Morgunblaðið - 15.08.1995, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.08.1995, Qupperneq 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ Lokið við bílageymslur og lóðarf rágang á Völundarlóðinni ÞÁTTASKIL urðu fyrir skömmu í byggingaframkvæmdum á Völ- undarlóðinni svonefndu á horni Klapparstígs og Skúlagötu, er lok- ið var við bílageymslur .þar og garð ofan á þaki þeirra. Bílastæði fyrir 120 bíla eru í bílageymslun- um, það er eitt fyrir hverja íbúð, en bílageymslunum er skipt í tvo hluta með álíka mörgum stæðum í hvorum hluta. Ekið er inn í bílageymslumar að norðanverðu frá Skúlagötunni sitt hvoru megin við aðal uppgöngu að íbúðunum. Einnig var lokið við að setja upp lyftur í tvö stigahús og gengið frá ýmsum minni háttar lagfæringum, þannig að nú er sam- eignin fullfrágengin. Bílageymslumar eru nú tilbúnar og fullfrágengnar, það er málaðar með slökkvikerfi, reykræstikerfí Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1989 1. flokki 1990 2. flokki 1990 2. flokki 1991 3. flokki 1992 2. flokki 1993 2. flokki 1994 Innlausnardagur 15. ágúst 1995. 1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 873.685 kr. 87.368 kr. 8.737 kr. 1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 771.356 kr. 77.136 kr. 7.714 kr. 2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.531.652 kr. 153.165 kr. 15.317 kr. 2.flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.423.707 kr. 142.371 kr. 14.237 kr. 3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.282.849 kr. 1.256.570 kr. 125.657 kr. 12.566 kr. 2. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.796.376 kr. 1.159.275 kr. 115.928 kr. 11.593 kr. 2. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.401.518 kr. 1.080.304 kr. 108.030 kr. 10.803 kr. Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. Kfcl HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900 og öllum öryggisbúnaði, sem til þarf. Sérstakt myndavélakerfi verður sett upp til þess að vakta þær. Á þaki bílageymslnanna hefur verið gerður garður með trjáplönt- um og hringtorgi, en innkeyrsla þangað er frá Klapparstíg. Vel staðið að verki — Samvinna milli verktaka og undirverktaka hafa verið mjög góð, sagði Ásmundur Ingvarsson hjá verkfræðistofunni Ferli, sem var eftirlitsaðili með þessum fram- kvæmdum fyrir hönd húsfélagsins. — Verkið hefur gengið nokkurn veginn samkvæmt áætlun, þrátt fyrir erfiðleika af völdum veðurs á síðasta vetri. Að mínu mati hefur verið staðið að þessu verki með sérstaklega glæsilegum hætti og meira lagt í lóðarfrágang og aðrar fram- kvæmdir en upphaflega var áform- að, þegar fyrst var byijað á bygg- ingaframkvæmdum á þessari lóð. Það er sameiginlegt húsfélag allra íbúðareigenda á lóðinni, sem stóð að þessum framkvæmdum, en verktaki var Sveinbjörn Sig- urðsson hf. Undirverktakar voru Blikksmiðjan hf, sem sá um loft- ræstilagnir, Rafsýn hf., sem ann- aðist raflagnir og Sveinn Jóhanns- son pípulagningameistari. Jón Júl- íus Elíasson garðyrkjumeistari sá um lóðarfráganginn ofan á þakinu, en Ragnhildur Skarphéðinsdóttir landslagsarkitekt hannaði garðinn. Nú er aðeins eftir að reisa eitt fjölbýlishús á Völundarlóðinni, en það mun standa við Klapparstíg 7. Framkvæmdir eru þegar hafn- ar, en í þessu húsi verða 20 íbúðir og eru nokkrar þeirra þegar seld- ar. Gert er ráð fýrir, að húsið verði steypt upp í vetur og íbúðirnar væntanlega tilbúnar til afhending- ar á miðju næsta ári. Byggingaraðili er Sveinbjörn Sigurðsson hf. og hefur hann þeg- ar lokið við bílageymslurnar fyrir JUiin K- Bfc. I X'.Tk TasT 3 ÍSRÍ |£ 5T SSSJ! Á ÞAKI bílageymslnanna er búið að gera garð. Á myndinni eru talið f.v.: Þorsteinn Einarsson, formaður húsfélagsins, Ásmundur Ingvarsson, verkfræðingur og SveinbjörnSveinbjörnsson verktaki. Morgublaðið/Kristinn BÍLASTÆÐI fyrir 120 bíla eru í bílageymslunum, það er eitt fyt-ir hverja íbúð, en bílageymslunum er skipt í tvo hluta og eru álíka mörg stæði í hvorum. þessar íbúðir. Hönnuðir þessa fjöl- býlishúss sem annarra húsa á Völ- undarlóðinni eru arkitektarnir Guðni Pálsson og Dagný Helga- dóttir. Miklum áfanga lokið — Það er miklum áfanga lokið með þessum framkvæmdum, en þær hafa kostað um 100 millj. kr., sagði Þorsteinn Einarsson, for- maður húsfélagsins. — Nú höfum við íbúðareigendurnir lokið við allt, sem að okkur snýr og erum búnir að losa okkur út úr gjaldþroti Steintaks hf., sem upphaflega stóð að þessum framkvæmdum. En þetta hefur verið dýrt spaug. Margir af íbúðareigendunum eru búnir að borga fyrir þessar fram- kvæmdir tvisvar sinnum. Þeir borguðu Steintaki fyrir þær upp- haflega og þegar ekki varð af framkvæmdum af þess hálfu, varð að fá aðra til að vinna verkið. Þá þurftu íbúðareigendumir að borga fyrir framkvæmdimar aftur. — Sennilega hafa um sjötíu fjöl- skyldur orðið fyrir veralegum fjár- hagslegum skakkaföllum af þess- um sökum eða að meðaltali um 1,5 millj. kr. hver fjölskylda, sagði Þorsteinn ennfremur. — Það má því segja, að gjaldþrot Steintaks á sínum tímá hafi verið meiri háttar félagslegt slys. Húsbréfaviðskipti Hjá okkur nýtur þú ávallt hagstæðs verðs og góðrar ráðgjafar í húsbréfaviðskiptum. Vettvangur húsbréfaviðskipta. L Landsbanki íslands 0 LANDSBRÉF HF. Löggilt veröbréfafyrirtœki. Aöili aö Veröbréfaþingi íslands. Undsbrcf hf. eru viðskiptavaki húsbrcfa skv. scrstökum samningi við Húsnæðisstofnun ríkisins. Fasteignasölur í blabinu í dag Agnar Gústafsson bls. 6 Ás bls. 9 Ásbyrgi bls. 22 Berg bis. 25 Borgareign bls. 1 0 Borgir bls. 17 Eignamiðlun bls. 9 og 17 Eignasalan bls. 10 Fasteignamarkaður bls. 7 Fasteignamiðlun bls. 28 Fasteignamiðstöðin bis. 26 Fold bls.14 og 15 Framtíðin bls. 23 Gimli bls. 3 Hátún bls. 8 Hóll bls. 18 og 19 Hraunhamar bls. 12 Huginn bls. 25 Húsakaup bls. 17 Húsvangur bls. 11 íbúð • bls. 19 og 22 Kjöreign bls. 5 Laufás bls. 23 Óðal bis. 6 Sef bls. 19 Séreign bls. 20 Skeifan bls. 4 Stakfell bls 23 Valhöll bls. 21 Valhús bis. 20 Þingholt bls. 13

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.