Morgunblaðið - 09.08.1995, Blaðsíða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
\>A& KO/M DÁUlriP 5KfzýnÐ FVRirÁ
iLEIÞ jVVINNI HINÖAÐ
' KWtítP. És GEKK
. TIL þBSSA M£XI-
\KANSKA HOND5
1 OG 0AD HANN UM
i fOO KALL
t?AV?5
HANN SAöE>U tVi AHÐOI?,ÉGS
E}2 SVOLÍTIP NAU/MUR núna »
J54, /MEXIK4NA HUN ÞAR,
EöAtE/NA HUNPA
0I-ÉNPlN<SAie.
BG ■■ EHE.. •
Tommi og Jenni
I 5UPP05EY0U n'Í?
don't believe in
THE L05T I5LANP
0F ATLANTIS, / N/;
EITHER.. ///W
7~ /*7 Q 1995 United Faature Syndlcate, Inc.
Hvernig gat flugdreki farið niður um hálsmálið
á skyrtunni þinni og út um ermina?
Ég geri ekki ráð fyrir að þú trúir á hið
týnda eyland, Atlantis, heldur.. .
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlunni 1108 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Framlag til
þrætubókar
Frá Jónu Margeirsdóttur:
BITTINÚ, sagði kerlingin, og sagði
svo ekki meira þann daginn! Nú
þykir mér Helgi Hálfdanarson far-
inn að gera að gamni sínu. í að-
sendri grein í blaði yðar þann 27.
júlí ber hann fram tillögu sem, ef
ég má gerast svo djörf, hlýtur að
vera skrifuð í þeim tilgangi einum
að hrista upp í þegnum þjóðarinnar.
Kannski vantar aðsent efni í þetta
venjulega magn af þras- og þrætu-
greinum sem skortir á sumrin þegar
fólk er að dandalast út um allar
jarðir og nennir ekki að lesa Mogg-
ann. Eða er Helgi bara fúll að vera
ekki í sumarfríi á Spáni?
Ég er fullkomlega sammála
Helga að mér þykir til of mikils
ætlast af forseta vorum að vera sí-
fellt að stinga skóflum, í svo mjög
misjöfnu veðurfari, selja saltfisk og
blanda geði við fjarlægar þjóðir sem
eru að sjálfsögðu að mestu leyti af
öðrum kynstofni og mataðar á öðr-
um trúarbrögðum en við íslendingar
sem eigum svo merkilega þjóð-
kirkju. Helgi segir að menningar-
saga hennar sé „stórbrotin". Ég er
ekki nógu menntuð í þeim fræðum
til að bera menningarsögu okkar
þjóðkirkju saman við kirkju annarra
kristinna þjóða, hvort sem þær eiga
þjóðkirkju eður ei. Eitt veit ég þó,
að þótt þjóð teljist kristin og eigi
sér þjóðkirkju, þá ríkir næstum und-
antekningarlaust trúfrelsi hjá
kristnum þjóðum.
Er Helgi að gantast við okkur
(sauðsvartan almúgann) sem þekkir
ekki mun á íroníu eða allegoríu -
hvorki kaldhæðni, háði né blekk-
ingu? Telur hann, í alvöru, að þó
svo að Alþingi íslendinga sé ekki,
og því síður forsetaembættið, fært
um að leiða okkur inn í næsta þús-
undáratímabil, að biskupsembætti
þjóðkirkjunnar sé því hlutverki vax-
ið ? Will no-one rid me of this
meddlesome priest? Þetta voru stór
orð í tíð Hinriks II Englakonungs,
um það leyti sem menn voru þving-
aðir til að taka krisni hér á landi.
Æ, hefur konungurinn líklega and-
varpað í örvæntingu sinni: Vill eng-
inn losa mig við þennan afskipta-
sama prest?
Það þætti tíðindum sæta út um
alla heimsbyggð ef ein lítil eyþjóð
á mörkum hins byggilega heims
(með dálítið köflótta sögu í kristni-
haldi ef ég má orða það svo) tæki
upp á því að gera biskup sinn að
tákni stjórnvalds lýðveldisins. Og
ekki nóg með það - heldur, eins og
Helgi orðar það: „væri þess að
vænta, að biskup hefði í krafti heil-
agrar vígslu manndóm til að bjarga
sæmd þjóðarinnar, hagsmunum
hennar og stjórnarskrá . . .“ (Til-
vitnun lýkur.)
Og ekki orð um það meir. Sú
sérstaka þrætubókarlist sem tíðkast
í íslenskum dagblöðum gerir það
að verkum að alvöru dagblað eins
og Morgunblaðið þarf ekki að greiða
eins mikið fyrir editorial, eða alvöru
blaðamennsku eins og tíðkast í þeim
löndum sem „við viljum helst bera
okkur saman við“ (hörmuleg klisja
og ótímabær hjá þjóð sem vill státa
af sjálfstæði og lýðræði). Við aðsent
efni bætast minningagreinar, sem
eru jú hefð og mikið tilfinningamál,
hundleiðinlegur Víkveiji - svo ótrú-
legt magn af listaumíjöllun og
gagnrýni að mann klígjar við. Þegar
auglýsingum, þýddum fréttaskeyt-
um, smápistlum frá fréttariturum
út á landi, myndum af dauðum
minkum, hvölum, löxum, bílslysum
(sérstaklega af illa útleiknum bíl-
hræjum), teiknimyndum o.s.frv. er
bætt við, hversu mikið af blaðinu
er skrifað í Kringlunni 1? Spurning-
in er framsett af fullri alvöru, vegna
þess að síðast þegar Helgi Hálfdan-
arson Iagði orð í belg með úrelta
og fáránlega grein um stöðu kven-
þjóðarinnar, fylgdu í kjölfarið
ómældir dálksentimetrar. Ef borgað
er fyrir slíka blaðamennsku, bið ég
forláts. Ég tek það fram áð ef rit-
stjóri vill birta þennan stúf þá hefur
hann leyfi mitt til þess, sér að kostn-
aðarlausu.
JÓNA MARGEIRSDÓTTIR,
Austurströnd 12, Seltjarnarnesi.
Fjársjóður sem frelsar
Frá Einari Ingva Magnússyni:
í HEILAGRI ritningu stendur skrif-
að, að þar sem fjársjóður manns er,
þar muni hjarta hans vera. Stundum
leiði ég hugann að þessum orðum
Ritningarinnar, þegar ég virði fyrir
mér samféiag okkar mannanna.
Menn keppast nefnilega við sérhvern
dag að afla sér auðæfa og vinna við
það baki brotnu. I tímanlegu lífi
okkar, miðað við eilífðina, snýst til-
vera flestra manna um þessa for-
gengilegu fjársjóði sína.
Lífið býður þó upp á meira, sem
er annað og betra líf, einnig frá
Guði komið. En það er lífið í Jesú
Kristi. Ef menn vissu hvað eilífðin
er, myndu þeir gera allt sem í þeirra
valdi stæði til þess að breyta lífi sínu,
því lífið er meira en eigur manns
metnar til fjár. Maður frelsar ekki
sál sína með þeim. En hvernig þá,
ef sú hugsun skyldi einhvern tíma
skjóta upp kollinum. Margir reyna
þó að bjarga sér, og halda, að sú
leið sé ein fær, þar sem safnað er
að sér veraldlegum auðæfum. En við
eigum svo miklu betri fjársjóð, sem
við getum geymt í hjarta okkar þó
við eigum ekkert annað, og gengið
með hann inn í eilífðina. Við lesum
um hann í Biblíunni, og hljóðar svo:
„Trú þú á Drottinn Jesúm, og þú
munt hólpinn verða." (Post. 16:31).
„Þetta hef ég skrifað yður, til þess
að þér vitið, að þér hafið eilíft Iíf,
yður sem trúið á nafn Guðs sonar.“
(1. Jóh. 5:13).
EINARINGVIMAGNÚSSON,
Baldursgötu 39, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.