Morgunblaðið - 19.07.1995, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 19.JÚLÍ 1995
*
ELZTI BÁTURINN í NOTKUN Á ÍSLANDI
Morgunbl aðið/Árn i
• SÍLDIN frá Bjarnarhðfn á
Snæfellsnesi er elzti bátur hér á
landi, sem enn er í natkun. Óvíst
er um aldur Sildarinnar, en vitað
er að hún var til árið 1860 og er
því að minnsta kosti orðin 135
ára gömul. Báturinn hefur svo-
kallað Bolungarvíkurlag og er
hann smíðaður fyrir sjó og veður-
lag á Vestfjörðum. Síldin var
fyrst gerð út frá Bolungarvík og
þaðan fór hún á Hornstrandir.
Svo var það árið 1926 að henni
var siglt norður fyrir Hom og
hún gerð út frá Ströndum. Árið
1929 kaupir hana Bjarni Jónsson
í Asparvík. Þegar hann flytur í
Bjarnarhöfn árið 1951, tekur
hann Síldina með sér og þaðan
hefur hún verið gerð út siðan.
Núverandi eigandi er Hildibrand-
ur Bjarnason í Bjarnahöfn, sem
hér hefur brugðið sér um borð.
Hann notar Síldina enn í ferðum
milli eyja og til að vilja um grá-
sleppunet og hefur Síldin grá-
sleppuleyfi. Vél var settí Sildina
upp úr 1930 og var hún þrjú hest-
öfl, en tvisar hefur verið skipt
um vél siðan.
Rússaþorskur stefnir í
150.000 tonn í Noregi
■■■■■BBBnHBBHnHB RÚSSAÞORSKI er landað í Helmingnum landað i Noregi
Noregi sem aldrei fyrr. Á
fyrra helmingi þessa árs voru
það 73.110 tonn en til saman-
burðar má nefna, að á sama
tíma fyrir ári hafði verið landað 49.831 tonni og á síðasta ári fór Rússaþorskurinn
í fyrsta sinn yfir 100.000 tonn. Nú er ástæða til að ætla, að hann fari í 150.000
tonn en það þýddi, að Norðmenn fengju um 500.000 tonn af þorski til vinnslu.
* Útlit fyrir að Norðmenn
vinni úr 500.0001 á árinu
Aukningin í Rússaþorskinum er
mest í Troms og Vesterálen og er
ástæðan sú, að þar er ennþá unnt að
taka við honum. í fyrstu var landað í
Austur-Finnmörk en síðan á hveijum
staðnum á fætur öðrum suður með
ströndinni.
Á fyrstu sex mánuðum ársins var
landað 46,7% meira af Rússaþorski í
Noregi en á sama tíma í fyrra og venj-
an hefur verið sú, að löndunin eykst
eftir því sem líður á árið. Með tilliti til
þess gæti Rússaþorskurinn farið í
150.000 fyrir árslok.
Þorskkvóti Rússa á þessu ári er
314.000 tonn og því útlit fyrir, að helm-
ingnum verði landað í Noregi. Kvóti
Norðmanna er 334.000 tonn og því
mun norska fiskvinnslan fá um
500.000 tonn til að vinna úr á þessu ári.
Rækjulandanir Rússa í Noregi fara
hins vegar minnkandi. 1993 lönduðu
þeir 20.000 tonnum, aðeins 6-7.000
tonnum á síðasta ári og ljóst er, að
það verður enn minna í ár. Hefur
nokkrum vinnslustöðvum, sem reiddu
sig á Rússarækjuna, verið lokað af
þessum sökum.
Flutningur á aflakvóta skipa á yfirstandandi fiskveiðiári
48.861
Jöfn skipti
Innan sömu
verstöðvar
FÓLK
Vilhjálmur
ráðinn til SH
• VILHJÁLMUR Jens
Árnason, heimspekingur, hef-
ur verið ráðinn upplýsinga- og
kynningarstjóri hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna. Vil-
hjálmur er rúmlega þrítugur,
borinn og barnfæddur Reyk-
víkingur. Hann lauk stúdent-
prófi frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð 1986 og hóf
að því loknu nám í heimspeki
og sagnfræði við Háskóla ís-
lands. Samhliða náminu starf-
aði hann sjálfstætt að ýmiss
konar útgáfu, en hann var
meðal annars ristjóri Stúd-
entablaðsins 1988 til 1989
og var um tíma gjaldkeri stúd-
entaráðs. Vilhjálmur lauk
BA-prófi frá HI 1992 og hélt
síðan til framhaldsnáms í Ed-
inborgarháskóla í Skotlandi,
en þaðan lauk hann Masters-
prófi í heim-
speki. Loka-
ritgerð hans
fjallaði um
auðlindanýt-
ingu og heitir
How comm-
on is Comm-
on Property?
Vilhjálmur fór
síðan til starfa
hjá SÁÁ,
fyrst sem ráðgjafi og síðan
fræðslu- og forvarnafulltrúi.
Þar sá hann meðal annars um
útgáfu á bæklingi um forvarn-
ir gegn vímuefnaneyzlu ungl-
inga. Til SH lá leiðin síðan um
miðjan júnímánuð og segir
Vilhjálmur að sé lítist vel á
nýja starfið. „Það er spennandi
vettvangur að starfa fyrir SH.
Það eru mikil og fyölbreytt
verkefni að fást við og mikið
af hæfu fólki, sem gaman
verður starfa með,“ segir Vil-
hjálmur. Meðal verkefna Vil-
hjálms verður útgáfa frétta-
bréfs SH, Frosts. Vilhjálmur
er kvæntur Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, stjórnmála-
fræðingi.
Vilhjálmur
Arnason
Nýir ráðherrar
• VJÐuppstokkun í bresku
stjórninni eftir leiðtogakjörið í
íhaldsflokknum hefur nýr
maðurtekið við sem sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra
af William Waldegrave.
Heitir hann Douglas Hogg,
lögfræðingur að mennt og er
ekki sagður hafa neina reynslu
af sjávarútvegsmálum. Hogg
er sonur Hailsham lávarðar,
fyrrverandi fjármálaráðherra,
og var áður aðstoðarráðherra
í utanríkisráðuneytinu. Er
hann þekktur fyrir að kunna
að koma fyrir sig orði, jafnvel
fyrir eitruð ummæli, og eitt
bresku blaðanna sagði, að
þessi hæfileiki hans myndi
koma að góðu gagni við að
veija hagsmuni breskra sjó-
manna í Brussel. í Belgíu
hafa einnig orðið sjávarút-
vegsráðherraskipti. Þar hefur
Karel Pinxten tekið við emb-
ættinu af Andre Bourgeois.
Fyrir utan stjórnmálaafskipti
sín hefur Pinxten unnið við
belgísku efnahagsmálastofn-
unina og verið einn af endur-
skoðendum Evrópusam-
bandsins.
Norskum sjómönnum
fer ört fækkandi
• SJÓMÖNNUM í Noregi
fer fækkandi. Milli áranna
1993 og 1994 fækkaði þeim
um hvorki meira né minna
en 2.626. í fyrra voru norsk-
ir sjómenn alls 16.442 en
19.068 árið áður og er þá
aðeins átt við fiskimenn.
Reyndar er fækkunin að
mestu tilkomin vegna
breyttrar skráningar sjó-
manna, en hún miðast við
lífeyrisgreiðslur. Eftir
breytingar á því hvernig
þeir, sem fulla atvinnu hafa
af sjómennsku eru skráðir,
hefur lífeyrisgreiðslum
fækkað. Þarna er því líklega
að mestu um að ræða til-
færslu milli þeirra sem fulla
atvinnu hafa af veiðum og
hinna, sem stunda þær sem
hlutastarf eða áhugamál.
Þess má geta að sjómenn á
íslandi eru taldir rúmlega
6.000. Sé farið nánar út I
samanburð milli þjóðanna
skila okkar sjómenn 1,7
milljón tonna á land 1993
en þeir norsku, sem eru
10.000 fleiri 2,6 milljónum
tonna.
Pönnusteikt smálúðuflök
með hvítlauksostasósu
HVAMMSTANGI fagnar um þessar mundir 100 ára
verzlunarafmæli. Því er ekki úr vegi að sækja soðning-
wm.nmm una Þan£að> en fra Hvammstanga er
KÁiiUiUiiblliliiH nokkur útgerð og fiskvinnsla, aðal-
lega rækjuvinnsla. Á Hvammstanga er veitingahúsið
Vertshúsið og þar eldar Gísli Jónsson fyrir matargesti.
Soðning dagsins er frá honum komin. í réttinn, sem
hann kallar pönnusteikt smálúðuflök með hvitlauksosta-
sósu, og er fyrir fjóra, þarf:
600 gr smálúðuflök
Sósa:
1 msk. ólívuolíu
3 tsk. smáttskorinn hvítlauk
4 dl rjóma
1/2 dl hvítvín
75 gr hvltlauksost með dilli
100 gr ijómaost
1 til 2 tsk. fiskikraft
1/4 tsk. salt
(iljáið hvítlaukinn i olíunni, helli ijómanum saman við
og bættið ostunum, saltinu og karftinum saman við.
Látið sjóða við vægan hita þar til ostarnir hafa samlag-
azt. Blandið saman 1 bolla af rúgmjóli, einum bolla af
heilhveiti, þurrkuðu timijan, salti og sjávarréttakryddi.
Veltið flökunum upp úr blöndunni og steikið síðan við
vægan hita í 5 til 10 minútur. Borið fram með soðnum
karftöflum og fersku grænmeti.