalög sem enn eru í gildi í heimin- um. Willan IV hertogi í Bæjáralandi setti lögin og samkvæmt þeim má Á bjórslóðum / Brímaborg kaupsnóttinni. Þar er nokkur sund- urgerð í arkítektúr í Bremen en í heild er borgarsvipurinn aðlaðandi og mikið er lagt upp úr skreyta borgina með listaverkum. Það fræg- asta er aldagömul stytta af Roland, sem stendur í miðborginni. En al- gengasta myndefnið er Brimaborg- arsöngvaramir úr Grimmsævintýr- Heimsókn í Beck's verksmiðjurnar inu og víða um borgina má sjá han- ann, köttinn, hundinn og asnann sem ætluðu til Brimaborgar að verða borgarspilarar. Bjór í þúsund ár Talið er að Súmerar hafi bruggað bjór einum 6 þúsund árum fyrir Krist en til Evrópu barst ölgerðar- FYRSTA stig bjórgerðarinnar er í koparkötlum MILLJÓNIR af flöskum á færibandinu. Vélar nútimans eru óneitanlega afkastameiri en þær gömlu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.