Morgunblaðið - 05.08.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
___________________________________LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1995 13
VIÐSKIPTI
6 yi iilfttki veiðhlétaÍHiHjÍ 1 OU*l ó«j IUUÖ
Upphæðir í milljónum króna Hagnaður 1994 Samtals Hagnaður1995, spá Auðlindar
Sjávarútvegur Þomióður rammi Haraldur Böðvarsson SR-Mjöl Síldarvinnslan Útgerðarf. Akureyringa Skagstrendingur Grandi Vinnslustöðin 126,5 103,0 135,9 119,0 155,0 -82,0 154,0 172,3 883,7 890
Samgöngufyrirtæki Flugleiðir EIMSKIP 623,6 557,3
1.180,8 1.350
Fjármálafyrirtæki Sameinaðir verktakar Sjóvá-Almennar íslandsbanki 108,9 258,6 184,5 552,0 560
Olíudreifingarfyrirtæki Olíufélagið Skeljungur OLÍS 240,0 124.9 101.9 466,8 420
Iðnaðarfyrirtæki Hampiðjan Lyfjaverslun l’slands Sæplast Marel Jarðboranir Ármannsfell 90,3 53,2 10,1 14,8 11,1
2,9 182,4 2^»»
Þjónustufyrirtæki SÍF l'sl. útvarpsfélagið Tollvörugeymslan ísl. sjávarafurðir 164,1 181,0 9,8 89,3
KEA 16,2 460,3 490
Hlutabréfasjóðurinn Auðlind hf.
Spáir auknum hagn-
aði stórfyrirtækja
HLUTABRÉFASJÓÐURINN Auðlind hf., sem Kaupþing hf. starfræk-
ir, spáir áframhaldandi góðri afkomu hlutafélaga sem skráð eru á
Verðbréfaþingi Islands og að hann myndi traustan grunn undir þær
hækkanir sem orðið hafa á hlutabréfaverði á þessu ári. Samkvæmt
spánni mun heildarhagnaður fyrirtækjanna aukast um 6% eða í tæp-
lega 4 milljarða króna.
Hrávara
Málmar á
uppleið
en hveiti
lækkar
London. Reuter.
VERÐ á málmum á heimsmarkaði
hefur haldið áfram að hækka
vegna bjartsýni á bættan hag í
Bandaríkjunum og uggs um að til
verkfalls kunni að koma í áliðnaði
í Kanada.
Félag 3.170 starfsmanna Alcan-
álfélagsins í Quebec samþykkti
heimild til verkfallsboðunar með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða
til þess að leggja áherzlu á laun-
akröfur.
Verkfallsheimildin leiddi til
hækkunar á álverði í London og
tonnið seldist á 1.945 dollara í
gærmorgun, sem var 37 döllara
hækkun síðan á miðvikudag.
Verð á kopar hafði hækkað um
17 dollara í 2.977 dollara eða um
rúmlega 3% á tveimur dögum.
Birgðir í heiminum halda áfram
að minnka og ýmsir spá því að
verðið komist í 3.200-3.300 dollara
síðar á þessu ári eða í ársbytjun
1996.
„Toppurinn er framundan og
menn ættu að vera við því búnir,“
sagði sérfræðingur í London.
Birgðir á Vesturlöndum eru innan
við ein milljón lesta, sem endast í
fimm vikur.
Frámreiknað verð á hveiti í
Chicago hefur haldið áfram að
lækka síðan það seldist á hæsta
verði í 20 ár fyrir skömmu. Bent
er á að vetur nálgist í Evrópu og
uppskera hafi verið betri en búizt
hafi verið við í norðurríkjum
Bandaríkjanna. En heimsbirgðir
eru með minnsta móti og útflutn-
ingur mikill. Staða gulls hefur
styrkzt og það seldist á 383,95
dollara únsan i gærmorgun. Verð
á hráolíu hefur lítið breytzt og var
16,15 tunnan í gærmorgun.
Á meðfylgjandi töflu, sem birtist
í fréttabréfí Auðlindar, sést áætlað-
ur hagnaður í hverri atvinnugrein.
Forráðamenn félagsins töldu eðli-
legt að hafa þann háttinn á, fremur
en að birta afkomuspá fyrir einstök
félög.
Búist er við að mest hlutfallsleg
aukning verði í iðnaði og er vísað
til þess að útflutningur á iðnaðar-
vörum fyrstu mánuði ársins hafi
aukist verulega frá fyrra ári. Þau
uppgjör sem þegar hafa verið birt
staðfesta batnandi afkomu iðnfyrir-
tækja, að mati forráðamanna sjóðs-
ins. Gert er ráð fyrir að hagnaður
aukist einnig nokkuð í öllum öðrum
greinum, að olíufélögunum undan-
skildum.
SlVræð-
ur fram-
kvæmd-
asljóra
„STARFSEMI Sambands ís-
lenskra viðskiptabanka [SÍV] er
orðin það viðamikil, að við munum
ráða framkvæmdastjóra í fullt
starf með haustinu,“ sagði Stefán
Pálsson, bankastjóri Búnaðar-
bankans og formaður Sambands
íslenskra viðskiptabanka í samtali
við Morgunblaðið.
„Við stöndum í töluverðum
samskiptum við viðskiptabanka
bæði á Norðurlöndum og í Evr-
ópu, sem hafa vaxið jafnt og þétt,“
sagði Stefán ennfremur. Hann
sagðist ekki geta veitt nánari upp-
lýsingar um málið að svo stöddu,
en samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur Finnur Svein-
björnsson, skrifstofustjóri í við-
skiptaráðuneytinu, verið ráðinn í
þetta starf.
Sambandið hefur til þessa haft
framkvæmdastjóra í hlutastarfí,
og hefur Ólafur Örn Ingólfsson,
forstöðumaður í Landsbankanum,
gegnt starfinu.
Á vöxtunarkrafa
h úsbréfa lækkar
ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa er
nú í fyrsta sinn í tvö ár lægri en
ávöxtunarkrafa iengstu spariskír-
teina ríkissjóðs. Nokkur verðbréfa-
fyrirtæki bjóðast nú til að kaupa
húsbréf með ávöxtunarkröfu 5,87%
en fyrir aðeins þremur vikum var
hún um 6,04%. Hagkvæmasta kaupt-
ilboð í spariskírteini var í gær með
ávöxtunarkröfunni 5,88%.
Góð eftirspurn er nú eftir húsbréf-
um en lítil eftir spariskírteinum að
sögn Óttars Guðjónssonar, hagfræð-
ings Landsbréfa.
„Stærri fjárfestar virðast nú frek-
ar vilja húsbréf en spariskírteini
vegna þess að þeir telja húsbréfa-
markaðinn stöðugri en markaðinn
fyrir spariskírteini. Orsökin er sú að
Seðlabankinn lækkaði mjög tilboð sín
í spariskírteini fyrir kosningar í vor
og er ósennilegt að þau hækki að
ráði á meðan_ bankinn býður ekki
betur,“ segir Óttar.
Skuldabréfaútboði
Eimskips lokið
300 milljóna króna lokuðu skulda-
bréfaútboði Eimskips Jauk í vik-
unni. Skandia hf. og íslandsbanki
önnuðust útboðið og gekk sala bréf-
anna vel.
Utboðið felur í sér töluverða nýj-
ung þar sem Eimskip og íslands-
banki gera með sér fyrsta lána-
skiptasamning sem sögur fara af á
íslenskum fjármagnsmarkaði.
Skandia seldi skuldabréfin, sem
bera 6,1% vexti, á innlendum mark-
aði en íslandsbanki tók á sama tíma
erlent lán á millibankamarkaði.
Eimskip gat valið í hvaða myntum
lánið var tekið og urðu þýsk mörk
og dollar fyrir valinu. í framhaldinu
gerði Eimskip síðan lánaskipta-
samning við Islandsbanka þannig
að lánakjörin eru miðuð við ákveðið
álag ofan á millibankavexti (libor)
sem forráðamenn Eimskips töldu
hagstætt. Kjör íslandsbanka munu
hins vegar miðast við kjör Eimskips
í innlendu skuldabréfaútgáfunni. Á
hveijum gjalddaga skuldabréfanna
munu aðilar gera upp áfallinn geng-
is- og vaxtamun milli gjalddaga.
Með lánaskiptasamningnum deila
samningsaðilar með sér því hag-
ræði sem hlýst af lántöku bankans
erlendis.
Eins og áður sagði lauk sölu bréf-
anna í vikunni. Árni Oddur Þórðar-
son, forstöðumaður hjá Skandia,
segir að salan hafi gengið vel og
bréfin hafi öll verið keypt af lífeyris-
sjóðum og öðrum stofnanafjárfest-
um. Sótt hefur verið um skráningu
islensku bréfanna á Verðbréfaþingi
íslands og verður Skandia við-
skiptavaki þeirra.
Er falinn
fjársjódur
á heimilinu?
Á mörgum heimilum má finna ,Jalinn fjársjóð(i;
útgjaldaliði sem má lœkka.
Þetta veitir svigrúm til að lœkka skuldir, byrja
reglulegan sparnað og vera á grœnni grein í
Búnaðarbankanum.
gtxrnni
MEÐ SPARIÁSKRIFT
BUNAÐARBANKINN
- Tmustur banki
HEIMILISLÍNAN
- Einfaldar fiármálin