Morgunblaðið - 20.07.1995, Blaðsíða 1
’/mi:
i: !)4C UTtv s/.H i-T
OLÉUVERSLUN
Olís á neysluvöru-
markaöinn/4
FLUG
Suöurflug ræðst
gegn einokun/5
TORGIÐ
Merkingarreglur
trufla viöskipti /8
vœsrapn/fflviNNULír
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 20. JULI 1995
BLAÐ
B
Ríkisvíxlar
MEÐ ALÁV ÖXTUN ríkisvíxla
hélst óbreytt eða 6,89% í útboði
Lánasýslunnar í gær en ávöxtun
ríkisbréfa lækkaði úr 9,75% í
9,58%. Alls bárust 44 tilboð í rík-
isbréf að fjárhæð 930 milljónir
og 21 tilboð í ríkisvíxla að fjár-
hæð 1.711 milljónir. Tekið var
tilboðum í ríkisbréf fyrir 668
milljónir og í ríkisvíxla fyrir
1.096 milljónir.
Útflutningur
ÚTFLUTNIN GSRÁÐ hefur hafið
undirbúning að sjötta verkefninu
„Útflutningsaukning og hagvöxt-
ur.“ í Útskoti, fréttabréfi Útflutn-
ingsráðs, kemur fram að góð við-
brögð hafi fengist við verkefninu
enda hafi margir þátttakendur I
því stóraukið útflutning.
GSM-símar
BRIMBORG býður nú ókeypis
Bosch GSM farsíma með nýjum
Escort Van bifreiðum sem keypt-
ar eru hjá umboðinu. Þar með
býður fyrirtækið nú tvær tegund-
ir GSM farsíma með nýjum bif-
reiðum, en eins og greint var frá
fyrir skömmu býðst kaupendum
nýrra Volvo bifreiða Ericson far-
sími á 9.900 krónur.
SÖLUGENGI DOLLARS
GENGI NOKKURRA
GJALDMIÐLA
frá 15. júní 1994 (sölugengi)
DOLLARI Kr.
-8,35% breyting
frá áramótum
r^: „ :
1994 1995
TTTsVnd j'f'm'a'm'j'j55
STERLINGSPUND Kr.
-6,31% breyting
frá áramótum
107,23 ' ,w S
10- • U5 - x W ^ 1
1994 1995 oc
JJÁSONDJFMAMJJ
Dðnsk KRÓNA k„
1 o,U +4,14% breyting
frá áramótum
11,691*2,0
iU,ö
1994 y,o 1995
J J Á S O N D J F M A M J J
Þýskt MARK
+3,22% breyting
frá áramótum
Kr.
-50
-48
JJÁSO.NDJFM.AMJJ
Japanskt YEN Kr
+5,99% breyting frá áramótum A,a
hf 0,7199_
o,6; 92
1994 1995
J J Á S 0 N D J F M A M J J ’
Franskur FRANKI
+2,28% breyting
frá áramótum
Kr.
14
1994
12
11
1995
-1-t-j-H-1-1-1--1-1-»-1-1—1-
JJÁSONDJFMAMJJ
Tt-r 10
Bókaútgefendur og bóksalar í viðræðum
um nýjar viðskiptareglur
Bóksalar vilja
fast útsölu-
verð á bækur
FÉLÖG bókaútgefenda og bóksala
vinna nú sín á milli að tillögum um
nýjar viðskiptareglur á bókamark-
aðnum. Kveikjan að þessum umræð-
um nú eru þær hræringar sem áttu
sér stað á bókamarkaði fyrir síðustu
jól en eins og kunnugt er seldu stór-
markaðirnir Bónus og Hagkaup
jóiabækur með miklum afslætti.
Óttast bóksalar að þessi verðlagning
kunni að ríða hinum hefðbundnu
bókabúðum að fullu, enda byggja
þær afkomu sína að verulegu leyti á
jólabókasölunni.
Útsöluverð bóka umdeilt
Að sögn Teits Gústafssonar, for-
manns félags bóka- og ritfanga-
verslana, eru þessar umræður nú
framhald af óformlegum viðræðum
sem fram hafa farið á milli aðila á
ísienskum bókamarkaði að undan-
förnu. Hann segir að frá þeirra
bæjardyrum séð snúist málið fyrst
og fremst um skort á skýrum -regl-
um á þessum markaði. „Vandamálið
er að bókaútgefendur eru að skil-
greina sig hvort tveggja sem fram-
leiðendur og smásala sem ekki tíðk-
ast í öðrum‘greinum."
Þá segir Teitur ástæðu vera til
að skoða tilhögun á útsöluverði
bóka. „Það er kannski spuming
hvort hér verði svipað fyrirkomulag
og í Noregi, Danmörku, Þýskalandi
og fleiri löndum. Samkeppnisstofn-
anir í þessum löndum veita undan-
þágur frá lögum hvað varðar útsölu-
verð á bókum og þar er farið eftir
því verði.“
Jóhannes Jónsson, kaupmaður í
Bónus, segir að ætlunin sé að halda
áfram að bjóða viðskiptavinum Bón-
us-verslananna jólabækurnar á sömu
kjörum og í fyrra. Hann segist vel
geta sætt sig við nýjar viðskiptaregl-
ur á bókamarkaði svo fremi að þær
útiloki ekki einn eða neinn frá við-
skiptum. „Ég sætti mig við allar
reglur sem Samkeppnisstofnun
myndi sætta sig við. Ef um einhvers
konar einokun verður að ræða þá
munum við vísa því til Samkeppnis-
stofnunar, enda em lög og reglur í
landinu sem gilda um það.“
Niðurstöðu að vænta í ágúst
Félag bókaútgefenda setti á fót
nefnd sem á að skila af sér tillögum
um framtíðarskipan þessara mála á
næstu vikum. Ólafur Ragnarsson,
formaður félagsins, segir mikilvægt
að skoða þessi mál tímanlega. „Það
er alveg ljóst að það verður erfitt
að vinna í þessum málum þegar iíða
tekur á haustið og undirbúningur
fyrir jólasöluna kemst á skrið. Við
teljum nauðsynlegt að bókaútgef-
endur sem og bóksalar leggi línurn-
ar fljótlega ef einhver niðurstaða á
að nást í þessu máli.“ Hann segist
vonast til þess að niðurstöður, hveij-
ar sem þær verði, liggi fyrir ekki
síðar en í lok ágústmánaðar.
1«
LYFJAVERSLUN ÍSLANDS
Tilboð til hluthafa: 771
Kaupgengi I|ÖJJ
Landsbréf gera hluthöfum í Lyfjaverslun Islands hf. tilboð um kaup á hlutabréfum ífélaginu
á genginu 1,65 með eftirfarandi skilmálum:
HM Hlutabréf sem keypt voru án lántöku staðgreiðast við afhendingu.
■■ Hlutabréf sem keypt voru með lántöku eru greidd með þeim hætti að lán vegna kaupanna er fyrst greitt upp
og mismunurinn greiddur seljanda.
■■ Þóknun vegna sölu bréfanna er 1,25% af söluverði.
■■ Landsbréf hf. áskilja sér rétt til að takmarka kaup bréfanna, reynist framboð meira en fyrirliggjandi pantanir.
Ráðgjafar
Landsbréfa hf.
veita allar frekari
upplýsingar
9
Landsbrcf hf. vckja athygli einstaklinga, scm nutu skattafrádráttar vcgna kaupa á hlutabrcfum í Lyfjavcrslun íslands hf. á árinu 1994 að cndurgreiða þarf afsláttinn séu bréfin
seld nú. það á þó ekki við séu hlutabréf í félögum sem njóta viðurkcnningar ríkisskattstjóra keypt á móti innan fjögurra vikna frá sölu. þeir sem keyptu hlutabréf í félaginu á
árinu 1995 til að nýta sér skattafrádrátt þurfa, ef þeir sclja bréfin, að kaupa ný hlutabréf á árinu 1995 til að viðhalda rétti til skattafrádráttar.
y LANDSBREF HF.
fn. - Jt hv^
SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 588 9200, BREFASIMI 588 8598