Morgunblaðið - 15.08.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.08.1995, Qupperneq 1
KNATTSPYRNA ♦ em 1995 ÞRIÐJUDAGUR 15.AGUST BLAÐ Rútur úr leik í bili EYJAMAÐURINN Rútur Snorrason, leikmaður með 21 árs landsliðinu, lenti í samstuði við Há- kon Sverrisson leikmann Breiðabliks í leik lið- anna á laugardaginn og tognaði við það illa á fæti. Fóturinn bóignaði strax upp og ekki hægt að greina hvort um brot eða tognun væri að ræða svo að Rútur yar strax fluttur með sjúkra- bíl að sjúkrahús. „Ég brotnaði ekki heldur togn- aði illa og er enn svo bólginn að það er ekki hægt að segja hve slæm tognunin er,“ sagði Rútur í gærkvöldi. „Ég leik ekki með gegn Sviss og vafi hvort ég missi ekki af næstu tveimur leikjum en þegar bólgan minnkar skerst úr um hvað ég á langt í land.“ Vestmannaeyingar eiga tvo heimaleiki fram- undan — gegn og Fram. Freddy Rincon til Real Madrid REAL Madrid festi í gær kaup á Freddy Rinc- on, landsliðsmiðherja Kólumbíu, sem hefur leik- ið með Napolí á Ítalíu. Rincon skrifaði undir þriggja ára samning. Hann er einn af fimm Suður-Ameríkumönnum í herbúðum Real. Þjálf- ari er Jorge Valdano frá Argentínu og tveir landar hans eru liðsmenn — Juan Esnaider og Femando Redondo. Mesti markaskorari liðsins er Chile-maðurinn Ivan Zamorano. Sosa er kominn til Dortmund ÞÝSKU meistararnir Dortmund fengu liðsstyrk í gær, þegar Ruben Sosa, landsliðsmiðherji Uruguay, var keyptur frá Inter Mílanó á 126 miljj. ísl. kr. Sosa mun leika sinn fyrsta leik í kvöld, þegar Dortmund leikur bikarleik gegn utandeildarliðinu Pfeddersheim. Hann er sjöundi leikmaðurinn hjá Dortmund, sem kemur frá lið- um á Ítalíu. Blackburn fær Matt Holmes KENNY Dalglish, framkvæmdastjóri Blackburn, festu kaup á miðvaliarspilaranum Matt Holmes frá West Ham á 1,2 milj. punda í gær. Black- burn lét West Ham frá ástralska landsliðsmann- inn Robbie Slater, sem mun hitta fyrir landa sinn þjá West Ham — Stan Lazarides, sem kem- ur frá East Adelaide. Á suðumarki í Krikanum ÞAÐ var allt komið á suðu- mark undir lokin á leik FH og í A á Kaplakrikavellinum í Hafnarfirði, þegar Auðun Helgason sparka tvívegis í bakið á Sigurði Jónssyni sem Iá á jörðinni. Hér sækja Bjarki Pétursson (13) og Dejan Stojic að Auðuni, sem er fyrir aftan Bjarka. Egill Már Markússon, dómari, Stefán Arnaldsson, markvörður FH og Arnar Viðarsson (3) stöðva Stojic. Dómarar stóðu í ströngu í 1. deildarkeppninni um helgina og sýndu fimrn leikmöimum rauð spjöld. 1. deildarumsögn er á C3,C4,C5,C14. OLYMPIULEIKARNIR I ATLANTA 1996 Líklega breytt dagskrá vegna Michael Johnsons Primo Nebiolo, forseti Alþjóða frjálsíþróttasambandsins, IA- AF, gaf á sunnudag sterklega til kynna að dagskrá Ólympíuleik- anna í Atlanta næsta sumar verði breytt til að Bandaríkjamaðurinn Michael Johnson eigi niöguleika á að keppa um gullverðlaunin í 200 metra og 400 metra hlaupi. Undanfarin misseri hefur John- son reynt að hafa áhrif á IAAF og Alþjóða ólympíunefndina, IOC, til að dágskrá leikanna verði breytt svo hann eigi möguleika á sigri í báðum fyrrnefndum greinum. Nebiolo sagði í síðustu viku að erf Johnson sigraði í þessum hlaupagreinum á HM í Gautaborg kæmi til greina að IAAF sam- þykkti breytingu á dagskrá Ólymp- íuleikanna og í fyrradag sagði hann að dagskráin yrði endurskoð- uð. „Ég held að dæmið gangi upp,“ sagði Johnson eftir fund með Ne- biolo á laugardag. „Fundur okkar var mjög góður.“ Johnson, sem er 27 ára, sigraði glæsilega í þessum greinum á HM í Gautaborg en hann hefur bent á að ómögulegt sé að reyna slíkt á Ólympíuleikun- um í Atlanta því greinarnar skar- ist eins og skipulagið er nú. Fyrr á árinu sagði IAAF að ekki væri hægt að breyta dag- skránni en barátta Johnsons og árangur hans hefur greinilega haft áhrif. Eins er vitað að skipuleggj- endur leikanna í Atlanta eru á hans bandi. ALLT UM HM í FRJÁLSÍÞRÓTTUM í GAUTABORG / C6,C7,C8,C9,C10,C15

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.