Morgunblaðið - 15.08.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1995 17
FRÉTTIR: EVRÓPA
Netscape: CBI.htm s
©Kk { . { Hom* I | krwtgpnt | Of>»n { Frtnt { FM j 0 | m
löísttsn; }r«Up,//ww J*/C61 .Mffi
Vti.t'sNív?! Vhat’sCwl?! HKKlWk 1 l**t$.afeh 1 N*t pr.ctorgl 1
o
• Las Carl Bildts oxfcífess.
♦ Under den hír rubriken finns
. fiSlLMliUía: avCarl Bildt.
s : ja pl Carl Bildt
* Du kan sjálv konlakta Carl Bildt.
Skicka
etl
—----------
SÆNSKI Hægriflokkurinn hefur komið sér upp sérstakri heima-
síðu á Internetinu þar sem hægt er að kynna sér stefnumál
flokksformannsins, Carls Bildt, og leggja spurningar fyrir vænt-
anlega Evrópuþingmenn flokksins. Netfangið er
http://www.moderat.se/CBl .htm.
Sænsku kosningamar til Evrópuþingsins
Sótt að jafnaðar-
mönnum frá
hægri og vinstri
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SÆNSKIR kjósendur þurfa ekki
aðeins að ákveða hvaða flokk þeir
kjðsa til Evrópuþingsins 17. sept-
ember, heldur einnig hvort þeir styðji
andstæðinga eða stuðningsmenn að-
ildar. Listamir bera þess merki að
sumir flokkanna eru enn klofnir í
afstöðunni, þrátt fyrir ESB-aðildina.
Um helgina kynnti Hægriflokkurinn
stefnu sína, sem meðal annars er
innlimun Austur- og Mið-Evrópu í
ESB, aukin tengslin við önnur lönd
eins og Rússland, Úkraínu og fyrrum
Júgóslavíu og sameiginleg utanríkis-
og öryggisstefna ESB til að tryggja
frið í Evrópu.
Flokkarnir bjóða fram lista, en auk
þess geta kjósendur krossað við
frambjóðendur. Framkvæmdin er þó
flókin og ókjör þarf af persónulegum
atkvæðum til að hrófla við röðinni á
listunum. Flokkarnir leggja því litla
áherslu á einstaka frambjóðendur,
heldur er megináherslan á ESB-
stefnu flokkanna almennt.
Það getur hins vegar vafist fyrir
kjósendum hvað þeir eru að kjósa
um, þar sem bæði Miðflokkur Olofs
Johannsons og Jafnaðarmannaflokk-
urinn bjóða fram fleiri en einn lista,
með blöndu stuðningsmanna og and-
stæðinga ESB. Hægriflokkurinn
biðlar því ákaft til kjósenda, sem eru
stuðningsmenn ESB, en hugsa sér
að kjósa þessa klofnu flokka, því eina
leiðin til að koma á framfæri styrkri
sænskri rödd. í ESB sé að kjósa
Hægriflokkinn. Þjóðarflokkurinn er
einnig eindreginn stuðningsflokkur
ESB-aðildar en leggur meiri áherslu
á efnahagsmálin og heldur uppi svip-
uðum málflutningi.
Á vinstrivængnum heija Vinstri-
flokkurinn og Umhverfisflokkurinn,
sem báðir eru á móti ESB-aðild og
hvetja kjósendur Miðflokksins og
Jafnaðarmannaflokksins að kjósa
sig, til að tryggja að atkvæði þeirra
gagnist í ESB-andstöðunni. Áróð-
urinn á báða bóga gæti orðið blóð-
taka fyrir Mið- og Jafnaðarmanna-
flokkinn. Samkvæmt skoðanakönn-
un sænska blaðsins „Expressen" og
Gallup, sem birt var á laugardaginn,
hefur Vinstriflokkurinn nú stuðning
15,4 prósenta kjósenda, sem er al-
gjört met og Jafnaðarmannaflokkur-
inn 34 prósent. í þingkosningunum
í haust fengu þessir flokkar 6,2 og
45,3 prósent. Áðrir flokkar sveiflast
minna.
Hægrimenn vilja styrkari
utanríkis- og varnarstefnu
Hægriflokkurinn kynnti um helg-
ina stefnuskrá sína, um leið og lagt
var af stað í fundaferð um landið
undir forystu Carls Bildts, formanns
flokksins og málamiðlara ESB í Bos-
níudeilunni. Helstu stefnumál flokks-
ins eru útvíkkun ESB í austurátt og
tengslin við ríki, sem áður voru innan
Sovétríkjanna, öflugri varnar- og
utanríkisstefna sambandsins og bætt
samkeppnisstaða fyrirtækja til að
draga úr atvinnuleysi innan ESB.
Einnig hvetur fiokkurinn til aukins
lögreglusamstarfs til að spyrna gegn
dreifingu eiturlyfja og samstarfs í
málefnum flóttamanna og í umhverf-
ismálum, sem Hægriflokkurinn hefur
annars ekki sinnt mikið.
Hægriflokkurinn nýtir sér sátta-
semjarastarf Bildts og þá athygli sem
það hefur vakið, auk þess sem Bildt
undirstrikar að til að ESB geti tekist
á við slík verkefni sé nauðsynlegt
að efla samstarfið, en ekki draga úr
því. Þar sem Jafnaðarmannaflokkur-
inn kynnir ekki stefnuskrá sína fyrr
en í lok vikunnar hefur Hægriflokk-
urinn nokkurn veginn sviðið fyrir
sig. Kosningaátökin munu fyrst og
fremst verða milli þessara tveggja
stærstu flokka nú líkt og í landsmál-
unum.
Rætt við Marokkó
Brusscl. Reuter.
FULLTRÚAR Marokkó og Evrópu-
sambandsins sátu á samningafund-
um alla seinustu helgi í sjöttu lotu
viðræðna um nýjan sjávarútvegs-
samning. Héldu þær áfram í gær.
Fulltrúar ESB eru vongóðir um
árangur í þessari lotu, sem geri
yfir 700 fiskiskipum ESB, einkum
spænskum, kleift að halda aftur til
veiða í marokkóskri landhelgi í
septembermánuði, eftir sumar-
langa landlegu. Framkvæmda-
stjórn ESB hélt fund með fulltrúum
aðildarríkjanna í gærmorgun um
stöðu viðræðnanna. Framkvæmda-
stjórnin lagði hins vegar ekki fram
nýjar tiliögur eftir fundinn, eins og
búizt hafði verið við, og er talið að
þess sé beðið að Emma Bonino,
yfirmaður sjávarútvegsmála í
stjórninni, komi úr sumarleyfi á
miðvikudag.
//
(^sCjim y-Citaveitu rJ(eylgamlQir tiC fiamingju með
nífja
starfsmannadúsið á 9\[esjavöCCum.
‘ÞöCjjum gott samstarf
Húsanes hf. byggingaverktaki,
Iðavöllum 13A, Keflavík.
TEG: T.ELITE
mjúk millistff hörð
Twin
TwinXL
Full
FullXL
Queen
97x190,5 kr. 80.510,-
97x203
135x190,5
135x203
152x203
Cal.king 183x203
Kíng 193x203
85.550,
91.250,
96.280,
101.810,
136.880,
136.880,
73.970,-
79.010,-
83.870,-
88.900,
93.760,
128.150,
128.150,
67.580,
72.160, -
76.580,
81.160,
85.680,
117.190,-
117.190,-
TEG:LEXUS millistíf hörð
Twin 97x190,5 kr. 63.240,- 60.670,-
TwinXL 97x203 68.270,- 65.010,-
Full 135x190,5 73.970,- 72.130,-
FullXL 135x203 77.160,- 75.530,-
Queen 152x203 84.970,- 83.490,-
Cal.king 183x203 117.920,- 113.390,-
King 193x203 117.920,- 113.390,-
TEG: AZTEC millistíf
Twin 97x190,5 kr. 48.640,-
TwinXL 97x203 53.680,-
Full 135x190,5 57.200,-
FullXL 135x203 62.230,-
Queen 152x203 67.260,-
Cal.king 183x203 89.070,-
King 193x203 89.070,-
TEG: TRANQILITY millistíf
Twin 97x190,5 kr. 52.610,-
TwinXL 97x203 57.520,-
Full 135x190,5 60.820,-
FullXL 135x203 65.850,-
Queen 152x203 71.790,-
Cal.king 183x203 94.710,-
King 193x203 94.710,-
TEG: EURO hörð
Twin 97x190,5 kr. 42.100,-
TwinXL 97x203 47.130,-
Full 135x190,5 50.490,-
FullXL 135x203 55.520,-
Queen 152x203 58.370,-
Cal.king 183x203 86.220,-
King 193x203 86.220,-
ÞAÐ ER SVO EINFALT
m PkB ERí DÝMáN SEMI SWPTW MÁU
Mest selda ameriska
dýnaa á tslandi
KONXJNGLEG
LIÐAN
Verslun með amerískar lúxusdýnur
Húsgagnahöllinni
S: 587 1199 - Bíldshöfði 20-112 Reykjavík
Þegar þú ákveður að kaupa þér amerískt rúm skaltu koma til okkar
og prófa hvort þér líkar millistíf, hörð eða mjúk dýna. 65 ára reynsla
við dýnuframleiðslu hefur kennt SERTA heilmikið um það hvernig dýna
verður fullkomin. SERTA dýnan sameinar frábær þægindi, góðan
stuðning og langa endingu. Við eigum Serta dýnurnar alltaf til á lager
og þeim fylgir allt að 20 ára ábyrgð.
* öll dýnuverð miðast við dýnur á ramma