Morgunblaðið - 12.08.1995, Síða 4
Norski um-
boðsmað-
urinn í bann
FRJALSIÞOTTIR / HM I GAUTABORG
Sigurður Einarsson kastaði 74,10 og var langt frá því að komast áfram
.............................................«
Féll á eigin bragði
SIGURÐUR Einarsson kastaði
spjótinu aðeins 74,10 metra í
undankeppninni á heimsmeist-
aramótinu í gærmorgun, varð
í 23. sæti og langt frá því að
komast áfram. Hann hafði
lengst kastað 80,06 metra í ár,
í Bikarkeppni FRI, en segir und-
irbúning sinn fyrir keppnina
hér í Gautaborg hafa raskast
vegna ýmissa smá kvilia.
Heimsmethafinn Jan Zelezny
frá Tékklandi kastaði lengst
allra, 90,12, sem er nýtt heims-
meistaramótsmet. Því náði
hann í annarri umferð en strax
f þeirri fyrstu hafði Þjóðverjinn
Boris Henry kastað 87,60 sem
þá var mótsmet. Keppendur
þurftu að kasta 82 metra til að
komast áfram, því náðu aðeins
sjö, en tólf fóru í úrslit — síð-
astur áfram var Svíinn Dag
Wennlund, með kast upp á
79,00 metra í þriðju og síðustu
tilraun.
Sigurður, sem varð í sjötta sæti
á heimsmeistaramótinu í
Tókíó fyrir fjórum árum og fimmti
á Ólympíuleikunum
í Barcelona árið eft-
ir, sagðist að sjálf-
sögðu ekki ánægður
með frammistöðuna
í gær. „Ég vissi svo sem að þetta
gat farið upp eða niður frá því sem
ég hef verið að gera. Ég gat ekki
hagað undirbúningnum eins og ég
vildi; gat ekki tekið nógu margar
gæðaæfingar — snerpuæfingar og
þess háttar — vegna ýmissa smá
kvilla. Ég meiddist fyrst svolítið úti
í Bandaríkjunum og svo aftur í Bik-
arkeppninni, þegar ég var með í
þrístökkskeppninni. Ég hefði ekki
átt að vera með í henni — og stekk
aldrei aftur þrístökk!" sagði Sigurð-
ur við Morgunblaðið í Gautaborg í
gær.
Meiðsli í hásin og hné
Sigurður er meiddur í fótum,
bæði í hásin og hné, og sagðist
hafa verið „að drepast í löppunum"
þegar hann kastaði í gær. Hann
sagðist hafa verið að kasta mjög
vel á æfingum undanfarið, reyndar
betur en nokkru sinni fyrr. Vegna
meiðslanna hefði hann þurft að hita
mjög vel og lengi upp, í það færi
talsverður kraftur en samt sem
Skapti
Hallgrímsson
skrífar frá
Gautaborg
Mynd/Göran HagerQord
SIGURÐUR Einarsson ræðlr við þjálfarana Gísla Slgurðsson og Þráln Hafstelnsson
eftlr spjótkastskeppnina á HM í Gautaborg í gærmorgun.
fyrir því að ég fór ekki betur í gang var hins
vegar sú að upphitunin var ekki nóg. Það má
því segja að ég hafi fallið á eigin bragði.“ Hann
sagðist hafa þurft um það bil mánuði í viðbót
til að ná sér algjörlega góðum af „kvillunum",
eins og hann kallaði þá; þetta væru eymsli sem
varla væri hægt að kalla meiðsli en væru þó
nóg til að hann gæti ekki æft eins og æskilegt
væri. „Krafturinn er nægur, hausinn í lagi en
það vantar gæðin í köstin — tæknin er ekki
góð, því ég hef ekki getað æft hana nógu mik-
ið. Þetta er auðvitað algjörlega sjálfum mér að
kenna að ég kastaði ekki lengra, en fall er farar-
heill,“ sagði Sigurður, og er greinilega farinn
að hugsa um Olympíuleikana í Atlanta næsta
sumar.
Þeir bestu
Heimsmethafinn Zelezny kastaði lengst í gær
sem fyrr segir, en alls voru sex sem köstuðu
yfir 82 metra línuna í B-riðli, þar sem Sigurður
var meðal keppenda, en aðeins einn í A-riðli. Það
var Mick Hill frá Bretlandi með 88,54 en úr
B-riðli voru það Zelezny, Boris Henry með 87,60,
Andrej Moruyev Rússlandi með 85,60, Steve
Backley Bretlandi 83,20, Seppo Raty Finnlandi
82,42 og Júrí Rybin Rússlandi 82,14. Áfram
komust einnig Aki Parviainen Finnlandi (80,98),
Dag Wennlund Svíþjóð (79,00), Andreas Lánden
Þýskalandi (80,16), Raymond Hecht Þýskalandi
(79,82) sem á lengsta kast ársins - 92,60 og
Harri Hakkarainen Finnlandi (79,66).
Úrslitin í spjótkasti verða á morgun, sunnudag.
NORSKI umboðsmaðurinn
Rune Hauge má ekki koma
nálægt leikmannasölum og
-kaupum þar til mál hans
hefur verið rannsakað til hlít-
ar. Alþjóða knattspymusam-
bandið, FIFA, tilkynnti þetta
i gær en gat þess jafnframt
að leyfí hans sem umboðs-
manns yrði ekki afturkallað
og hann yrði áfram á lista
þjá FIFA á meðan málið væri
í rannsókn.
Ákvörðunin var tekin í
kjölfar framburðar Hauges
þegar Knattspyrnusamband
Englands rannsakaði meint-
ar ólöglegar greiðslur Norð-
mannsins til Georges Gra-
hams vegna leikmannakaupa
Arsenal sem leiddu til þess
að Graham var bannað að
hafa afskipti af knattspyrnu
í eitt ár eða til 30. júní á
næsta ári.
Knattspyrnusamband Eng-
lands fann Graham sekan um
að hafa þegið 435.000 pund
(um 47 miiy. kr.) frá umboðs-
manninum þegar hann keypti
Norðmanninn Pal Lydersen
og Danann John Jensen til
Arsenal fyrir milligöngu
Hauges. Graham, sem þá var
yfirþjálfari Arsenal, neitaði
að hafa hagnast persónulega
á viðskiptunum og sagðist
hafa skilað umræddri upp-
hæð til Arsenal.
Arangurinn
Spjótkastskeppnin — 82 m kast tryggðu mönnum
í úrslit, en annars fóru tólf þeir bestu í úrslitin:
1. Jan Zelezny (Tékklandi) .............90.12
2. Boris Henry (Þýskalandi) ............87.60
3. Andrei Moruyev (Rússlandi)............85.60
4. Mick Hill (Bretlandi).................83.54
5. Steve Backley (Bretlandi)............83.20
6. Seppo Raty (Finnlandi)................82.42
7. Yuri Rybin (Rússlandi)...............82.14
8. Aki Parviainen (Finnlandi) ...........80.98
9. Andreas Linden (Þýskalandi)...........80.16
10. Raymond Hecht (Þýskalandi)............79.82
11. Harri Hakkarainen (Finnlandi).........79.33
12. DagWennlund (Svíþjóð).................79.00
13. V. Sasimovich (H-Rússlandi)...........78.94
14. Vladimir Ovchinnikov (Rússlandi)....78.28
15. Patrik Boden (Svíþjóð)................77.62
16. Andrew Currey (Ástralía)..............76.84
17. Emeterio Gonzalez (Kúbu)..............76.54
18. GregorHogler(Austurríki)..............76.40
19. Tom Pukstys (Bandar.).................76.12
20. Gavin Lovegrove (N-Sjálandi) .........74.98
21. Terry McHugh (írlandi)................74.58
22. Kenneth Petersen (Danmörku)...........74.22
23. SIGURÐUR EINARSSON....................74.10
24. Phllip Spies (S-Afríka)...............74.06
25. Vladimir Parfyonov (Uzbekistan).......73.64
26. Fikret Ozsoy (Tyrklandi) .............73.50
27. Ivan Mustapic (Króatfu) ..............73.12
28. Edgar Baumann (Paraguay)..............72:90
29. Ed Kaminski (Bandar.).................71.92
30. Viktor Zaytsev (Uzbekistan) ..........71.08
31. Alexander Fingert (ísrael)............70.94
32. Kim Ki-hoon ((S-Kóreu) ...............70.20
33. Juan De La Garza (Mexíkó).............70.20
34. Kazuhiro Mizoguchi (Japan)............68.66
35. Fredericus Mahuse (Indonesía).........68.18
36. Femando Palomo (E1 Salvador).....-....62.90
Donald Sild (Eistlandi)..............gerði ógilt
hefði hann kastaði langt. Kraftur-
inn væri nægur um þessar mundir
og þegar hann væri kominn í gang
á æfingnm hefði honum gengið vel.
Sigurður sagði engu að síður að
vegna meiðslanna hefði hann jafn-
vel verið að hugsa um að keppa
ekki. „En svo ákvað ég að slá til.
Það er ýmislegt sem betur hefði
mátt fara, en stefnan verður að
laga það fyrir Ólympíuleikana —
og það klikkar ekki!“
Ónóg upphitun
Undanfarna daga hefur Sigurð-
ur hvílt sig vel, að eigin sögn, „og
ég hélt að hvíldin gerði það að
verkum að ég þyrfti ekki að hita
eins mikið upp og ég hef þurft að
gera undanfarið. En aðalástæðan
KNATTSPYRNA / MUTUR
Enn ásakanir á hendur Marseille
FRANSKA dagblaðið Le Monde
greindi frá þvi í gær að Mar-
seille hefði mútað dómara fyrir
leik gegn AEK Aþena í Evrópu-
keppni meistaraliða 1. nóvember
1989 og vitnaði í framburð króa-
tíska umboðsmannsins Ljubomirs
Barins í yfirheyrslum máli sínu
til staðfestingar. „Ég hjálpaði
honum [dómaranum] fjárhags-
lega,“ var haft eftir Barin en
Marseille vann 2:0 í fyrri leiknum
og gerði síðan 1:1 jafntefli í
Aþenu. Barin sagði að dómarinn,
sem hefði látist úr krabbameini
1991, hefði verið góður vinur sinn
en hann hefði unnið þjá austur-
rísku póstþjónustunni og átt í
fjárhagslegum erfiðleikum. Að
sögn blaðsins sagði Barin jafn-
framt fyrir réttí að starfsmenn
franska knattspyrnuliðsins hefðu
beðið sig um að láta dómarann
fá peninga en Bernhard Tapie,
forseti Marseille, hefði lagt á
ráðin. Tapie sagði að ásakanir
Barins væru hlægilegar. „Við
vorum með besta lið i heimi og
þurftum ekki að borga fyrir sig-
ur gegn Aþenu,“ var haft eftir
Tapie í Le Monde. Fyrr í vikunni
höfðu ítölsk blöð eftir franska
miðhetjanum Jean-Pierre Papin
að Marseille hefði mútað tveimur
leikmönnum AC Milan fyrir úr-
slitaleikinn í Evrópukeppni
meistoraliða 1993 en franska lið-
ið var sett í bann í Evrópukeppni
og dæmt niður í 2. deild í Frakk-
landi eftír að hafa verið fundið
sekt um að hafa haft áhrif á úr-
slit í deildarleik gegn Valencien-
nes með ólöglegum hættí
skömmu áður.