Morgunblaðið - 23.07.1995, Síða 1
FJOLHÆFUR RA V4ISTÆRRIUTGAFU - HUMMER ER
EINS OG KONGULO - GIZMO SKELLINOÐRUR - PROWLER
SMÍÐAÐUR Á NÆSTA ÁRI - PORSCHE ROKSELST
5 dyraí
er kominn og kostar
aðeins 2.389.000 kr.
(gg> TOYOTA
Tákn um gceöi
*
I torfæram
á Hummer
jeppa
AMG Hummer, torfærutröllið
bandaríska sem sannaði sig í
Persaflóastriðinu, hefur verið á
markaði hérlendis í nokkrar vik-
ur. Bíllinn vekur jafnan mikla
athygli á götunum enda afar sér-
stæður í útliti, breiður og lágur.
Umboðsaðili Hummer á f slandi,
Ævar Hjartarson, sem er kunnur
rallökumaður, fór með blaða-
manni í torfærur skammt frá
Akureyri fyrir skemmstu þar
sem ekið var í 45 gráðu hliðar-
halla og fram af þverhnípi.
i
Hummer er eins og könguló/2
riai
Bravo og
Brava
BÍLLINN sem leysir Fiat Tipo af
hólmi í haust heitir tveimur nöfn-
um. Fimm dyra bíllinn nefnist
Brava en þrennra dyra bíllinn
Bravo. Með nafnavalinu vill Fiat
leggja áherslu á mismuninn milli
bílanna tveggja. Þeir eru nákvæm-
lega eins að framan en þrennra
dyra bíllinn hefur brattari aftur-
enda en fimm dyra bíllinn sem
jafnframt er lægri að aftan.
Bílarnir verða með jafnlangt
hjólhaf og boðið verður upp á þijár
vélargerðir, 1,4 lítra, 82 hestafla,
1,6 1,115 hestafla og fimm strokka,
Skráningarskyldu
na f ramfylgt
EFTIRVAGNAR sem eru meira en 750 kg af leyfðri heildarþyngd
hafa verið skráningarskyldir allt frá árinu 1993 en ekki hefur verið
gengið eftir því af yfirvöldum að skráningaskyldan sé uppfyllt. Nú
hefur dómsmálaráðuneytið ákveðið að framfylgja skuli skráningar-
skyldunni á öllum óskráðum eftirvögnum sem eru í notkun. Því þurfa
eigendur hestavagna, vélsleðakerra og annarra skráningarskyldra eftir-
vagna sem eru yfir 750 kg af leyfðri heildarþyngd að láta skrá sína
vagna. Skráningargjakl er nálægt 4.700 kr. Enginn veit með vissu
hve margir skráningarskyldir eftirvagnar eru í landinu.
FIAT Brava er fimm dyra hlaðbakur sem
leysir Tipo af hólmi.
BRAVA er með sérkennilegum afturlugtum.
2ja lítra vél sem skilar 150
hestöflum.
Fiat vonast til að nýju bíl-
amir seljist betur en Tipo og
Strada sem þeir leysa af
hólmi en hvorugur þeirra
varð jafnvinsæll og Fiat 128.
Það ætti heldur ekki að
skemma fyrir Fiat að gengi
lírunnar er lágt um þessar
mundir sem ætti að ýta enn
undir sölu á Fiat í Evrópu,
en þar er söluaukningin 8,5%
það sem af er þessu ári. ■
Yfirlits-
skoðun
BIFREIÐASKOÐUN ís-
lands hf. hefur hafið þjón-
ustu sem kallast yfírlits-
skoðun og er einkum ætluð
ferðamönnum áður en þeir
halda af stað í langferðir á
bflum sínum. Farið er yfir
hjólabúnað, stýrisbúnað og
hemla.
Yfirlitsskoðun tekur mun
skemmri tíma en aðrar gerð-
ir skoðunar. Þessi þjónusta
hófst hjá Bifreiðaskoðun i
síðustu viku og hefur mælst
vel fyrir, að sögn Óskars
Eyjólfssonar fjármálastjóra
Bifreiðaskoðunar.
Yfirlitsskoðunin kostar
700 kr. ■
Samkvæmt lögum eiga öll skráningarskyld
ökutæki að vera búin aksturshemlum. Þó
verður heimilt að nýskrá eftirvagna sem ver-
ið hafa í notkun, til næstu áramóta þótt
krafan um aksturshemla sé ekki uppfyllt, ef
þeir eru minni en 1500 kg af leyfðri heild-
arþyngd og ef þeir eru dregnir af dráttarvél
á minni hraða en 30 km á klst.
Hemlabúnaður fortakslaus krafa
Eftir næstu áramót verður gerð fortakslaus
k,rafa um að skráningarskyldir eftirvagnar
verði búnir aksturshemlum. Þeir sem hyggj-
ast láta skrá eftirvagna þurfa að framvísa
skriflegum upplýsingum um verksmiðjunúm-
er eftirvagns, framleiðsluár, leyfilega heildar-
þyngd og burðargetu ása.
Allir skráningarskyldir eftirvagnar eru
jafnframt skoðunarskyldir. Eftirvagna sem
eru 3.500 kg af leyfðri heildarþyngd skal
skoða almennri skoðun á þriðja ári eftir að
þeir voru skráðir í fyrsta sinn og síðan árlega
frá og með fimmta ári eftir að þeir voru skráð-
ir í fyrsta sinn. Eftirvagnar sem eru með
meiri en 3.500 kg leyfða heildarþyngd skal
skoða árlega almennri skoðun frá og með
næsta ári eftir skráningu. Hjólhýsi og tjald-
vagnar eru tengitæki og eru því ekki skoðun-
arskyld. ■