Morgunblaðið - 11.08.1995, Síða 1
LÆGSTA VERÐ
BILALEIGUBILA
I EVROPU!kr/vlka
Spánn fr. 13.200
Bretland 13.020
Danmörk 18.900
Frakkland 19.900
Holland 17.700
Noregur 28.900
Portúgal 13.060
Sviss 16.660
Þýskaland 15.260
FOSTUDAGUR
11. ÁGÚST 1995
Sýklarsem
eru hættulegir
fyrir kornabörnin ....J
VERIÐ er að rannasaka tíðni svokallaðra
keðjukokka, eða Haemolytic Streptococci
grúppa B meðal þungaðra kvenna hér á landi.
Að sögn Sigríðar Haraldsdóttur ljósmóður á
göngudeild kvenna á Landspítalanum eru
sýni tekin úr konum tvisvar á meðgöngu og
er þær koma inn til fæðingar. Þunguðum
konum, sem fæddar eru fjórða hvem dag
mánaðar, og koma í mæðraskoðun á Land-
spítala eða Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur,
stendur til boða að taka þátt í rannsókninni.
Atli Dagbjartsson, bamalæknir, hefur
umsjón með rannsókninni og segir hann að
erlendar rannsóknir bendi til að sýklar þess-
ir geti verið í leggöngum hjá þriðjungi til
helmingi kvenna.
Hafa sést á síðustu árum
Hann segist fyrst hafa séð þessa keðju-
kokka er hann var við framhaldsnám í
Bandaríkjunum 1974-5. „Þar voru menn að
beijast við þá en þeir sáust ekki hér fyrir
1980. Á síðustu árum hafa komið upp hættu-
legar blóðsýkingar hjá nýburum af völdum
þessara keðjukokka. Nýburi sem fæðist
sýktur er í lífshættu."
Ætlunin er að kanna tíðni keðjukokka
meðal íslenskra kvenna og hvernig þeir ber-
ast til nýbura. „Það er enn ekki vitað, en
þó er talið að börnin smitist í fæðingu. Kon-
ur sem taka þátt í rannsókninni og greinast
með keðjukokka munu fá lyfjagjöf í fæðingu
til að koma í veg fyrir að barnið sýkist. Við
væntum þess að niðurstöður úr rannsókn-
inni liggi fyrir eftir eitt til tvö ár.“ ■
NÁLÆGT fjögur þús-
und sex ára börn eru
|m að hefja skólagöngu í
haust. Bæst hefur við
W ein kennslustund á viku
Ui hjá þessum aldurshópi
þannig að í haust verða
sex ára börn 26 tíma á
viku í skóla í stað 25 stunda
áður. Þau verða líka lengur
í skólanum en tíðkast hefur
undanfarin ár, mæta í byrjun
september og hætta í lok
maí.
10 skóladagar bætast að
jafnaði við skólaárið
Að sögn Guðna Olgeirs-
sonar námsstjóra grunn-
skóladeildar menntamála-
ráðuneytisins hefur kennslu-
dögum verið fjölgað sam-
kvæmt nýjum grunnskóla-
lögum og eiga börn nú að
vera 170 daga á ári í skóla
í stað 160 daga síðastliðið
skólaár. Það þýðir að nem-
endur eiga að mæta 1. sept-
ember og þá hefst kennsla
af fullum krafti. Skólagöng-
unni lýkur ekki fyrr en í lok
maí. Undanfarin ár hafa
kennarar átt starfsdaga í
byijun september og síðustu
dagana í maí en nú er sú
breyting þar á að kennarar
byija undirbúning í ágúst og
ganga frá í byijun júní.
Aukning um 1-2
kennslustundlr á viku
Kennslustundum hefur
einnig verið fjölgað, sex ára
börn fá nú 26 stunda
kennsluviku í stað 25 stunda,
í öðrum bekk fjölgar
kennslustundum um tvær á
viku og svo ýmist ein eða
tvær sem bætast við upp í
10. bekk. Það eru því alls
fimmtán stundir á viku sem
bætast við skólagöngu
grunnskólanema í .gg
haust. jfiS
Foreldraráð í alla JiH
skóla &jáá
Þá má í lokin H
benda á að sam-
kvæmt nýju grunn- V
skólalögunum er gert ráð
fyrir foreldraráði við alla
skóla. Að sögn Guðna er
ekki verið að tala um for-
Sex óra börn
fó nú 26
stunda
kennsluviku
eldrafélög og munu þau
áfram starfa með svipuðu
sniði. Ráðið hefur það hlut-
verk að skoða allar áætlanir
skóla og fylgjast náið með
skólastarfi. Skólastjóri á að
vinna með foreldraráði og
veita því upplýsingar um
starfið í skólanum. Foreldrar
velja þijá fulltrúa í foreldrar-
áð til tveggja ára í senn. ■
Engin einkenni eru
hjó fullorónum, en
sýktur nýburi er í
hættu.
Uppselt í 3 af 16
ferðnm til London
O UPPSELT varð í þijár ferðir til London af 16 á
SO miðvikudag hjá ferðaskrifstofunni Heimsferðum.
■j Andri Már Ingólfsson, forstjóri segir að þá hafi
■í alls selst um 450 sæti. „Þetta var algjör
O sprengja,“ sagði hann og bætti við að augljóst
Om væri að öll sæti sem eru í boði í þessum ferðum
[JJ myndu seljast upp og mjög hratt.
Flogið með 737
Ferðirnar eru í október og nóvember og flogið er
með Boing 737 vélum breska félagsins Sabre Airwa-
ys og kostar flugið 19.900 krónur auk 2.400 króna
flugvallarskatts. Einnig er boðið upp á hótel og kost-
ar flug og hótel frá 24.400 krónum auk skattsins.
Hver vél tekur um 130 farþega og eru þijár nú
fullbókaðar og segir Andri að margar aðrar ferðir
séu orðnar þéttsetnar. Þá kaupi um 90% viðskiptavin-
anna dvöl á hótelinu. Býst hann við að Heimsferðir
bjóði upp á þetta verð fram að helgi.
„Margir hafa spurt hvort við gætum ekki verið
með þetta boð í september líka,“ sagði Andri Már.
„Mér var umhugað um að undirbúa þetta sem best
en gæti ímyndað mér að næsta ár gætum við sett
þessar ferðir upp í september líka.“ ■