Morgunblaðið - 12.08.1995, Síða 2
2 D LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Knattspyrna
1. deild kvenna:
KR-ÍBV..........................2:0
Inga Dóra Magnúsdóttir, Olga Færseth.
2. deild karla
Víðir - Stjarnan................0:2
- Ingólfur Ingólfsson (23.), Birgir Sigfússon
(27.).
Fylkir-KA.......................1:2
Aðalsteinn Víglundsson (68.) - Bjarni Jóns-
son (29.), Hermann Karlsson (80.)
Þór-Skallagr....................1:2
Sveinbjörn Hákonarson (18.) - Þórhallur
Jónsson (30.) og Valdimar K. Sigurðsson
(87. vsp.).
HK - Víkingur...................3:3
Jón Þórðarson (56., 86.), Þorsteinn Sveins-
son (7.) - Amar Amarsson (65., 75.), Sigur-
jón Kristjánsson (22.).
Fj. leikja U J T Mörk Stig
STJARNAN 13 10 2 1 31: 10 32
FYLKIR 13 9 2 2 30: 16 29
KA 13 5 4 4 17: 18 19
ÞÓRAk. 13 6 1 6 23: 25 19
SKALLAGR. 12 5 3 4 16: 15 18
VÍÐIR 13 4 3 6 13: 17 15
ÍR 13 4 1 8 19: 29 13
ÞRÓTTUR 12 3 3 6 15: 18 12
VÍKINGUR 13 3 3 7 17: 29 12
HK 13 3 2 8 26: 30 11
3. deild:
Völsungur - Fjölnir...................2:0
Guðni Rúnar Helgason, Jónas Grani Garð-
arsson.
Haukar - Selfoss.................... 1:4
Jón Gunnar Gunnarsson - Ólafur Þórarins-
son 2, Stefán Hólmgeirsson, Hrafnkell
Bjömsson.
Þróttur - Dalvik......................2:0
Geir Biynjólfsson, ívar Kristinsson.
Höttur - Ægir.........................2:0
Fj. leíkja U J T Mörk Stig
VÖLSUNGUR 13 9 3 1 24: 8 30
LEIKNIR 12 7 2 3 31: 16 23
DALVÍK 13 5 7 1 23: 14 22
ÆGIR 13 7 1 5 19: 16 22
ÞRÓTTURN. 13 7 0 6 22: 17 21
SELFOSS 13 6 1 6 24: 29 19
FJÖLNIR 13 4 2 7 21: 20 14
HÖTTUR 13 4 2 7 15: 18 14
BÍ 12 2 3 7 12: 24 9
HAUKAR 13 2 1 10 11: 40 7
4. deild:
TBR - Framherjar...................2:3
Gunnar Björgvinsson 2 - Einar Gíslason 2,
Hjalti Jóhannesson.
Hvöt - Tindastóll..................1:5
Hörður Guðbjörnsson - Stefán Pétursson
2, Helgi Þórðarson, Sveinn Sverrisson, Guð-
brandur Guðbrandsson.
Magni - Neisti H................. 6:0
Ingólfur Ásgeirsson 2, Bjarni Áskelsson 2,
Stefán Gunnarsson, Þorvaldur Sigurðsson.
Huginn - Neisti D..................2:0
Július Brynjólfsson 2.
Þýskaland
Úrvalsdeildin:
Dortmund - Kaiseslautem............1:1
HeikoHerrlich (72.) - Martin Wagner (74.).
Bremen - Diisseldorf...............1:1
Richard Cyron (2.) - Bemd Hobsch (21.).
FLUCLEIDIR
innanlandssímí 5050 200 '
HM í Gautaborg
3000 m hindrunarhlaup
1. Moses Kiptanui (Kenýja)...8:04.16
2. Christopher Koskei (Kenýja).8:09.30
3. S.S. Al-Asmari (S.Arabia)...8:12.95
4. Steffan Brand (Þýskal.).....8:14.37
5. Angelo Carosi (Ítalíu)......8:14.85
6. Florin Ionescu (Rúmeníu)....8:15.44
7. Vladimir Pronin (Rússl.)....8:16.59
8. Martin Strege (Þýskal.)...8:18.57
9. Matthew Birir (Kenýja)......8:21.15
10. A. Lambruschini (Ítalíu)..8:22.64
'11. Vladimir Golyas (Rússl.)...8:27.59
12. JavierRodriguez (Spáni)....8:30.96
400 m grindarhlaup
1. Kim Batten (Bandar.)...........52.61
■Heimsmet
2. Tonja Buford (Bandar.).........52.62
3. Deon Hemmings (Jamaíka)........53.48
4. HeikeMeissner(Þýskal.).........54.86
5. T. Tereshchuk (Ukraínu)........54.94
6. Silvia Rieger (Þýskal.)........55.01
7. Ionela Tirlea (Rúmenía)........55.46
8. N. Torshina (Kasakstan)........56.75
Stangarstökk
1. Sergei Bubka (Úkraínu).........5.92
2. Maksim Tarasov (Rússl.)........5.86
3. Jean Galfione (Frakkl.)........5.86
4. Okkert Brits (S.Afríku)........5.80
5. Rodion Gataullin (Rússl.)......5.70
6. Scott Huffman (Bandar.)........5.70
7. Igor Trandenkov (Rússl.).......5.70
8. Dean Starkey (Bandar.).........5.60
9. Andrej Tiwontschik (Þýskal.)...5.60
9. Igor Potapovich (Kasakstan)....5.60
11. Tim Lobinger (Þýskal.).........5.40
Valery Bukrejev (Eistlandi)felldi byijunarh.
Kringlukast
1. Lars Riedel (Þýskal.)...........68.76
2. Vl.Dubrovshchik (Hv-Rússl.).....65.98
3. Vasily Kaptyukh (Hv-Rússi.).....65.88
4. Attila Horvath (Ungveijal.).....65.72
5. Juergen Schult (Þýskal.)........64.44
6. Adewale Olukoju (Nígería).......63.66
7. Alexis Elizalde (Kúbu)..........63.28
8. Dmitry Shevchenko (Rússl.)......63.18
9. Robert Weir (Bretl.)............63.14
10. John Godina (Bandar.)...........60.84
11. Mike Buncic (Bandar.)...........60.24
12. Stefan Fernholm (Svíþjóð).......59.52
200 m hlaup karla
1. Michael Johnson (Bandar.)........19.79
2. Frankie Fredericks (Namibíu).....20.12
3. Jeff Williams (Bandar.)..........20.18
4. Robson Da Silva (Brasilíu).......20.21
5. Claudinei Da Silva (Brasilíu)....20.40
6. Geir Moen (Noregi)...............20.51
7. John Regis (Bretl.)..............20.67
8. Ivan Garcia (Kúbu)...............20.77
UM HELGINA
Knattspyrna
Laugardagur:
1. DEILD
Keflavík: Keflavík - Valur.........14
Kópavogur: Breiðablik - ÍBV........14
Laugardalsvöllur: Fram - KR........14
■Framheijar koma saman í Framheimilinu
kl. 11, þar sem verður grillveisla.
Ólafsfjörður: Leiftur - Grindavík..14
Kaplakriki: FH-lA..................16
■Skagamenn, stuðningsmannaklúbbur ÍA,
kemur saman í Ölveri kl. 13.
3. DEILD:
Leiknisvöllur: LeiknirR. - BÍ......14
4. DEILD:
Akranes: Bruni - Njarðvik..........14
HelgafellsvuSmástund - lH..........14
Ármannsv: Ármann - Víkveiji........14
Yarmáv.: Afturelding - Víkingur Ó..14
Ármannsv: Ökkli - Reynir S.........17
Sunnudagur:
Grindavík: GG - Hamar..............16
Körfuknattleikur
Þjálfari Louisiana skólans meö
fyrirlestur í Kelfavík
Dale Brown aðalþjálfari körfuknattleikslið
Louisiana State háskólans verður með fyrir-
lestur fyrir á Glóðinni, Keflavík, á morgun,
sunnudag. Hann er nú að hefja sitt 24. tíma-
bil með Louisiana State og á þeim tíma
hefur hann í þrettán skipti komið liði sínu
í NCAA úrslitin, þar af tiu sinnum í röð
sem er einstakur árangur. Dale hefur heim-
sótt um sjötíu lönd og haldið fyrirlestra í
yfir fimmtiu þeirra. Hann þykir í fremstu
röð meðal fyrirlesara og því er hér um ein-
stakt tækifæri fyrir þjálfara og alla áhuga-
menn um körfuknattleik að láta sjá sig.
Fyrirlesturinn hefst kl. níu og stendur með
smá hléum til klukkan tuttugu.
Skráning er hjá Tómasi Tómassyni í sima
421 5530.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
BJARNI Jónsson fyrirliöl KA í þann mund að skora fyrsta mark KA í leiknum. Kjartan Sturlu-
son liggur á vellinum og Guðmundur Torfason reynir aö ná til knattarins án árangurs.
Óvæntur sigur KA
og Stjaman á toppnum
Áttum þetta skilið sagði Bjarni Jónsson um sigur KA íÁrbænum
Stjaman gerði góða ferð í Garðinn
í gær og sigruðu Víði 0:2 með
mörkum á ú’ögu1™ mínútna millibili.
Garðbæingar skut-
, ust þar með á topp
, 2. deildar vegna tap
skrífar Fylkis. Fyrra markið
kom er Ingólfur Ing-
ólfsson skaut í slá og inn en Birgir
Sigfússon bætti um betur þegar hann
óð upp allan völl og negldi af 25
metra færi í þverslánna og inn. Eft-
ir mörkin komst Víðir inn í leikinn
en nýtti ekki ágæt færi. Valdimar
Kristófersson skallaði í netið um leið
og dómarinn flautaði til leikhlés en
því ekki mark.
Síðari hálfleikur var mun daprari,
Garðbæingar spiluðu betur en án
góðra færa þar til Lúðvík Jónasson
nýtti ekki tvö dauðafæri í lokin.
Garðari Newman Jónssyni, Víði, var
vikið af leikvelli á 78. mínútu.
Sigur Stjörnunnar var sanngjarn.
Ingólfur Ingólfsson var mjög góður
í liði Stjömunnar og Lúðvík var
sprækur auk þess sem Bjami Sig-
urðsson var mjög traustur í markinu.
Hjá Víði var Sigmar Scheving bestur
og Ólafur ívar Jónsson átti góða
spretti.
Óvænt í Árbænum
Við vomm ekki mikið með boltann
en þeir gerðu fleiri mistök en
við auk þess sem við fengum fleiri
færi. Eg er sáttur við
„ ,. leikinn, við börðumst
Eiríksson vel °S áttum þetta
skrifar skilið,“ sagði Bjarm
Jónsson fyrirliði KA
eftir heldur óvæntan 1:2 sigur KA-
manna á Fylki.
Fylkismenn vom sprækir strax í
byijun og sóttu af krafti og sköpuðu
sér nokkur ágæt færi en náðu ekki
að skora. KA-menn fóm sér heldur
rólega til að byija með, en um miðj-
an hálfleikinn ruku þeir í gang. Á
skömmum tíma fengu þeir þijú góð
færi og skoraðu mark á 29. mínútu.
Fylkismenn náðu aftur upp pressu
og fengu fjölmörg færi áður en flaut-
að var til leikhlés.
Fylkismenn voru áfram áberandi
meira með boltann í síðari hálfleik,
en færin voru ekki alveg eins beitt
og í fyrri hálfleik. Þeir pressuðu þó
áfram stíft og náðu að jafna á 68.
mínútu. KA-menn voru ekkert á þeim
buxunum að leggja árar í bát við
þetta mótlæti. A 80._ mínútu komust
þeir í skyndisókn; Óskar Bragason
sem nýkominn var inn á sem vara-
maður sendi laglega stungusendingu
inn á Hermann Karlsson, sem lék inn
í teig og lyfti knettinum glæsilega í
netið. Fylkismenn gerðu örvænting-
arfullar tilraunir til að skora síðustu
mínúturnar en vörn KA hélt.
Sigur KA-manna var ekki síst
óvæntur fyrir þá sök að nokkra lykil-
menn vantaði í lið þeirra, t.a.m. kant-
maðurinn spræki Dean Martin. Þeir
léku skynsamlega, vörnin var þétt
og áttu nokkrar baneitraðar skyndi-
sóknir. Fylkismenn vom mun meira
með boltann og náðu oft á tíðum
mikilli pressu.
Skallagrímssigur ð lokamínútunum
kallagrímur krækti í stigin þijú
í boði voru þegar liðið
2:1 á Akureyri í gær-
kveldi. Það var
Reynir B. Valdimar Sigurðsson
Eiríksson sem gerði út um leik-
skrifarfrá jnn úr vítaspyrnu
Akureyri þegar þijár mínútur
lifðu af leiknum.
Þórsarar áttu skot í þverslá á
annarri mínútu og litlu síðar björg-
uðu þeir á línu. Fátt markvert gerð-
ist svo þar til Þór gerði mark sitt
sem kom á 18. mínútu, þeir léku
laglega upp völlinn og barst knött-
urinn til Sveinbjöms Hákonarsonar
sem skoraði af stuttu færi. Þórhallur
Jónsson jafnaði metin fyrir Skal-
lagrím á 30. mínútu með góðu skoti
af vítateig.
Seinni hálfleikur var leiðinlegur á
að horfa og án marktækifæra fyrr
en á 83. mínútu er varnamaður Skal-
lagríms bjargaði skalla frá Þóri
Áskelssyni á línu. Litlu fyrir leikslok
opnaðist vörn Þórs og gerðu Skalla-
grímsmenn harða hríð að marki
Þórs sem endaði með því að knött-
urinn fór í hendi Páls Pálssonar
Þórsara, sem fékk rauða spjaldið en
Valdimar skoraði úr vítinu.
Jafntefli hefði verið sanngjörn
úrslit, en það eru mörkin sem gilda.
HK jafnaði tvelmur færri
Stefán
Stefánsson
skrifar
Tveimur færri lögðu HK-menn
ekki árar í bát og tókst að jafna
í 3:3 gegn Víkingum á lokamínútum
í botnslagnum. Fyrir
utan 6 mörk og tvö
rauð spjöld bar lítið
til tíðinda. Víkingar
fengu þokkalég færi,
meðal annars stangarskot, en Þor-
steinn Sveinsson skoraði fyrst fyrir
HK með skalla og Siguijón Krist-
jánsson jafnaði síðan eftir mistök í
vörn HK.
Síðari hálfleikur byijaði með
glæsilegu marki þegar Jón Þórðar-
son kastaði sér fram og skallaði í
mark eftir frábæra fyrirgjöf Tom-
islav en Arnar Arnarsson svaraði
fyrir Víkinga, einnig með skalla-
marki. Þá fór að hitna í kolunum
og Ivar Jónsson fékk rautt spjald
eftir ljótt brot, nýkominn inná. Árn-
ar skoraði eftir sendingu frá mark-
verði HK, en hrakfallasögu HK var
ekki lokið því Valdimar Hilmarsson
fékk líka rautt og lið HK þá tveimur
færri og marki undir. í stað þess
að nýta sér ástandið og halda fengn-
um hlut, sváfu Víkingar á verðinum
og undir lokin jafnaði Jón.
Hjá HK bar mest á varnarmönn-
unum Þorsteini og Miodra Kujundzig
auk þess sem Jón gaf sig ekki fyrr
en í fulla hnefana og hefur gert 7
mörk í þremur síðustu leikjum.
Víkingar geta sjálfum sér um
kennt að fyrir að klára ekki dæmið
tveimur fleiri. Arnar og Þrándur
Sigurðsson voru bestir.
HANDBOLTASKOLI
msAmmmmoc bunaparbankans
dasana 14. - 20. áfiúst í HK-húsinu Digranesi
Frábært handknattleiksnámskeið undir stiórn Sieurðar
Sveinssonar. landsliðsmanns.
Námskeiðlð er fyrir stelpur oa stráka á aldrinum 6-13 ára.
Námskeiðið stendur frá kl. 9-12 fyrir tíu ára o& ynari oa 13-16
fyrir ellefu ára oa eldri alla daaana oa endar á lauaardeainum
með vealeari arillveislu.
rnmsítírlumlii
Skráningar í HK-húsinu Digranesí frá kl. 9 -16
í síma 564-2347 og á kvöldin (síma
554-2264.Verö aöeins 2.800 kr. VÍSAOG
EURO. Veittur er systkinaafsláttur.
BRÆÐURNIR
ÖLAFSSON
Tvöjafntefli
ýska deildin hófst í gær méð
tveimur leikjum. Dortmund
og Kaiserslautern áttust við
og skildu jöfn, 1:1 og í hinum leikn-
um mættust Werder Bremen og
Fortuna Dússeldorf og þeim leik
lauk einnig 1:1. Heiko Herrlich,
nýjasta stjarna meistaranna byrjaði
með því að skora, kom Dortmund
yfir á 72. mínútu en gat þó ekki
fagnað lengi því tveimur mínútum
síðar jafnaði Martin Wagner.
Werder Bremen, sem varð í öðru
sæti í fyrra, varð einnig að sætta
sig við jafntefli er liðið mætti nýlið-
um Fortuna Dusseldorf. Fortuna
fékk óskabyijun er Richard Cyron
skallaði í net Bremen eftir aðeins
tveggja mínútna leik. Bemd
Hobsch jafnaði metin með skalla-
marki á 21. mínútu og þar við sat.
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1995 D 3
HM í FRJÁLSÍÞRÓTTUM
Johnson á spjöld sögunnar
MICHAEL Johnson skráði nafn
sitt eftirminnilega á spjöld sög-
unnar í Gautaborg í gær. Varð
þá fyrstur til að sigra bæði í 200
og 400 metra hlaupi á heims-
meistaramóti og raunar fyrstur
til þess á stórmóti. Þessi hnar-
reisti Bandaríkjamaður var langb-
estur íbáðum greinum, var nærri
heimsmeti f þeim báðum og sýndi
svo ekki verður um villst að hann
gæti bætt heimsmetin hvenær
sem er. Metið í 200 m hefur stað-
ið allar götur síðan ítalinn Pietro
Menna hljóp á 19,72 í Mexíkó í
1979.
Skapti
Hallgrimsson
skrifar frá
Gautaborg
Johnson kom til Gautaborgar með það
tvennt að markmiði að vinna gullin
tvö og þungu fargi var af honum létt
þegar hann kom fyrstur
í mark í seinni grein-
inni, 200 metranum, í
gær. Enda kraup hann
ekki á kné eftir að hafa
hlaupið yfir endalínuna eins og hann
er vanur, heldur lét sig falla á bakið
og lá marflatur um stund. Hann hljóp
á frábæmm tíma, 19,79, sem er per-
sónulegt met, heimsmeistaramótsmet
og fjórði besti tími sögunnar.
„Eg hef viljað hlaupa bæði 200 og
400 metra allt frá því á HM 1991 en
ekki getað og vil því nota tækifærið
og þakka mótshöldumm hér í Gauta-
borg fyrir að setja dagskrána þannig
saman að mér var kleift að sýna hvers
ég er megnugur,“ sagði Johnson í upp-
hafi blaðamannafundar eftir hlaupið í
gær. Hann hefur barist fyrir því að
dagskráin verði svipuð á Ólympíuleikun-
um á næsta ári — að 400 m hlaupinu
verði lokið áður en undanrásir í 200 m
hefjist — en ekki er útlit fyrir að farið
verði að óskum hans. „Eg get ekki
gert meira en ég hef gert hér á þessu
mðti til að sýna fram á að mér sé al-
vara með því sem ég segi, að ég vilji
taka þátt í báðum greinum á Ólympíu-
leikunum og standa mig vel,“ sagði
Johnson.
Johnson sagðist hafa orðið hissa þeg-
ar honum var tjáð hve fljótur hann var
upp úr startblokkunum í gær. „Byijun-
in hefur alltaf verið veikasti hluti
Keuter
Elnbeitingin skín úr andliti Michaels Johnsons hér þegar hann
geysist fram úr aðalekppninautum sínu, Frankie Fredricks, t.v.
og Robson Da Silva í hlauplnu í gær.
hlaupsins hjá mér en er að lagast. Ef
ég næ að bæta hana enn frekar tel ég
mig hlaupið á 19,6.“
Eins og eftir 400 metra hlaupið virt-
ist Johnson ekki fyllilega ánægður; eins
og hann hefði ætlað sér að slá heims-
metið í leiðinni. „Nei, ég var í sjálfu
sér ekki óánægður en það er ótrúlegt
að tvisvar í sömu vikunni skuli ég hafa
verið svo nálægt heimsmetinu í tveimur
greinum. Þetta var áttunda hlaupið
mitt á sjö dögum og ég átti satt að
segja eklri von á því að hlaupa á per-
sónulegu meti.“
Einn á báti með
fimm gull um borð
Sergej Bubka, stangarstökkvarinn
frábæri frá Úkraínu, náði þeim
einstæða árangri í gær að sigra á
fimmta heimsmeistaramótinu í röð.
Hann er eini íþróttamaðurinn sem á
nú fimm HM-gull i safni sínu; er sá
eini sem hefur sigrað í öll skiptin síð-
an HM var fyrst haldið 1983. Hann
er sá lang besti í greininni og hefur
verið lengi, og sagði í gær að það
yrði æ erfiðara að bæta heimsmetið,
þegar samkeppnin væri engin. En
hann væri reyndar sannfærður um að
hann gæti og ætti eftir að stökkva
hærra.
Bubka fór hæst yfir 5,92 metra í
Gautaborg í gær, það var nóg því hin-
ir voru úr leik, en síðan reyndi hann
að bæta eigið heimsmet. Ránni var
lyft í 6,15 m hæð en honum mistókst
þrívegis. „Það skipti mig mjög miklu
máli að vinna í fimmta skipti í röð.
En það var erfitt að einbeita sér bæði
að því að verða heimsmeistari og að
bæta heimsmetið. Og það verður
reyndar æ erfiðara að bæta eigið
met. Eg er í góðri líkamlegri æfingu,
en var ekki ánægður með tæknilegu
hliðina í tilraununum við 6,15 metra.
Ef ég hefði stokkið jafn vel og þegar
ég fór yfir 5,92 hefðuð þið séð nýtt
heimsmet hér í kvöld,“ sagði Bubka.
„Ég fann fyrir mikilli pressu þegar
ég kom á völlinn, vegna þess að ég
átti möguleika á að vinna í fimmta
skipti. Taugaveiklunin var því talsverð
en kannski hefur hún bara æst mig
upp; gert mig ákveðnari en ella að
sigra. En ég get stokkið hærra en í
kvöld; held ég geti farið yfir 6,20 við
bestu hugsanlegar aðstæður.“
Bubka sagðist vera í erfiðri að-
stöðu. „Það er erfítt að vera alitaf að
reyna að bæta eigið met, ef einhver
annar ætti metið gæti ég trúað að það
yrði jafnvel auðveldara fyrir mig að
komast yfir 6,20; sálrænn undirbún-
ingur yrði auðveldari,“ sagði hann og
bætti við: „Það er erfitt að vera einn.“
Svo miklir eru yfirburðir Bubkas,
að það er ekki ofsagt að hann sé í
raun einn á báti. Heimsmet hans er
6,14 en þeir sem næstir koma hafa
farið yfir sex metra slétta. „Áður fyrr
hvöttu hinir mig til dáða. Bættu metin
mín og reittu mig þannig til reiði en
það gerist ekki nú,“ sagði Bubka.
Ottey elst
með gull
MERELENE Ottey frá Jamaíku
hefur eins og stangarstökkvar-
inn Sergei Bubka tekið þátt í
öllum fimm heimsmeistaramót-
uiium í frjálsíþróttum sem farið
hafa fram. Þó að henni hafi
ekki tekist að sigra í hveiju
móti þá hefur hún alltaf komist
á verðlaunapall í 200 m hlaupi.
Hún varð önnur árið 1983,
þriðja árið 1987, þriðja árið
1991 og hefur síðan sigrað í tvö
siðustu skipti. Hún er nú 35 ára
gömul og er elst kvenna sem
hlotið hefur gull á HM
Christie
að hætta
LINFORD Christie sagði í við-
tali við sænska sjónvarpið í gær
að hann væri ákveðinn í að
hætta keppni í haust og ekki
verja Ólympíumeistartitil sinn
í 100 m hlaupi í Atlanta á næsta
sumri. „Ég hef gert upp hug
minn, ég ætla að hætta og þvi
verður ekki breytt,“ sagði
hann. Óvist er að hann taki
þátt í boðhlaupssveit Breta í
4x100 boðhlaupinu á sunnu-
daginn þar sem hann hefur
ekki náð sér að fullu af meiðsl-
unum sem tóku sig upp í undan-
rásum 100 m hlaupsins á HM.
Sýnt beint
til Úkraínu
MIKILL áhugi var í Úkraínu
fyrir stangarstökkskeppni
heimsmeistaramótsins enda
skiljanlegt því Sergei Bubka
þeirra niaður var í eldlínunni.
En þrátt fyrir að hann hafi sigr-
að í öllum undangengnum
stangarstökkskeppnum á HM
hefur keppnin aldrei verið sýnd
beint til heimalands hans fyrr
en nú.
Að vera eða vera ekki með
á Heimsmeistaramótinu
Hvarvetna er minnt á HM hér í
borg, með auglýsingum ýmiss
konar og öðm móti. Meira að segja
rasl-kompaníið í bænum notar tæki-
færið og tengir sig mótinu, með þess-
um orðum sem ég sá á einum rusla-
bílnum: „Eltist þið við gullið, íþrótta-
menn (við sjáum um álið, glerið og
pappírinn)".
Það er eiginlega ótrúlegt, einsog
fijálsíþróttir hafa lengi verið vinsæl-
ar, að ekki skuli hafa verið haldið
heimsmeistaramót fyrr en 1983. Þá
spreyttu menn sig í Helsinki og
mótið sem nú stendur yfir er það
fímmta í röðinni. Og eftirminnilega
hluti er að finna í minningunni frá
þeim öllum, skárra væri það nú.
Fyrsta mótið tókst geysilega vel, var
jafnvel vinsælla en menn áttu von
á. Annað mótið var í Róm 1987; einn
af hápunktinum þá var sigur Bens
Johnsons í 100 metra hlaupinu —
en síðar játaði hann að hafa þá þeg-
ar verið farinn að nota ólögleg lyf
sér til hjálpar, og því var gullið tek-
ið af honum. Það er einnig eftirminni-
legt frá mótinu á Ítalíu þegar Gio-
vanni Evangelistis sveif 7,91 metra
í langstökki - en málband landa hans
sýndi hins vegar 8,38, einhverra
hluta vegna (!). Það var sem betur
fer leiðrétt.
Austantjaldslöndin, í fyrri mynd,
tóku þátt í HM í síðasta skipti í
Tókíó 1991, og kvöddu hinir frábæru
íþróttamenn Sovétríkjanna með því
að vinna níu gullverðlaun, níu silfur
og ellefu brons. Og í Stuttgart fyrir
tveimur ámm voru það Kínvetjar
sem stálu senunni. Stúlkumar komu,
sáu - og hlógu að andstæðingunum
í hlaupunum.
Það er oft gaman að láta hugann
flögra til baka, en nútíðin er það sem
skiptir máli. Og hér í Gautaborg
hafa íþróttamenn úr Karíbahafínu
aldeilis sýnt hvað í þeim býr. Gull,
silfur og brons er nú þegar í vörslu
Jamaíkabúa, gull og silfur eign Ba-
hama-eyinga, tvenn silfurverðlaun
farin til Kúbu, silfur til Bermúda og
ein bronsverðlaun til hvorrar litlu
eyjanna, Dominika og Trinidad og
Tobago.
Aötrúa
íslendingarnir hafa ekki verið
áberandi og svo sem fáir sem bjugg-
ust við því. En það verður að viður-
kennast að í flestum tilvikum mátti
eiga von á betri árangri. Martha
Ernstsdóttir var að hlaupa langt frá
sínum bestu tímum, Vésteinn Haf-
steinsson kastaði mun styttra en
hann hefur verið að gera í sumar,
Jón Arnar Magnússon var óheppinn
í tugþrautinni en Guðrún Arnardóttir
stóð sig vonum framar í 400 m
grindahlaupi. Hún sagðist fyrir mót-
ið helst ekki vilja fara, því hún væri
ekki í nægilega góðri æfíngu. En
fijálsíþróttaforystan talaði hana til,
tímar hennar vom reyndar ekki sér-
lega góðir en hún komst í undan-
úrslit. Þó það hafi verið „algjör grís“,
eins og hún sagði sjálf, má segja að
hún hafi. staðið sig vel miðað við
aðstæður og hlotið dýrmæta reynslu
fyrir Ólympíuleikana. Þegar upp er
staðið var því hárrétt af henni að
vera með. Og andlega hliðin er í lagi
hjá henni; Guðrún sagði menn verða
að vera stolta og trúa á sjálfa sig.
Þetta er rétta hugarfarið, og hvers
vegna skyldu íslendingur ekki ein-
hvern tíma vinna til verðlauna á
heimsmeistaramóti eða Ólympíuleik-
um? Menn verða auðvitað að trúa
því að þeir geti staðið sig, eins og
Guðrún segir, annars geta þeir hætt
í íþróttum. í fyrradag eignuðust Sýr-
lendingar fyrsta HM-gull sitt og hafa
þeir ekki verið taldir til stórþjóða á
íþróttasviðinu, frekar en við.
Sigurður Einarsson keppti í gær,
síðastur íslendinga. Miðað við hvern-
ig hann og aðrir höfðu verið að kasta
í sumar, áttu ekki að vera miklar
líkur á að hann kæmist áfram, og
sú varð raunin.
Aö vera eöa ekki vera
Sex íslendingar komu, fimm voru
með en einn ekki. Pétur Guðmunds-
son vildi helst ekki, frekar en Guð-
rún, koma til Gautaborgar en var
valinn og varð því að fara. Hann
meiddist á HM innanhúss fyrr á ár-
inu, taldi sig ekki orðinn góðan og
í öðru upphitunarkasti tóku meiðslin
sig upp, höndin bólgnaði og útilokað
var fyrir hann að kasta. Því er spurn-
ing hvort rétt hafi verið að senda
hann á staðinn, en hafa verður í
huga að Pétur er fráleitt eini kepp-
andinn sem mætti til leiks án þess
að vera viss um að verða með. „Hann
hefur verið að kasta um 20 metra á
æfingum, að vísu með hendina teip-
aða [vegna meiðslanna, en það má
ekki í keppni] og því vildum við láta
reyna á það hvort hann gæti verið
með vonuðum að hann yrði tilbú-
inn,“ sagði Gísli Sigurðsson, annar
þjálfara liðsins hér á HM.
Það er hluti af íþróttakeppni að
tapa. Það auðvitað ekkert gaman að
sjá sitt fólk reyna án þess að ná sér
á á strik og smeykur er ég um að
margir íslendingar séu svekktir með
árangurinn hér. En því má ekki
gleyma — sé það einhveijum huggun
— að ísiensku keppendurnir eru ekki
þeir einu sem hafa ekki náð að sína
sitt besta. Þjóðveijar, sem hafa ætíð
átt geysilega sterka menn í fjölþraut-
um, urðu t.d. að sætta sig við að
allir sex þrautakóngar þeirra — þijár
stúlkur í sjöþraut og þrír karla í tug-
þraut — hættu keppni. Og vert er
að geta þess að Sabine Braun, ein
sú besta í bransanum, hætti í kúlu-
varpinu og þar með sjöþrautinni,
vegna samskonar handarmeiðsla og
voru að angra Pétur Guðmundsson.
Þá má ekki gleyma að heimamenn
hafa ekki haft ástæðu til að fagna
vemlega þó sumir hafi haldið að
möguleikar væru á verðlaunapen-
ingi. Svo reyndist hins vegar ekki
vera.
Gwen Torrence grét á blaða-
mannafundi í gær, daginn eftir að
hún fagnaði innilega sigri í 200 m
hlaupinu en var dæmd úr leik fyrir
að stíga á línu og Maria Mutola, sem
á sjöunda besta tíma sögunnar í 800
m hlaupi, gerði sig seka um það
sama í þeirri grein í gær og var líka
dæmd úr leik. Stjörnumar geta
nefnilega líka gert mistök.
En tárin þorna og lífíð heldur
áfram. Ég sagði áðan að nútíðin
væri það sem skipti máli. Hún gerir
það, núna, en strax á morgun verðui
framtíðin komin efst í huga þeirra
sem hér taka þátt. Staðreyndin er
sú að þó heimsmeistaramót sé stór-
viðburður, er annað mikilvægara í
hugum íþróttamannanna, rnargra í
það minnsta og líklega allra; Ólymp-
íuleikarnir. Þeir em toppurinn og sú
framtíð sem byijað verður að hugsa
um strax annað kvöld. Allir hér vilja
verða hluti þeirrar framtíðar næsta
sumar í Atlanta. Þá verður engin
spuming um að vera eða ekki vera.
Skapti Hallgrímsson.