Morgunblaðið - 17.08.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
D
1995
FIMMTUDAGUR 17.ÁGÚST
BLAD
FIFA sendi Sviss
heillaóskir fyrir
íslandsferð
„VIÐ sendum ykkur okkar bestu hugsanir og
heillaóskir fyrir íslandsferðina.“ Á þessa leið
hljómaði skeyti sem fararstjóra svissneska sam-
bandsins barst þremxu- dögum fyrir leikinn gegn
íslendingum, sem væri ekki í frásögur færandi
nema fyrir það að skeytið er undirritað af for-
seta alþjóða knattspymusambandsins, dr. Joao
Havelange, aðstoðar framkvæmdastjóra og fjár-
málastjóra sambandsins og fleirum. „Þetta er
smekklaust bréf og jaf ngildir því að ég færi að
senda öðru liðinu sem keppir í úrslitum bikar-
keppninnar heiUaóskir með von um gott gengi
í leiknum. Eg er bara alveg gáttaður yfir þessu,“
sagði Eggert Magnússon, formaður KSÍ þegar
Morgunblaðið náði tali af honum í gær. „Ég hef
ekki fengið svona skeyti fyrir íslands hönd með
sambærilegum óskum,“ bætti hann við.
KNATTSDYRNA
Ásgeir Elíasson, þjálfari: „Við náðum okkureinfaldlega ekki á strik"
Fyrra
markið
var
slæmt
„ VIÐ vorum ekki í jafnvægi í
upphafi leiksins og það varð
okkur að falli,“ sagði Ásgeir
Elíasson, þjálfari islenska liðs-
ins eftir leikinn í gærkvöldi.
„Fyrra markið var slæmt og
síðan var spurning um hvort
annað markið væri löglegt, það
má alltaf ræða það. Eftir það
jafnaðist leikurinn og við náð-
um okkur aldrei á strik að þessu
sinni. Þeir léku góða vörn og
okkur gekk illa að skapa okkur
færi upp við mark þeirra, því
miður, svo þar við sat að þessu
sinni.
Mínir menn lögðu sig fram í
leiknum fyrir utan augnablikið
í upphafi leiks, en það dugði
ekki að þessu sinni. Ég held að
spennan og væntingar hafi ekki
farið með okkur að þessu sinni.
Þeir hlutir voru ekkert meiri
nú en oft áður. Við náðum okk-
ur einfaldlega ekki á strik og
því fór sem fór.“
Við áttum að geta
gert miklu betur
„Við fengum skell í byrjun,
fengum markið á okkur — það
sló okkur út af laginu. Það
breytir hins vegar ekki því að
áttum að geta gert miklu betur,
það er engin spurning," sagði
Ólafur Þórðarson. „I fyrri hálf-
leik vorum við að gefa þeim
alltof mikið pláss til að athafna
sig á vellinum og okkur tókst
ekki lagfæra það. Við áttum að
skora mark þegar líða tók á
hálfleikinn en það tókst ekki.
Þá var dómarinn slakur og það
varð ekki til að gera hlutina
betri.
Liðið fór í leikinn með réttu
hugarfari og menn voru stað-
ráðnir í að gera sitt besta, okk-
ur tókst ekki að sýna það og
því miður var þetta langt í frá
okkar dagur að þessu sinni.“
Þungbúið, en
sólíhjarta
- sagði Roy Hodgson, þjálfari Svisslendinga, ánægðurað leikslokum
Roy Hodgson þjálfari Svisslendinga
var að vonum ánægður eftir sigur-
inn. „Ég sagði fyrir leikinn að íslending-
ar léku skipulega og við reyndum að
gera slíkt hið sama í kvöld og ég held
að okkur hafi tekist vel til. Hér áttust
við tvö skipulögð lið,“ sagði Hodgson.
„Ég dáist að íslenska liðinu. Það lend- ■
ir 0:2 undir eftir tuttugu mínútna leik
og heldur samt áfram að berjast og
komst vel inn í leikinn er líða tók á og
gerði okkur erfítt fyrir. Flest lið í Evr-
ópu hefðu gefist upp eftir að liafa lent
tveimur mörkum undir svo snemma leiks,
en ekki íslendingar. Ég lagði mikla
áherslu á það við strákana í leikhléi að
varast baráttu íslendinganna og sem
betur fer héldu þeir vöku sinni.
Staða okkar hefur óneitanlega lagast
mikið núna. Þessi leikur- var mjög mikil-
vægur fyrir okkur og ef við hefðum tap-
að hefði verið þungbúið hjá okkur, svip-
að og veðrið hér á Laugardalsvelli. En
þess í stað er nú sól í hjarta okkar eins
og vera ber eftir sigurleik. Við erum í
mjög þægilegi-i stöðu, þurfum bara eitt
stig til viðbótar til að komast áfram og
ég held að það sé nokkuð öruggt að við
náum því stigi,“ sagði hamingjusamur
þjálfari Sviss eftir leikinn.
Morgunblaðið/Golli
Skipu-
lagid
hélt
SVISSLEND-
INGAR léku
injög skipu-
lega gegn ís-
lendlngum,
sem átti erf-
itt með að
brjóta þá á
bak aftur.
Skagamenn-
Irnir Bjarki
Gunnlaugs-
son og Sig-
urður Jóns-
son, liggj-
andi á vell-
inum, höfðu
lítið að gera
í þessa fylk-
ingu Sviss-
lendinga.
Guðni
Bergsson er
í miðjum
hópi and-
stæðing-
anna.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR: TVÖ GLÆSILEG HEIMSMET Á GULLMÓTI í ZURICH / D4