Morgunblaðið - 13.08.1995, Síða 24
24 B SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
i
ATVIN WWAUGL ÝSINGAR
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á Heimaey VE 1.
Þarf að hafa réttindi fyrir 995 kw.
Upplýsingar í síma 481-1104.
ísfélag Vestmannaeyja hf.
íþróttakennarar
Staða íþróttakennara við Grunnskóla
Fáskrúðsfjarðar er laus til umsóknar.
Ódýrt húsnæði og flutningsstyrkur.
Upplýsingar gefur Guðmundur
Þorsteinsson, skólastjóri, í símum 475 1159
og 475 1224.
Snælandsskóli
Kennarar
I Snælandsskóla vantar kennara til að kenna
heimilisfræði næsta skólaár.
Nýtt og gott skólaeldhús.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
554-4911.
Norður-Þýskaland
„Au pair“ óskast til Norður-Þýskalands
1. september ’95 í 6 mánuði.
Vinnuskylda: 3-5 tímar á dag (5 daga vikunnar)
Húsverk + hundur + hestar = vinna.
Kjör: herbergi með sjónvarpi, fæði, bíll, trygg-
ingar, vasapeningar DM 400, reiðtúrar (ís-
lenskir hestar). Ökuskírteini nauðsynlegt.
Sími/fax: 00 49 41887745.
Landsbókasafn
íslands
- Háskólabókasafn
auglýsir lausa til umsóknar stöðu forstöðu-
manns myndastofu. Krafist erfagmenntunar
í Ijósmyndun, auk verulegrar starfsreynslu á
því sviði. Ráðið er í starfið frá 1. október.
Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skulu sendar landsbókaverði,
Landsbókasafni (slands - Háskólabókasafni,
Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, fyrir 10. sept-
ember 1995.
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn.
11. ágúst 1995.
Starfskraftur
Við óskum að ráða heiðarlegan, handlaginn
og þjónustulipran einstakling í heilsdagsstarf
hjá traustu fyrirtæki í örum vexti.
Um er að ræða mjög sérhæft, ábyrgðarmik-
ið og fjölhæft starf sem krefst mikillar verk-
lagni á verkstæði og í verslun okkar, ásamt
útkallsvinnu.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi
skilyrði:
Geta unnið sjálfstætt og hafa frumkvæði.
Algjör reglusemi og stundvísi skilyrði.
Gott mannorð og hreint sakavottorð.
Hafa ökuréttindi.
Verða að vera búsettir á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu.
Einungis er um að ræða framtíðarstarf.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Umsóknir með helstu upplýsingum um fjöl-
skylduhagi, menntun og fyrri störf, ásamt
meðmælum, óskast sendar til afgreiðslu
Mbl. fyrir 21. ágúst, merktar: „N - 1621“
Óska eftir vinnu
hef víðtæka reynslu af eigin rekstri, al-
mennri trésmíði, skipasmíði og búrekstri.
Margt kemur til greina.
Tilboð eða nafn sendist afgreiðslu Mbl.,
merkt: „G - 49“
Starfsfólk
Óskum að ráða starfsfólk sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefnar í versluninni Evu,
Laugavegi 42, kl. 18-19 mánud. 14. ágúst,
ekki í síma.
Eva
Barngóð manneskja
Óskum að ráða manneskju til að gæta eins
árs stúlku og sinna léttum heimilisstörfum
frá 1. sept. Búum á Seltjarnarnesi.
Upplýsingar í síma 551 7106.
Skrifstofustarf
Óskum að ráða duglega manneskju til al-
mennra skrifstofustarfa. Góð ensku-, bók-
halds- og tölvukunnátta æskileg.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Mbl.,
merktar: „E - 11116“.
Mjólkurfræðingar
Mjólkursamlag á landsbyggðinni óskar að
ráða mjólkurfræðing til starfa. Umsóknir
sendist til skrifstofu Mjólkurfræðingafélags
íslands, Þarabakka 3, Reykjavík,
fyrir 23. ágúst nk., merktar: M - 100.
Barngóð og reyklaus
manneskja óskast til að koma í heimahús í
norðurbæ Hafnarfjarðar í vetur til að gæta
tveggja stúlkna, 1 árs og 6 ára, 3-5 morgna
í viku. Létt heimilisstörf.
Upplýsingar í síma 555 4351.
Sölumaður óskast
Útgáfufyrirtæki óskar að ráða hugmyndarík-
an sölumann nú þegar. Starfsreynsla æski-
leg.
Svör sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 20. ágúst
nk., merkt: „Áreiðanlegur - 16116“.
Tónmenntakennarar
Við Barnaskóla Vestmannaeyja er laus staða
tónmenntakennara. Um er að ræða 100%
stöðu auk þess að æfa skólakórinn.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
481-1944 og heima 481-1898.
Atvinnurekendur -
verkfræðistofur
Byggingatæknifræðingur með góða reynslu
í útboðum, tilboðum, eftirliti og umsjón með
verklegum framkvæmdum, óskar eftir at-
vinnu. Hlutastarf eða einstök verkefni koma
einnig til greina.
Tilboð sendist afgreiðslu Mbl., merkt:
„S - 10896“.
Blómabúð
-blómaskreytingar
Óska eftir starfskrafti í blómabúð. Einungis
fólk vant blómaskreytingum kemur til greina.
Umsóknir sendist afgr. Mbl., merktar: „B -
2“.
„Au pair“
Íslensk/bandarísk fjölskylda með tvö skólabörn
í Flórída óskar eftir “au pair“ frá október ’95
til júlí ’96. Reyklaus, með bílpróf og eldri en
20 ára.
Upplýsingar gefnar í síma 568-6052, ekki
seinna en 15. ágúst.
(formax)
FORMAX HF. MÝRARGATA 2,101 REYKJAVÍK
Óskum eftir
að ráða starfsmann við ryðfría smíði.
Aðeins vanur maður kemur til greina.
Upplýsingar hjá Formax hf. í síma 562 6800.
Starf á ferða-
skrifstofu
laust á næstunni. Gott tækifæri fyrir dugleg-
an starfskraft með reynslu til að bæta kjör
sín í áhugaverðu starfi. Færni á tölvur áskil-
in. Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Sendið
umsókn með mynd og greinargóðum upplýs-
ingum til afgreiðslu Mbl.,
merkta: „Atvinna - VISTA 1995“.
Öllum umsóknum verður svarað.
Auðar h a r a ldS''-—
Brautarholti 30.
Danskennaranemar
Óskum að ráða tvo nema frá 1. sept. nk.
Undirstaða í samkvæmisdönsum nauðsynleg.
Upplýsingar í síma 565 6522.
M
Sérkennari í
Digranesskóla
Vegna veikindaforfalla vantar sérkennara í
Digranesskóla í Kópavogi tímabundið.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 554 0290
Starfsmannastjóri.
Sölumaður
fiskiskipa
Skipasala í Reykjavík óskar eftir að ráða
mann til starfa við sölu fiskiskipa. Þarf að
geta unnið sjálfstætt. Enskukunnátta skil-
yrði. Þekking á íslenskum sjávarútvegi og
fiskiskipum áskilin.
Umsóknir er hafi að geyma upplýsingar um
menntun og fyrri störf, berist afgreiðslu
Mbl.fyrir29. ágústnk. merktar: „A- 11671“.