Morgunblaðið - 30.07.1995, Side 1

Morgunblaðið - 30.07.1995, Side 1
BREYTTUR KIA SPORTAGE — VOLKSWAGENI WOLFSBURG - NÝ OG BETRIDICK CEPEKDEKK - STEYPA VÉLSLEÐAKERRUR ÚR TREFJAPLASTI PONTIAC Firehawk er snöggur í hundraðið, aðeins 4,9 sekúndur. Morgunblaðið/Árni Sæberg FIREHAWK hefur verið kallaður fjögurra manna Corvette. Firehawk - einn sá kraftmesti á landinu en loftinntökin á vélarhlífinni og sér- stæður framendinn, sem minnir helst á hákarlskjaft, setja sérstæðan svip á bílinn. Að innan er hann allur leður- klæddur með öllum hugsanlegum búnaði, eins og t.a.m. skriðstilli, loft- ræstikerfi, líknarbelgjum, rafstýrðum sætisstillingum og fleiru. Aftursætin eru djúp en þröng en þó komast þar hæglega tveir fullorðnir fyrir. En þetta er fyrst og fremst sport- bíll sem á eftir að vekja mikla at- hygli á götum borgarinnar. Svokall- aður Stage III, aukabúnaður sem eigandi getur pantað eftir að bíllinn hefur verið afhentur, er á ieiðinni til landsins frá SLP Engineering en með honum eykst hestaflafjöldinn um 40 og verður bíllinn þá orðinn 355 hest- öfl. Snerpan eykst í hlutfalli við hest- aflafjöldann og með Stage III fer Firehawk kvartmíluna á 12,9 sekúnd- um og er 4,5 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst. BÍLLINN er klæddur leðri í hólf og gólf og við gír- skiptinguna má sjá skjöld með áletrun þess efnis að þetta sé annar bíllinn af færibandinu. EINN kraftmesti og glæsilegasti sportbíll sem til er hérlendis, Pontiac Firehawk, var fluttur inn til landsins fyrir nokkrum dögum. Aðeins 800 bílar af þessari gerð hafa verið fram- leiddir og bíllinn sem hingað er kom- inn var annar bíllinn sem var smíðað- ur í verksmiðjum Pontiac en hefð er fyrir því að bílaverksmiðjur haldi sjálfar fyrsta bílnum. Það var Bíla- búð Benna sem flutti bílinn inn og hefur hann þegar verið seldur. Firehawk byijaði reyndar ferilinn sem 275 -hestafla Firebird Formula. Þegar Firehawk útgáfan er pöntuð frá verksmiðjunni er bíllinn sendur þaðan til SLP Engineering í New Jersey þar sem bílnum er breytt í það sem bandaríska bílablaðið Auto Week Magazine kallar fjögurra manna Corvette. Þar er bíllinn styrktur og breytt í sérútgáfuna Firehawk sem er mun hraðskreiðari og sneggri en Formula eða Trans Am Firebird. Fjöðrunarbúnaði og ballansstöngum er breytt, einnig eru sett undir bílinn 17 tommu felgur og hestöfl aukin upp í 315. Verður 355 hestöfl Firehawk er með 5,7 lítra, V-8 vél með álheddum og Ram Air loftinn- taki og er eins og fyrr segir 315 hestöfl en vinnsluátakið er 330 fet- pund við 2.000 snúninga á mínútu. Bíllinn er 4,9 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða á klst og kvartmíl- una fer hann á 13,5 sekúndum en hámarkshraðinn er 275 km á klst. Svona búinn kostar bíllinn rúmar fjór- ar milljónir króna. Bíllinn er eldrauður og vígalegur á 17“ felgum og minnir við fyrstu sýn á Camaro Hummer f ær ekki skoðun AMG Hummer, bandaríski jeppinn sem nýlega er farið að flylja inn til landsins, fær ekki fuila skoðun hér á landi vegna ljósabúnaðar sem er ekki (samræmi við íslenskar né evrópskar reglur. í þessum reglum segir að ysta brún lýs- andi flatar á aðalljósum megi ekki vera lengra frá hlið bíls- ins en 40 sm. A Hummer er þetta bii lengra. Bifreiðaskoðun íslands hef- ur sent dómsmálaráðuneytinu erindi vegna þessa og að sögn Guðna Karlssonar hjá ráðu- neytinu er málið þar til skoð- unar. íslenska reglugerðin um gerð og búnað bifreiða er ná- kvæmlega eins og reglur ESB að þessu leyti. Jón Hjalti Ásraundsson í tæknideild Bifreiðaskoðunar íslands hf. segir að það komi oft upp slík mál vegna bíla sem fluttir eru inn frá Bandaríkj- unum. Þó séu margar undan- þágur gefnar frá reglunum og nefndi hann sem dæmi gul stöðuljós að framan á banda- rískum bílum. Hins vegar sé erfiðara að koma bílum með slíkum ljósum inn í önnur Evr- ópulönd. Hann sagði að settu eigendur Willys jeppa breiðari br ettakanta á bíla sína yrðu þeir jafnframt að færa Ijósin utar á bílana og dómsmála- ráðuneytið hefur gengið fast eftir því. Önnur atriði sem vert er að nefna er að bílar fá hér ekki nýskráningu sem eingöngu eru með hraðamæli sem sýnir hraðann í mílum. Guðni Karlsson vildi ekkert um það segja hvort veitt yrði undanþága frá reglum um ljósabúnað. „Við ætlumsttil þess að þeir sem eru að flylja inn ökutæki til landsins þekki reglurnar. Við erum innan evrópsks efnahagssvæðis og þar gilda ákveðnar reglur,“ sagði Guðni. BIFREIÐASKOÐUN ÍSLANDS HF. Tímapantanir í síma: 567 2811

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.