Morgunblaðið - 10.08.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
FIMMTUDAGUR 10.ÁGÚST
BLAD
D
FRJALSIÞROTTIR / HM I GAUTABORG
Boul-
merka
hélt sínu
striki
ÓLYMPÍUMEISTARINN í
1.500 metra hlaupi kvenna
Hassiba Boulmerka gerði sér
lítið fyrir í gær og sigraði í
úrslitum 1.500 metra hlaups
kvenna á heimsmeistartmótinu
í Gautaborg og kom sá sigur
fáum á óvart. Hún átti þó í
hörkubaráttu við bresku stúlk-
una Kelly Holmes á lokasprett-
inum, en gaf hvergi eftir og
kom fyrst í mark á 4:02,42 mín.,
en breska stúlkan var á 4:03,04
mín. Á síðasta heimsmeistara-
móti í Stuttgart varð Boul-
merka að gera sér þriðja sætið
að góðu.
Evrópumeistarinn í 10 km
hlaupi kvenna, Fernanda Ri-
beiro frá Portúgal sigraði af
öryggi 10 km hlaupinu í gær.
Hún tók forystu í hlaupinu þeg-
ar sex hringir voru eftir og
hélt Ólympíumeistaranum Der-
artu Tulu frá Eþíópíu fyrir aft-
an sig það sem eftir var. Ri-
beiro kom í mark á 31:04,99
mm.
Reuter
■ Allt um HM / D2,D3
KAPPROÐUR
Anna Lára í
tólfta sæti
Anna Lára Steingrímsdóttir
hafnaði í 12. sæti á heims-
meistaramóti 16 til 18 ára í kapp-
róðri, sem fram fór í Póllandi um
helgina en keppendur voru 21 í
hennar flokki. Eftir að Anna Lára
hafði sigrað sinn riðil í undankeppn-
inni fór hún beint í úrslit en hefði
annars lent í milliriðlum.
„Ég var að keppa í stóru móti
helgina áður og „toppaði“ þá en var
að koma niður. Mér gekk vel fyrst
en seinni riðlarnir voru sterkari,"
sagði Anna Lára, „Þetta hvetur
mig til að halda áfram og nú er
bara að æfa. Reyndar er ekki vitað
um mót á næsta ári en það kemur
í ljós með vorinu.“
ALSÍRSKA stúlkan og Ólympíumeistarlnn í 1.500 m hlaupi, Hassiba Boul-
merka, gat ekki leynt gleði sinni yfir því að hafa loks sigrað á heimsmeistar-
móti í 1.500 metra hlaupi. Á síðasta móti fyrlr tveimur árum í Stuttgart varð
hún að gera sér þriðja sætlð að góðu.
Okurieiga á ÓL
í Atlanta ’96
BORGARSTJÓRINN í Atlanta í Bandarilqun-
um þar sem næstu Ólympíuleikar fara fram —
1996, Bill Campell, er æfareiður útí íbúðareig-
endur í borginni sem ætla að hækka leiguna
verulega þegar kemur að leikunum og lofaði
þvi að borgaryfirvöld hefðu ekki sagt sitt sið-
asta orð.
Eitt af leigufyrirtækjunum hefur sagt leigj-
endum sínum að flytja eða borga um 189 þús-
und krónur á mánuði í fjóra mánuði næsta
sumar en sumir leigjendur þar borga um 25
þúsund fyrir einstaklingsibúðir. Annað fyrir-
tæki framlengir aðeins samninga í sex mánuði
svo að ibúðirnar verði lausar fyrir leikana.
„ Við munum ekki sitja hjá og láta liðast að
fólk notfæri sér samborgara sina og geri
ógeðslega hluti sem eru ekki sæmandi borg-
inni og 01ympíuleikunum,“ sagði Campell en
það er hinsvegar ekki víst að borgaryfirvöld
geti gert neitt i málinu. í fylkinu Georgíu, þar
sem Atlanta er, voru sett lög í fyrra sem banna
að sprengja upp verð á hótelherbergjum en
hins vegar eru engin slík lög yfir íbúðir.
Of stutt mara-
þonhlaup
MARAÞONHLAUP kvenna var fyrsta keppnis-
grein heimsmeistaramótsins sl. laugardag og
þar sigraði Manuela Machado frá Portúgal
nqög örugglega. Hins vegar fær hún og aðrir
keppendur ekki tima sina staðfesta því hlaup-
ið var 400 metrum of stutt. Vegna misskiln-
ings á meðal vallarstarfsmanna þá voru kon-
uraar aðeins látnar hlaupa þijá hringi á vellin-
um í stað fjögurra áður en þær fóru útaf leik-
vanginum.
Drechsler
hætti í sjö-
þrautinni
ÞETTA heimsmeistaramót ætlar ekki að verða
þýsku fijálsíþróttakonunni Heike Drechsler
fengsælt né gleðiríkt. Eftir að hafa verið árum
saman fremsti langstökkvari heims í kvenna-
flokki þá brá svo við að þessu sinni að hún
komst ekki i 8 manna úrslit i greininni. I gær
hætti hún siðan keppni sjöþraut að loknum
þremur greinum. Hún meiddist í ökkla í ann-
arri grein, hástökki, harkaði af sér og tók þátt
i næstu grein, kúluvarpi. En að kúluvarpinu
loknu ákvað hún að fengnu samráði við föður
sínn og þjálfara, Erich Drechsler, að hætta.
KNATTSPYRNA
Eric Cantona vill fara
Franski knattspyrnukappinn
Eric Cantona hjá Manehester
United bað stjórn félagsins að
leysa sig undan samningi en var
neitað. Óskin kom í kjölfarið á
því að enska knattspyrnusam-
bandið bað Manchesterliðið um
útskýringar hvers vegna Cantona,
sem er í banni fram í október
vegna árásar á áhorfanda, lék
fyrir luktum dyrum æfingaleik
gegn Rochester 25. júlí.
Sambandið hefur þegar lýst því
yfir að það muni ekki gera neinar
ráðstafanir vegna atviksins og
segir að skýringar Manchester
manna, að leikurinn hafi verið
óformlegur, séu góðar og gildar.
Cantona er hins vegar svekktur
og segist ekki telja sig eiga neina
framtíð í Englandi og bað um sölu.
Stjórn félagsins neitaði bón
Frakkans og gat varla annað því
hún hefur þegar verið gagnrýnd
harkalega fyrir að selja Paul Ince
og Mark Hughes og fyrir utan
það hafa staðið yfir viðræður um
sölu á Andrei Kanchelskis. „Ég
vil einfaldlega hafa Cantona í liði
mínu og hann veit það,“ sagði
Ferguson í viðtali. „Við höfum
rætt við hann og lögfræðing hans
og náð að róa Cantona aðeins.
Við ræðum meira við hann næstu
daga og vonandi verður hann
áfram.“
Engu að síður hafa mörg erlend
lið hlaupið til og vitað er að þó
að búið sé að loka fyrir sölur á
Ítalíu, þannig að leikmenn sem
skrifa undir núna mega ekki spila
fyrr en í nóvember, kæmi það
ekki svo mikið að sök því sem
fyrr sagði er Cantona í banni fram
í október. Massiom Moratti, for-
seti Inter á Ítalíu, hefur ekki far-
ið leynt með það að hann sé til í
að kaupa Cantona á sama tíma
og hann hefur greitt 700 milljónir
fyrir Paul Ince. Moratti hefur þó
lofað að tala ekki við Cantona um
sölu ef Manchester vill ekki selja
hann og þá vegna heiðarleika og
virðingu. Hann tók hins vegar
fram að ef Cantona yrði falur,
væru ítalirnir reiðubúnir.
KNATTSPYRIMA: KRTAPAÐI í FIMM MARKA LEIKILÚXEMBORG / D4
+