Morgunblaðið - 09.08.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 09.08.1995, Síða 1
 1995 MIDVIKUDAGUR 9. AGUST BLAÐ MEISTARI Á SÍNU SVIÐI Ljósritunarvélar og faxtæki mita „ÉjjL Styrktaraöili HM í frljálsum íþróttum. djksgill Guttormsson - Fjölval hf. Mörkin 1 • 128 Reykjavík • Símar: 581 2788 og 568 8650 • Bréfsími: 553 5821 Kristinn Björnsson tekinn afturvið stjórninni STJÓRN knattspyrnudeildar Vals ákvað í gær- kvöldi að segja upp samningi deUdarinnar við Hörð Hilmarsson, þjálfara liðsins í sumar, og ráða aftur Kristinn Björnsson en hann hafði ver- ið með liðið undanfarin tvö ár. Hann tók við æfingum strax í gærkvöldi. f fréttatilkynningu deildarinnar segir meðal annars að ástæða uppsagnarinnar sé að liðið hafi verið komið í sjálfheldu í leik og ieikaðferðum, sem leiddi til þess að árangur hefur ekki verið sá sem vænst var eftir. Því hafi verið gripið til róttækra aðgerða með því að skipta um þjálfara. „Menn voru sammála um Kristinn og er samning- urinn við hann út keppnistímabilið,“ sagði Theód- ór S. Halldórsson formaður deildarinnar. „Það var rætt um hann þar sem málin þróuðust öðru- vísi en Jagt var af stað með og þaraf leiðandi voru ýmis mál stöðugt í endurskoðun.“ Kristinn þjálfar nú kvennalandsliðin í knatt- spyrnu og mun gera það áfram en tveir landsleik- ir eru framundan í september og einn í október. „Þetta er bara afmarkað verkefni hjá Val til að reyna að breyta atburðarrásinni og I haust verð- ur að stokka upp spilin,“ sagði Kristinn í gær- kvöldi. „Ég vil meina að þjálfaraskipti breyti ekki öllu, stundum gengur það og stundum ekki en finna þarf nýja uppstillingu, bæta varnarleik, fá kraft í sóknarleikinn og láta leikmenn finna það besta þjá sér. Nýr maður blæs öðruvísi í lúðr- ana og nú þarf að vinda ofan af ógæfunni,“ sagði Kristinn en hann hefur hefur séð flesta heima- leiki Iiðsins og nokkra útileiki. „Ég veit nokkurn veginn hvað klukkan slær, hef gengið í gegnum þennan feril áður og þekki bæði innviði liðsins og einnig mótheija." Mynd/Göran Hger^ord GUÐRÚN Arnardóttir í 400 m grindahlaupi í HM í Gautaborg — hún tryggði sér rétt til að keppa í annari umferð. Heppnin ekki með íslensku liðunum DREGIÐ var í Evr- ópukeppninni í handknattleik í gær og fer fyrri leikur- inn fram 7. eða 8. október næstkom- andi en sá síðari 14. eða 15. sama mán- aðar. Ljóst er flest íslensku liðin eiga erfiða ferð fyrir höndum. Af karlaliðunum fékk Valur fyrst heimaleik gegn CSKA Moskva í meistarakeppninni og Afturelding fer til Makedóníu og leikur við Povard- aria Negotino í borgarkeppni Evr- ópu. I keppni bikar- hafa fer KA frá Akureyri hins vegar til Noregs og leikur gegn Víking frá Stafangri en Vík- ingar fá Gumany Zubri frá Tékklandi í heimsókn í Evr- ópusambands- keppninni. Kvenna- lið Sljörnunnar fær Anaganesi Artas frá Grikklandi í meist- arakeppninni og i bikarkeppninni fær Fram, D.H.C Me- arwen frá Hvíta- Rússlandi í heim- sókn. Jón Amar meiddist og hætti Guðrún komst áfram. Meiðsli Péturs tóku sig upp í upphitun og hann tók ekki þátt í kúluvarpskeppninni Jón Arnar Magnússon meiddist í tugþrautarkeppni heimsmeist- aramótsins á mánudaginn og hætti. Hann hafði verið dæmdur úr leik í 400 m hlaupinu daginn áður, fyrir að stíga á línuna sem skilur að brautirnar; á vinstri línu í beygju, sem er harðbannað. Seinni daginn meiddist hann svo í stangarstökkinu og hætti keppni. Hann sagðist hafa verið vel upplagður, taldi sig vera á svipuðu róli eftir fyrri daginn og í Götzis í Austurríki i vor þegar hann Skapti Hallgrímsson skrífar frá Gautaborg setti íslandsmet. En meiðslanna vegna varð hann að hætta nú og fór heim til íslands í gær. Birgir Guðjónsson, einn yfirdóm- ara mótsins, ráðlagði Islendingunum að kæra ekki úrskurð brautardómara í tilviku Jóns Arnars. Hann skoðaði myndband af atvikinu og sagði enga von um að ákvörðun brautardómara yrði breytt. „Það var ekki gaman að þurfa að gera þetta, en ég er hérna sem hlutlaus starfsmaður en ekki sem íslendingur. Ég þurfti að skýra þetta svona út í þremur tilvikum, og sagði mönnum bara að þeir myndu örugglega tapa sínum 100 dollur- um,“ sagði Birgir við Morgunblaðið. Þá upphæð þarf að greiða þegar kært er. „Það var ekki nokkur leið að sjá annað en hann stigi á línuna — að sjá atvikið í sjónvarpinu var st'aðfesting á því að ákvörðun braut- ardómarans væri rétt og ekki nokkur leið að afsanna hana,“ sagði Birgir. Athygli vakti að bandaríski hlaup- arinn Darnell Hall var dæmdur úr leik í undanúrslitum 400 metra hlaupsins, Bandaríkjamenn kærðu og kæran var tekin til greina. Hann verður því með i úrslitahlaupinu í dag. Greinilega sést á sjónvarpsmynd að Hall stígur á vinstri línu, í beygju, ekki bara einu sinni heldur fjórum sinnum, og því vaknar sú spurning hvort ekki sé sama Jón eða séra Jón, því Hall er heimsmeistari innan- húss. „Ég get ekki útskýrt þetta. Þetta var ekki rætt á fundi okkar í dag og ég hef ekki séð atvikið. Ég verð að kynna mér það áður en get sagt eitthvað um það,“ sagði Birgir. Guðrún Arnardóttir keppti í 400 metra grindahlaupi í gær og komst áfram í undanúrslit. Pétur Guð- mundsson var hins vegar ekki með í kúluvarpskeppninni. Hann hefur verið meiddur á hendi, og sagði áður en hann hélt á völlinn, að hann myndi ekki taka neina áhættu. Meiðslin tóku sig hins vegar upp strax í upp- hituninni, þannig að hann gat ekki verið með. Guðrún Arnardóttir hleypur aftur i dag og Vésteinn Hafsteinsson tekur þátt í riðlakeppni kringlukastsins. ■ Allt um HM Gauta- borg / B4,B5,B6, 87,810,811,812 HESTAR: SIGURÐUR OG HUGINIM HOFÐU TVO GULL A HORKUNNI / B8,B9,B11

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.