Morgunblaðið - 15.08.1995, Page 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Lokið við bílageymslur
og lóðarf rágang
á Völundarlóðinni
ÞÁTTASKIL urðu fyrir skömmu í
byggingaframkvæmdum á Völ-
undarlóðinni svonefndu á horni
Klapparstígs og Skúlagötu, er lok-
ið var við bílageymslur .þar og
garð ofan á þaki þeirra. Bílastæði
fyrir 120 bíla eru í bílageymslun-
um, það er eitt fyrir hverja íbúð,
en bílageymslunum er skipt í tvo
hluta með álíka mörgum stæðum
í hvorum hluta.
Ekið er inn í bílageymslumar
að norðanverðu frá Skúlagötunni
sitt hvoru megin við aðal uppgöngu
að íbúðunum. Einnig var lokið við
að setja upp lyftur í tvö stigahús
og gengið frá ýmsum minni háttar
lagfæringum, þannig að nú er sam-
eignin fullfrágengin.
Bílageymslumar eru nú tilbúnar
og fullfrágengnar, það er málaðar
með slökkvikerfi, reykræstikerfí
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
2. flokki 1993
2. flokki 1994
Innlausnardagur 15. ágúst 1995.
1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 873.685 kr. 87.368 kr. 8.737 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 771.356 kr. 77.136 kr. 7.714 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.531.652 kr. 153.165 kr. 15.317 kr.
2.flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.423.707 kr. 142.371 kr. 14.237 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.282.849 kr. 1.256.570 kr. 125.657 kr. 12.566 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.796.376 kr. 1.159.275 kr. 115.928 kr. 11.593 kr.
2. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.401.518 kr. 1.080.304 kr. 108.030 kr. 10.803 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
Kfcl HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900
og öllum öryggisbúnaði, sem til
þarf. Sérstakt myndavélakerfi
verður sett upp til þess að vakta
þær. Á þaki bílageymslnanna hefur
verið gerður garður með trjáplönt-
um og hringtorgi, en innkeyrsla
þangað er frá Klapparstíg.
Vel staðið að verki
— Samvinna milli verktaka og
undirverktaka hafa verið mjög
góð, sagði Ásmundur Ingvarsson
hjá verkfræðistofunni Ferli, sem
var eftirlitsaðili með þessum fram-
kvæmdum fyrir hönd húsfélagsins.
— Verkið hefur gengið nokkurn
veginn samkvæmt áætlun, þrátt
fyrir erfiðleika af völdum veðurs á
síðasta vetri.
Að mínu mati hefur verið staðið
að þessu verki með sérstaklega
glæsilegum hætti og meira lagt í
lóðarfrágang og aðrar fram-
kvæmdir en upphaflega var áform-
að, þegar fyrst var byijað á bygg-
ingaframkvæmdum á þessari lóð.
Það er sameiginlegt húsfélag
allra íbúðareigenda á lóðinni, sem
stóð að þessum framkvæmdum,
en verktaki var Sveinbjörn Sig-
urðsson hf. Undirverktakar voru
Blikksmiðjan hf, sem sá um loft-
ræstilagnir, Rafsýn hf., sem ann-
aðist raflagnir og Sveinn Jóhanns-
son pípulagningameistari. Jón Júl-
íus Elíasson garðyrkjumeistari sá
um lóðarfráganginn ofan á þakinu,
en Ragnhildur Skarphéðinsdóttir
landslagsarkitekt hannaði garðinn.
Nú er aðeins eftir að reisa eitt
fjölbýlishús á Völundarlóðinni, en
það mun standa við Klapparstíg
7. Framkvæmdir eru þegar hafn-
ar, en í þessu húsi verða 20 íbúðir
og eru nokkrar þeirra þegar seld-
ar. Gert er ráð fýrir, að húsið verði
steypt upp í vetur og íbúðirnar
væntanlega tilbúnar til afhending-
ar á miðju næsta ári.
Byggingaraðili er Sveinbjörn
Sigurðsson hf. og hefur hann þeg-
ar lokið við bílageymslurnar fyrir
JUiin K- Bfc. I X'.Tk
TasT 3 ÍSRÍ |£ 5T SSSJ!
Á ÞAKI bílageymslnanna er búið að gera garð. Á myndinni eru
talið f.v.: Þorsteinn Einarsson, formaður húsfélagsins, Ásmundur
Ingvarsson, verkfræðingur og SveinbjörnSveinbjörnsson verktaki.
Morgublaðið/Kristinn
BÍLASTÆÐI fyrir 120 bíla eru í bílageymslunum, það er eitt
fyt-ir hverja íbúð, en bílageymslunum er skipt í tvo hluta og eru
álíka mörg stæði í hvorum.
þessar íbúðir. Hönnuðir þessa fjöl-
býlishúss sem annarra húsa á Völ-
undarlóðinni eru arkitektarnir
Guðni Pálsson og Dagný Helga-
dóttir.
Miklum áfanga lokið
— Það er miklum áfanga lokið
með þessum framkvæmdum, en
þær hafa kostað um 100 millj.
kr., sagði Þorsteinn Einarsson, for-
maður húsfélagsins. — Nú höfum
við íbúðareigendurnir lokið við allt,
sem að okkur snýr og erum búnir
að losa okkur út úr gjaldþroti
Steintaks hf., sem upphaflega stóð
að þessum framkvæmdum.
En þetta hefur verið dýrt spaug.
Margir af íbúðareigendunum eru
búnir að borga fyrir þessar fram-
kvæmdir tvisvar sinnum. Þeir
borguðu Steintaki fyrir þær upp-
haflega og þegar ekki varð af
framkvæmdum af þess hálfu, varð
að fá aðra til að vinna verkið. Þá
þurftu íbúðareigendumir að borga
fyrir framkvæmdimar aftur.
— Sennilega hafa um sjötíu fjöl-
skyldur orðið fyrir veralegum fjár-
hagslegum skakkaföllum af þess-
um sökum eða að meðaltali um
1,5 millj. kr. hver fjölskylda, sagði
Þorsteinn ennfremur. — Það má
því segja, að gjaldþrot Steintaks á
sínum tímá hafi verið meiri háttar
félagslegt slys.
Húsbréfaviðskipti
Hjá okkur nýtur þú ávallt
hagstæðs verðs
og góðrar ráðgjafar
í húsbréfaviðskiptum.
Vettvangur húsbréfaviðskipta.
L
Landsbanki
íslands
0
LANDSBRÉF HF.
Löggilt veröbréfafyrirtœki.
Aöili aö Veröbréfaþingi íslands.
Undsbrcf hf. eru viðskiptavaki húsbrcfa
skv. scrstökum samningi við Húsnæðisstofnun ríkisins.
Fasteignasölur í
blabinu í dag
Agnar Gústafsson bls. 6
Ás bls. 9
Ásbyrgi bls. 22
Berg bis. 25
Borgareign bls. 1 0
Borgir bls. 17
Eignamiðlun bls. 9 og 17
Eignasalan bls. 10
Fasteignamarkaður bls. 7
Fasteignamiðlun bls. 28
Fasteignamiðstöðin bis. 26
Fold bls.14 og 15
Framtíðin bls. 23
Gimli bls. 3
Hátún bls. 8
Hóll bls. 18 og 19
Hraunhamar bls. 12
Huginn bls. 25
Húsakaup bls. 17
Húsvangur bls. 11
íbúð • bls. 19 og 22
Kjöreign bls. 5
Laufás bls. 23
Óðal bis. 6
Sef bls. 19
Séreign bls. 20
Skeifan bls. 4
Stakfell bls 23
Valhöll bls. 21
Valhús bis. 20
Þingholt bls. 13