Morgunblaðið - 12.08.1995, Blaðsíða 1
72 SIÐUR LESBOK C/D
179. TBL. 83.ÁRG.
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Valdabarátta innan fjölskyldu Saddams Husseins
Handtökur í írak
vegna landflóttans
Nikosíu. Reuter.
SADDAM Hussein, forseti íraks,
hefur gefið fyrirmæli um að stuðn-
ingsmenn tveggja tengdasona hans,
sem flúðu til Jórdaníu, verði hand-
teknir, að sögn Hamids al-Bayati,
fulltrúa Æðsta ráðs íslömsku and-
spyrnunnar í írak (SCIRI) í Lund-
únum. „Komið hefur til átaka og í
nokkrum tilvikum var hleypt af
byssum,“ sagði Bayati, sem vissi
ekki hversu margir hefðu verið
handteknir. Saddam flutti ávarp til
þjóðarinnar í gær og líkti þar Huss-
ein Kamel Hassan, öðrum tengda-
syninum, við Júdas. Sagan myndi
„grýta hann eins og aðra slíka“.
Hussein Kamel Hassan, sem hef-
ur stjórnað leynilegri hemaðarupp-
byggingu íraka, og bróðir hans
Saddam Kamel Hassan, yfirmaður
lífvarðasveita Saddams, flúðu til
Jórdaníu á þriðjudag í mikilli lest
Mercedes Benz-glæsivagna og
fengu þar hæli ásamt allt að 30
skyldmennum sínum. Hussein Ka-
mel Hassan var annar valdamesti
maður íraks og flótti bræðranna
er mikið áfall fyrir íraska forset-
ann. Bandarískir embættismenn í
Amman sögðust vera í sambandi
við bræðurna og voru þeir sagðir
reyna að toga öll hugsanleg hernað-
arleyndarmál upp úr flóttafólkinu.
Misheppnuð banatilræði
Bayati sagði að tengdasynirnir
hefðu flúið vegna djúpstæðs ágrein-
ings innan fjölskyldu Saddams.
Hann kvað aðdragandann þann að
tveir af sonum Saddams, Uday og
Qusay, hefðu sölsað undir sig mikil-
væg embætti og hafið herferð til
að „losa sig við“ áhrifamikla menn
eins og hálfbræður Saddams -
Watban, Barzan og Sabaawi al-
Hassan - frændur og tengdasyni.
Bayati sagði að ættingi al-Hass-
ans hefði reynt að myrða elsta son
Saddams, Uday, sem hefði særst á
hálsi og í maga. Þetta hefði gerst
í mars og tveim mánuðum síðar
hefði Uday staðið á bak við mis-
heppnað morðtilræði gegn Watban
al-Hassan, sem var þá innanríkis-
ráðherra. Skömmu síðar vék Sadd-
am ráðherranum frá.
„Þetta er barátta um völd og
embætti," sagði Bayati. „Uday og
Qusay vilja sölsa undir sig öll mikil-
vægustu embættin til að styrkja sig
í sessi en hinir líta á þá sem reynslu-
laus ungmenni miðað við þá sjálfa,
gömlu máttarstólpana í stjórninni."
Uday hélt til Amman á fimmtu-
dag til að freista þess að fá Hussein
Jórdaníukonung til að senda tengda-
syni og dætur Saddams aftur til
íraks. Konungur hafnaði beiðninni
á tíu mínútna fundi, sem jórdanskir
embættismenn lýstu sem „kurteis-
legum en þrungnum spennu“.
Bayati sagði að Watban al-Hass-
an hefði særst í skotbardaga milli
lífvarða hans og Udays daginn sem
tengdasynir Saddams flúðu. Iraskt
dagblað, sem Uday gefur út, hélt
því hins vegar fram á miðvikudag
að Watban hefði særst af slysni
þegar ættingi hans hefði hleypt af
vélbyssu til að fagna sjö ára af-
mæli loka stríðsins við Irana.
Reuter
BEDÚÍNAHERMENN í Tuneib í Jórdaníu fagna 43 ára afmæli
valdatöku Husseins konungs í gær. Saddam Hussein íraksforseti
sendi nágranna sínum heillaóskaskeyti í tilefni dagsins.
Vill
heimsum-
hverfisráð
Bonn. Reuter.
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka-
lands, segir heiminn sigla hraðbyri
í átt að alls herjar umhverfisstór-
slysi og hefur lagt til að stofnað
verði öflugt heimsumhverfísráð,
áþekkt öryggisráði SÞ.
Kohl sagði í viðtali við þýzka
dagblaðið Bild, að taka yrði alvar-
lega orð vísindamanna, sem varað
hafa við afleiðingum hækkandi loft-
hita á jörðinni og gera eitthvað í
málinu. „Fyrir fimmtíu árum var
öryggisráð heimsins stofnað. Hvers
vegna sköpum við ekki svipaða
stofnun fyrir umhverfismál, skil-
virka stofnun sem getur hringt við-
vörunarbjöllum?“ sagði Kohl.
Kohl er'nú mjög áfram um að
fólk sjái hann sem mann sem held-
ur vemdarhendi yfir umhverfinu.
Flokkur þýzkra græningja hefur
eflzt mjög að undanfömu.
Kohl og Pafa-
garður mótmæla
banni á krossum
Bonn. Reuter.
MIKLAR deilur hafa brotist út
vegna úrskurðar hæstaréttar
Þýskalands um að krossar megi
ekki hanga á veggjum í skólastof-
um í Bæjaralandi. Helmut Kohl
kanslari bættist í hóp gagnrýn-
enda réttarins í gær og sagði að
úrskurðurinn væri „óskiljanleg-
ur“.
Stjórnmálamenn, prestar og
kennarar hafa myndað mikinn
reiðikór og Páfagarður hefur ekki
látið sitt eftir liggja. í grein í blað-
inu L’Osservatore Romano, sem
er öðrum þræði málgagn Páfa-
garðs, sagði að „gamla heiminum
[væri] stefnt í glötun í hvert
skipti, sem klippt [væri] á andleg-
ar o g menningarlegar rætur
hans“. Þessu var fylgt eftir með
spurningunni: „Höfum við ekkert
lært af sögunni?"
Dómur hæstaréttar kveður á
um að taka verði niður öll lík-
neski af Kristi á krossinum í skól-
um Bæjaralands, sem er rótgróið
vígi katólsku kirkjunnar í Þýska-
landi, vegna þess að þeir stangist
á við ákvæði þýsku stjórnarskrár-
innar um hlutleysi í trúmálum.
Biskupinn af Regensburg, sem
er í Bæjaralandi, skrifaði að nú
myndu ýmsir gleðjast, sem hörm-
uðu fall Þriðja ríkisins. Adolf Hitl-
er hefði bannað krossa og hálfri
öld síðar væri slíkt bann sett á
að nýju.
Reuter
Ræða
friðarhug-
myndir
ANTHONY Lake, öryggis-
málaráðgjafi Bills Clintons
Bandaríkjaforseta, og Andrej
Kozyrev, utanríkisráðherra
Rússlands, munu hittast á
morgun í Sotsí við Svartahaf
til að ræða nýjar hugmyndir
um friðarsamninga í ríkjum
gömlu Júgóslavíu. Lake ræddi
í gær við ráðamenn í París sem
lýstu ánægju sinni með frum-
kvæði stjórnvalda í Washing-
ton en vöruðu um leið Rússa
við að aflétta einhliða við-
skiptabanni á Serbíu. Clinton
beitti í gær neitunarvaldi sínu
til að fella tillögu þingsins um
að Bandaríkin hættu þátttöku
í vopnasölubanni á Bosníu en
búist er við að reynt verði að
luiekkja neitunarvaldinu í
næsta mánuði. Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna krafðist
þess á fimmtudagskvöld að
Króatar tryggðu öryggi serb-
nesks flóttafolks frá Krajina-
héraði sem hefur sætt miklu
harðræði. A myndinni sést
bílaröð flóttafólksins skammt
frá Banja Luka í Bosníu.
■ Fjölmiðlar ýkja/20
Fyrsta
DNA-handtakan
Bylting
í glímunni
við glæpi
London. Reuter.
BRESKA lögreglan er að búa sig
undir fyrstu handtökuna, sem er
eingöngu byggð á DNA-sýni, er
fannst á vettvangi. Skýrði talsmað-
ur hennar frá þessu í gær og sagði,
að DNA-upplýsingabankinn breski
ætti eftir að valda byltingu í glím-
unni við glæpamenn.
DNA-bankinn í Bretlandi er sá
eini sinnar tegundar í heiminum og
hefur nú þegar sýnishorn af erfða-
efni 45.000 manns, aðallega þeirra,
sem komist hafa í kast við lögin.
Handtakan, sem nú stendur fyrir
dyrum, er vegna innbrots í Derby-
shire og segir lögreglan þar, að
búast megi við, að hundruð manna
verði brátt handtekin vegna af-
brota, sem ekki hefur tekist að
upplýsa með öðrum hætti.
Við DNA-bankann starfa 60
manns og geta þeir borið saman
650 sýni á dag. DNA-erfðaefnið er
með sínu sniði hjá hveijum einstak-
lingi ekki síður en fingraför og sýn-
in fást úr næstum öllum vefjum og
vessum likamans, munnvatni, hári,
blóði og húðflögum svo dæmi séu
tekin.