Morgunblaðið - 02.08.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
HESTAR
Hulda og
Stefnir í
stað Atla
og Hnokka
HNOKKI frá Húsnesi, hestur Atla
Guðmundssonar, féll úr keppni á
HM í Sviss í gær þegar dýralæknir
íslenska liðsins Björn Steinbjörnsson
ákvað í samráði við Atla og liðsstjór-
ana að draga hann úr keppni. Ástæð-
an er líklega tognun í bóg og voru
menn sammála um að þótt Hnokki
væri ekki haltur væri hann ekki svip-
ur hjá sjón að getu og því ekki
ástæða til að tefla honum fram.
Atli sagði þessa niðurstöðu rosa-
lega svékkjandi því þarna færi
tveggja ára vinna að heita má í súg-
inn. Hann sagði að Hnokki hefði
verið mjög stressaður allan tímann
í flutningum frá Islandi á mótsstað
og hefði hann verið afar flatur og
stífur í hreyfingum þegar hann byrj-
aði að teyma hann fyrst á eftir og
líklega hafi hann tognað þegar hann
fór að ríða honum.
Inn í stað Atla og Hnokka koma
þau Hulda Gústafsdóttir og Stefnir
frá Tunguhálsi og sagði Sigurður
Sæmundsson liðsstjóri það vissulega
skaða að missa Atla og Hnokka út
úr liðinu en hinsvegar benti hann á
að ekki hefði miklu munað á þeim
í úrslitum í fimmgangi á íslandsmót-
inu á dögunum. Þá sagðist Sigurður
eiga von á því að þessi breyting
myndi auka möguleika íslendinga í
slaktaumatöltinu þar sem Stefnir
hafí verið mjög sterkur fyrir en þau
verði ekki með í gæðingaskeiði þar
sem búast mátti við góðri frammi-
stöðu hjá Atla og Hnokka.
HJOLREIÐAR
Brautarmet
w
I
Á sunnudaginn hélt Hjólreiðafélag
Reykjavíkur hina árlegu Kamba-
keppni í götuhjólreiðum, sem haldin
hefur verið á hveiju ári síðan 1990.
Hjólað er frá Hveragerði upp Kam-
bana og er endamarkið við slysa-
varnarskýlið á Hellisheiðinni en það
eru 9 kílómetra leið.
Sigurvegari varð Einar Jóhanns-
son á nýju brautarmeti, 18 minútum
og 37 sekúndum, sem er 22 sekúnd-
um minna en gamla metið en það
setti Einar sjálfur 1991. í öðru sæti
varð íslandsmeistarinn í götuhjól-
reiðum Bjarni Svavarsson á 12,21
og í þriðja Jens Viktor Kristjánsson
á 22,40 mínútum.
MIÐVIKUDAGUR 2. AGUST
GOLF
BLAÐ
C
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Björgvin með forystu
BJÖRGVIN Sigurbergsson úr Keili hefur forystu í meistaraflokki karla eftir fyrsta keppnis-
dag á landsmótinu í golfí á Strandarvelli við Hellu. Hann mundar hér eina kylfu sina í
gær, íbygginn á svipi. Karen Sævarsdóttir er hins vegar efst í meistaraflokki kvenna.
■ Landsmótið / C2-C3
Arnór Guöjohsen
Amór nær 60.
landsleiknum
gegn Sviss
Asgeir Elíasson landsliðsþjálfari hefur valið lands-
liðshóp fyrir leikinn gegn Sviss í undankeppni
Evrópukeppninnar á Laugardalsvelli miðvikudaginn
16. ágúst. Hópurinn telur 23 leikmenn en föstudag-
inn 11. ágúst verður fækkað niður í 18 leikmenn.
Leikurinn hefst klukkan 21, en sá leiktími er hugsað-
ur til að 'fjölskyldufólk
komist frekar á völlinn
og einnig vegna sviss-
neskra sjónvarpsáhorf-
enda.
Eftirtaldir leikmenn
eru í hópnum: Mark-
verðir: Birkir Kristins-
son, Fram, Friðrik Frið-
riksson, ÍBV og Kristján
Finnbogason, Kr.
Varnarmenn: Guðni
Bergsson, Bolton, Krist-
ján Jónsson, Fram,
Izudin Daði Dervic, KR,
Sigursteinn Gíslason,
ÍA, Hlynur Birgisson,
Örebro, Ólafur Adolfsson, ÍA. Miðjuleikmenn: Ólaf-
ur Þórðarson, ÍA, Rúnar Kristinsson, Örebro, Þor-
valdur Örlygsson, Stoke City, Sigurður Jónsson, ÍA,
Arnar Grétarsson, Breiðabliki, Hlynur Stefánsson,
Örebro, Haraldur Ingólfsson, ÍA og Gunnar Odds-
son, Leiftri. Framherjar: Arnór Guðjohnsen, Örebro,
Eyjólfur Sverrisson, Stuttgart, Arnar Gunnlaugsson,
ÍÁ, Bjarki Gunnlaugsson, ÍA, Ríharður Daðason,
Fram, Einar Þór Daníelsson, KR.
Arnór Guðjohnsen er sá eini í hópnum sem nær
tímamótaleik að þessu sinni. Leikurinn gegn Sviss
verður 60. leikur hans með landsliðinu.
Að sögn Eggerts Magnússonar formanns KSÍ verð-
ur lagt upp í þennan leik sem stórleik og býst hann
við um 15 þúsund áhorfendum enda eru íslendingar
ósigraðir á árinu. í Sviss er mikill áhugi fyrir leikn-
um og er búist við að um 1.200 áhorfendur mæti
þaðan fyrir utan fjölmiðla enda eru möguleikar þeirra
á að komast áfram í Evrópukeppninni góðir.
Hörðurgetur
teflt fram sterk-
asta liðinu
Islenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönn-
um 21s árs og yngri leikur við Svisslendinga
þriðjudaginn 15. ágúst að Kaplakrika i Hafnarfirði
og hefst sá leikur klukkan 16. Hörður Helgason
landsliðsþjálfari hefur valið hópinn og sagði á fundi
með blaðamönnum í gær, er liðið var tilkynnt, að
þetta væri í fyrsta sinn sem hann gæti teflt fram
öllum þeim leikmönnum sem hann vildi.
í hópnum eru: Markverðir Atli Knútsson, KR,
Árni G. Arason, ÍA og Kjartan Sturluson, Fylki.
Vamarmenn Brynjar Gunnarsson, KR, Hákon Sverr-
isson, Breiðabliki, Hermann Hreiðarsson, ÍBV, Kjart-
an Antonsson, Breiðabliki, Lárus Orri Sigurðsson,
Stoke City, Óskar H. Þorvaldsson, KR, Pétur Mar-
teinsson, Fram og Sturlaugur Haraldsson, ÍA. Miðju-
menn Auðun Helgason, FHS Eiður Guðjohnsen, PSV
Eindhoven, ívar Bjarklind, IBV, Kári Steinn Reynis-
son, ÍA, Pálmi Haraldsson, ÍA, Rútur Snorrason,
ÍBV, Sigurður Örn Jónsson, KR og Sigurvin Ólafs-
son, Stuttgart. Framherjar Guðmundur Benedikts-
son, KR, Helgi Sigurðsson, Stuttgart, Kristinn Lár-
usson, Val, Stefán Þ. Þórðarson, ÍA, Tryggvi Guð-
mundsson, ÍBV og Þórður Guðjónsson, Bochum.
Met Pedrosos
ekki staðfest?
Á FUNDI alþjóða fijálsíþróttasambandsins sem nú
fer fram í Gautaborg var staðfestingu á heimsmeti
Ivans Pedrosos í langstökki frestað til næsta fundar
sem verður í haust á meðan verið er að kanna málið
til hlítar. Sem kunnugt er þykir vafi leika á heims-
met Kúbumannsins hafi verið sett við löglegar að-
stæður. Á myndum sem áhugamyndatökumaður tók
á leikvanginum á sama tíma og Pedroso stökk sést
maður klæddum bláum jakka standa nálægt vind-
mælinum og vilja sumir meina að hann hafi geta
haft áhrif á mælinguna.
Það þykir einstakt lán fyrir Pedroso hafí vindurinn
ekki venð nema 1,20 m á sek. þegar hann stökk því
aðeins einn keppandi til viðbótar náði einu löglegu
stökki.
ÞÁTTTÖKU ANDRESAR GUÐMUNDSSONARIIÞROTTUM
?/C4