Morgunblaðið - 09.08.1995, Page 1

Morgunblaðið - 09.08.1995, Page 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 9. AGUST1995 BLAÐ C PÁSA í SALTFISKINUM tm Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson STARFSFÓLK Fiskiðjunnar Skagfirðings á Sauðárkróki taldi þægilegast að fá sér sæti á stóru saltsekkjun- um í pásu frá púlinu við saltfiskinn dag einn fyrir skömmu. Þriðjungs aukning framleiðslu hjá ÍS EFNI ■f 3 Erfittaðmanna fiskvinnsluna Afiabrögð 4 Aflayfirlit og staðsetning fiskiskipanna Greinar 7 Gísli Þorsteinsson Aukning í sölu allra deilda og félaga HEILDARFRAMLEIÐSLA ís- lenskra sjávarafurða hf. fyrstu sex mánuði ársins jókst um 33% miðað við sama tímabil á síðasta ári. Fram- leidd voru 35.600 tonn en 26.700 tonn í fyrra. Mesta framleiðsluaukningin er í síld og loðnu og framleiðslu erlendis. Verðmætaaukning í sölu fyrirtækisins nam 10,7% miðað við sama tíma í fyrra. Aukning var í sölu allra einstakra söludeilda og sölufélaga. „Við erum mjög sáttir við fyrri hluta Bolfiskframleiðsla fyrirtækisins hefur ársins sem er ágætur. Það hefur verið dregist saman um 9,5%, var 17.870 aukning á framleiðslu, sölu, hagnaðar- tonn í fyrra en 16.180 tonn nú. Skelfisk- aukning og svo framvegis. Hins vegar framleiðsla hefur sömuleiðis dregist iítil- horfum við fram dálítð erfitt haust, aðallega vegna þess að það er búið að skera kvótann niður aftur um 6-7%. Úthafskarfaveiðin er mun minni en við reiknuðum með, humarinn brást og ýmislegt sem veldur því að bjartsýnin á seinni hlutann er ekki alveg jafn mik- il. En fyrri hlutinn er allavega undir belti og hann er góður,“ segir Benedikt Sveinsson, forstjóri íslenskra sjávar- afurða. Mest auknlng í síld og loðnu Framleiðsla ÍS á íslandi á fyrri hluta ársins jókst um 21,6% og munar þar mest um mikla framleiðsluaukningu á síld og loðnu. Á fyrstu sex mánuðum ársins 1994 framleiddi ÍS um 5,400 tonn af síld og loðnu en í ár 12.700 tonn. Benedikt segir að það sé einkum tvennt sem veldur þessari aukningu. „í fyrsta lagi kemur Vinnslustöðin í Vest- mannaeyjum hér inn sem mjög öflugur loðnuframleiðandi og hefur mikil áhrif á okkar framleiðslutölur. Hins vegar hafa aðrir framleiðendur okkar verið að auka framleiðslu bæði í síld og loðnu og má þar til dæmis nefna Borgey í Hornafirði." lega saman eða um 2,8%. Framleiðsla erlendis hefur fimmfald- ast miðað við fyrstu sex mánuðina í fyrra og er nú 4.058 tonn. „Þessi fram- leiðsla er í Namibíu og Kamchataka í Rússlandi. Þessi mikla aukning liggur í því að nú erum við búnir að vera í framleiðslu í Namibíu frá áramótum en í fyrra bytjuðum við ekki fyrr en nokk- uð var liðið á árið. Þarna er því nýr framleiðandi sem er að skila sínu.“ Hlutfallslega mlnnl verðmætaaukning Heildarverðmætaaukning fyrirtæk- isins nemur 10,7% en heildarverðmæti á fyrstu sex mánuðum ársins eru 7.728 milljónir króna en var 6.982 miiljónir króna í fyrra. Verðmæti útfluttra afurða frá íslandi jókst um 7,9% en sala erlend- is um 61,6% og munar þar mest um söluaukningu í Namibíu. Þar að auki hafa allar söludeildir aukið söluna, bæði söludeildir erlendis og hér heima. „Verð- mætaaukningin er auðvitað mun minni en magnaukningin. Það skýrist af því að magnaukningin byggist á ódýrari tegundum eins og síld og loðnu,“ sagði Benedikt. Fréttir Miðnes kaupir nótarskip • MIÐNES hf. í Sandgerði hefur gert samning um kaup á skoska nótar- og flottrolls- veiðiskipinu Quantus. Skip- inu er ætlað að koma í stað Keflvíkings KE og verður einkum notað til loðnu og síldveiða enda útbúið kæli- tönkum./2 Eftirlitið kostar 2 milljónir • VINNSLUSKIP sem skráð eru hér á landi þurfa að hafa veiðieftirlitsmann um borð fyrsta hálfa árið. Kostar það tæpar 2 milljónir kr./2 Farin til loðnuleitar • TÓLF íslensk loðnuskip voru í gær farin til loðnuleit- ar en lokun Hafrannsókna- stofnunar á veiðisvæðinu til að vernda smáloðnu er fallið úr gildi. Is hamlar leit og þegar blaðamaður ræddi við skipstjóra í gær hafði engin loðna fundist./4 > A rannsóknar- skipi í Namibíu • FIMM íslendingar starfa sem yfirmenn um borð í hafrannsóknaskipinu Wel- witchia á vegum Þróunar- samvinnustofnunar Islands við strendur Namibíu. Skip- ið er eitt fullkomnasta rann- sóknarskip sem gert er út í Afríku./5 Mun minni út- hafskarfaafli • AFLAVERÐMÆTI út- hafskarfa á vertiðinni sem nú er langt komin er aðeins um 850 milljónir kr., eða þriðjungur af því sem Þjóð- hagsstofnun hefur áætlað. Karfinn úr úthafinu skilaði íslendingum 2,2 milljörðum á síðasta ári. Islensk skip hafa það sem af er þessu ári veitt rúmlega 18.000 tonn af úthafskarfa. Á síð- asta ári veiddust um 46.500 tonn./6 Kvótaverð lækkar • VERÐ á kvóta í nokkrum tegundum lækkaði á síðasta uppboði Kvótamarkaðarins, m.a. vegna þess hvað lítið er orðið eftir af kvótaárinu. Verðið ræðst af framboði og eftirspurn og kvótastöðu í einstökum tegundum./8 Markaðir * IS eykur framleiðslu • MESTA aukningin í fram- leiðslu Islenskra sjávaraf- urða hf. á fyrstu sex mánuð- um þessa árs var i síld og Ioðnu, eða 136%, og í fram- leiðslu erlendis sem fimm- faldaðist frá sama tíma á síðasta ári. Framleiðsla á bolfiski minnkaði um tæp 10%, einnig varð lítils háttar samdráttur í skelfiski. Framleiðslan á íslandi jókst um 21,6%. Heildarfram- leiðslan þessa mánuði, að meðtalinni framleiðslu á vegum IS erlendis, er tæp 35.600 tonn á móti tæplega 26.800 tonnum á síðasta ári og hefur því aukist um 33% milli ára. Islenskar sjávarafurðir: Framleiðslumagn jan.- júní 1994 og 1995, tonn janúar tll júní Breyt. 1994 1995 % Á fslandi 25.944 31.536 21,6 Bolfiskur 17.868 16.176 -9,5 Síldogloðna 5.419 12.778 135,8 Skelfiskur 2.657 2.582 -2,8 Erlendis 825 4.058 Samtals 26.769 35.594 33,0 Aukningin sést alls staðar Islenskar sjávarafurðir: Sala deilda og félaga jan.-júní 1994 og 1995 Upphæðir i milljónum I janúar til jún( Breyt. llfgSS^i 1994 1995 % Bandaríkin $62,0 64,9 +4,6 Bretland £14,4 18,2 +26,4 Frakkland FRF 59,9 82,1 +37,1 Þýskaland 0M 14,1 14,7 +4,0 Reykjavík $35,1 41,0 +17,0 • SALA jókst í öllum sölu- deildum og dótturfélögum íslenskra sjávarafurða hf. á fyrri helmingi þessa árs miðað við sama tíma á síð- asta ári. Mesta aukningin varð hjá Iceland Seafood Ltd. í Frakklandi, 37%, og hjá ISL í Englandi, 26%. Bein sala frá söludeild ÍS í Reykjavík jókst um 17%. Þá jókst salan hjá ISL í Þýska- landi og lceland Seafood. í Bandaríkjunum um 4%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.