Morgunblaðið - 16.07.1995, Page 12

Morgunblaðið - 16.07.1995, Page 12
12 B SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1995 B 13 VITI var reistur í eynni árið 1913, en endurbyggður 1963 og þjón- ar enn sæfarendum. BÚINN að fylla kríueggjafötuna. GAMLIR fiskverkunarskúrar eru m.a. notaðir til að salta grásleppu og hengja upp fisk. GRUND. GUNNAR Óli á marhnútaveiðum á bryggjunni. Kirkja vígð í Flatey árið 1960. BARNASKÓLINN er nú svipur hjá sjón, gluggalaus og allslaus. Flatey á Skjálfanda fóríeyði áríð 1967, en nokkur ár eru nú liðin síðan nokkrir gamlir Flateyingar leituðu uppruna síns á ný og hófu að byggja upp gömlu húsin, sem reyndust vera í misjöfnu ásig- komulagi. Jóhanna Ingvarsdóttir heim- sótti eyjuna flötu í byijun sumars á með- an að varptíminn var í algleymingi. FYRIR gamla Flateyinga er vor- koman kærkomin því þá vita þeir, sem best þekkja, að sá tími nálgast að hægt verður að sækja eyjunna heim og njóta þeirrar friðsældar, sem eyjalífið býð- ur upp á í sínu besta skarti. Vélknún- um farartækjum ' er ekki fyrir að fara í eynni utan ökutækis „hrepp- stjórans", sem svo er nefndur, en hann er þeirra forréttanda aðnjót- andi að geta ekið um lendumar á fremur lúnum Willys-jeppa, sem gengur af gömlum vana frekar en vilja. Hjólbörur em hinsvegar eitt helsta tækniundur annarra eyj- arskeggja enda má segja að tæknin sé ekki efst á forgangslista þeirra, sem kjósa friðsæld í fríum frá skark- ala nútímans. Við leggjumst að bryggjunni í Flatey að kvöldi fyrsta dags júní- mánaðar á Kvikk ÞH 112 sem er af gerðinni Sómi 800. Klukkan er að verða hálfníu og sólbjört kyrrðin tekur á móti okkur. Sjóferðin, sem tekið hafði um 70 mínútur, hafði gengið vel fyrir sig. Sjóveður reynd- ist hið besta, að mati kapteinsins Óla Austfjörð, norðan tvö vindstig, en vegna þess hversu mikill farangur fylgdi með að þessu sinni, var ekki keyrt nema á 13 mílum, en um fimmtán sjómflur em á milli Húsa- víkur og Flateyjar. Rauði Willys-jeppinn færist úr stað. Hann stefnir í átt til okkar þar sem við stöndum á bryggjunni enda hafði það verið fært í tal við hrepp- stjórann hvort nokkuð stæði í veg- inum fyrir því að við fengjum afnot af ökutækinu til að feija timbur, sturtubotn, klósett, matföng og ann- an farangur vestur að Grand, þar sem við ætluðum að dvelja næstu fjóra dagana. Að þessu sinni er vinnuhelgi framundan á Gmnd, eins og svo oft áður. Til stendur að endur- bæta hreinlætisaðstöðuna til muna og stækka baðherbergið um helming fram í gömlu fjárhúsin, sem em áföst íbúðarhúsinu. Sex fílefldir karlmenn ætla að msla verkinu af á mettíma með Guðmund smið í broddi fylking- ar, en að sögn heimamanna hefur Guðmundur þessi verið æviráðinn við lagfæringar í Grand enda af nógu að taka enn þó margt hafi líka verið gert. Guðmundur segist bara hlæja að þessum fullyrðingum Gmndara, sem svo em nefndir, þó hann hafí svo sem hingað til aldrei neitað sér um eilítið eyja-ævintýri. Þrátt fyrir að komið sé fram í júní, má enn sjá endalausan snjó í Kinnarfjöllunum og upp á Flateyj- ardal sér varla í dökkann dfl á þess- um tíma. Elstu menn muna ekki eftir öðmm eins snjó á þessum tíma árs á dalnum enda er ekki útséð með hvort hægt verður að opna Flat- eyjardalsheiðina nokkuð i sumar eft- ir allt fannfergið, sem veturinn bar með sér. Afleit grásleppuvertíð Grásleppukarlarnir, sem haldið hafa til í eynni síðustu tvo mánuði, eru að pakka saman enda vertíðinni að ljúka. Þeir eru óánægðir með afraksturinn og segja vertíðina að þessu sinni hvorki hafa verið fugl né fisk. Aldrei hafi þeir upplifað annan eins dauða og djöful. A meðan að sumir sjá um að lesta jeppann, röltum við hin af stað í átt að Grand, sem er eitt þeirra níu húsa í eynni, sem gerð hafa verið upp og löguð til með það að mark- miði að nýta sem sumarbústaði. Grund var reist árið 1939 og var í eigu þeirra hjóna Hólmgeirs Arna- sonar frá Knarrareyri á Flateyjardal og Sigríðar Sigurbjörnsdóttur frá Vargsnesi í Náttfaravíkum. Þau fluttu frá Flatey árið 1961 til Húsa- víkur, eins og svo margir aðrir eyjar- skeggjar. Nokkrum árum síðar tóku afkomendur þeirra sig til og hófu að endurbæta eða öllu heldur endur- byggja, því það er ekki nóg með að í mörg horn hafi verið að líta innan- húss,--heldur hefur þurft að skiþta um allar hliðar í húsinu svo og um þak og utanhússklæðningu. Á leiðinni heim í bæ eftir gömlu slóðinni er ekki hjá því komist að stoppa nokkrum sinnum til þess eins að þefa eilítið af náttúrunni og virða fyrir sér fegurðina og fuglalífið þetta kvöld sem á þessum árstíma er í blóma. Blikarnir vappa í kring- um æðarkollumar sínar þar sem þær liggja sem fastast á eggjunum og kríurnar passa upp á sitt, taka dýfur ef að þeim er vegið og jafn- vel gogga í höfuð forvitinna. Hjálm- ar em því taldir bráðnauðsyn- legir ef forðast á sárindi. Það er held- ur hráslagalegt að koma inn í hús í fyrstu enda nokkrir mánuðir síðan hitað var upp síðast. Okkar fyrsta verk verður því að kveikja á olíufýringunni til að fá yl í kotið. Við lítum inn í allar vistarver- ur hússins til að gaumgæfa hvort allt sé, eins og það á að vera, og komumst að raun um að hagamýs hafa án efa verið veisluglaðar í vetur og nýtt sér húsakostinn ef marka má viðskilnaðinn. Tiltekt er greinileg framundan þetta fyrsta kvöld. A meðan finna krakkamir sér fötu, klæða hana að innan með mosa, spenna síðan á sig hjálmana og halda af stað út í móa til að finna sér kríusmakk, eins og þau orða það. Það líður ekki á löngu þar til að búið er að fylla fyrstu fötuna. Eggin em tekin og soðin strax svo hægt sé að ganga úr skugga um hvort eitthvað sé farið að stropa. Ekki er það að ráði svo að afloknu eggja- smakkinu fá börnin að tína nokkur egg til viðbótar til að hafa með morgunmatnum daginn eftir. Nítján manns gista Gmnd þessa hvítasunnudaga í byijun júní, en auk peirra er fólk á tveimur bæjum til við- bótar. í gesta- bók Grundara má lesa að fyrstu vor- gestirnir hafi dvalið þar dagana 24.-25. maí, en þar stendur meðal annars, með leyfi skrifara Sævars Austíjörð: „Smá leiðangur í eyjuna með olíu og smád- ót. Grilluðum í gærkvöldi og fengum okkur göngutúr út á eyju um lág- nættið. Nokkuð gott veður en frekar svalt. Eitt kríuegg fannst og æðar- fuglinn vel byijaður. Eitt ijúpnapar sást og dálítið af gæs, en enginn gæsaregg 'fundust. Eitt hrossa- gaukshreiður fannst og varð hrossa- gaukurinn bráðkvaddur þegar hann sá okkur fjóra fílelfda ganga fram- hjá.“ Ekki er að sjá að varp hafi farið neitt seinna af stað en endranær í eynni þrátt fyrir kuldatíð fyrir norð- an þetta vorið enda er mér tjáð að árferði hafi ekkert með varpið að gera, heldur séu það birtuskilyrðin sem ráði mestu um hvenær varpið byiji- Það er þó ekki laust við að menn hafi nokkrar áhyggjur af fuglalífinu þegar risið er úr rekkju að morgni laugardagsins 3. júní og jörðin alhvít á að líta. Kalt er í veðri þennan dag og stíft legið á, en dag- inn eftir birtir bæði yfir fuglum og fólki enda hefur hinn nýfallna snjó þá tekið upp að fullu. Sögustund í Grund Talið er að Flatey hafi risið úr sjó. Eyjan er lítil og lágreist, aðeins 2,5 km á lengd og á annan km á breidd, öll grasi vaxin, ströndin lág með malarkömbum og víða em lón og tjarnir fyrir innan. Snemma var eyjan talin mjög byggileg enda beit- arlönd góð og fiskimiðin allt í kring. Þarna höfðu íbúarnir ofan í sig og á með bústörfum og sjósókn. I þá daga var enginn kvóti, hvorki í land- búnaði né í sjávarútvegi. Menn, kon- ur og böm unnu myrkrana á milli og til þurfti að kalla vinnuhjú á stundum. Þá var önnur tíð til sjávar og sveita og menn lifðu af landsins gæðum. Við, sem yngri emm og upplifð- um ekki eyjastemmninguna í at- vinnulegu tilliti, látum okkur nægja ímyndanir þegar við setjumst niður að kvöldi dags í gömlu stofunni á fallegu vorkvöldi og hlustum á gamla, eða öllu heldur síunga Flat- eyinga, rifja upp eldgamla tíð, að því er okkur finnst. Ekkert raf- magn, enginn sími, ekkert sjónvarp, engar sjálfvirkar þvottavélar og vatnið í brunnum en ekki sjálfrenn- andi í krönum, eins og nútímabarn- inu finnst bæði sjálfsagt og eðlilegt. Eftir sögunum að dæma er okkur ljóst að margt var brallað í Flatey í „den tid“ og að ungdómurinn hafi ekki síður verið galsafenginn þá og nú. Menn biðjast undan því að bemskubrekin fái rými á síðum „blaðs allra landsmanna" þó mein- ignin sé að pára eitthvað á blað að aflokinni dvölinni. Harðfullorðið fólk rifjar upp gamla tíma með blik í augum og státar sig af ýmsum uppá- tækjum, sem á þeim tíma féllu ekki jafnvel í kramið hjá hinum fullorðnu, enda þótti grallaraskapurinn takast best þegar hinir fullorðnu sýndu sem mest viðbrögð. En þá var líka eins gott að eiga sér góðan felustað. Við fáum okkur rjúkandi kaffi, sem lagað hefur verið upp á gamla móðinn á fínu Sóló-eldavélinni, sem staðið hefur eins og klettur í einu horni eldhússins, í mörg ár. Hún nýtist ekki aðeins fyrir eldamennsk- una, heldur líka til að hita upp báð- ar hæðir hússins. Fram er tekinn fleygur. Sögumar magnast og hlátrasköllin berast út í gargandi kríugerið á sama tíma og sólin er við það að kyssa hafflötinn. Kveikt er á kertum og á gömlu olíulömpun- um, sem enn má nýta, og sumir tíma ekki að fara að sofa fyrr en seint og um síðir. Ball- og messufært íbúar vom flestir í eynni árið 1942, alls 120 talsins, og var þá hafnaraðstaða stórlega bætt. Sömu- leiðis var þá komið upp barnaskóla og félagsheimili, þar sem enn er dansað um verslunarmannahelgar við undirspil harmonikuleikara. Fyr- ir nokkrum árum tóku eyjarskeggj- ar sig saman um að mála samkomu- húsið og þótti ekki vanþörf á. Kirkja hefur verið í Flatey frá fornu fari, en árið 1894 var hún lögð niður þar og flutt til höfuðbóls- ins Brettingsstaða á Flateyjardal. Árið 1960 var síðan ný kirkja vígð í eynni þar sem menn hafa kosið guðsorðið eftir að hafa endurheimt heilsu sína að afloknum hinum ár- lega dansleik. Prestur hefur gjarnan verið fenginn frá Húsavík til að sjá um þessa helgistund og kirkjugestir sungið hver með sínu nefi. Viti var reistur í Flatey árið 1913 og endurbyggður árið 1963 eða um það leyti sem eyjan var að fara í eyði. í dag er Flatey nytjuð og era það fjölskyldur af tveimur bæjum sem það gera, Gmnd og Útibæ, en nytjar era egg, æðardúnn og reki. Ifyrir utan þessa tvo bæi er sjö hús- um til viðbótar haldið við og nýtt sem sumarhús. Það em: Baldurs- hagi, Garðshom, Sigtún, Sæberg, Berg, Krosshús og Sólvellir. Önnur hús em í afleitu ásigkomulagi og í raun synd að sjá hvemig fyrir þeim er komið. Útvegsbændur fyrri tíma höfðu aðstöðu í fiskverkunarskúrum við bryggjuna, en skúrarnir eru nú í mjög misjöfnu ástandi og sumir hveijir hafa orðið hrörnun að bráð. Þar skammt hjá var líka einu sinni kaupfélag, sem brann fyrir nokkrum ámm, og grunnurinn einn ber nú aðeins vitni um það sem einu sinni var en er ekki lengur. Það má þó með sanni segja að minningin lifi svo sannarlega góðu lífí í hugum þeirra, sem þarna eru bomir og barnfæddir og byijuðu að vinna ungir að ámm við að draga björg í bú. Að lokum má geta þess að tveir aðilar að minnsta kosti bjóða upp á eyjasiglingar um Skjálfandann og ætti heimsókn til Flateyjar að vera vel þess virði. Svo enn sé vitnað í gestabókina í Grund, hefur gesta- gangur verið nokkur í áranna rás og meðal þeirra, sem komið hafa oftar en einu sinni, er núverandi samgönguráðherra Halldór Blöndal, sem jafnframt er hagyrðingur góður og lætur tækifæri til vísnagerðar sér ekki úr greipum ganga við slík- ar dásemdaraðstæður. Eftirfarandi kveðskapur liggur m. a. eftir Hall- dór eftir síðustu dvöl hans í eynni um miðjan júlí í fyrra. Þegar ég í Flatey fer, og finn ég muni skemmta mér. Fuglamir og allt hvað er, úti kunna að leika sér. Kirkjan hnarreist horfir sundin yfir, heim í dalinn þröngan þann, þar sem ég Brettingsstaði fann. Þessa daga þakkar bagan ykkur, hressist lund við sól og sund, sumarstund að vera í Grund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.