Morgunblaðið - 12.08.1995, Blaðsíða 1
FRJALSIÞROTTIR
FOTBOLTI
mita
MEISTARI
Á SÍNU SVIÐI
Ljósritunarvélar
og faxtæki
SIGURÐUR EINARSSON Á HM í GAUTABORG: „FÉLLÁ EIGIN BRAGÐI“ / 04
1995
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST
BLAÐ
Halldór á
heimsleika
HALLDÓR Halldórsson fyrsti
íslenski lijarta- og lungnaþeg-
inn keppir á 10. heimsleikum
liffæraþega í Manchester á
Englandi, en þeir hefjast í dag.
Hann keppir í 5 km hlaupi á
miðvikudaginn og á laugardag-
inn eftir viku tekur hann þátt
í 400 og 1500 m hlaupi. Með
honum í för verður Magnús B.
Einarsson læknir.
Shouaa
fékk gull
Johnsons
ÞAÐ getur vel verið að sprett-
hlauparinn Michael Johnson
hafi óttist ýmsa andstæðinga í
200 metra hlaupinu en hefur
örugglega ekki átt von á að
sýrlenska stúlkan Ghada Shou-
aa, sem sigraði í sjöþraut, fengi
gullið í 200 m hlaupi karla áður
en hlaupið fór fram. Það gerð-
ist nú eigi að síður. Skýringin
er sú að Shouaa sem vann sjö-
þrautina, var fyrir mistök
starfsmanna mótsins afhentur
gullpeningur fyrir 200 metra
hlaup karla í stað gullpenings-
ins fyrir sjöþrautina. Mistökin
komu ekki tjós fyrr bronshaf-
inn, Ungveijinn Rita Inanacsi,
fékk sinn pening en þá gekk
hún að starfsmanninum og
sagði, „afsakið, en þetta er verð-
launapeningur fyrir 200 metra
hlaup karla“. Starfsmennirnir
ruku upp til handa og fóta og
náðu í réttu verðlaunin.
Tvær á toppnum
TONJA Buford og Klm Batton t.h., hlupu frábærlega í 400 grlndahlauplnu í gær og voru báðar
undlr gamla heimsmetlnu. Batton vann þarna slnn fyrsta slgur á stórmóti.
Mjög eftirminnilegurdagurígærá HM íGautaborg
Batten dreymdi metið
ÞAÐ var sannkallaður brosdagur á HM í frjálsíþróttum í Gauta-
borg í gær. Það mátti varla á milli sjá hverjum af hinum fimm
gullverðlaunahöfum dagsins brostu breiðast. Þar á ofan brosti
sólin sínu breiðasta á keppendur og gesti og var það ekki síður
til að létta mönnum lundina. Sergei Bubka frá Úkraínu sigraði í
stangarstökkskeppninni í fimmta sinn og hefur þar með sigraði
í þeirri grein á öllum heimsmeistaramótum sem haldin hafa
verið. Þá tókst hinum fótfráa Bandaríkjamanni Michael Johnson
að vinna einstakt afrek þegar hann sigraði í 200 m hlaupi. Þar
með tókst honum að skrá nafn sitt á spjöld frjálsíþróttasögunn-
ar, því þetta hefur engum tekist að gera áður.
Þar með eru ekki allir upptaldir
sem gátu brosað breitt og
gerðu það að keppni lokinni í gær.
Kenýjamaður Moses Kiptanui sigraði
í þeirri erfiðu grein 3.000 metra
hindrunahlaupi í þriðja sinn í röð,
kom fimrrf sekúndum á undan næsta
manni í mark á 8.04,16 mín., og
setti jafnframt nýtt mótsmet. Lars
Riedel tókst einnig að sigra í sinni
grein, kringlukasti, á þriðja heims-
meistaramótinu í röð. Hann setti
jafnframt nýtt mótsmet, kastaði
68,76 m. Árangur Riedels er mjög
athyglisverður vegna þess að hann
hefur átt við þrálát meiðsli að stríða
í baki allt frá árinu 1992 og hefur
ekkert getað æft lyftingar upp á
síðkastið vegna þeirra.
Fjórða heimsmetið leit dagsins Ijós
á þessu heimsmeistaramóti í gær
þegar Kom Batten frá Bandaríkjun-
um bætti met bresku stúlkunnar
Sally Gunnel um 13/100 úr sekúndu
í 400 m grindahlaupi, kom í mark á
52,61 sek. Ekki nóg með það heldur
hljóp stalla hennar í bandaríska lið-
inu, Tonja Buford einnig undir gamla
metinu, fór hringinn á 52,62 sek.,og
varð önnur. Þær höfðu mikla yfir-
burði og komu nokkrum metrum á
undan næstu stúlkum í mark. Sann-
arlega glæsilegt hlaup hjá þeim stöll-
um. Batten vann þarna sín fyrstu
gullverðlaun á stórmóti. Þess má til
gamans geta að Batten var í riðli
með Guðrúnu Arnardóttur bæði í
fyrstu umferð og í milliriðli 400 m
grindarhlaupsins. Fyrrum heimsmet-
hafi Sally Gunnel setti metið á HM
í Stuttgart fyrir tveimur árum en
gat ekki verið með að þessu sinni
vegna meiðsla.
Baten var að vonum í sjöunda
himni eftir að hafa sett metið og
sagði á blaðamannafundi að sig hefði
dreymt fyrir heimsmetinu nóttina
fyrir úrslitahlaupið, en samt hefði
það komið sér á óvart að draumurinn
skyldi rætast.
mitá ijL,
Styrktaraðili HM í frljálsum íþróttum.
jÆigqill Guttormsson - Fjölval hf.
Mórkin 1 • 128 Reykjavík • Símar: 581 2788 og 568 8650 • Bréfsími: 553 5821
Reuter
Ásgeir hefur
valið liðið
Asgeir Elíasson landsliðsþjálf-
ari í knattspymu valdi í
gær 18 manna hópinn fyrir lands-
leikinn gegn Sviss á Laugardals-
velli á miðvikudaginn.
Markverðir:
Birkir Kristinsson, Fram.....35
Friðrik Friðriksson, ÍBV.....26
Varnarmenn:
Guðni Bergsson, Bolton.........62
Kristján Jónsson, Fram.......40
Izudin Daði Dervic, KR.......13
Sigursteinn Gíslason, ÍA.....12
Ólafur Adolfsson, ÍA............6
Miðvallarspilarar:
Ólafur Þórðarson, ÍA...........60
Rúnar Kristinsson, Örgryte...47
Þorvaldur Örlygsson, Stoke ....38
Sigurður Jónsson, ÍA.........36
Arnar Grétarsson, Breiðabl...25
Hlynur Stefánsson, Örebro......20
Haraldur Ingólfsson, IA......15
Sóknarleiknienn:
Amór Guðjohnsen, Örebro........59
Eyjólfur Sverrisson, H. Berlin ..23
Arnar Gunnlaugsson, ÍA.........15
Bjarki Gunnlaugsson, ÍA........12
Skúli
til Vals
SKÚLI Gunnsteinsson, sem leik-
ið hefur í 13 ár með meistara-
flokki Stjörnunnar, hefur gert
eins árs samning um að leika
með Val jafnframt því sem hann
verður aðstoðarþjálfari.
„Þetta hefur verið að gerjast
í langan tíma og ég tók yfirveg-
aða og vonandi vandaða ákvörð-
un sem ég trúi að sé rétt. Ég
verð einnig aðstoðarþjálfari og
það er ekki víst að ég einbeiti
mér að spili þó að ég viti ekki
hvað það er mikil framtíð í
þjálfun. Ég er í krefjandi starfi
og tek bara ákvörðim um eitt
ár i senn. En það er sérkennileg
tilfinning að skipta,“ sagði
Skúli.