Morgunblaðið - 05.08.1995, Side 1
TOYOTA COROLLA MEÐ ALDRIFIREYNSLUEKIÐ - SUBARU
OUTBACK JEPPALANGBAKUR - BÚIST VIÐ 55% A UKNINGU í
BÍLA ÚTFLUTNINGIFRÁ KÓREU -RAV4 íRAFBÍLARALLI
PALMENNAR
SJOVA
1995
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST
BLAÐ
5 dyra
er kominn og kostar
aðeins 2.389.000 kr.
1 <S> TOYOTA
g Tákri um gceöi
Nýr BMW M3
sportbíll
NÝR BMW M3 er kominn á markað
með kraftmeiri en neyslugrannari
vél og smávægilegum útlitsbreyt-
ingum. M3 er bíll fyrir sportbílaá-
hugamanninn en það er ekki þar
með sagt að rekstrarkostnaðurinn
sé hærri en á venjulegum fjöl-
skyldubíl.
Frá því framleiðsla hófst á
M3 hefur hann verið smíðaður í
20 þúsund eintökum og hefur
hlotið einróma lof í bílablöðum.
Þannig hafa franskir blaðamenn
kosið M3 Bíl aldarinnar og 1994
var M3 kosinn bíll ársins í Banda-
ríkjunum og varð þar með fyrsti
innflutti bíllinn til að hljóta þann
heiður.
M3 er í flestu líkur fyrirrenn-
aranum í útliti, aðeins hefur verið
sett á hann hvít stefnuljós og hann
er kominn á nýjar léttmálmsfelg-
ur. Meiri breytingar eru á inn-
volsi. Vélin hefur verið stækkuð
úr 2.990 rúmsentimetrum í 3.201
rúmsentimetra. Hún er 24 ventla
og 6 strokka og skilar 321 hest-
BMW M3, sparneytinn sportbíll sem franska pressan
kaus Bíl aldarinnar.
afli við 7.400 snúninga en fyrir-
rennarinn 286 hestöflum.
I\lý gírskipting
M3 er með nýrri rafeindastýrðri
eldsneytisinnsprautun, svokölluðu
MSS50-tölvukerfi sem BMW hefur
hannað og er sagt auka eldsneytis-
nýtinguna til muna. MSS50 getur
gefið 20 milljónir boð á hverri sek-
úndu og stjórnar m.a. tímasetn-
ingu á íkveikju í bensínblöndunni
og innsprautunartíma. Þá er
vinnsluátak bílsins 10% meira en
áður eða 350 Nm við 3.250 snún-
inga á rnínútu. Þrátt fyrir allan
hestaflafjöldann eyðir M3 aðeins 6
ÚTLITSLEGA er bíllinn eins
nema hvað hann hefur fengið
hvít stefnuljós og nýjar
Jéttmálmsfelgur.
lítrum á jöfnum 90 km hraða, 13
lítrum á hundraðið í bæjarakstri
og 7,3 lítrum á jöfnum 120 km
hraða.
Margir eigendur M3 höfðu látið
í ljós þá ósk að bíllinn yrði boðinn
með sex gíra handskiptingu og
þeim varð að ósk sinni. Sjötti gír-
inn dregur jafnt úr hávaða þegar
bílnum er ekið hratt og eykur á
sparneytni bílsins.
M3 er 5,5 sekúndur úr kyn’stöðu
í 100 km hraða á klst miðað við
6 sekúndur áður, enda hefur tekist
að ná út um 100 hestöflum úr
hvetjum lítra slagrýmis vélarinnar
sem þykir merkur áfangi hjá flest-
um bílahönnuðum. Bíllinn ekur
einn km á 24,7 sekúndum en hröð-
un úr 80-120 km á klst í fjórða
gír tekur 5,7 sekúndur miðað við
6,4 sekúndur í fyrirrennaranum.
skráðra bifreiða á íslandi í ársbyrjun, 1927-1995
1927 1930
1935
1940
1945
1950 1955 1960 1965 1970 1975 1980 1985 1990 1995
Heimlldlr: Péiur Gaulur Krístjánsson 1994: Islenskt bifreiöatal 1927-1994 og Bilatlotinn, ársljóröungsrit, 1. t.bl, I. árg., ritstj. Pétur Gautur Kristjánsson.
Greiðslukort
óvelkomin
BANDARÍSK bílaumboð vilja
helst ekki taka við greiðslu
fyrir bíla með greiðslukorti,
að því er fram kemur í skoð-
anakönnun sem bandaríska
bílafréttablaðið Automotive
News hefur gert. Bílaumboð-
in hafa ekkert á móti því að
greitt sé fyrir viðhald og þjón-
ustu með greiðslukortum en
þeim vex í augum að 3-5%
umsýslugjald sem flest
greiðslukortafyrirtæki vestra
taka dragist frá umsömdu
kaupverði bifreiða. ■