Morgunblaðið - 16.07.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.07.1995, Qupperneq 1
Kringlunni 5 - sími 569-2500 A VOXTUR BMW OG ROLLS- ROYCE - FERRARIF130MEÖ V12, 520HA VÉL - BALENO -DULUR ENLEYNIRÁSÉR - NÝR FJÖLNOTABÍLL TOYOTA SJ0VAOC ALMENNAR 5 dyrai erkominnog kostar aðeins 2.389.000 kr. i ® TOYOTA j Tákn um gceði SUNNUDAGUR 16. JULI 1995 BLAÐ FORD Galaxy, nýr fjölnotabíll sem smíðaður er í sameiginlegum verksmiðjum Ford og VW. Ford spóir Galaxy mikilli velgengni SALA er hafín í Evrópu á Galaxy, nýjum fjölnotabíl frá Ford. Bíllinn er smíðaður í sameiginlegri verk- smiðju Ford og Volkswagen í Pal- mela í Portúgal en VW afbrigðið heitir Sharan. Talsmenn Ford spá því að Galaxy velti Renault Espace úr sessi sem mest selda fjölnota- bílnum í Evrópu. Sala á fjölnotabíl- um tvöfaldaðist á síðustu fjórum árum og því er spáð að þeir verði 4% af heildarbílasölunni í álfunni um aldamótin. Talsmenn Ford segja að Galaxy muni einnig seljast betur en tví- burabróðirinn Sharan og benda því til stuðnings á geysiöflugt sölu- net í Evrópu. Þrjár útfærslur í lok þessa árs verða smíðaðir 600 fjölnotabílar á dag í verk- smiðju Ford og VW í Portúgal. Þó Galaxy virðist stór bíll er hann jafnlangur og breiður og Ford Mondeo langbakurinn. Billinn tek- ur allt frá 5 og upp í sjö í sæti en eins og jafnan er í fjölnotabílum er farangursrými af skornum skammt þegar allir sætamöguleik- ar eru nýttir. Ford býður þijár útfærslur af Galaxy: Aspen sem er fímm sæta, GL sem er sjö sæta og Ghia sem er sex sæta. Þijár vélargerðir eru í boði: 115 hestafla, 2,0 lítra vél frá Ford, 90 hestafla, 1,9 lítra dísil með for- þjöppu og 174 hestafla, 2,8 lítra V-6 vél, báðar smíðaðar af VW. Galaxy er framhjóladrifinn með fimm gíra handskiptingu úr Mondeo og VW sjálfskipting er fáanleg í bensínbílana. Sharan og Galaxy eru með sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum, líknarbelg í stýri og rafstýrðum framrúðum. ■ Sala fjölnotabíla (minivan) í Evrópu Morgunblaðið/Jón Stefánsson BÍLLINN lækkar sig um 25 sm og hjólastólnum er ekið upp hlera sem fellur niður. Chrysler Voyager sérútbúinn JÖFUR hf., umboðsaðili Chrysler á Islandi, hefur afhent fjölnotabíl sérútbúinn fyrir fatlaða. Bíllinn er af gerðinni Chrysler Voyager og hafa verið gerðar miklar breytingar á honum til þess að fatlaðir geti sem auðveldast gengið um og stjórnað bílnum. Helstu breytingarnar 25 sm lægra gólf og er það alveg flatt, sem auðveldar mjög allan umgang hjólastóla í bílnum. Hliðarhurðin er opnuð með fjarstýringu og fellur þá út hleri. Á honum er hægt að aka hjólastól inn í bílinn. Þetta fyrirkomulag gerir hjólastólalyftu óþarfa en þær hafa tíðkast í stærri bílum. Bíllinn er með loftpúðafjöðr- un og er hægt að hækka og lækka veghæð bílsins með henni. Opnunarbúnaður bílsins, þ.e. hlið- arhurðin og hlerinn er fjarstýran- legur auk þess sem læsingar eru fjarstýrðar. Bensínlok er opnanlegt innan frá og einnig er læsingu á bensínloki stjórnað frá mælaborð- inu. Hraðlæsing er á öllum sætum í bílnum og auðvelt er að bréyta sætaskipan. í gólfi eru sérstakar festingar til þess að festa hjóla- stóla. Ökumannssætið er rafdrifíð og hægt að hreyfa það á sex vegu, fram og aftur, upp og niður og snúa því í 90 gráður. Auðvelt er fyrir notandann að flytja sig úr hjólastóli í ökumannssætið. Arnór Pétursson er eigandi bíls- ins og er hann ánægður með hann og búnað hans. Þetta er fímmti Chrysler bíllinn sem hann eignast. Bíllinn er með 3,3 lítra, sex strokka vél og sjálfskiptingu. Með þessum sérútbúnaði kostar bíllinn um 4,6 milljónir kr. ■ ARNÓR Pétursson, eigandi bílsins, í rafdrifnu ökumannsætinu sem hægt er að hreyfa á sex mismunandi vegu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.