Morgunblaðið - 15.08.1995, Page 1
100 SÍÐUR B/C/D
182. TBL. 83. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Flóttamenn frá Banja Luka segjast hafa búið við ömurlegar aðstæður og kúgun Serba
Lokaáfangi þjóð-
emishreinsana
hafinn í Bosníu
Zagreb, Washington. Reuter, The Daily Telegraph.
KROATISKIR flóttamenn byrjuðu í gær að
streyma frá borginni Banja Luka og sögðust
embættismenn Sameinuðu þjóðanna óttast að
síðasti áfangi „þjóðernishreinsana" í átök-
unum í fyrrverandi Júgóslavíu væri að hefj-
ast. Talið er að allt að 30 þúsund Króata sé
að finna í Banja Luka og 25 þúsund múslima.
í stríðsbyrjun bjuggu 500 þúsund Króatar og
múslimar í borginni.
Alls fóru 600 Króatar frá borginni í gær
og var fólkið flutt af Serbum að bökkum árinn-
ar Sava fyrir norðan Banja Luka og látið
greiða 100 þýsk mörk fyrir að fá að fara yfir
ána. Er rúmlega hundrað flóttamenn höfðu
farið yfir Sava við landamæri Króatíu og
Bosníu bönnuðu Serbar karlmönnum yngri en
45 ára að yfirgefa Banja Luka. Nokkru síðar
féllu þeir þó frá þeirri ákvörðun. Flóttamenn
segjast hafa verið reknir frá heimilum sínum
er Serbar á flótta frá Krajina-héraði komu til
Banja Luka. Líklegt er talið að þúsundir flótta-
manna muni fara frá Banja Luka á næstu
dögum.
Þijú ár eru síðan Serbar náðu borginni á
sitt vald og segja flóttamenn aðstæður Króata
og múslima hafa verið ömurlegar. Oðrum en
Serbum hafí verið neitað um vinnu og jafnvel
bannað að ganga á götum úti og sækja kirkju.
Reuter
ELDRI kona er borin á þurrt land eftir
að hafa siglt yfir ána Sava til Króatíu.
Talsmaður Bandaríkjaforseta sagði í gær
að Bandaríkjastjórn liti tillögu Rússa um al-
þjóðlega ráðstefnu til að leysa Júgóslavíudeil-
una jákvæðum augum og að hún yrði tekin
til skoðunar. Bandaríkjastjórn hefur mótað
tillögur til lausnar deilunni og hóf Richard
Holbrooke, aðstoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, ferð til Króatíu, Bosníu og Serbíu í
gær. Ekki hefur verið gert opinbert hvað felst
í tillögum Bandaríkjamanna. Litlar fregnir
berast af sókn stjórnarhersins í Mið-Bosníu,
sem hófst á laugardag. Herinn hefur lokað
átakasvæðinu og neitar fulltrúum fjölmiðla
og Sameinuðu þjóðanna um aðgang. Breskir
eftirlitsmenn í nokkurra kílómetra fjarlægð
fylgjast með stórskotaliðsárásum og sam-
kvæmt upplýsingum þeirra hafa múslimar
skotið þijú þúsund sprengikúlum að Donji
Vakuf frá því á laugardag. Þykir það benda
til þess að stjórnarherinn njóti aðstoðar króat-
ískra sveita, sem eru betur búnar þungavopn-
um en stjórnarherinn.
Hernaðarsérfræðingar SÞ telja að hugsan-
lega sé það markmið stjórnarhersins að ná
bænum Jajce á sitt vald en þar er rafstöð sem
sér meðal annars Banja Luka fyrir rafmagni.
Nái Bosníumenn Jajce verður það mikilvæg-
asti áfangasigur þeirra frá upphafi átakanna.
■ Ágreiningur um refsiaðgerðir/18
Hussein hvetur til breytinga
Amninn. Thp Dnilv Telecrranh. Rpiifpr ^
Amman. The Daily Telegraph, Reuter.
HUSSEIN Jórdaníukonungur sagði
í gær að nú væri rétti tíminn til breyt-
inga í Bagdad, en Sharif Zeid Bin
Shaker, forsætisráðherra landsins,
sagði hins vegar á þingi landsins að
Jórdanía yrði ekki bækistöð þeirra,
sem vildu gera írökum mein. Flokkur
íraskra stjórnarandstæðinga sagði í
gær að hafnar væru hreinsanir í
Bagdad.
„Nú er rétti tíminn til breytinga,
en ekki er hægt að segja til um [hve-
nær þær verða],“ sagði Hussein í
viðtali við ísraelska dagblaðið Yedi-
oth Ahronoth. „Komi til breytinga
verður það aðeins til góðs.“
„Við vorum að velta því fyrir okk-
ur hvenær Hussein konungur myndi
Vilja ekki
feitar
konur
Róm. The Daily Teleg[raph.
YFIRVÖLD í ferðamannabæn-
um Diano Marina á Ítalíu
hyggjast setja bann við því að
feitar og ófríðar konur „mis-
bjóði fegurðarskyni" bæjarbúa
með því að ganga um götur
bæjarins í bikinísundfötum.
Samkvæmt nýju reglunum
geta lögreglumenn bæjarins
stöðvað og sektað konur stand-
ist þær ekki átta af tíu skilyrð-
um sem sett verða.
Elio Novaro aðstoðarbæjar-
stjóri sagði að feitar konur
gætu sýnt líkama sinn á strönd-
inni, en öðru máli gegndi um
götur bæjarins. Stefano Zecc-
hi, kennara í fagurfræði við
katólska háskólann í Mílanó,
yrði falið að setja reglur um
málið.
Lögmaður ítölsku neytenda-
samtakanna sagðist í gær ætla
að höfða mál á hendur öllum
er reyndu að takmarka rétt
fólks til að ganga um í bikiníi.
Stj órnarandstaðan kveður
hreinsanir hafnar í Bagdad
taka af skarið," sagði vestrænn
stjórnarerindreki og kvað ólíklegt að
leiðtogi Jórdaníu myndi gefa út yfir-
lýsingu af þessu tagi að ástæðulausu.
Bin Shaker forsætisráðherra sagði
hins vegar að Jórdanir væru ákveðn-
ir í að skaða ekki samskipti íraka
og Jórdana þótt þeir hafi veitt
tengdasonum Saddams Husseins,
forseta íraks, hæli í síðustu viku
ásamt fylgdarliði þeirra. Þingmenn
hafa gagnrýnt þá ákvörðun að leyfa
öðrum tengdasonanna, Hassan Ka-
mel Hussein, að halda blaðamanna-
fund um helgina þar sem hann hvatti
til þess að Saddam yrði steypt úr
stóli.
Jórdanar voru mjög tregir til að
snúast á sveif gegn Irökum eftir inn-
rás þeirra í Kúveit og það er fyrst
nú að samskipti þeirra við önnur ríki
í Persaflóa mega teljast við það að
verða eðlileg.
Dr. Hamid al-Bayati, fulltrúi
stjórnarandstöðuflokks í Irak, sagði
í London í gær að írösk stjórnvöld
hefðu handtekið tíu háttsetta yfir-
menn úr hernum í kjölfarið á flótta
tengdasonanna, þ. á m. tvo hershöfð-
ingja. Einnig hefðu tugir lægra
settra yfirmanna hersins verið
hnepptir í fangelsi.
„Saddam er að reyna að fangelsa
hvern þann, sem gæti fylgt eða stutt
Hussein Kamel, vegna þess að Huss-
ein Kamel bað herinn að láta til skar-
ar skríða gegn Saddam," sagði Bay-
ati.
Kúveitar sögðu í gær að Hussein
Kamel bæri ekki að treysta og þing-
maður einn sagði að hann væri ekk-
ert annað en „annar Saddam“.
■ írakar segja flóttamenn/18
Fellibylur
í aðsigi
FELLIBYLURINN Felix mun
ganga yfir Bermúda í dag og
farið var að hvessa verulega á
suðurströnd eyjunnar siðdegis
í gær. Þrátt fyrir þessa vægast
sagt óhagstæðu veðurspá fer
fram þjóðaratkvæðagreiðsla í
dag um það hvort Bermúda eigi
að sækjast eftir sjálfstæði frá
Bretlandi. Felix færist í norð-
vesturátt og hefur verið gefin
út stormviðvörun fyrir austur-
strönd Bandaríkjanna i dag.
■ Þjóðaratkvæðagreiðsla/18
Norskur gísl drepinn í Kasmír
Kröfu mannræn-
ingjanna hafnað
Srinajar, Nýju Delhí, fslamabad. Reuter.
STJORN Indlands sagði í gæf að
ekki kæmi til greina að verða við
kröfum mannræningja í Kasmír um
að láta fanga lausa í skiptum fyrir
vestræna gísla. Einn gíslanna, 27
ára Norðmaður, fannst myrtur á
sunnudag og lík hans var fært til
krufningar í Nýju Delhí í gær.
Norðmaðurinn, Hans Christian
Ostra, var afhöfðaður og mannræn-
ingjarnir hótuðu að drepa fjóra
aðra gísla innan tveggja daga ef
Indverjar slepptu ekki 15 aðskiln-
aðarsinnum frá Kasmír úr fang-
elsi. Tveir gíslanna eru Bretar en
hinir frá Bandaríkjunum og Þýska-
landi. Bandarískir embættismenn
hafa sagt að ekki komi til greina
að verða við kröfu mannræningj-
anna.
Indverska stjórnin er undir mikl-
um þrýstingi að koma í veg fyrir
að fleiri gíslar verði drepnir og
milligöngumaður hennar ræddi við
fulltrúa mannræningjanna í gær.
Stjórnin hefur íhugað möguleika á
hernaðaraðgerðum til að bjarga
gíslunum en indverskir embættis-
menn segja það hættulega lausn.
Embættismaður í Nýju Delhí sagði
að slíkar aðgerðir gætu leitt til
„mikils blóðbaðs".
Drápið fordæmt
Yfirvöld í Kasmír sögðust ætla
að halda áfram að freista þess að
ná samkomulagi við mannræningj-
ana, sem eru í óþekktri hreyfingu
sem nefnist Al-Faran. Einn af
leiðtogum múslimskra aðskilnaðar-
sinna í Kasmír fór hörðum orðum
um drápið og lofaði því að láta
hengja mannræningjana ef þeir
reyndust Kasmírbúar.
■ Norðmaður fórnarlamb/19
Reuter