Alþýðublaðið - 01.12.1920, Side 1
1920
ilgast |riðnrinn?
Það eru sannarlega stórtfðindi,
sem stóðu í skeytunum á laugar-
daginn, að franska stjórnin væri
'óúin að afneita Wrangel — taka
aftur viðurkensinguna á honum,
á>em réttum stjórnanda Rússlands.
Það var þvert ofan í vilja ensku
•stjórnarinnar að Frakkar viður-
kendu hann fyrir þrem mánuðum
síðan * Það þóttu tíðindi aí því,
að það var í fyrsta skiftið frá því
ófriðurinn hófst, að Frakkar og
Englendingar ekki gátu komið sér
saman um utanríkismálin, og þótti
fyrirboði þess, að hið mikla vin-
fengi, er verið hefir með þessum
tveim þjóðum, mundi nú taka að
hnigna. Og það þóttu tíðindi af
því það benti á, að nú hefði
svartasta afturhalds auðvaldið náð
tökum á frönsku stjórninni, og að
nú hefði hún ákveðið að styrkja
gagnbiltingarmennina, þar til bar-
ist hefði verið til þrautar við rúss-
nesku verklýðsstjóraina (bolsivíka).
Og það þóttu ili tíðindi, því því
lengur sem ófriðurinn stendur í
Rússlandi, því lengur varir dýrtíð-
in á kornvöru, timbri og fleiri
vörutegundum, sem ekki lækka í
verði fyr en friður er kominn á
við Rússa og fult lag komið á
verzlunina við þá.
Það eru því eigi einungis stór
líðindi, heldur einnig góð, að
íranska stjórnin nú hefir gert það
sem getið var um f upphafi grein-
arinnar, og tíðindin eru því betri,
sem það fylgir þeim, að nú sé
öllum frönskum þegnum heimilað
að verzla við Rússa. En það
niundi varla hafa verið heimilað,
ef franska stjórnin (eða réttara
franska auðvaldið á bak við hana)
hefði trú á því, að nokkuð gæti
orðið úr hernaði þeim, sem hers-
höfðlnginn Balahowítch nú hefir
byrjað gegn bolsivíkum og
.getið var um f greininni Stríð og
Miðvikudaginn i. desember.
dýrtið, er nýlega stóð hér f blað
inu.
Það má því segja, að Iangt sé
síðan að jafn friðlega hafi litið út
og nú, þó ennþá sé of snemt að
segja að þessi friðarvon geti ekki
orðið falsvon.
tftleniar jréttir.
Yflrgangur bandamanna.
Vorwdrts skýrir frá því, að Við-
reisnarnefndin krefjist þess af
þýzku stjórninni, að Þýzkaland af-
hendi Frökkum io þús. naut og
500 þús. kýr, ÍUlíu 11500 naut-
gripi, Belgíu 210 þús kýr og Ser-
bíu 100 þús. kýr og 60 þús. aðra
nautgripi. Þýzka stjórnin mótmæl-
ir þessu, segir Vorwárts. Fallega
gertafbandamönnum, þegarhungr-
ið og tæringin hefir gripið æsku-
lýð Þýzkalands heljartökum, og
eina bótaráðið er aukin matvœli í
landinul
Prófessor deyr úr hnngri.
Austurrískur prófessor að nafni
Max Marcules er nýlátinn. Hann
var 65 ára að aldri, og orsökin til
dauða hans var hungur. Hafði
hann 400 austurrískar krónur á
mánuði f eftirlaun (10 kr. í ísl.
pen ), en var of mikillátur til að
beiðast hjálpar. Próf. Max Marcu-
les var mjög kunnur vísindamaður,
og einhver hinn frægasti vísinda-
maður í veðurathuganafræði (Me-
teorologi), er uppi hefir verið.
______ X
Erlend mynt.
Khöfn, 26. nóv.
Sænskar krónur (100) kr. 142,75
Norskar krónur (100) —< 100,00
Dollar (1) — 7,43
Pund sterling (1) — 25,83
Þýzk mörk (100) — 10,75
277 tölubl.
Uss - Hlustiðl
Lesið háttl
Glimufélagið ,Ármann*
hefir kvöldskemtun fyrir almenn-
ing í I ð n ó annaðkvöld (fimtu-
dag) kl. 8. — Til skemtunar verð-
ur einsöngur, lúðrahljómleikar
(„Gígjan“, 14 manns), biandaður
kórsöngur, hlutavelta og nýjar
gamanvfsur um Armenninga. —
Á hlutaveltunni verða margir bráð-
ónýtir munir, en einnig nokkrir
fremur góðir, svo sem nýtt hjóna-
rúmstæði á 150 kr., nýr loftþyngd-
armælir á 50 kr., nýtt silfurnystl,
ásamt festi, á 55 kr., nýr rafur-
magnsiampi á 52 kr„ ný vegg-
klukka á 165 kr, nýr legubekkur
(Dívan) á 120 kr. og nokkrir
kossar, gefnir af ungfrú Guðrúnu
Jónsdóttur, o. s. frv. — Aðgöngu-
miðar, er kosta eina krónu, verða
seldir f Iðnó á fimtud. kl. 10—5.
Um ðaginn og veginn.
Bragi hefir æfingu f Bárunni
í kvöld kl. 8.
Frí er í öllum skólum bæjarins
i dag í tilefni af „fullveldisdegia-
um“ og fánar dregnir að hún.
Annað er ekki til hátíðabrigðis,
nema ef vera skyldi manntalið.
Gullfoss fór í gær til ¥est-
fjarða. Allmargt farþega fór á
honum.
Botnía hefir, vegna illviðris,
tafist í Færeyjum og er hennar
ekki von fyr en á morgun eða
föstudag.
BotnYÖrpungarnir Draupnir og
Gylfi komu af veiðum í gær með
góðan afla.
Haabet kom í gær með bensin
og steinolíu. Tekur fisk.
*) Það var 11. ágúst.